Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 4. október 2006 3 TÍU ATRIÐI SEM OF MARGIR FLASKA Á ÞEGAR NÝR EÐA NOTAÐUR BÍLL ER KEYPTUR. Það er gaman að kaupa nýjan bíl en mörgum hættir til að ganga fullhratt um gleðinnar dyr. Þeir eiga á hættu að borga of mikið eða enda jafnvel með bíl sem þeir eru ekki ánægð- ir með. Hér eru talin upp algeng kaupendamistök og hvernig ber að forðast þau. 1. Að falla fyrir einni tegund Þegar þú eyðir hálfum eða heilum árslaunum í bíl ættir þú ekki að láta ást þína á einni ákveðinni tegund koma í veg fyrir að þú skoðir aðrar tegundir. Kannski hentar önnur teg- und þér jafn vel en fæst á betra verði. Leggstu í heimavinnu og skoðaðu dóma og verð á netinu. Ekki láta orð sölumannsins vera einu upplýsing- arnar. 2. Að sleppa reynsluakstrinum Ef þú ert að kaupa nýjan eða nýlegan bíl ættir þú að reynslukeyra hann í að minnsta kosti 20-30 mínútur. Öðru- vísi veistu ekki hvort hann hentar þér, hvort hann stenst væntingar þínar og hvort hann skortir eitthvað sem þér finnst mikilvægt. Ekki láta orð annarra og glansmyndir í bæklingi duga. 3. Að semja út frá ásettu verði 50.000 króna afsláttur frá ásettu verði þarf ekki að vera kostaboð. Á vefsíðu Bílgreinasambandsins er leiðbeinandi verð fyrir flesta bíla og nema mikið meiri eftirspurn en framboð sé af bíln- um áttu að geta komist í námunda við það, jafnvel talsvert neðar. 4. Að einblína á afborganir Ekki láta afborganir vera útgangs- punkt sölumannsins til að finna þér bíl. Semdu fyrst um verðið. Eftir það geturðu samið um uppítökuverð gamla bílsins og þá fyrst geturðu farið að ræða fjármögnun. Ef þú býður sölumanninum að gera tilboð í allan pakkann hefur hann of mikið svigrúm til að hækka einn þátt á móti öðrum sem hann lækkar. 5. Að kaupa afsláttinn Ef bílar eru á tilboði, afslætti eða öðrum kostakjörum er yfirleitt ástæða fyrir því. Ekki kaupa bíl bara af því að verðið er gott. Skoðaðu dóma og berðu bílinn saman við aðra svipaða. Kannski finnurðu betri bíl á lægra verði. Alls ekki láta tilboð koma í veg fyrir að þú gerir lægra tilboð. Ef um notaðan bíl er að ræða þurfa bílasal- arnir oft að losna við þá sem fyrst. 6. Að hugsa ekki um fjármögnun Þú veist mjög líklega á hvaða verðbili næsti bíll verður og hvað þú hefur á milli handanna í innborgun eða uppítöku. Vertu búinn að kanna fjár- mögnunarmöguleika og hvaða leið er hagkvæmust fyrir þig. Ef bílasalinn býður ekki þá leið sem þér hugnast er vel hugsandi að sá næsti geri það. 7. Að vanmeta verðgildi öryggis- búnaðar Ekki halda að það sé óþarfi að borga fyrir ABS, stöðugleikakerfi eða auka loftpúða. Banaslys í umferðinni eru staðreynd og sá búnaður sem getur forðað þér frá því er hverrar krónu virði. Kannaðu á netinu hvernig þessi tiltekna árgerð bílsins hefur komið út úr árekstraprófunum og finndu þann bíl sem sér þér og fjölskyldu þinni fyrir nægilegri vernd. 8. Að kaupa óþarfa aukahluti Ef bíllinn er hlaðinn aukabúnaði sem þú hefur ekkert við að gera er líklegt að þú fáir hrárra eintak á betra verði. Ef bíll er keyptur frá útlöndum skaltu ekki kaupa aukalega ryðvörn og þess háttar. Í langflestum tilfellum er bíllinn nægilega vel varinn - og þú getur sjálfur bætt um betur fyrir minni pening. 