Fréttablaðið - 21.08.2006, Síða 50
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR30
HVAÐ ER... VERIÐ AÐ BYGGJA?
Glæsileg knattspyrnuhöll
mun rísa við Vallarkór 10 í
Kópavogi í maí árið 2007.
Um miðjan maí síðastliðinn und-
irritaði Kópavogsbær samning
við Ístak um að hefja byggingu
á knattspyrnuhöll við Vallarkór
10 og miðar framkvæmdum vel
áfram.
Ljóst er að þetta er vanda-
samt verk þar sem íþróttahöllin
verður um 11.000 fermetrar að
stærð (auk veitingasala, forsala,
afgreiðslu, anddyris og bún-
ingaklefa), með fullri lofthæð
samkvæmt alþjóðlegum staðli,
og áhorfendastúku sem rúmar
tvö þúsund manns.
Ístak, sem er aðalverktaki,
hefur yfirumsjón með hönnun
hússins í samvinnu við VA-arki-
tekta, og var hönnunin látin ráð-
ast af framtíðarhlutverki húss-
ins, en það verður hluti af stórri
samstæðu sem Kópavogsbær á í
samstarfi við Knattspyrnu-
akademíu Íslands.
Bygging knattspyrnuhallar-
innar er fyrsti áfanginn í áður-
nefndum framkvæmdum. Annar
áfangi er bygging íþróttahúss,
sem leigt verður íþróttafélög-
um, búningsklefa og líkams-
ræktarstöðvar. Þess utan er
möguleiki á að nýta húsnæðið
undir tónleikahald og aðra við-
burði. roald@frettabladid.is
Knattspyrnuhöll í Kópavogi
Hér sést húsið úr suðvestri.
Húsið stendur við Vallarkór og lóðin
afmarkast af Tröllakór, Vatnsendavegi og
Vallarkór. Á myndinni er horft úr norð-
vestri frá Vatnsendavegi (Rjúpnahæð).
Framkvæmdir standa yfir við Vallarkór
þar sem glæsileg knattspyrnuhöll mun
rísa. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Til sölu Hraun - Búðavegur 18, Fáskrúðsfirði
Þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í tvíbýlishúsi. Verð 6,2 millj.
Áhv. ca. 2,6 millj. með 4,8 % vöxtum sem hægt er að yfirtaka.
Möguleiki á að taka bíl upp í hluta af verði. Íbúðin er laus við
undirritun kaupsamnings.
Viltu vera miðsvæðis á Austurlandi?
150 fm 2 húsnæði miðsvæðis á Austurlandi er til sölu. Einnig
er til sölu verslun á sama stað. Hægt er kaupa verslunina og
húsnæði hvort sem er saman eða sitt í hvoru lagi. Hagkvæm-
ur kostur er að breyta húsnæðinu í litlar íbúðir. Getur verið
laust fljótlega.
Upplýsingar gefur Ólafía Herborg
í síma 863-1345 eða
okkaramilli@simnet.is
Fr
um
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
F
í
t
o
n
/
S
Í
A