Fréttablaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 33
MARKAÐURINN 31. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR6 Ú T L Ö N D Vinnumálayfirvöld í Palestínu segja að atvinnuleysi á sjálfs- stjórnarsvæðunum hafi aukist geysimikið upp á síðkastið, sér- staklega eftir að ný heimastjórn Hamas-samtakanna tók til starfa. Í nýlegri skýrslu vinnumálayf- irvalda kemur fram að tæpur helmingur vinnufærra karla er með atvinnu í Palestínu en ein- ungis tíu prósent kvenna. Ástandið er sérstaklega slæmt hjá fólki á aldrinum 15 til 24 ára en fjörutíu prósenta atvinnu- leysi mælist hjá þeim hópi. Er hvatt til þess að ungu fólki verði boðin starfsþjálfun auk annarra aðgerða til að blása lífi í efnahag þess. Þá kemur fram í skýrslunni að 1,6 milljónir Palestínumanna búi við fátæktarmörk. Það jafn- gildir því að fjórir af hverjum tíu Palestínumönnum teljist til fátækra en meðaltekjur þeirra námu 2,1 Bandaríkjadal, jafn- virði tæplegra 153 íslenskra króna, á dag á síðasta ári. Þá spáir Alþjóðabankinn því jafnframt í nýrri skýrslu sinni að ástandið muni versna frekar í Palestínu á næstu árum. Muni efnahagur landsmanna dragast saman um 27 prósent á þessu ári og atvinnuleysi mælast 47 pró- sent á næstu tveimur árum. - jab PALESTÍNUMENN Atvinnuleysi hefur aukist mikið í Palestínu upp á síðkastið. Alþjóðabankinn spáir 47 prósenta atvinnu- leysi á heimastjórnarsvæðinu eftir tvö ár. MYND/AFP Atvinnuleysi eykst í Palestínu Sænsk-danski mjólkurframleið- andinn Arla Foods hefur enn ekki jafnað sig á áhrifum skopteikning- anna af Múhameð spámanni sem danska dagblaðið Jyllands-Posten birti síðastliðið haust. Sala fyrir- tækisins í Mið-Austurlöndum er ennþá dræm og virðist sem íbúar Sádi-Arabíu sniðgangi enn vörur fyrirtækisins. Sala fyrirtækisins þar í landi er nú einungis 10 til 15 prósent af því sem hún var áður en mús- limar hvöttu til aðgerða gegn fyrirtækinu. Finn Hansen, yfirmaður alþjóðadeildar fyrirtækisins, segir ekki liggja ljóst fyrir hvers vegna Sádi-Arabar hunsi enn vörur Arla. „Annað hvort eru þeir enn að hunsa vörurnar okkar eða orðnir vanir því að kaupa vörur frá samkeppnisaðilanum,“ segir hann. - jab VÖRUR FRÁ ARLA Í SÁDI-ARABÍU Maður les tilkynningu í matvöruverslun í Sádi- Arabíu þar sem viðskiptavinir eru hvattir til þess að sniðganga vörur frá Arla Foods. MYND/AFP Dræm sala hjá Arla Skilnuðum fækkaði í Danmörku á síðasta ári. Tíðni þeirra hefur hækkað stöðugt þar í landi síðast- liðin ár og var það í fyrsta sinn sem skilnuðum fækkaði í átta ár. Tæpur helmingur hjónaband- anna entist í minna en níu ár. Á síðasta ári skildu 15.300 dönsk pör. Árið 2004 skildu hins vegar 15.763 pör og nemur fækk- unin þremur prósentum á milli ára. Þótt fréttir um fækkun skiln- aða í Danmörku séu ágætar sem slíkar má sömu sögu segja um hjónabönd. Færri pör létu gefa sig saman í fyrra en árið á undan og nemur samdrátturinn fjórum prósentum á milli ára. - jab BRÚÐHJÓN Skilnuðum fækkaði í Dan- mörku í fyrra í fyrsta sinn í átta ár. Á sama tíma gengu færri í hjónaband. MYND/AFP Skilnuðum fækkar Rúmlega 708 milljarðar íslenskra króna söfnuðust í hlutafjárútboði Bank of China sem fram fór á dög- unum. Hver hlutur kostaði tæpar 28 krónur. Hlutafjárútboðið er talið eitt það allra stærsta í sög- unni. