Fréttablaðið - 04.10.2006, Blaðsíða 23
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Ingibjörg Ólafsdóttir er á síðasta ári í
BA-námi í félagsfræði og atvinnulífs-
fræði í Háskóla Íslands.
Ingibjörg tekur félagsfræði sem aðalgrein
til sextíu eininga og atvinnulífsfræði sem
aukagrein til þrjátíu eininga. „Fyrstu önn-
ina mína var ég reyndar í viðskiptafræði og
hef fengið svolítið metið af því auk þess
sem ég hef tekið nokkur námskeið í stjórn-
málafræði svo ég blanda þessu öllu saman
til að fá breiðari grunn,“ segir Ingibjörg.
Atvinnulífsfræðin er mjög spennandi
fræðigrein að mati Ingibjargar. „‚Í atvinnu-
lífsfræðinni hef ég til dæmis verið að skoða
vinnumenningu og velta því fyrir mér hvort
hún sé sterkari en fjölskyldumenningin og
ef svo er, hvernig það komi þá út fyrir
okkur. Ég hef líka verið að skoða alþjóða-
væðinguna og áhrif hennar, hvort hún
þrýsti einhverjum hópum út af vinnumark-
aðnum og ef hún gerir það, hvaða hópar eru
það þá og hvað verður um þá. Pælingarnar
eru endalausar og það fer bara eftir því
hvar áhugasviðið liggur hvað maður vill
skoða. Það sem mér finnst gera þetta nám
sérstaklega spennandi er að maður fær, ef
maður vill, svo mörg sjónarhorn á atvinnu-
lífið.“
Ingibjörg er farin að huga að lokaverk-
efninu sínu og þar sem hún er sjálf einhent
ætlar hún að skoða stöðu einhentra á vinnu-
markaðnum. „Við erum svona þrjátíu til
fjörtíu í allt og það er ekki til nein tölfræði
um þennan hóp. Mig langar að skoða hvern-
ig þessi hópur hefur það á vinnumarkaðn-
um og hvort hann skili sér út í atvinnulífið
eða ekki.“
Eftir áramót ætlar Ingibjörg að fara til
Bandaríkjanna sem skiptinemi í hálft ár.
„Ég er að fara til L.A. og klára námið mitt
úti þannig að þegar ég kem heim á ég bara
verkefnið eftir. Ég stefni svo á að vera
komin með annan fótinn inn á vinnumark-
aðinn næsta sumar og vera þá með hinn
uppi í háskóla að klára verkefnið mitt og
byggja ofan á námið.“
emilia@frettabladid.is
Atvinnulífið skoðað
frá ýmsum hliðum
Ingibjörg ætlar að skoða stöðu einhentra á vinnumarkaðnum í lokaverkefninu sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
ALMENNINGUR OG BIFREIÐAUMBOÐ KEPPA JAFNHLIÐA UM
MINNSTU ELDSNEYTISNOTKUNINA.
Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu fer fram laugardaginn 7. okt-
óber næstkomandi á sjálfsafgreiðslustöð Atlantsolíu við Bíldshöfða
20. Keppnin er bæði ætluð fyrir almenning og bifreiðaumboð.
Skráning og allar frekari upplýsingar eru á heimasíðunni atlants-
olia.is/sparakstur.aspx eða hjá FÍB, Borgartúni 33. Þátttökugjald
er 900 kr. fyrir félagsmenn í FÍB og/eða handhafa dælulykils
Atlantsolíu en 1.800 kr. fyrir aðra. Ökumenn skulu hafa með sér
aðstoðarmann í bifreiðinni og heimilt er að hafa fleiri en einn
farþega með í bifreiðinni.
Eknir verða rúmlega 140 kílómetrar og markmiðið er að kom-
ast keppnishringinn á sem minnstu magni eldsneytis. Keppnin
fer fram í almennri umferð og af þeim sökum skiptir nokkru að
keppnisbílar séu ekki annarri umferð til trafala. Því er mikilvægt
að keppendur fylgist með og taki tillit til umferðar og reyni eftir
megni að liðka til fyrir framúrakstri. Keppnishringurinn verður
ekinn innan hámarkstímamarka. Það þýðir að ef bíll fer hægar en
tímamörk segja til um eru gefin refsistig.
Alls er keppt í tólf flokkum, eða sex stærðaflokkum af bensínvél-
um og jafnmörgum af dísilvélum.
Keppt í sparakstri
Sparaksturskeppnin gengur út á að keyra rúma 140 kílómetra á
sem minnstu magni eldsneytis. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Hádegisfundur á vegum Evrópu-
réttarstofnunar Háskóla Reykja-
víkur verður haldinn 10. október
kl. 12.00-13.00. Forstöðumaður
stofnunarinnar, Peter Cr. Dyberg,
flytur erindið „Impact of the EEA
on National Tax Rules“. Hægt
er að skrá í síma 599 6267 eða
á netfangið johanna@ru.us. Þátt-
tökugjald er 1.500 kr. Sjá nánar
www.hr.is.
Útgáfustarfsemi Útiveru hefur
verið flutt úr Hafnarfirði á aðra
hæð Suðurlandsbrautar 54. Í
nýju húsnæði er betra sýning-
arrými fyrir blöð og bækur, auk
þess sem betri aðstaða er til að
taka á móti gestum. Nánar á
vefsíðu Útiveru, www.utivera.is.
Keppnisbíll Borgars Ólafssonar
og Jóns Bjarna Hrólfssonar, sem
gekk mjög vel í Íslandsmótinu
í ralli í sumar, verður hafður til
sýnis í sal Brimborgar í október.
Bíllinn sem er af gerðinni Ford
Focus færði þeim sigur í sínum
flokki, það er tvö þúsund
flokknum. Sjá nánar á www.
brimborg.is.
ALLT HITT
[NÁM FERÐIR BÍLAR]
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
4. október, 277. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.44 13.16 18.47
Akureyri 7.31 13.01 18.29
FLOTTIR BÍLAR
Í FRAKKLANDI
Fjöldinn allur af bílum var fram-
sýndur á bílasýningunni
í París.
BÍLAR 2
FRÆÐSLA OG
SÓLRÍKAR STRENDUR
Lífsstílsnámskeið á
Kanaríeyjum.
FERÐIR 4