Fréttablaðið - 26.09.2006, Síða 8
8 26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
HESTAMENNSKA Dýraverndarfélög
í Danmörku verða beðin um að
skerast í leikinn vegna frétta um
að maður á Norður-Jótlandi selji
fólki aðgang að tveimur íslensk-
um hrossum til kynlífsiðkana.
Þetta segir Jón Albert Sigur-
björnsson, formaður Landssam-
bands hestamannafélaga, sem
mun senda erindi þessa efnis til
danska Íslandshestafélagsins.
Þetta óvenjulega mál hefur
verið til umfjöllunar í dönskum
fjölmiðlum, þar sem fram hefur
komið að dönsk lög banni ekki
athæfi manna gegn dýrum af
þessu tagi. Tveir danskir blaða-
menn heimsóttu umræddan
mann á Norður-Jótlandi undir
því yfirskyni að þeir ætluðu að
kaupa þá þjónustu sem hann
bauð fram. Þeir tóku myndir á
falda myndavél. Reyndist mað-
urinn vera með tvo hross, til
þessara nota á stalli, sem hann
sagði vera þriggja vetra stóðhest
og tíu vetra hryssu, sem væru
bæði íslensk.
Frásögn Fréttablaðsins af
þessu máli vakti mikla athygli og
fjölmargir tjáðu sig í framhaldi
af henni á spjallsíðum hesta-
manna. Jón Albert sagði ekki
annað koma til greina heldur en
að reyna að fá þetta athæfi stöðv-
að með öllum ráðum. - jss
HÖRÐ VIÐBRÖGÐ Fréttir um að verið sé
að níða íslenska hesta í Danmörku hafa
vakið hörð viðbrögð hér á landi.
Landssamband hestamanna lætur til sín taka:
Vill stöðva danska hestaníðið
LÖGREGLUMÁL Tveir ungir menn,
17 og 18 ára gamlir, sköpuðu
stórhættu þegar þeir fóru í
kappakstur á sunnudagskvöld.
Lögreglan mældi þá á 128
kílómetra hraða á Miklubraut þar
sem hámarkshraði er 80. Menn-
irnir voru svo uppteknir af
kappakstrinum að þeir urðu ekki
varir við að lögreglan veitti þeim
eftirför. Glæfraakstur mannanna
hélt því áfram niður Reykjanes-
braut og sveigðu mennirnir
glæfralega hjá annarri umferð.
Lögreglan náði loks að stöðva
ökumennina ungu við Smárann í
Kópavogi. Þeir mega búast við
fjársektum. - þsj
Tveir ungir menn í ofsaakstri:
Urðu ekki varir
við lögregluna
1 Í hvaða evrópsku höfuðborg
urðu mikil mótmæli á sunnu-
daginn?
2 Lög hvaða goðsagnakenndu
rokksveitar komu nýlega út í
vögguvísuútgáfum?
3 Hver er fyrirliði Evrópuliðsins
sem bar sigur úr býtum í Ryder-
keppninni um helgina?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
Til vonar
og vara
varasalvi
Nú líka með
ALOE VERA
Slökkvum ljósin og
horfum á stjörnurnar
28. september kl. 22:00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
39
50
09
/2
00
6
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær 27 ára karl-
mann, Loft Jens Magnússon, í
tveggja ára óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir að veita manni á sextugs-
aldri banahögg á skemmtistaðnum
Ásláki í Mosfellsbæ aðfaranótt 12.
desember árið 2004. Níu daga
gæsluvarðhald, sem ákærði sat í
eftir árásina, dregst frá dómnum.
Var Lofti einnig gert að greiða
ekkju Ragnars 8,3 milljónir króna
í miskabætur og þremur sonum
Ragnars tæplega fjórar milljónir
króna samtals.
Loftur var ákærður fyrir stór-
fellda líkamsárás en hann veitti
Ragnari eitt högg, sem olli heila-
blæðingu vegna slagæðarrofs.
Loftur neitaði sök í málinu, út frá
málsatvikalýsingu í ákæru. Fyrir
dómi sagðist hann hafa veitt Ragn-
ari höggið í sjálfsvörn, eftir að
hann hefði ráðist að sér.
Í dómi héraðsdóms segir að
málatilbúningur ákærða „sam-
ræmist engan veginn frásögn vitna
af samskiptum ákærða og Ragnars
heitins í eða við anddyrið,“ þar
sem árásin átti sér stað.
Er því ekki fallist á það í dómn-
um að Loftur hafi veitt Ragnari
banahögg í sjálfsvörn.
Að því virtu hve langt var liðið
frá árásinni og hve „óvægna
umfjöllun ákærði hefði sannar-
lega hlotið hjá einstökum fjöl-
miðlum“, þrátt fyrir að sök hans
teldist ósönnuð til þessa dags,
þótti tveggja ára fangelsisdómur
hæfileg refsing.
Samkvæmt sakavottorði, sem
vitnað er til í dómsorði, hefur Loft-
ur tíu sinnum komið við sögu lög-
reglu fyrir umferðarlagabrot en
aldrei fyrir ofbeldisbrot.
Ekki liggur fyrir ennþá, sam-
kvæmt upplýsingum frá Birni
Ólafi Hallgrímssyni, verjanda
Lofts, hvort dómnum verði áfrýjað
til Hæstaréttar.
magnush@frettabladid.is
Hlaut tveggja
ára fangelsi
Loftur Jens Magnússon, 27 ára karlmaður, var í gær
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að veita manni
banahögg á skemmtistaðnum Ásláki í Mosfellsbæ.
AÐSTANDENDUR Í HÉRAÐSDÓMI Aðstandendur Ragnars Björnssonar, sem lést eftir
að hafa fengið hnefahögg í hálsinn, sjást hér fallast í faðma eftir uppkvaðingu dóms.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SLYS Átján ára stúlka slasaðist á
höfði þegar hún hjólaði á bíl á
Kirkjugarðsstíg við Suðurgötu á
sunnudagskvöld.
Að sögn lögreglu hjólaði
stúlkan gegn einstefnu með
þeim afleiðingum að hún lenti í
hlið bíls sem þar var á ferð. Hún
var ekki með reiðhjólahjálm og
hlaut nokkuð alvarlega höfuð-
áverka.
Stúlkan var flutt á slysadeild
þar sem hún fór í aðgerð. Læknir
á gjörgæsludeild í Fossvogi sagði
í gær að ástand stúlkunnar væri
gott og búið væri að útskrifa
hana af sjúkrahúsinu. - þsj
Hjálmlaus stúlka hjólaði á bíl:
Fékk alvarlega
höfuðáverka
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI