Fréttablaðið - 04.10.2006, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 04.10.2006, Blaðsíða 27
[ ] Hildur Kristín Helgadóttir leik- skólakennari segir auðvelt að lauma stærðfræðikennslu inn í hvunndaginn á leikskólanum. „Börn á aldrinum eins til þriggja ára eru miklir stærðfræðisnilling- ar,“ segir Hildur Kristín, sem starf- ar á leikskólanum Arnarsmára í Kópavogi. Hún segir fólk alltaf verða svolítið hissa þegar talað sé um stærðfræði í samhengi við svo ung börn en hugtakið sé vítt. „Stærð- fræði snýst ekki einungis um tölur heldur margt annað. Bara það að kenna börnum að flokka og raða skóm getur flokkast undir stærð- fræði. Ef við erum með þrjú pör af skóm þarf að finna út hverjir eiga saman. Börn byrja mjög fljótt að raða hlutum, eftir litum stærðum eða öðru. Þennan hæfileika er upp- lagt að virkja.“ Hún segir mikið unnið með form á hennar leikskóla, svo sem hringi og ferhyrninga, og telur það efla tilfinningu barnanna fyrir stærðfræði. „Í vettvangsferð- um finnum við svo formin í umhverfinu,“ segir hún og nefnir til dæmis umferðarskiltin í því sam- bandi. „Auðvitað teljum við svo líka hægt og rólega og gerum flóknari hluti eftir því sem börnin eldast,“ bætir hún við. Námskrá leikskólanna gerir ráð fyrir stærðfræði sem hluta náms- efnis og Hildur Kristín segir mark- visst hafa verið byrjað að koma henni inn í dagskrána í Arnar- smára árið 2003. Þar hefur efni verið hengt upp í augnhæð barn- anna sem ómeðvitað síast inn, svo sem form, punktar og tölur. Tveir punktar hjá tölustafnum 2 og svo framvegis. Hildur Kristín segir dálítið miðað við punktana sem eru á teningunum enda er þeim eins raðað upp. „Svo fara börnin líka að læra teningaspilin þegar fram vindur,“ bendir hún á. Hún segir þetta starf hafa skilað sýni- legum árangri enda hafi börn úr Arnarsmára fengið þann vitnis- burð í grunnskólum að þau séu með góðan stærðfræðigrunn. „Það sem við höfum lært á þess- um þremur árum er að því fyrr sem við byrjum að kenna stærðfræði, því betra,“ segir Hildur Kristín, sem nýlega sat ráðstefnu á vegum Háskólans á Akureyri sem einmitt fjallaði um stærðfræði í leikskóla. Aðalfyrirlesarar þar voru sænskir. „Leikskólastarf á Íslandi og í Sví- þjóð er á líkri línu en það sem ég lærði helst af Svíunum er að við Íslendingar eigum til að flýta okkur um of. Við höldum kannski að það sé nóg að gera hvert verkefni með börnunum einu sinni til þrisvar en Svíar eru mun rólegri og dvelja lengur við verkefnin. Lítil börn vilja alltaf fá endurtekningar og læra best á þeim. Þegar þau eru farin að finna sig í verkefnunum og jafnvel farin að kenna næsta barni þá er vinnan að skila sér,“ segir hún og bætir við að lokum. „Börn eru nefnilega oft mjög góðir kennarar sjálf.“ gun@frettabladid.is. Finnum formin í umhverfinu Hildur Kristín notar ýmis tækifæri til að kenna börnunum um tölur og form. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Mímir Símenntun býður upp á tvö ný námskeið, um Berlín og Pétursborg. Mímir Símenntun er að fara af stað með tvö ný námskeið. Bryn- dís M. Tómasdóttir kennir nám- skeiðið um Berlín og Haukur Hauksson deilir úr reynslubanka sínum um Pétursborg. Bryndís mun fjalla um Berlín frá mörgum sjónarhornum. Farið verður yfir sögu borgarinnar, þá sérstaklega á millistríðsárunum og tímann eftir sameiningu Vest- ur- og Austur-Berlínar. Einnig verður lögð áhersla á hinu „nýju“ Berlín, fjallað verður um hið fjöl- skrúðuga menningar- og listalíf, arkitektúr, helstu byggingar og söfn. Einnig verða kynnt helstu sérkenni borgarinnar og merkir staðir. Námskeiðið um Pétursborg er með svipuðu sniði og mun Haukur fjalla