Fréttablaðið - 31.05.2006, Side 2
2 31. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
������������������������
������������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkurinn
og Frjálslyndi flokkurinn hafa
undirritað viljayfirlýsingu um
meirihlutasamstarf á Akranesi.
Málefnasamningur er í vinnslu.
Gísli S. Einarsson verður nýr bæj-
arstjóri á Akranesi.
Karen Jónsdóttir verður nýr
formaður bæjarráðs: „Ég var tví-
stígandi um að komast inn en
þegar ég sá tölurnar í kosningun-
um á laugardag sá ég að allt gæti
gerst. Það eru heldur betur spenn-
andi tímar framundan.“ Einn og
hálfur mánuður er síðan Frjáls-
lyndi flokkurinn var stofnaður á
Akranesi. Karen þakkar kjósend-
um stuðninginn. - gag
Nýr meirihluti á Akranesi:
Gísli S. verður
nýr bæjarstjóri
SAMKEPPNI Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda, FÍB, vill að Sam-
keppniseftirlitið kanni hvort olíu-
félögin þrjú; Essó, Skeljungur og
Olís, brjóti samkeppnislög þar sem
þau hafi lækkað álagningu á dísil-
olíu en hækkað hana á bensíni.
Hörð samkeppni um dísilkaupend-
ur sé á kostnað eigenda bensínbif-
reiða.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir samtökin
telja brotin sambærileg því sem
kom upp í Svíþjóð, þegar sam-
keppniseftirlitið þar sektaði olíu-
félög fyrir ólöglegt samráð, er þau
veittu kaupendum meðal annars
afslátt á kostnað viðskiptavina
sem keyptu aðrar vörur. „Ég tel
eðlilegt að skoðað verði hvort svo
sé hér.“
Samtökin hafa skoðað álagn-
ingu á dísilolíu og bensíni. Sam-
kvæmt gögnum þeirra hefur álagn-
ing á bensíni hækkað um tvær
krónur en lækkað um fimm krónur
á dísilolíu, séu fyrstu mánuðir 2005
bornir við þá fyrstu á þessu ári.
„Við ætlum að senda gögnin
okkar til Samkeppniseftirlitsins til
umsagnar,“ segir Runólfur. „Við
höfum áður komið fram með
ábendingar þegar okkur hefur
fundist þróun á álagningu vera í
óeðlilega átt.“
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segist ekki
hafa séð gögnin frá samtökunum
en erindið frá FÍB verði skoðað
sem önnur. - gag
Segir olíufélög mæta samkeppni um sölu á dísilolíu með hærra bensínverði:
Olíufélög enn sögð brjóta lög
RUNÓLFUR ÓLAFSSON Framkvæmdastjóri
FÍB telur að hækkuð álagning á bensíni beri
herkostnað af samkeppni með dísilolíu.
SPURNING DAGSINS
Ólafur, er Villi svona
frjálslyndur?
„Já, að minnsta kosti er hann frjálsleg-
ur í túlkun þegar kemur að tilboðum
og loforðum.”
Ólafur F. Magnússon, oddviti Frjálslynda
flokksins, sakaði Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson,
oddvita Sjálfstæðisflokksins, um svik við sig
þegar hann myndaði meirihlutastjórn með
Framsóknarflokknum meðan Ólafur taldi þá
Vilhjálm eiga í samningaviðræðum.
BAUGSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur varð í gær við kröfu verjanda
sakborninga í Baugsmálinu að
fengnir verði dómkvaddir menn til
þess að meta sönnunargildi eða fals-
leysi tölvupósts, sem lagður er fram
sem málsgögn.
Um er að ræða hundruð tölvu-
bréfa sem að einhverju leyti var
aðeins að finna í tölvu Jóns Geralds
Sullenberger, sem upphaflega lagði
fram kæru í Baugsmálinu en er nú
meðal sakborninga.
Matsmenn hafa áður kannað
uppruna tölvupóstsins að beiðni
saksóknara, en hann hefur þrjá
daga til þess að kæra úrskurðinn í
gær til Hæstaréttar. - jh
Falsleysi Baugsgagna mælt:
Tölvupóstur
metinn aftur
KVIKMYNDIR Norsk-íslenska kvik-
myndin Den Brysomme Mannen,
eða Uppáþrengjandi maðurinn,
hlaut gagnrýnendaverðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Cannes á sunnu-
dag.
Að sögn Ingvars Þórðarsonar,
sem er annar íslensku meðfram-
leiðandanna ásamt Júlíusi Kemp,
hefur fyrirtækið Plan B sem er í
eigu Brad Pitts sóst eftir því að fá
leyfi til að endurgera myndina á
ensku. „Þetta er afar mikill heiður
og við erum í skýjunum með þetta,“
segir Ingvar.
