Fréttablaðið - 04.10.2006, Síða 14
4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
SJÓNARHÓLL
SAMBAND FYRIRTÆKJA OG
TÓNLISTARMANNA
Landnámslýsingar
mikilvægari
„Þetta er meginstef sem
ríkið hefur komið sér upp,
að láta landnámslýsingar
vega meira en fleiri hundruð
ára eignarsögur.“
GUNNLAUGUR ÓLAFSSON TALS-
MAÐUR EIGENDA JARÐARINNAR
STAFAFELLS, EN HÆSTIRÉTTUR
DÆMDI NÝLEGA HLUTA HENNAR
ÞJÓÐLENDU. FRÉTTABLAÐIÐ 3.
OKTÓBER.
Brýnt að skapa ekki
nýja gjá
„Þegar ágreiningurinn um
veru hersins hefur nú verið
til lykta leiddur með brottför
Varnarliðsins er afar brýnt
að deilurnar um nýtingu
náttúru Íslands skapi ekki
nýja gjá.“
HERRA ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON, FORSETI ÍSLANDS, VIÐ
SETNINGU ALÞINGIS. FRÉTTABLAÐ-
IÐ 3. OKTÓBER.
Stutt í skítinn
„Það er flókið mál
og margt sem spilar
inn í,“ segir Jóhann
Ágúst Jóhannsson,
útgáfu- og kynn-
ingarstjóri hjá 12
Tónum um hina
eilífu spurningu um
samband fyrirtækja
og tónlistarmanna.
„Það spilar inn í hvar
menn eru staddir og hvert þeir vilja
stefna. Þetta getur hentað vel þeim
sem eru að ryðja sér til rúms og gott
dæmi um það er t.d. hljómsveitin
Jeff Who? sem allir þekkja núna eftir
að lagið Barfly var notað í auglýs-
ingaherferð Fréttablaðsins. Það er
dýrmætt nýjum sveitum að heyrast
á skjánum kvöld eftir kvöld og ekki
spurning um peninga heldur kynn-
ingu. Mér finnst það ekki koma niður
á heilindum tónlistarmanna þótt þeir
taki þátt í svona. Eins er það afar
jákvætt þegar stórfyrirtæki styðja við
bakið á tónlistarmönnum, t.d. með
aðkomu að útrásarverkefnum.“
Í Blaðinu um helgina sagði KK að
honum hefði oft verið boðið fúlgur
fjár fyrir að leyfa notkun á tónlist
sinni í auglýsingum, en hann hafi
alltaf neitað, enda vildi hann ekki
„leika sér í skítnum“. „Ég ber virðingu
fyrir mönnum eins og KK sem taka
afgerandi afstöðu. Það er meðalvegur
í þessu og eflaust stutt í skítinn ef
menn passa sig ekki. Það þarf að
velja vel,“ segir Jóhann.
JÓHANN ÁGÚST
JÓHANNSSON
„Það er helst að frétta að ég er á kafi ofan
í skruddunum,“ segir Dagbjört Hákon-
ardóttir sem er á þriðja ári í lagadeild
Háskólans. „Námið er eiginlega bæði
leiðinlegra og skemmtilegra en ég
bjóst við. Í allt sumar var ég innilok-
uð í KB-banka og vann mikið en
uppskar kannski ekki alveg eins
og ég sáði fjárhagslega.“
Dagbjört sér þó til sólar því
framundan er ferðalag. „Ég fer
til Bologne á Ítalíu í næstu
viku og hlakka mikið til. Ég
ætla að heimsækja kærast-
ann sem er þar við ítölsku-
og bókmenntanám. Svo
er maður kominn á fullt í
stúdentapólitíkinni með
Röskvu. Við verðum með
endurfundasamkomu gamalla
Röskvuliða um næstu helgi og
nú fer hver að verða síðastur
að skrá sig í það. Allir gamlir
vinstrimenn eru velkomn-
ir. Það verður dinner og
skemmtiatriði. Við gefum
ekkert upp með skemmti-
atriðin en þau munu
örugglega koma á óvart.
Síðan ætla ég að hjálpa til
í prófkjörsbaráttu Samfylk-
ingarinnar og þá er
ég helst að hugsa
um að hjálpa
Bryndísi Ísold
Hlöðversdóttur
og Ágústi Ólafi
Ágústssyni.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? DAGBJÖRT HÁKONARDÓTTIR LAGANEMI
Til Ítalíu að hitta kærastann
Það er allt að verða vit-
laust í Noregi. Anne Lise
Gjul, skólastjóri Dvergsnes
grunnskólans í Kristjáns-
sandi, gerði það að reglu í
skólanum að strákar ættu
að sitja þegar þeir pissuðu.
