Fréttablaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 2
2 31. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ������������������������ ������������������������������������������������������������������ ���� ����� ����� � ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn hafa undirritað viljayfirlýsingu um meirihlutasamstarf á Akranesi. Málefnasamningur er í vinnslu. Gísli S. Einarsson verður nýr bæj- arstjóri á Akranesi. Karen Jónsdóttir verður nýr formaður bæjarráðs: „Ég var tví- stígandi um að komast inn en þegar ég sá tölurnar í kosningun- um á laugardag sá ég að allt gæti gerst. Það eru heldur betur spenn- andi tímar framundan.“ Einn og hálfur mánuður er síðan Frjáls- lyndi flokkurinn var stofnaður á Akranesi. Karen þakkar kjósend- um stuðninginn. - gag Nýr meirihluti á Akranesi: Gísli S. verður nýr bæjarstjóri SAMKEPPNI Félag íslenskra bif- reiðaeigenda, FÍB, vill að Sam- keppniseftirlitið kanni hvort olíu- félögin þrjú; Essó, Skeljungur og Olís, brjóti samkeppnislög þar sem þau hafi lækkað álagningu á dísil- olíu en hækkað hana á bensíni. Hörð samkeppni um dísilkaupend- ur sé á kostnað eigenda bensínbif- reiða. Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri FÍB, segir samtökin telja brotin sambærileg því sem kom upp í Svíþjóð, þegar sam- keppniseftirlitið þar sektaði olíu- félög fyrir ólöglegt samráð, er þau veittu kaupendum meðal annars afslátt á kostnað viðskiptavina sem keyptu aðrar vörur. „Ég tel eðlilegt að skoðað verði hvort svo sé hér.“ Samtökin hafa skoðað álagn- ingu á dísilolíu og bensíni. Sam- kvæmt gögnum þeirra hefur álagn- ing á bensíni hækkað um tvær krónur en lækkað um fimm krónur á dísilolíu, séu fyrstu mánuðir 2005 bornir við þá fyrstu á þessu ári. „Við ætlum að senda gögnin okkar til Samkeppniseftirlitsins til umsagnar,“ segir Runólfur. „Við höfum áður komið fram með ábendingar þegar okkur hefur fundist þróun á álagningu vera í óeðlilega átt.“ Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segist ekki hafa séð gögnin frá samtökunum en erindið frá FÍB verði skoðað sem önnur. - gag Segir olíufélög mæta samkeppni um sölu á dísilolíu með hærra bensínverði: Olíufélög enn sögð brjóta lög RUNÓLFUR ÓLAFSSON Framkvæmdastjóri FÍB telur að hækkuð álagning á bensíni beri herkostnað af samkeppni með dísilolíu. SPURNING DAGSINS Ólafur, er Villi svona frjálslyndur? „Já, að minnsta kosti er hann frjálsleg- ur í túlkun þegar kemur að tilboðum og loforðum.” Ólafur F. Magnússon, oddviti Frjálslynda flokksins, sakaði Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita Sjálfstæðisflokksins, um svik við sig þegar hann myndaði meirihlutastjórn með Framsóknarflokknum meðan Ólafur taldi þá Vilhjálm eiga í samningaviðræðum. BAUGSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur varð í gær við kröfu verjanda sakborninga í Baugsmálinu að fengnir verði dómkvaddir menn til þess að meta sönnunargildi eða fals- leysi tölvupósts, sem lagður er fram sem málsgögn. Um er að ræða hundruð tölvu- bréfa sem að einhverju leyti var aðeins að finna í tölvu Jóns Geralds Sullenberger, sem upphaflega lagði fram kæru í Baugsmálinu en er nú meðal sakborninga. Matsmenn hafa áður kannað uppruna tölvupóstsins að beiðni saksóknara, en hann hefur þrjá daga til þess að kæra úrskurðinn í gær til Hæstaréttar. - jh Falsleysi Baugsgagna mælt: Tölvupóstur metinn aftur KVIKMYNDIR Norsk-íslenska kvik- myndin Den Brysomme Mannen, eða Uppáþrengjandi maðurinn, hlaut gagnrýnendaverðlaun á kvik- myndahátíðinni í