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum í bankanum og bár- ust tilboð upp á samtals 111 þús- und milljarða króna. Bréf í Bank of China fara á almennan markað í Hong Kong hinn 1. júní næstkomandi. Sérfræðingar eru þó ekki vissir um að fjárfestar stökkvi á bréf- in. „Ástandið á heimsmarkaði er með þeim hætti að ég tel ólíklegt að mikil viðskipti verði með bréf í Bank of China á fyrstu metr- unum. Það verður þó spennandi að sjá hvað síðar verður,“ sagði Kingston Lin, hagfræðingur Prudential Bache Securities. - jsk Tilboð fyrir 111 þúsund milljarða Gríðarlegar fjárhæðir söfnuðust í hlutafjárútboði Bank of China á dögunum. HÖFUÐSTÖÐVAR BANK OF CHINA Samtals bárust tilboð upp á 111 þúsund milljarða íslenskra króna í hlutafjárútboði Bank of China. Baráttan gegn spillingu er lykill- inn að bættum hag Afríkuríkja, segir Donald Kabureka, banka- stjóri Þróunarbanka Afríku. Kabureka telur spillingu helstu ástæðu þess að erlendir fjár- festar hafi ekki viljað til álf- unnar. Kabureka var áður fjármála- ráðherra í Rúanda og er talinn hafa átt stóran þátt í að koma efnahag landsins á réttan kjöl eftir þjóðarmorðin í landinu árið 1994. Kabureka hefur gegnt banka- stjórastöðunni í átta mánuði. „Spilling er dragbítur á fram- för og mergsýgur efnahag Afríkuríkja. Ég ætla svo sann- arlega að beita mér fyrir því að spilling í Afríku verði upprætt,“ sagði Kabureka við Reuters. - jsk Spilling dragbítur á framför KABUREKA Bankastjóri Þróunarbanka Afríku. Jón Skaftason skrifar Stelios Haji-Ioannou, eigandi EasyJet og rétt- nefndur Easy-kóngur, hefur lokað kvikmynda- húsi sínu í Milton Keynes í útjaðri Lundúna. Kvikmyndahúsið var starfrækt í þrjú ár og kostuðu ódýrustu miðarnir einungis tuttugu pens, eða tuttugu og sjö íslenskar krónur. Stelios hafði ætlað sér að setja á laggirnar keðju kvikmynda- húsa og bauð meðal annars í Empire-kvikmynda- húsið við Leicester Square í miðborg Lundúna. Stelios kennir háu leiguverði um að svo fór og segir keppinauta hafa lagt stein í götu sína. Stelios leigði húsnæðið af UCI-leigusalanum sem Terra Firma, móðurfélagi Odeon kvikmyndahúsarisans, keypti á dögunum. Hann segir Terra Firma hafa hækkað leiguna svo um munar. „Odeon er nú bæði leigusali okkar og keppinautur. Það fer fram á fáránlega leigu og má bara reka bíóið sjálft.“ Kvikmyndaframleiðendur voru ekki hrifnir af uppátæki Steliosar og óttuðust að lágt miða- verð hefði þau áhrif að þeir fengju minna fyrir sýningarréttinn. Margir þeirra neituðu að selja easyCinema nýjustu kvikmyndir sínar til sýninga. Stelios hefur gefið út að meiri áhersla verði nú lögð á vef easyCinema þar sem hægt er að panta miða í kvikmyndahús og leigja DVD-myndir á lágu verði. Um fimm hundruð þúsund manns heimsækja vefsíðu easyCinema á degi hverjum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Stelios tekur ákvörðun á borð við þess en í fyrra opnaði hann bílaleigu, easyCar, þar sem hægt var að leigja Mercedes Benz-bifreiðar á lágu verði. Þegar ljóst varð að ævintýrið gengi ekki upp var hins vegar ákveðið að easyCar yrði einungis vefsíða þar sem hægt væri að bóka leigubifreiðar frá öðrum fyrirtækjum. Stelios Haji-Ioannou er einn eigenda easyJet- flugfélagsins sem íslenskir fjárfestar, þar á meðal FL Group og Baugur, áttu til skamms tíma stóran hluta í. Tilraunir Steliosar til að breikka grundvöll easy-vörumerkisins hafa ekki gengið sem skyldi. Stelios lokar easyCinema Ódýrustu miðar í kvikmyndahús easyCinema kostuðu 27 krónur. Stelios segir keppinauta hafa okrað á sér. LÍTILL SPÁMAÐUR Tilraunir Steliosar Haji-Ioannou til að færa út kvíarnar hafa gengið misjafnlega. Í fyrra þurfti hann að loka easyCar-bílaleigu sinni og nú hefur easyCinema-kvikmyndahúsið farið sömu leið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.