Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 31
Fjármagnar sig | KB banki hefur
gefið út skuldabréf fyrir 210 millj-
arða króna. Bankinn hefur því
lokið endurfjármögnun allra lang-
tímalána sem eru á gjalddaga á
næsta ári.
Hækkar hér | Meðal niðurstaðna
nýrrar samnorrænnar skýrslu
eftirlitsstofnana á fjarskiptamark-
aði er að GSM-þjónusta hækkar í
verði á Íslandi meðan hún lækkar
á hinum Norðurlöndunum.
Úr FlyMe | Fons eignarhaldsfélag,
sem er í eigu Pálma Haraldssonar
og Jóhannesar Kristinssonar,
hefur selt rúman tuttugu prósenta
hlut sinn í sænska lággjaldaflug-
félaginu FlyMe.
Hallinn minnkar |
Vöruskiptahallinn í ágúst var 3,2
milljörðum króna lægri en í ágúst
árið 2005. Fluttar voru út vörur
fyrir 16,6 milljarða og inn fyrir
28,2 milljarða króna.
Vilja Icelandair | Flugrisinn
SAS hefur sýnt áhuga á að kanna
kaup á Icelandair. Forsvarsmenn
SAS hafa sett sig í samband við
FL Group og lýst áhuga á að skoða
kaup á félaginu.
Stofna bandalag | Eimskip hefur
keypt meirihluta í finnska skipa-
félaginu Containerships. Félögin
taka höndum saman um að mynda
eitt stærsta flutningabandalag
Evrópu í styttri siglingum.
Allt upp | Miklar hækkanir ein-
kenndu þriðja ársfjórðung á
innlendum hlutabréfamarkaði.
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
hækkaði um rúm fimmtán prósent
á tímabilinu, eða um 830 stig.
Undir einn | Öll starfsemi
Samskipa hefur sameinast undir
einu nafni og nýju merki félagsins
til að styrkja enn frekar ímynd
Samskipa á alþjóðlegum flutn-
ingamarkaði.
Stjórnendaskóli HR
7 venjur til
árangurs
19
Icelandair
Aftur í
almannaeign
8
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 4. október 2006 – 38. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Prófessor
Michael Porter
Hér er of mikið af
byggingarkrönum 10-11
Eggert Þór Aðalsteinsson
FL Group stefnir að því að skrá Icelandair Group
í Kauphöll Íslands fyrir árslok. Heildarvirði
Icelandair er 43 milljarðar króna og áætla stjórn-
endur FL að söluhagnaður félagsins verði 26 millj-
arðar króna.
FL og Glitnir hafa gert með sér samkomulag með
þeim hætti að Glitnir sölutryggir um 51 prósent
hlutafjár í kjölfar áreiðanleikakönnunar sem lýkur
um miðjan október. Þá hverfur Icelandair úr sam-
stæðu FL. Samkvæmt upplýsingum Markaðarins
mun Glitnir vera með fjárfestahópa til taks en
þetta mun vera eitt stærsta fyrirtækjaverkefni
sem bankinn hefur ráðist í.
Markmiðið með skráningunni er það að fá breið-
an hóp fjárfesta til liðs við Icelandair með sölu
hlutafjár til þeirra, þannig að því komi fagfjárfest-
ar, almenningur og ekki síst starfsmenn og stjórn-
endur. Gangi áform eftir um sölu hlutabréfanna
verður hámarkshlutur FL 49 prósent í Icelandair
en að sögn Hannesar Smárasonar, forstjóra FL,
kemur til greina að hluturinn minnki umtalsvert
eða jafnvel hverfi.
Hannes segir að það sé æskilegt að þetta mikil-
væga samgöngutæki þjóðarinnar verði í eigu lands-
manna og þetta er niðurstaðan eftir viðræður við
fjárfesta að undanförnu. Hún er jafnframt í anda
þeirrar yfirlýsingar frá því í febrúar um að koma
Icelandair í eigu almennings. „Það er svo ekkert
eitt sem hægt er að tiltaka í þeim efnum annað
en það að við vorum að horfa til þess að hámarka
okkar eigin arðsemi sem er okkar hlutverk. Að
sama skapi að búa til umhverfi fyrir félagið þannig
að það geti vaxið og dafnað.“
Forstjórinn vill ekki tjá sig um hvers vegna
hefði slitnað upp úr viðræðum FL við KB banka
fyrir hönd Kers. Félagið greini ekki opinberlega frá
efnisatriði einstakra viðræðna, til dæmis verðhug-
myndum. Hann telur að verðlagning og aðferða-
fræði með fyrirhugaðri skráningu séu ásættanleg
fyrir núverandi hluthafa og fjárfesta.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segir að
bankinn sé að taka að sér spennandi verkefni. „Við
erum mjög sannfærð um að það er mikill áhugi
fjárfesta og við höfum fundið það á félaginu. Það
hefur ekki síst komið fram í umfjöllun í fjölmiðlum
að undanförnu.“
Icelandair Group skráð
í Kauphöll fyrir árslok
FL Group leysir út 26 milljarða í söluhagnað. Almenningi og
fagfjárfestum boðin bréf til kaups. Forstjóri FL segir verðið
ásættanlegt en gefur ekki upp efnisatriði viðræðna við Ker.