Cannes á sunnu- dag. Að sögn Ingvars Þórðarsonar, sem er annar íslensku meðfram- leiðandanna ásamt Júlíusi Kemp, hefur fyrirtækið Plan B sem er í eigu Brad Pitts sóst eftir því að fá leyfi til að endurgera myndina á ensku. „Þetta er afar mikill heiður og við erum í skýjunum með þetta,“ segir Ingvar. Myndin verður sýnd í íslenskum kvikmyndahúsum í haust. - jse Hlutu verðlaun í Cannes: Brad Pitt vill fá myndina FRUMSÝNING Framleiðendurnir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson með Valgerði Sverrisdóttur á frumsýningu í Cannes. STJÓRNMÁL Magnús Þór Hafsteins- son, varaformaður Frjálslynda flokksins, sagði á morgunvakt- inni á Rás 1 að Sjálfstæðisflokk- urinn hefði gert alvarleg og afdrifarík mistök þegar hann sleit viðræðum um meirihlutasam- starf með Ólafi F. Magnússyn hjá Frjálslynda flokknum í Reykja- vík. „Hafi Sjálfstæðisflokkurinn einhvern tímann haft tækifæri til þess að eiga einhvern möguleika á því að fá okkur úr Frjálslynda flokknum aftur inn í Sjálfstæðis- flokkinn þá gekk það tækifæri úr greipum í gær,“ sagði Magnús í gær. Spurður af Fréttablaðinu hverjir hefðu rætt við hverja svaraði Magnús: „Þetta hefur oft verið sagt við okkur þingmaður á þingmann og aðeins í óformleg- um samræðum. Ég var ekki að vísa til annars.“ Hann sagði einn- ig að Morgunblaðið hefði bent á að Frjálslyndi flokkurinn gæti reynst Sjálfstæðisflokknum skeinuhættur. Boð um samein- ingu hefði aldrei verið formlegt og ekki hugleitt af forystu Frjáls- lynda flokksins. Arnbjörg Sveinsdóttir, þing- flokksformaður Sjálfstæðis- flokksins, segir frjálslynda, sem og aðra sem aðhyllist stefnu flokksins, velkomna. „Menn ræða ýmislegt í spjalli sín á milli, en enginn minna þingmanna hefur rætt við mig um að þeir hefðu verið með sérstakar þreifingar í þessa átt. Þannig að þetta kom mér frekar á óvart, en eins og ég segi þá eru frjálslyndir sérstak- lega velkomnir vilji þeir fylgja okkar stefnu.“ - gag Sjálfstæðismenn og frjálslyndir hafa rætt sameiningu: Tækifæri úr sögunni VIÐSKIPTI Ný könnun markaðs- rannsókna- og greiningarfyrir- tækisins IDC sýnir að 57 prósent hugbúnaðar í tölvum íslenskra fyrirtækja er illa fenginn. Rann- sóknin náði ekki til einstaklinga. Á heimsvísu nemur hlutfall ólöglegs hugbúnaðar 35 prósent- um. Áætlað söluandvirði ólöglega hugbúnaðarins hér á ári hverju nemur hins vegar 18 milljónum bandaríkjadala, eða 1,3 milljörð- um króna. Ísland er í flokki með ríkjum Asíu og Mið- og Austur- Evrópu. „Mig hefði ekki órað fyrir þegar við byrjuðum að við værum svona aftarlega á mer- inni,“ segir Elvar Steinn Þorkels- son, framkvæmdastjóri Micro- soft Íslandi. - - óká / sjá Markaðinn Ólöglegur hugbúnaður: Ísland á bekk með Asíu BJÖRGUN Snjóflóð féll á fimm menn sem voru fótgangandi í suðurhlíð- um Hvannadalshnjúks í Öræfa- jökli um hádegisbil í gær, nánar tiltekið milli hnjúksins og Dyr- hamars. Mennirnir voru á leið á tind Hvannadalshnjúks í um 2.000 metra hæð þegar flóðið skall á þeim og runnu þeir með því um 300 metra leið niður hlíðina. Þrír mannanna meiddust; einn ökkla- brotnaði, annar viðbeinsbrotnaði og sá þriðji hlaut meiðsli í andliti. Tveir sluppu hins vegar ómeiddir. Allir voru mennirnir þrekaðir eftir að hafa lent í flóðinu og því talið nauðsynlegt að koma þeim til aðstoðar hið fyrsta. Mennirnir gátu gert vart við sig í gegnum endurvarpa björgunarsveitanna og náðu strax sambandi við Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustur. Boð voru send strax til Björgunar- miðstöðvarinnar í Reykjavík. Neyðarkall