Fréttablaðið - 04.10.2006, Blaðsíða 45
H A U S
MARKAÐURINN 15MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Breski auðkýfingurinn og orku-
boltinn Richard Branson svipti í
síðustu viku í New York hulunni
af líkani geimskutlu, sem notuð
verður til að bjóða farþegum far
út í geim á vegum ferðaskrif-
stofunnar Virgin Galactic.
Geimskipið rúmar sex far-
þega auk tveggja flugstjóra. Í
flota fyrirtækisins verða fimm
geimskutlur auk tveggja móð-
urskipa, sem eiga að koma
geimskutlunum fyrstu kílómetr-
ana í loftið. Þá er fyrirhugað
að reisa svokallaða geimhöfn í
Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum,
sem verður miðstöð ferðaskrif-
stofunnar.
Vonir standa til að almenn-
ingur geti nýti sér ferðir af
þessum toga í einhverjum mæli.
Ferðin kostar um 100.000 pund
eða jafnvirði rúmra 13,3 millj-
óna íslenskra króna, sem er
talsvert ódýrara en 10 daga túr
til Alþjóðlegu geimstöðvarinn-
ar með rússneska geimfarinu
Soyuz en ferðin þangað kostar
um 1,4 milljarða króna.
Geimskutlan er byggð á
bandarísku geimflauginni
SpaceShipOne, sem bandaríski
auðkýfingurinn Paul Allen,
annar stofnenda hugbúnaðarris-
ans Microsoft, lagði fjármagn
til að smíða og fór þrívegis út
í geim árið 2004. Um var að
ræða fyrstu geimflaugina sem
skotið var út í geim á vegum
einkaaðila.
Að sögn Bransons hefur
fjöldi manns þegar skráð sig
fyrir miðum í geimflugið og er
fyrirhugað að fara fyrstu ferð-
irnar eftir þrjú ár.
GEIMSKUTLAN KYNNT Richard Branson og félagar hans hjá Virgin Galactic sýna hvernig skutlan sem fara á með farþega út í geim á
vegum ferðaskrifstofunnar mun líta út. MARKAÐURINN/AFP
Geimskutlan sýnd
Virgin Galactic ætlar að bjóða almenningi ferðir út í geim
á viðráðanlegu verði eftir þrjú ár.
Sérfræðingar Evrópsku
geimvísindastofnunarinn-
ar (ESA) hafa svipt hul-
unni af bungunni leyndar-
dómsfullu á Mars. Um er
að ræða hæð eða lítið fjall
á yfirborði plánetunnar.
Bunga þessi hefur
verið uppspretta ýmissa
vangavelt.a síðan hún kom
fyrst fram á myndum sem
geimfarið Viking 1 tók árið
1976. Meðal annars hefur verið talið
að andlit sjáist á myndinni, jafnvel
af bandaríska rokkkónginum Elvis
Presley, sem Marsbúar hafi mótað
til að sýna fram á að vitsmunalíf sé
að finna á plánetunni.
Jafnvel NASA tókst ekki að slá
á vangaveltur af þessum toga þrátt
fyrir góðar og skýrar
myndir af yfirborði Mars
árið 1998 og 2001 sem
sýndu að andlit Presleys
væri fjall eða hæð.
Það var geimfarið
Mars Express sem náði
nýjustu myndunum af
plánetunni rauðu fyrir
skömmu en um er að
ræða skýrari myndir en
nokkru sinni hafa náðst af
yfirborðinu.
Í tilkynningu frá ESA segir að
andlitið sé helber hugarburður
enda hafi myndirnar sýnt skýrt
og greinilega að yfirborð Mars er
fremur hæðótt og um fjall sé að
ræða líkt því sem finnist á jarð-
kringlunni. - jab
HÆÐIN Á MARS
Margir telja að hæðin
á Mars sé andlitsmynd
Elvis Presley, sem
Marsbúar hafi mótað
til að sýna fram á að
þar sé vitsmunalíf að
finna. MARKAÐURINN/AP
Hulunni svipt af andlitinu á Mars
Hópur verkfræð-
inga við Cambridge-
háskóla í Bretlandi
hefur búið til sveigj-
anlegar og þunnar
plötur úr málmblöndu.
Vonir eru bundnar við
að hægt verði að búa
til örþunnan tölvuskjá
úr sveigjanlegu efni úr
málmblöndunni, sem
hægt verður að rúlla upp líkt og
blaði.
Þetta eykur líkurnar á því til
muna að hægt verði að framleiða
tölvuskjái sem hægt verði að
brjóta saman, stinga í jakkavasa
og lesa til dæmis í strætisvagni á
leið í vinnuna.
Vísindamennirnir segja sömu-
leiðis að með sama efni verði
hægt að búa til endurnýtanlegar
pakkningar, lyklaborð fyrir tölv-
ur sem hægt verði að rúlla upp
og brjóta saman.
Þá er horft til þess
að málmblönduna
megi nota til að búa
til neyðarskýli, sem
hægt sé að reisa við
erfiðar aðstæður.
Dr. Keith
Seffen, yfirmaður
verkefnisins, líkir
plötunni við reglu-
stiku. Þegar hún er beygð mikið
myndast mikið álag á einstaka
hluta hennar með þeim afleiðing-
um að hún brotnar. Málmblandan
er hins vegar þeim eiginleikum
gædd að álag málmplötunnar
hennar breytist og því er hægt
að beygja hana mikið og jafnvel
brjóta saman.
Ekkert hefur verið gefið upp
um það hversu langt sé í að upp-
rúllanlegur tölvuskjár líti dags-
ins ljós. - jab
DAGBLÖÐ Líkur hafa aukist
til muna á því að sveigjanlegir
tölvuskjáir sem hægt verði að
rúlla upp líkt og dagblaði líti
dagsins ljós. MARKAÐURINN/PJETUR
Styttist í sveigjanlega tölvuskjái