Fréttablaðið - 26.09.2006, Page 12
12 26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
MANCHESTER, AP Gordon Brown,
fjármálaráðherra Bretlands, hefur
lengi vonast til þess að taka við af
Tony Blair sem bæði forsætisráð-
herra og leiðtogi Verkamanna-
flokksins. Í gær skýrði hann frá
hugmyndum sínum um stefnu
flokksins eins og hún yrði undir
sinni forystu í ræðu sem hann flutti
á þingi Verkamannaflokksins í
Manchester.
Brown hóf ræðu sína á því að
bera lof á Tony Blair og sagði að
bæði hann sjálfur og Verkamanna-
flokkurinn hefðu lært mikið af Tony
Blair. Meðal annars að Verkamanna-
flokkurinn gæti ekki „bara haldið
með verkafólki, við verðum að
halda með fyrirtækjunum líka,“ og
einnig að „enginn getur verið hlut-
laus í baráttunni gegn hryðjuverk-
um.“
Hann sagði að flokkurinn mætti
aldrei falla þá í gryfju hatast við
Bandaríkin, en biðlaði þó til þeirra
sem lengst eru til vinstri í flokknum
með því að segja að Bretar mættu
aldrei fara í stríð án þess að hafa til
þess samþykki þjóðþingsins.
Flokksfélagar þeirra Browns og
Blairs, sem hlýddu á ræðuna, fögn-
uðu þó mest þegar hann fjallaði um
innanlandsmálefni, ekki síst þegar
hann sagðist ætla að „njóta þess“ að
takast á við Íhaldsflokkinn.
Svo skaut hann aðeins á David
Cameron, leiðtoga Íhaldsflokksins,
þegar hann sagðist hafa lagt fyrir
sig stjórnmál til þess að gera eitt-
hvað sem skiptir máli en ekki til
þess að verða frægur.
Brown viðurkenndi einnig að á
ýmsu hefði gengið í samskiptum
þeirra Blairs, og bætti því við að
þar sem „ágreiningur hefur leitt
athyglina frá því sem máli skiptir,
þá sé ég eftir því, og ég veit að Tony
gerir það líka.“ - gb
Hrósaði Blair
í bak og fyrir
Gordon Brown flutti í gær langa stefnuræðu á
flokksþingi breska Verkamannaflokksins og vonast
til þess að taka fljótlega við af Tony Blair.
LÍKLEGUR ARFTAKI BLAIRS Gordon Brown fjármálaráðherra segist hafa lært mikið af
Tony Blair. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FO
R
V
A
RN
AR
D A G UR IN
N
2
0
0
6
TAKTU ÞÁTT!
HVERT ÁR SKIPTIR MÁLI
www.forvarnardagur. is
Verkefnið er styrkt af
Hvetjum börn og unglinga til
þátttöku í skipulögðu íþrótta- og
æskulýðsstarfi.
Stuðningur foreldra skiptir sköpum.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
5
4
9
2
KÓLOMBÓ Sjóher Srí Lanka
réðst á báta Tamílatígra í
gær. Talsmaður hersins
segir sjötíu uppreisnar-
menn hafa fallið, en Tígr-
arnir sjálfir kannast ekki
við að fleiri en þrír hafi
látist í átökunum. Tígr-
arnir halda því að auki
fram að þeir hafi náð að
skemma tvö árásarskip
stjórnarhersins.
Þorfinnur Ómarsson, talsmað-
ur norrænu eftirlitssveitanna,
segir ómögulegt að segja nokkuð
með vissu í þessu tilfelli.
Tölur séu iðulega ýktar af
báðum fylkingum. Áróð-
ursstríð standi yfir og
ásakanir á báða bóga, til
að mynda þegar fjöldi
múslima var myrtur í síð-
ustu viku. Enn sé óvíst
hver hafi átt þar hlut að
máli og bendir hvor fylk-
ingin á hina. Á næstu
dögum er von á ályktun
um ástand mála í Srí Lanka frá
norrænu eftirlitssveitinni, að
sögn Þorfinns Ómarssonar. - kóþ
Áróðursstríð á Srí Lanka:
Deilt um hvort þrír
eða sjötíu hafi fallið
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
STJÓRNMÁL Valdimar Sigurjóns-
son, nemi við Háskólann á
Bifröst, gefur
kost á sér í 3.
sæti á lista
Framsóknar-
flokksins í
Norðvestur-
kjördæmi.
Valdimar er
viðskiptalög-
fræðingur og
stundar
meistaranám í
skattarétti á
Bifröst. Hann er formaður
Framsóknarfélagsins Bifrastar
og varamaður í sveitarstjórn
Borgarbyggðar. - bþs
Valdimar Sigurjónsson:
Í prófkjör
Framsóknar
VALDIMAR
SIGURJÓNSSON
HÉRAÐSDÓMUR Aðalmeðferð fór
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær í máli Lesley Ágústsson gegn
afsláttar- og markaðssetningar-
fyrirtækinu Aquanetworld. Við
réttarhöldin kom fram að Lesley
hefði greitt 2,6 milljónir króna í
fyrirtækið fyrir nokkrum árum.
Lesley átti að fá vildarpunkta-
ávísun á fjögurra mánaða fresti
og 2,5 prósent af allri veltu fyrir
fjárfestingu sína og vinnu í þágu
fyrirtækisins. Hún sagðist ekkert
hafa fengið, ekki einu sinni endur-
greiðslu.
Aquanetworld safnaði fyrir-
tækjum á afsláttarlista og gaf út
kort. Kortunum átti að renna í
gegnum posa þannig að punkta-
söfnun færi fram. Lesley átti að
fá eigin heimasíðu en á henni átti
að vera listi með afsláttarfyrir-
tækjum.
Í dómnum kom fram að hug-
búnaður hefði aldrei verið fullþró-
aður eða tekinn í notkun og að
posar hefðu verið settir upp á
Kýpur í blekkingarskyni og til að
sannfæra Lesley um að halda
áfram í Aquanetworld.
Mark Ashley Wells, stofnandi
Aquanetworld, mætti ekki í dóm-
inn og hafnaði viðtali en sendi frá
sér tilkynningu þar sem kemur
fram að Lesley Ágústsson hafi
brotið samkomulag við fyrirtækið
og síðan markvisst reynt að valda
fyrirtækinu tjóni, til dæmis með
lygum. - ghs
MARK ASHLEY WELLS
Aðalmeðferð í máli Lesley Ágústsson gegn Aquanetworld:
Posar notaðir til að blekkja
DÓMSMÁL Sátt hefur verið gerð í
máli Sigurðar Björnsson gegn
fyrrverandi ritstjórum DV, Jónasi
Kristjánssyni og Mikael Torfa-
syni. Sigurður höfðaði málið
vegna umfjöllunar og myndbirt-
ingar þar sem greint var frá
veikindum hans vorið 2005.
Sáttagjörðin felur í sér að 365
miðlar greiði Sigurði miskabætur
og málskostnað en fjárhæð
bótanna er trúnaðarmál.
Þá er tekið fram að 365 miðlar
harmi nærgöngulan fréttaflutning
DV af veikindum Sigurðar
samhliða því sem hann er beðinn
afsökunar á þeim óþægindum sem
umfjöllun blaðsins olli honum. - sdg
Mál gegn fyrrum ritstjórum DV:
Sátt gerð vegna
málshöfðunar
HAUST Í MOSKVUBORG Í Moskvu er
óvenju heitt um þessar mundir. Hitinn
fór í 22 gráður um helgina, þegar þessi
mynd var tekin. NORDICPHOTOS/AFP