9. Að rannsaka ekki raunvirði gamla bílsins Yfirleitt færðu meira fyrir gamla bílinn með því að selja hann heldur en að setja hann uppí. Finndu út gangverð bílsins og vertu viðbúinn að geta þurft að lækka þig aðeins frá því ef bílasalinn tekur hann upp í. En alls ekki mikið. 10. Að láta ekki ástandsskoða notaðan bíl Þegar þú kaupir notaðan bíl skiptir ástand eintaksins öllu máli. Meira að segja bestu bílar í heimi geta eyði- lagst ef engin er umönnunin. Láttu hlutlaust verkstæði ástandsskoða bílinn til að komast að leyndum göll- um, bilunum og sliti. Fáðu skriflega lýsingu og áætlaðan kostnað við að laga það sem er að. Það er notadrjúgt plagg í verðsamningum. Algeng mistök við bílakaup Nóg er til af bílunum og því ástæðulaust að ana út í bílakaup án undirbúnings. NORDIPHOTOS/AFP Á dögunum fengu hjónin Daði Rúnar Jónsson og Gróa Ólöf Þorgeirsdóttir upphringingu frá Ásu Björg Tryggvadóttir, markaðsfulltrúa Heklu. Hún vildi endilega lána þeim nýjan Mitsubishi Colt í þrjá mánuði, þeim að kostnaðarlausu. Í síðustu viku tók Fréttablaðið við- tal við Daða og Gróu vegna brúðar- bíls þeirra, en þau giftu síg síðast- liði sumar. Brúðarbíllinn var Mitsubishi Colt sem Daði hafði átt í mörg ár og var við það að gefast upp. Búið var að mála hjörtu á bíl- inn og koma fyrir kampavínsborði innanborðs og var bíllinn hinn glæsilegasti. Hjónin höfðu lofað gestum fornbíl og að vissu leyti stóðu þau við það en bíllinn er frá árinu 1992. Þegar starfsfólk Heklu las greinina fannst því aðdáunarvert hversu mikið þetta unga par lagði á sig fyrir bílinn sinn. „Okkur finnst mjög áhugavert hvað fólkinu þykir vænt um bílinn sinn og hvað þau reyna að halda honum skemmti- lega við,“ segir Ása. „Nú er að koma nýr Colt á markaðinn og við erum að fara af stað með auglýs- ingaherferð og fannst því tilvalið að leyfa þeim að prófa nýjan Colt og halda við áhuganum hjá þeim.“ Gróa og Daði voru að vonum ánægð með nýja bílinn, sem er víst nokkuð frábrugðinn gamla brúðar- bílnum. „Hann er allt öðruvísi og það er mjög gott að keyra hann,“ segir Gróa. „Svo er hann líka furðu rúmgóður miðað við hversu lítill hann er. Við höfum verið að bjóða vinunum í bíltúr og þeir hafa allir minnst á einmitt það hversu gott plássið er. Svo er líka búið að skipta út kampavínsborðinu fyrir útvarp og það er heilmikill munur.“ Örlög Krúttu, en svo nefnist gamli Coltinn, eru ekki ráðin. Hún fær frí í það minnsta næstu þrjá mánuði en hver veit nema að í framhaldinu verði hún sunnudags- bíllinn sem bara er keyrður innan- bæjar í þurru. Hún myndi án efa sóma sér ágætlega í miðri fornbíla- röðinni sem stundum myndast á fimmtudagskvöldum á Laugaveg- inum. - tgBrúðarbíllinn Krútta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nýr Colt fyrir nýbökuð hjón Daði og Gróa taka við lyklunum frá Ásu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Jeppadekk Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080 31" heilsársdekk verð frá kr. 12.900 www.alorka.is Sendum frítt um land allt! Við míkróskerum og neglum! Úrval af stærðum upp í 33" Opið á laugardögum 9-13 M IX A • fít • 6 0 4 9 7 ������ �� ������ ��� ��
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.