um stórbrotna sögu og menningu borgarinnar, sem er ekki nema rúmlega 300 ára gömul. Borgin var vettvangur þriggja stjórnarbyltinga í byrjun 20. aldar og endurspeglast mikilfengleg saga Rússaveldis í hverri bygg- ingu og hverju síki. Rýnt verður í Raspútín og spurningum um til- veru hans velt upp en einnig verð- ur Pétursborg skoðuð sem ferða- mannastaður. Haukur Hauksson hefur sjálfur búið í Rússlandi frá 1990 og er því fróður um menn- ingu og staðhætti þessa lands. Námskeiðin hefjast 12. og 13. október. Nánari upplýsingar má finna á www.mimir.is. - jóa Berlín og Péturs- borg í hnotskurn Bryndís Tómasdóttir og Haukur Hauksson munu fræða áhugasama um Berlín og Pétursborg á námskeiðum hjá Mími Símenntun. Námsbókalestur getur verið deyfandi fyrir frjóan hug. Því er gott að grípa stundum í bækur sem eru lausar við fræðimennsku til að koma ímyndunaraflinu aftur af stað. Grundaskóli á Akranesi fagnar 25 ára afmæli. Mikið er um að vera í Grundaskóla á Akranesi alla þessa viku í tilefni 25 ára afmælis skólans sem er á föstudaginn kemur, 6. október. Opið hús hefur verið hjá bekkjun- um hverjum fyrir sig en á morgun verður sameiginleg skemmtun fyrir allan skólann frá klukkan níu til tólf, sannkallað karnival. Þar verður margt sér til gamans gert, bæði í skólanum, á skólalóðinni og í Akraneshöllinni. Afmælishátíð- inni lýkur síðan með heljarinnar afmælisveislu fyrir starfsfólk og boðsgesti á föstudaginn. Karnival í Grundaskóla Heimabyggðin nefnist ein valgrein í Grundaskóla og hér er Leó Jóhannesson kennari með 9. og 10. bekk í vettvangs- ferð niðri í fjöru. Þrír fræðandi fyrirlestrar um golf verða í Íþróttaakademí- unni í Reykjanesbæ á næst- unni. Sveifluferill og grunnhreyfingar nefnist fyrsti fyrirlesturinn af þremur í Íþróttaakademíunni. Hann verður 10. þessa mánaðar og þar fjallar Brynjar Eldon Geirsson um grunnhreyfingar og tækni í golfíþróttinni. Næsta þriðjudagskvöld á eftir, þann 17. október, verður Guðjón Bergmann með erindi um líkams- þjálfun kylfinga og fer yfir það hvernig best er að bæta liðleika, kraft og þol. „Frá fyrsta teig til lokapútts“ verður á dagskrá 24. október og þar tekur Lárus Ýmir huglæga hliðin á golfspila- mennskunni. Hann mun meðal annars fjalla um hvernig hægt er að bæta eigin getu með því að vera ekki að þvælast fyrir sér á vellinum. Allir fyrirlestrarnir eru milli klukkan 20 og 22 og kosta 2.000 krónur. Allt um golf Hér er einn með sveiflutaktana á hreinu. MYND/DANÍEL RÚNARSSON ��������������������������������������������������������������������������� �������� ���������� ����������� ������������������������������ �������������� ������������������������� ��������������������������������� �������������������������������������� ������������������ ���������������� ��������������������������������������� ������������� ����������������������������������������� �� �������������� �������������������������������������� ���������������������������������������� ����������������������������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������������� ���������������������������������������������������������������� ������������������������������������� ����������������������������������������� �������������������������������������������������� ��������������������������������������� �� �������������������������� // Málaskólar - Tungumálanám fyrir alla Enska, spænska, franska, ítalska, þýska, arabíska, rússneska, kínverska og japanska. Til að ná góðum tökum á tungumáli þarf að dveljast í því landi, þar sem tungumálið er talað. BORGARTÚNI 29 | 105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.