Fréttablaðið - 04.10.2006, Page 10
4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR10
SUÐUR-KÓREA, AP Ríkisstjórn Norð-
ur-Kóreu tilkynnti í gær að hún
myndi gera tilraunir á næstunni
með kjarnorkuvopn í þeim tilgangi
að styrkja varnir lands síns gegn
því sem hún kallar aukinn fjand-
skap Bandaríkjanna.
Fréttaskýrendur segja þetta
vera stærsta áfallið hingað til í
árangurslitlum viðræðum fimm
stórþjóða við Norður-Kóreu, sem
ætlað er að fá kommúnistaríkið til
að gefa upp baráttu sína fyrir
kjarnavopnum.
Engin dagsetning var gefin fyrir
tilraunirnar, en í tilkynningu frá
utanríkisráðuneyti Norður-Kóreu
hermir að þær verði gerðar við
afar öruggar kringumstæður.
Ráðamenn í Pjongjang, höfuð-
borg landsins, hafa áður tilkynnt að
her landsins eigi kjarnorkuvopn,
en ekki er vitað til þess að tilraunir
með þau hafi verið gerðar fyrr.
Þjóðir heims brugðust ókvæða
við. Utanríkisráðherra Japans, Taro
Aso, sagði öll slík áform Norður-
Kóreu vera „algjörlega ófyrirgef-
anleg“. Ráðamenn Suður-Kóreu
ætla að funda í dag um tilraunirnar
og talsmaður Bandaríkjastjórnar,
Sean McCormack, sagði að slík til-
raun myndi „valda óásættanlegri
ógn við frið og jafnvægi í Asíu og í
heiminum öllum“.
Engin viðbrögð bárust hins
vegar frá Kína, sem hingað til hefur
reynst einn sterkasti bandamaður
Norður-Kóreu. - smk
Norður-Kóreumönnum alvara með vopnatilraunir:
Ætla að prófa kjarnavopn
KIM JUNG IL, LEIÐTOGI NORÐUR-KÓREU
Norður-Kóreumenn segjast ætla að gera
tilraunir með kjarnorkuvopn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti landsmanna er ánægður
með störf þriggja ráðherra, samkvæmt nýrri könnun
Capacent Gallup.
56 prósent segjast ánægð með störf Geirs H.
Haarde forsætisráðherra. 51 prósent svarenda segist
ánægt með störf Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra. Þá segjast 50 prósent vera
ánægð með störf Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðis-
ráðherra. Ánægja með störf allra þriggja eykst
nokkuð frá síðustu könnun Gallup í apríl.
Minna en helmingur svarenda segist ánægður
með störf annarra ráðherra.
Minnst ánægja er með störf þeirra Jón Sigurðs-
sonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Björns
Bjarnasonar, dóms- og kirkjumálaráðherra. 26
prósent svarenda sögðust ánægðir með störf Jóns, en
24 prósent voru ánægð með störf Björns. Ánægja
með störf Jóns hefur ekki verið mæld áður, en
ánægja með störf Björns hefur aukist um tæp tvö
prósentustig.
Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins. - ss
Þjóðarpúls Gallup mælir ánægju með störf ráðherra:
Mest ánægja með Geir Haarde
ÁNÆGJA MEÐ STÖRF RÁÐHERRA
Geir Haarde 56%
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 51%
Siv Friðleifsdóttir 50%
Guðni Ágústsson 45%
Einar K. Guðfinnsson 40%
Jónína Bjartmarz 34%
Árni Mathiesen 33%
Magnús Stefánsson 28%
Valgerður Sverrisdóttir 27%
Sturla Böðvarsson 26%
Jón Sigurðsson 26%
Björn Bjarnason 24%
Könnun Gallup 21.-28. september
Láttu draumi
nn
rætast !