Fréttablaðið - 04.10.2006, Blaðsíða 65
MIÐVIKUDAGUR 4. október 2006
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
29
Vottað umhverfi sstjórnunar-
kerfi síðan 1999
VO
TT
A
Ð
U
M
H
VE
RFISSTJÓRN
U
N
A
R
K
ERFI
Vottað gæðakerfi
síðan 1993
Nýir
fi sléttirtímar
Rotþrær og siturlagnir
íslensk framleiðsla
Sefgörðum 1-3a, 170 Seltjarnarnesi, sími 561 2211, fax 561 4185, borgarplast@borgarplast.is
Eigum til á lager allar algengustu stærðir af rotþróm, siturlögnum, frárennslisrörum og tengistykkjum.
Ítarlegar upplýsingar um val á stærð rotþróa og frágangi þeirra er að fi nna á heimasíðu Borgarplasts.
Góð ráð reyndra manna, við höfum nægan tíma fyrir þig.
Vertu í sambandi við sölumenn okkar!
FAGMENNSKA OG ÁREIÐANLEIKI Í 35 ÁR!
HEILDARLAUSN
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Tónlistarkonan Fabúla, sem
heitir réttu nafni Margrét
Kristín Sigurðardóttir, hef-
ur gefið út sína þriðju plötu,
Dusk.
Margrét Kristín segir að nýja
platan einkennist af tregabland-
inni leikgleði þar sem takist á
miklar andstæður. „Ég er svolít-
ið upptekin af þessum andstæð-
um í lífinu, eins og þránni okkar
eftir ástríðu, ólgu og breytingum
samhliða þörfinni fyrir ró og
jafnvægi,“ segir Margrét Krist-
ín, sem síðast gaf út plötuna
Kossafar á ilinni fyrir fimm
árum.
Hvað varðar nafnið Dusk segir
Margrét að hugmyndin að því hafi
spunnist út frá myndinni á umslagi
plötunnar. Nafnið eigi líka vel við
þar sem ljós og skuggar skiptist á
í lífinu, auk þess sem rökkrið sé sá
tími dagsins sem er í mestu uppá-
haldi hjá henni.
Dusk er samstarfsverkefni
þeirra Margrétar, Birkis Rafns
Gíslasonar gítarleikara og Jökuls
Jörgenssen bassaleikara. Einnig
koma þau Sigtryggur Baldursson,
Júlía Mogensen, Sarah Fogg, Dan
Cassidy, Finnbogi Óskarsson, KK
og Axel Árnason fram á plötunni.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
er að semja með öðrum og það var
auðveldara en ég hélt og gerðist
bara að sjálfu sér,“ segir Margrét,
sem áður leit á tónlistarsköpun
sína sem mjög persónulegt ferli.
„Ég upplifði fyrir tveimur árum
að þetta væri hægt, þ.e. að semja
með öðrum. Ég upplifði það sem
skemmtilega reynslu og eitthvað
nýtt sem væri gaman að prófa.“
Fór Margrét ásamt nokkrum úr
samstarfshópnum í sumarbústað-
arferð á Flúðir þar sem allir
grunnarnir voru teknir upp. Fyrir
vikið fékk platan á sig meira lif-
andi yfirbragð en ella.
Margrét ætlar að reyna að spila
sem mest á næstunni til að fylgja
plötunni eftir. Mun hún meðal
annars halda tónleika á Café
Rosenberg þann 26. október.
Útgáfutónleikar eru síðan fyrir-
hugaðir í Tjarnarbíói þann 24.
nóvember. freyr@frettabladid.is
Tregablandin lífsgleði
FABÚLA Þriðja plata Fabúlu, Dusk, er komin út. Einkennist hún að tregablandinni
lífsgleði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Einn bókmenntagagnrýnenda
danska dagblaðsins Politiken
lofsöng rithöfundinn Hallgrím
Helgason í grein sem birtist
síðastliðinn laugardag. Gagn-
rýnandinn May Schack segir um
skáldsöguna Höfund Íslands að í
skrifum Hallgríms búi gríðar-
legur lífskraftur. Enn fremur
segir hún Hallgrím ná að fanga
aðalpersónu verksins með kald-
hæðni sem hittir beint í mark.
Skáldsagan kom fyrst út hér-
lendis árið 2001 og hlaut Hall-
grímur Íslensku bókmennta-
verðlaunin fyrir hana.
May veltir þó fyrir sér hvaða
viðtökur þessi lýsing á þjóð-
skáldinu Laxness hafi fengið hér
á landi og virðist óttast að hún
hafi ekki fallið í góðan jarðveg.
Aðalpersónu skáldsögunnar og
Nóbelsskáldinu svipar mjög
saman og virðist skáldið á köfl-
um vera statt í eigin höfundar-
verki.
Í Danaveldi er Hallgrímur
helst þekktur fyrir skáldsöguna
101 Reykjavík en May segir í
gagnrýni sinni Höfund Íslands
vera 101 sinni betri. - sun
Lof og prís í
Danmörku
HALLGRÍMUR HELGASON Danskur
gagnrýnandi segir Höfund Íslands ríflega
hundrað sinnum betri en 101 Reykjavík.
������
�� ������
���
��