barst klukkan 12:30 og var þyrla Landhelgisgæslunn- ar, TF-LÍF, þegar kölluð út og fór hún í loftið klukkan 13:15. Eftir- litsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, var einnig send af stað með fimm fallhlífasveitarmenn frá Slysavarnarfélaginu Lands- björgu en vélin þjónaði einnig sem endurvarpsstöð fyrir fjarskipti. Björgunarsveitir af höfuðborgar- svæðinu héldu af stað austur á sex bílum, búnir til fjallabjörgunar en jökullinn er mjög sprunginn á þeim slóðum sem mennirnir voru. Björgunarsveitin á Höfn í Horna- firði hélt einnig þegar af stað á hnjúkinn með allt sitt lið, 25 björg- unarsveitarmenn á jeppum og vélsleðum. Þegar þyrlan kom að Hvanna- dalshnjúki komst hún ekki strax að mönnunum fimm vegna skyggn- is en svo rofaði til og sigmaður í áhöfn Lífar gat sigið niður á slys- staðinn. Þeir slösuðu voru hífðir um borð og fluttir til Hornafjarðar til aðhlynningar og síðan til Reykjavíkur með TF-SYN. Þeir lentu á Reykjavíkurflugvelli klukkan 18:30. Liðsmenn björgunar- sveitarinnar frá Höfn í Hornafirði og fallhlífarstökksveit Flugbjörg- unarsveitarinnar sáu um að koma þeim sem ekki slösuðust til byggða. Atli Freyr Þórðarson sem lenti í flóðinu segir að þeir félagar séu mjög auðmjúkir og þakklátir vegna þeirrar aðstoðar sem þeir fengu. „Það er ótrúlegt að eiga allt þetta stórkostlega fólk að. Þyrlu- sveitina og björgunarsveitarmenn og alla aðra sem geta hjálpað þegar svona stendur á.“ svavar@frettabladid.is Fallhlífasveit send til björgunarstarfa Mikill viðbúnaður var hjá Landhelgisgæslunni og Landsbjörgu í gær vegna fimm manna sem lentu í snjóflóði við Hvannadalshnjúk. Þrír mannanna meiddust aðeins lítillega en ljóst er að litlu mátti muna að illa færi. FAGNAÐARFUNDIR Atli Freyr Þórðarson fékk hlýjar móttökur hjá fjölskyldu sinni við komuna til Reykjavíkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Jónas Guðmunds- son, sem er með- limur Flugbjörg- unarsveitarinnar og tilheyrði fall- hlífastökksveitinni í mörg ár, segir að tvisvar áður hafi litlu munað að kraftar sveitarinn- ar væru nýttir. Svo vill til að í báðum tilfellum var það vegna björgunar- aðgerða við Hvannadalshnjúk. Jónas segir sveitina hafa verið við lýði í um tuttugu ár. „Við höfum þjálfað björg- unarstökkvara í um tuttugu ár. Þeir hafa farið á námskeið hjá bandaríska hernum og hjá sérsveitum danska hersins. Við eigum átta björgunar- fallhlífar og hátt í tuttugu menn sem eru sérþjálfaðir í hvaða aðstæðum sem þeir lenda í.“ - shá Fallhlífastökksveitin: Verið til taks í tuttugu ár Einar Rúnar Sigurðsson, fjalla- leiðsögumaður í Öræfum, var á jöklinum í gær en hann þekkir Öræfajökuls- svæðið mjög vel. Einar segir að göngumenn hefðu átt að vita að geysileg flóðahætta var á fjallinu. „Ég tók snjóflóðaprufu í fjórtán hundruð metra hæð og get sagt að það var þarna gífurleg snjóflóðahætta. Mikill nýfallinn snjór er ofan á eldri snjó, auk þess sem mjög var hlýtt á jökl- inum í gær, því var snjóflóðahættan augljós. Menn verða að bera virðingu fyrir fjallinu, meta aðstæður og fara varlega,“ segir Einar. - shá Einar Rúnar Sigurðsson: Snjóflóðahætt- an var augljósÁ REYKJAVÍKURFLUGVELLI Við komuna til Reykjavíkur biðu sjúkraflutningamenn og læknar þeirra sem höfðu slasast í snjóflóðinu á Hvannadalshnjúki. Jóhannes Magnússon er hér færður til aðhlynningar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA TILBÚINN Mart- einn Sigurðsson í fullum herklæð- um. MYND/MS EINAR RÚNAR SIGURÐSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.