Myndin verður sýnd í íslenskum
kvikmyndahúsum í haust. - jse
Hlutu verðlaun í Cannes:
Brad Pitt vill
fá myndina
FRUMSÝNING Framleiðendurnir Júlíus
Kemp og Ingvar Þórðarson með Valgerði
Sverrisdóttur á frumsýningu í Cannes.
STJÓRNMÁL Magnús Þór Hafsteins-
son, varaformaður Frjálslynda
flokksins, sagði á morgunvakt-
inni á Rás 1 að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefði gert alvarleg og
afdrifarík mistök þegar hann sleit
viðræðum um meirihlutasam-
starf með Ólafi F. Magnússyn hjá
Frjálslynda flokknum í Reykja-
vík.
„Hafi Sjálfstæðisflokkurinn
einhvern tímann haft tækifæri til
þess að eiga einhvern möguleika
á því að fá okkur úr Frjálslynda
flokknum aftur inn í Sjálfstæðis-
flokkinn þá gekk það tækifæri úr
greipum í gær,“ sagði Magnús í
gær.
Spurður af Fréttablaðinu
hverjir hefðu rætt við hverja
svaraði Magnús: „Þetta hefur oft
verið sagt við okkur þingmaður á
þingmann og aðeins í óformleg-
um samræðum. Ég var ekki að
vísa til annars.“ Hann sagði einn-
ig að Morgunblaðið hefði bent á
að Frjálslyndi flokkurinn gæti
reynst Sjálfstæðisflokknum
skeinuhættur. Boð um samein-
ingu hefði aldrei verið formlegt
og ekki hugleitt af forystu Frjáls-
lynda flokksins.
Arnbjörg Sveinsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir frjálslynda, sem
og aðra sem aðhyllist stefnu
flokksins, velkomna. „Menn ræða
ýmislegt í spjalli sín á milli, en
enginn minna þingmanna hefur
rætt við mig um að þeir hefðu
verið með sérstakar þreifingar í
þessa átt. Þannig að þetta kom
mér frekar á óvart, en eins og ég
segi þá eru frjálslyndir sérstak-
lega velkomnir vilji þeir fylgja
okkar stefnu.“ - gag
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir hafa rætt sameiningu:
Tækifæri úr sögunni
VIÐSKIPTI Ný könnun markaðs-
rannsókna- og greiningarfyrir-
tækisins IDC sýnir að 57 prósent
hugbúnaðar í tölvum íslenskra
fyrirtækja er illa fenginn. Rann-
sóknin náði ekki til einstaklinga.
Á heimsvísu nemur hlutfall
ólöglegs hugbúnaðar 35 prósent-
um.
Áætlað söluandvirði ólöglega
hugbúnaðarins hér á ári hverju
nemur hins vegar 18 milljónum
bandaríkjadala, eða 1,3 milljörð-
um króna. Ísland er í flokki með
ríkjum Asíu og Mið- og Austur-
Evrópu.
„Mig hefði ekki órað fyrir
þegar við byrjuðum að við
værum svona aftarlega á mer-
inni,“ segir Elvar Steinn Þorkels-
son, framkvæmdastjóri Micro-
soft Íslandi.
- - óká / sjá Markaðinn
Ólöglegur hugbúnaður:
Ísland á bekk
með Asíu
BJÖRGUN Snjóflóð féll á fimm menn
sem voru fótgangandi í suðurhlíð-
um Hvannadalshnjúks í Öræfa-
jökli um hádegisbil í gær, nánar
tiltekið milli hnjúksins og Dyr-
hamars. Mennirnir voru á leið á
tind Hvannadalshnjúks í um 2.000
metra hæð þegar flóðið skall á
þeim og runnu þeir með því um
300 metra leið niður hlíðina. Þrír
mannanna meiddust; einn ökkla-
brotnaði, annar viðbeinsbrotnaði
og sá þriðji hlaut meiðsli í andliti.
Tveir sluppu hins vegar ómeiddir.
Allir voru mennirnir þrekaðir
eftir að hafa lent í flóðinu og því
talið nauðsynlegt að koma þeim til
aðstoðar hið fyrsta. Mennirnir
gátu gert vart við sig í gegnum
endurvarpa björgunarsveitanna
og náðu strax sambandi við Vík í
Mýrdal og Kirkjubæjarklaustur.
Boð voru send strax til Björgunar-
miðstöðvarinnar í Reykjavík.