Ker, sem er að stærstum
hluta í eigu Ólafs Ólafssonar í
Samskipum, tilkynnti í gærmorg-
un að félagið hefði slitið við-
ræðum við FL Group um kaup á
Icelandair Group.
Hjörleifur Jakobsson, forstjóri
Kers, segir að mönnum hafi þótt
aðferðafræðin við söluna ásamt
verðlagningu Icelandair ekki
vera ásættanleg en KB banki
ræddi við forsvarsmenn FL fyrir
hönd Kers. „Við ákváðum því
að slíta viðræðunum og snúum
okkur að næstu verkefnum með
bros á vör.“
Talið er líklegt að Ker hafi
ekki verið tilbúið að borga þá 43
milljarða króna fyrir heildarvirði
Icelandair sem nú er horft til við
skráningu félagsins í Kauphöll.
- eþa
Ker gekk frá
samningaborði
SPRON hefur lokið við fjármögn-
un upp á 90 milljónir evra, sem
samsvara átta milljörðum króna,
en sökum mikllar eftirspurnar
fjárfesta var ákveðið að sækja
meira fé út á markaðinn.
„Við erum mjög sáttir við þann
áhuga sem okkur var sýndur og
þau kjör sem okkur bjóðast,“ segir
Guðmundur Hauksson, sparis-
sjóðsstjóri SPRON. Guðmundur
segir að kjörin séu þó heldur
hærri þegar sparisjóðurinn tók
sambankalán á síðasta ári.
Lántakan styðji við vöxt, sem
hefur verið mikill hjá SPRON
á þessu ári. „Við höfum alltaf
viljað hafa sterka sjóðsstöðu og
þetta er mikilvægur liður í því.“
- eþa
SPRON lýkur
við fjármögnun
FORSVARSMENN SPRON Sparisjóðurinn
lauk við átta milljarða króna fjármögnun
sem var vel tekið af fjárfestum.
Fjárfestar sem búsettir eru
erlendis áttu íslensk ríkisskulda-
bréf fyrir 51 milljarð íslenskra
króna að markaðsvirði í lok júlí.
Þetta nemur helmingi íslenskra
ríkisskuldabréfa á móti eign inn-
lendra aðila. Þetta er talsverð
aukning á milli ára en á svipuð-
um tíma í fyrra áttu fjárfestar
með búsetu erlendis 27 prósent
ríkisskuldabréfa að verðmæti 24
milljarða íslenskra króna.
Lánasýsla ríkisins og sam-
starfsaðilar hennar hófu kynn-
ingarátak íslenskra ríkisskulda-
bréfa árið 2001 með vefsíðu með
það fyrir augum að kynna ríkis-
skuldabréfin á erlendum vett-
vangi. Eign erlendra fjárfesta þá
nam innan við 5 prósentum og
þykir ljóst að aukningin á þessu
fimm ára tímabili er geysimikil.
Þórður Geir Jónasson, for-
stjóri Lánasýslu ríkisins, segir
aukna eign fjárfesta með búsetu
erlendis á íslenskum ríkisskulda-
bréfum hluta af alþjóðavæðingu
íslenska fjármálamarkaðarins.
Þá hafi bankar og fjármálastofn-
anir lagt sitt á vogarskálarnar
með því að að birta greiningar-
efni á ensku um svipað leyti.
„Vefsíða Lánasýslunnar gerði
alla þessa góðu vinnu sýnilegri
með því að safna öllu efninu
saman á einn stað,“ segir Þórður
og bendir á að fyrir árið 2001 hafi
erlendir fjárfestar þekkt lítið til
markaðarins hér á landi og hvorki
þekkt vefsíður Seðlabankans né
Hagstofunnar, svo fátt eitt sé
nefnt.
Ekki liggur fyrir í hvaða lönd-
um fjárfestarnir eru. Lánasýslan
vinnur nú að því að greina það
og er búist við að hægt verði að
flokka fjárfesta eftir búsetu um
næstu áramót. - jab
Fjárfestar erlendis eiga helm-
ing íslenskra ríkisskuldabréfa
Hluti af alþjóðavæðingu fjármálamarkaðarins, segir forstjóri Lánasýslunnar.