Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 4
4 4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
GENGIÐ 03.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
121,5721
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
69,18 69,52
130,70 131,34
88,11 88,61
11,815 11,885
10,544 10,606
9,542 9,508
0,5871 0,5905
102,41 103,03
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
������� �����
����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
STJÓRNMÁL Kjartan Gunnarsson hætti í gær
sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
eftir 26 ára starf. Andri Óttarsson, 31 árs
lögmaður, tekur við af Kjartani. Geir H.
Haarde, forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, lagði til við miðstjórn
flokksins að Andri yrði ráðinn framkvæmda-
stjóri.
Kjartan segir langan tíma í starfi hafa ráðið
mestu um að hann ákvað að hætta sem
framkvæmdastjóri. „Ég hef verið í þessu starfi
í 26 ár og það er langur tími í sama starfinu.
Mér fannst vera tími til kominn til þess að
breyta til,“ segir Kjartan og leggur áherslu á
að staða flokksins nú hafi aldrei verið betri.
„Ég hefði síður vilja fara frá ef allt hefði verið
hér í brunarúst. En staða flokksins nú er
virkilega sterk. Þegar ég tók við voru 20
þúsund félagsmenn í flokknum en þeir eru nú
45 þúsund. Þó að ég eigi nú ekki einn allir
þakkir fyrir það þá gefur það merki um
hvernig framþróunin hefur verið í flokksstarf-
inu. Þá hef ég einnig komið að skipulagningu
þriðjungs allra landsfunda flokksins frá
upphafi, og það hefur verið virkilega skemmti-
legt og gefandi.“
Andri segist hlakka til þess að takast á við
krefjandi verkefni fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
„Ég lít svo á að þetta verði krefjandi starf.
Helsta verkefnið framundan verður að stuðla
að því að flokkurinn haldi samheldinn inn í
næstu kosningar. Fyrst um sinn ætla ég að
setja mig inn í alla þætti starfsins og Kjartan
verður mér innan handar í því ferli,“ sagði
Andri eftir að hann lauk fundi með Kjartani í
Valhöll í gær.
Geir Haarde segir Kjartan hafa skilað góðu
starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á löngum
starfstíma. „Kjartan hefur verið afar farsæll í
sínu starfi og hans verður að sjálfsögðu sárt
saknað. Það er skiljanlegt að hann vilji hverfa
á braut eftir langt starf.
Við fáum í hans stað góðan eftirmann sem,
þrátt fyrir ungan aldur, hefur mikla reynslu af
starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á ýmsum
sviðum.“
Andri lauk embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla Íslands árið 2001. Hann hefur starfað
hjá Lögmönnum við Austurvöll frá því að hann
útskrifaðist og verið meðeigandi í lögmanns-
stofunni frá því árið 2004.
Síðastliðið ár hefur Andri lagt stund á meist-
aranám í mannréttindum við Raoul Wallenberg
stofnunina og Háskólann í Lundi í Svíþjóð.
Kjartan útilokar ekki að hann stígi inn á svið
stjórnmálanna í framtíðinni. „Ég ætla mér ekki
að taka þátt í prófkjörsbaráttu persónulega
fyrir komandi kosningar en það getur vel
komið til þess í framtíðinni.“
magnush@frettabladid.is
Kjartan Gunnarsson hætt-
ur sem framkvæmdastjóri
Andri Óttarsson tók í gær við af Kjartani Gunnarssyni sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Staða
flokksins er virkilega sterk nú, segir Kjartan. Hlakka til að takast á við krefjandi verkefni, segir Andri.
NÝIR TÍMAR Í SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM Kjartan Gunnarsson og Andri Óttarsson stilla sér upp inni í fundarherbergi í Valhöll eftir að hafa rætt saman á skrifstofu Kjartans. Í
baksýn hanga myndir af Davíð Oddssyni, fyrrverandi formanni flokksins, og Geir H. Haarde, núverandi formanni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Ólafur Þ. Harðarson,
prófessor í stjórnmálafræði, segist
ekki muna til þess að nokkur fram-
kvæmdastjóri í íslenskum stjórn-
málaflokki hafi haft jafn afgerandi
völd og áhrif innan flokksins sem
hann starfar fyrir og Kjartan.
„Kjartan hefur verið öflugur
framkvæmdastjóri og einn af
valdamestu mönnum í Sjálfstæðis-
flokknum um árabil. Hann var um
langt skeið einn nánasti samstarfs-
maður Davíðs Oddssonar og hefur
haldið utan um mikilvægt starf
innan flokksins. Ég man ekki til
þess að nokkur framkvæmdastjóri
stjórnmálaflokks hafi verið eins
valdamikill og Kjartan hefur verið
innan Sjálfstæðisflokksins um
langt skeið,“ sagði Ólafur.
Hann telur framkvæmdastjóra-
skiptin gefa vísbendingar um að
Sjálfstæðisflokkurinn sé hugsan-
lega að taka breytingum. „Það er
ljóst að þetta eru töluverðar breyt-
ingar fyrir forystusveit flokksins.
Andri kemur úr hinum svokallaða
Deigluhóp sem til þessa hefur
verið talinn standa nærri Geir H.
Haarde meðan Kjartan var náinn
samstarfsmaður Davíðs Oddsson-
ar. Sumir hafa talið að undir for-
ystu Geirs geti flokkurinn færst
nær miðjunni, líkt og margir hægri
flokkar í Evrópu hafa verið að gera
upp á síðkastið.“ - mh
Ólafur Þ. Harðarson segir Kjartan hafa verið valdamesta framkvæmdastjórann:
Var ótvírætt í forystusveit flokksins
ÓLAFUR Þ. HARÐARSON Segir skiptin gefa vísbendingar um breytt landslag innan
flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Árni Mathiesen
fjármálaráðherra segist sjá mikið
á eftir Kjartani. „Það er erfitt að
hugsa sér
flokksstarfið í
Sjálfstæðis-
flokknum án
Kjartans í
framkvæmda-
stjórastólnum.
Hann hefur um
árabil verið
mikilvægur
hlekkur í
flokksstarfinu. Það hefur verið
gott að leita til Kjartans í gegnum
tíðina enda einstaklega ljúfur og
vinsamlegur maður,“ sagði Árni.
„Það verða örugglega ekki miklar
breytingar á flokknum og ég er
viss um að Andri á eftir að standa
sig vel í þessu starfi. Ég held að
verk Kjartans hafi skapað góðan
grundvöll til þess að efla flokkinn
enn frekar.“ - mh
Framkvæmdastjóraskipti:
Verk Kjartans
skapaði grunn
ÁRNI MATHIESEN
STJÓRNMÁL Arnbjörg Sveinsdóttir,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, segist ekki eiga von á
breytingum á
innra starfi
flokksins.
„Kjartan hafði
íhugað það um
nokkurt skeið að
láta af embætti
en það var
auðvitað vilji
allra að halda
honum í starfi
framkvæmda-
stjóra eins lengi og hægt var.
Kjartan hefur verið ómetanlegur
og kraftmikill hluti af Sjálfstæðis-
flokknum um langt skeið. Hans
góðu verk styrkja flokkinn til
framtíðar litið.“ - mh
Framkvæmdastjóraskiptin:
Aðdragandinn
var nokkur
ARNBJÖRG
SVEINSDÓTTIR