Formaður Demókratana í
Noregi, Vidar Kleppe, er
æfur og segir: „Með þessu
er verið að skipta sér af
sköpunarverki Guðs, því
strákar hafa pissað stand-
andi frá örófi alda. Það eru
mannréttindi að vera ekki
neyddur til að pissa eins og
stelpa!“
Skólastjórinn Anne vill lítið segja
um orð Vidars, sem fer fyrir flokki
sem er mótfallinn innflytjendum í
Noregi og berst fyrir meiri kristni-
fræðslu í skólum, og segir ákvörð-
unina eingöngu hafa verið tekna út
frá hreinlætissjónarmiðum af því
að ungir strákar séu ekkert of góðir
í að hitta ofan í klósettskálina. Málið
er komið í nefnd.
Þetta mál er angi af gömlu hita-
máli á heimilum. Konur – og þá sér-
staklega konur sem sjá um þrif á
heimilum – vilja gjarnan að karl-
arnir pissi sitjandi. Þær fá þó sjald-
an vilja sínum framgengt því marg-
ir karlmenn álíta það hluta af
karlmennsku sinni að pissa stand-
andi. Sígilt er atriði í kvikmyndinni
About Schmidt, þegar Jack Nichol-
son gerir uppreisn eftir lát eigin-
konu sinnar og pissar standandi og
út um allt.
En þetta er að breytast. Meðvit-
aðir karlmenn eru farnir að pissa
sitjandi. „Ég þekki fleiri en einn
karlmann sem hefur vanið sig af
því að pissa standandi í snarhasti
eftir að hann varð ábyrgur fyrir
þrifum,“ skrifar Bjarni Rúnar Ein-
arsson á heimasíðu sinni bre.klaki.
net. „Ég tel sjálfan mig þar með – ég
pissa yfirleitt sitjandi ef klósettið
er ekki þeim mun subbulegra fyrir.
Snyrtimennskan og þrifin eiga þar
stóran þátt, en það skiptir mig einn-
ig máli að það fer víst betur með
þvag- og kynfærin að sitja. Maður
nær betur að tæma allt dótið og það
þykir víst hollt. Ég vil fara vel með
græjurnar mínar.“
Guðjón Haraldsson, þvagfæra-
skurðlæknir á Landspítalanum,
segir að engar rannsóknir styðji
það eða hafni að betra sé að pissa
sitjandi. „Það hefur ekki verið hægt
að sýna fram á það að blaðran tæm-
ist betur þótt menn sitji,“ segir
hann. „Þetta er mjög einstaklings-
bundið, sumum karlmönnum finnst
þeir tæma blöðruna betur sitjandi
en öðrum ekki. Það er fyrst og
fremst af tillitssemi við þann sem
þrífur að karlmenn ættu að sitja.“
Nokkrar umræður spunnust af
játningu Bjarna Rúnars á heima-
síðu hans. Karlmenn af gamla skól-
anum voru andsnúnir því að pissa
sitjandi, en nokkrir tóku undir,
þ.á m. Már Örlygsson: „Ég er sam-
mála Bjarna. Það eina sem mér
finnst vanta í röksemdafærsluna
hjá honum er að það er líka auðveld-
ara að pissa sitjandi þegar maður er
með morgunstandarann.“
Í Bandaríkjunum eru starfrækt
samtökin MAPSU, Mothers Against
Peeing Standing Up. Samtökin
framleiða boli með merki sínu og
áminningarveggspjöld til að hengja
upp í baðherbergjum. Þau stefna að
breyttum klósettvenjum heims-
byggðarinnar fyrir árið 2010. Sam-
tökin ganga svo langt að segja að
standandi þvaglát karlmanna sundri
fjölskyldum. „Hver þrífur klósettið
á þínu heimili?“ spyrja samtökin í
stefnuskrá sinni, „Mamma þín?