Neyðarkall barst klukkan 12:30
og var þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, TF-LÍF, þegar kölluð út og fór
hún í loftið klukkan 13:15. Eftir-
litsflugvél Landhelgisgæslunnar,
TF-SYN, var einnig send af stað
með fimm fallhlífasveitarmenn
frá Slysavarnarfélaginu Lands-
björgu en vélin þjónaði einnig sem
endurvarpsstöð fyrir fjarskipti.
Björgunarsveitir af höfuðborgar-
svæðinu héldu af stað austur á sex
bílum, búnir til fjallabjörgunar en
jökullinn er mjög sprunginn á
þeim slóðum sem mennirnir voru.
Björgunarsveitin á Höfn í Horna-
firði hélt einnig þegar af stað á
hnjúkinn með allt sitt lið, 25 björg-
unarsveitarmenn á jeppum og
vélsleðum.
Þegar þyrlan kom að Hvanna-
dalshnjúki komst hún ekki strax
að mönnunum fimm vegna skyggn-
is en svo rofaði til og sigmaður í
áhöfn Lífar gat sigið niður á slys-
staðinn. Þeir slösuðu voru hífðir
um borð og fluttir til Hornafjarðar
til aðhlynningar og síðan til
Reykjavíkur með TF-SYN. Þeir
lentu á Reykjavíkurflugvelli
klukkan 18:30. Liðsmenn björgunar-
sveitarinnar frá Höfn í Hornafirði
og fallhlífarstökksveit Flugbjörg-
unarsveitarinnar sáu um að koma
þeim sem ekki slösuðust til
byggða.
Atli Freyr Þórðarson sem lenti
í flóðinu segir að þeir félagar séu
mjög auðmjúkir og þakklátir
vegna þeirrar aðstoðar sem þeir
fengu. „Það er ótrúlegt að eiga allt
þetta stórkostlega fólk að. Þyrlu-
sveitina og björgunarsveitarmenn
og alla aðra sem geta hjálpað
þegar svona stendur á.“
svavar@frettabladid.is
Fallhlífasveit send
til björgunarstarfa
Mikill viðbúnaður var hjá Landhelgisgæslunni og Landsbjörgu í gær vegna
fimm manna sem lentu í snjóflóði við Hvannadalshnjúk. Þrír mannanna
meiddust aðeins lítillega en ljóst er að litlu mátti muna að illa færi.
FAGNAÐARFUNDIR Atli Freyr Þórðarson
fékk hlýjar móttökur hjá fjölskyldu sinni við
komuna til Reykjavíkur í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Jónas Guðmunds-
son, sem er með-
limur Flugbjörg-
unarsveitarinnar
og tilheyrði fall-
hlífastökksveitinni
í mörg ár, segir að
tvisvar áður hafi
litlu munað að
kraftar sveitarinn-
ar væru nýttir. Svo
vill til að í báðum
tilfellum var það
vegna björgunar-
aðgerða við Hvannadalshnjúk. Jónas
segir sveitina hafa verið við lýði í um
tuttugu ár. „Við höfum þjálfað björg-
unarstökkvara í um tuttugu ár. Þeir
hafa farið á námskeið hjá bandaríska
hernum og hjá sérsveitum danska
hersins. Við eigum átta björgunar-
fallhlífar og hátt í tuttugu menn sem
eru sérþjálfaðir í hvaða aðstæðum
sem þeir lenda í.“
- shá
Fallhlífastökksveitin:
Verið til taks í
tuttugu ár
Einar Rúnar
Sigurðsson, fjalla-
leiðsögumaður
í Öræfum, var á
jöklinum í gær
en hann þekkir
Öræfajökuls-
svæðið mjög vel.
Einar segir að
göngumenn hefðu
átt að vita að
geysileg flóðahætta var á fjallinu. „Ég
tók snjóflóðaprufu í fjórtán hundruð
metra hæð og get sagt að það var
þarna gífurleg snjóflóðahætta. Mikill
nýfallinn snjór er ofan á eldri snjó,
auk þess sem mjög var hlýtt á jökl-
inum í gær, því var snjóflóðahættan
augljós. Menn verða að bera virðingu
fyrir fjallinu, meta aðstæður og fara
varlega,“ segir Einar. - shá
Einar Rúnar Sigurðsson:
Snjóflóðahætt-
an var augljósÁ REYKJAVÍKURFLUGVELLI Við komuna til Reykjavíkur biðu sjúkraflutningamenn og læknar
þeirra sem höfðu slasast í snjóflóðinu á Hvannadalshnjúki. Jóhannes Magnússon er hér
færður til aðhlynningar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
TILBÚINN Mart-
einn Sigurðsson í
fullum herklæð-
um. MYND/MS
EINAR RÚNAR
SIGURÐSSON