Konan þín? Þótt þú þrífir sjálfur,
hvað gerist þegar þú ert gestur hjá
vinum eða ættingjum eða þegar þú
notar almenningssalerni? Af hverju
ætti einhver að þjást vegna tregðu
þinnar til að setjast niður?“
gunnarh@frettabladid.is
Alvöru karlmenn pissa sitjandi
SALERNI Á NÚLLINU Að sitja eða ekki sitja, þar er efinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Jú, þetta er búið að vera yfirvof-
andi lengi, eða síðan það var skorið
niður í fyrra,“ segir Haraldur
Ringsted Steingrímsson, einn þeirra
sem var nýlega sagt upp á ratsjár-
stöðinni á Bolafjalli. „Þetta kom svo
sem engum á óvart en maður vonaði
að þetta yrði ekki alveg strax. Ég
verð að vinna út maí og er ekkert
búinn að ákveða hvað tekur við þá.“
Haraldur býr með eiginkonu sinni
og þremur börnum í Bolungarvík.
„Við erum nýbúin að kaupa hús og
ætlum að vera hér áfram. Það er
mjög fínt að vera á Bolungarvík.“
Haraldur hefur séð um fyrir-
byggjandi viðhald á radar og búnaði
stöðvarinnar en nú á að stjórna við-
haldinu úr bænum og líklega senda
viðgerðarteymi vestur einu sinni í
mánuði. Bæjarráð Bolungarvíkur
hefur lýst yfir miklum vonbrigðum
með ákvörðun Ratsjárstofnunar
enda hverfa um 5 prósent útsvars-
tekna Bolungarvíkurkaupstaðar
með þessum uppsögnum.
Haraldur er trommari og er
nýbyrjaður í hljómsveit með bæjar-
stjóranum Grími Atlasyni, Lýði
Árnasyni lækni á Flateyri og Her-
manni Ása. Bandið heitir Grjóthrun
og hélt nýlega sína fyrstu tónleika í
Einarshúsi. „Við spiluðum bara
frumsamin rokklög og okkur var
vel tekið. Nú er bara eins gott að
Grjóthrun meiki´ða og verði næsta
útflutningsvara Bolungarvíkur
fyrst ratsjárstöðin er á förum,“
segir Haraldur, nokkuð brattur
bara. - glh
Haraldur Ringsted vonar að Grjóthrun meiki´ða:
Var drekinn á Bolafjalli
HARALDUR RINGSTED STEINGRÍMSSON
Mjög fínt að vera á Bolungarvík.
FRÉTTABLAÐIÐ/YLFA MIST
Prófkjör Samfylkingarinnar
í Suðvesturkjördæmi
Haldið verður prófkjör vegna vals á fram-
boðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjör-
dæmi við Alþingiskosningar vorið 2007.
Prófkjörið fer fram laugardaginn 4. nóvember
2006. Rétt til framboðs í prófkjörinu eiga allir
félagar í Samfylkingunni sem hafa kjörgengi
við Alþingiskosningar 2007.
Yfi rlýsingum um framboð ásamt meðmælum
eigi færri en 10 og eigi fl eiri en 20 fullgildra
félaga í Samfylkingunni skal skilað til formanns
valnefndar, Halldór S. Magnússonar, Smárafl öt
30, 210 Garðabæ, eigi síðar en kl. 22:00 föstu-
daginn 6. október 2006. Einnig mun valnefnd
taka á móti framboðum á skrifstofu Samfylk-
ingarinnar að Strandgötu 43 í Hafnarfi rði
föstudaginn 6. október kl. 20:00 til 22:00.
MERKI MÆÐRA GEGN STANDANDI
ÞVAGLÁTI Vilja breyttar klósettvenjur
fyrir árið 2010.
BJARNI RÚNAR EINARSSON Vill fara vel
með græjurnar sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
VIDAR KLEPPE FORMAÐUR DEMÓ-
KRATANA Mannréttindi að fá að pissa
standandi.
ÞARFAÞING:
GERVIKLÆR
FYRIR GÆLUDÝR
■ Bandaríska
fyrirtækið Soft
Claws hefur
framleitt gervi-
klær fyrir gælu-
dýr síðan 1990.
Klærnar eru úr mjúku plastefni og
eru límdar á klær bæði hunda og
katta. Flest dýr sætta sig vel við
gerviklærnar og eigendurnir eru
himinlifandi því nú eru húsgögnin
óklóruð og hægt er að þrífa dýrin
án teljandi meiðsla. Klærnar koma
í öllum regnbogans litum. Marg-
ir eigendur velja liti eftir árstíðum
og einnig er boðið upp á klær með
jóla- og hrekkjavökuþema.