Fréttablaðið - 04.10.2006, Blaðsíða 64
4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR28
menning@frettabladid.is
!
Leikstjórinn Atom Egoy-
an er sérstakur gestur
Alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðarinnar í Reykjavík og
handhafi verðlauna þeirra
fyrir framúrskarandi
listræna kvikmyndasýn.
Egoyan ræddi við Krist-
rúnu Heiðu Hauksdóttur
um pólitíkina, stafrænu
byltinguna og samband sitt
við leikhúsið.
Egoyan er viðkunnanlegur maður
sem liggur mikið á hjarta, hann
er sögumaður af guðs náð en tök
hans á kvikmyndaforminu hafa
hrifið áhorfendur víða um heim.
Þekktustu myndir hans hingað
til eru The Sweet Hereafter frá
1997 og Exotica frá 1994 sem
báðar eru til sýninga á hátíðinni
nú. Enn fremur er hann þekktur
fyrir hina umdeildu mynd Ararat
en viðfangsefni hennar er þjóð-
armorð Tyrkja á Armenum í upp-
hafi síðustu aldar sem Tyrkir
hafa aldrei viðurkennt.
Rætur í leikhúsinu
Egoyan er fæddur í Kaíró en for-
eldrar hans voru armenskir
flóttamenn sem síðar fluttu til
Kanada. Samfara háskólanámi
sínu í Toronto lagði Egoyan stund
á alþjóðasamskipti og klassískan
gítarleik og komst ungur í kynni
við leikhúsið. „Um það leyti sem
ég útskrifaðist úr framhalds-
skóla hafði ég skrifað tólf leikrit
og hélt raunar að ég yrði leik-
skáld. Ég hrífst ennþá af leikhús-
inu, absúrdleikhúsið er í sér-
stöku uppáhaldi hjá mér,“ segir
hann og nefnir Pinter, Adamov
og Ionesco í því tilliti að ógleymd-
um Beckett en Egoyan gerði
kvikmyndaaðlögun byggða á
leikverki hans, Síðasta segul-
bandi Krapps, sem hann mun
mögulega sýna íslensku kvik-
myndaáhugafólki. Enn fremur er
Egoyan á leið til Lundúna þar
sem hann mun halda erindi um
Beckett í Tate-listasafninu í lok
vikunnar. Síðar heldur hann til
Frankfurt þar sem hann tekur
við verðlaunum á bókamessunni
þar í borg fyrir nýlega kvik-
myndaaðlögun sína á samnefndri
skáldsögu Rubert Holmes, Where
the Truth Lies.
Auk þess að starfa við kvik-
myndir hefur Egoyan einnig
unnið verk fyrir sjónvarp, komið
að óperuuppsetningum og unnið
innsetningar fyrir gallerí.
Tvístraðar langanir
Egoyan vísar til örvæntingar og
geggjunar í viðfangsefnum
absúrdleikhússins sem heillar
hann mest, en í myndum leik-
stjórans má á vissan hátt sjá
votta fyrir slíku. Þegar verk hans
ber á góma verður sumum tíð-
rætt um afneitun, sambandsleysi
og firringu. Flóknar fjölskyldu-
aðstæður, hlutur minninganna og
tvístraðar langanir mannsins
gegna lykilhlutverki þegar Egoy-
an varpar mannlífsstúdíum
sínum á hvíta tjaldið eða á sjón-
varpsskjáinn. Hann skrifar öll
sín handrit sjálfur og hikar ekki
við að varpa upp erfiðum spurn-
ingum.
Deilurnar sem spruttu upp í
kringum Ararat leiddu til þess að
hann tók pólitískari afstöðu en
ella og hann segir að það muni
mögulega endurtaka sig með nýj-
ustu mynd hans, Citadel. „Ég var
efins þegar ég gerði Ararat,
myndin átti að vekja umræðu en
vakti gífurlega hörð viðbrögð.
Ég varð að verja pólitíska afstöðu
armenska samfélagsins og tala
um þessi mál því ég er ekki hlut-
laus í minni skoðun.“ Egoyan
kveðst hafa mikinn áhuga á
alþjóðapólitík og hann er virkur í
baráttustarfi mannréttindasam-
taka í heimalandi sínu. „Mér
finnst hlutverk listarinnar vera
að spyrja réttu spurninganna en
ekki endilega svara þeim. Ég
efast sjálfur um listamenn sem
reyna að hafa áhrif á túlkun
áhorfenda sinna en stundum er
það nauðsynlegt,“ segir hann.
Egoyan áréttar þó að mikil-
vægt sé að fólk sé meðvitað um
að listin og þá sér í lagi kvik-
myndir séu túlkun. „Myndir geta
verið tælandi og þær gefa fyrir-
heit um að það sem við sjáum sé
satt og rétt,“ segir hann og bætir
við að þess vegna sé orðfæri og
myndmáli beitt til að framand-
gera aðstæður og árétta hug-
lægnina sem býr að baki hverri
túlkun. „En ef þú ert meðvitaður
um hlutverk þitt og ábyrgð sem
áhorfandi upplifir þú listina á
annan hátt,“ úskýrir Egoyan.
Persónuleg mynd
Nýjasta verk Egoyans, heimilda-
myndin Citadel, er af allt öðrum
toga og á sér óvenjulegan aðdrag-
anda. „Citadel er undarleg mynd,“
viðurkennir Egoyan, „hún var
tekin upp í fjölskylduferð til
Beirút fyrir tveimur árum.
Ákveðnir ófyrirsjáanlegir en
merkilegir atburðir áttu sér stað
í þeirri ferð og þegar við komum
heim setti ég myndirnar inn á
tölvuna og fór að leika mér með
þær. Myndin varð síðan að bréfi
til sonar okkar því hann mun
aldrei muna þessa ferð eins og
við, hann er bara tíu ára, en þessi
ferð breytti lífi foreldra hans.
Myndin er ekki endilega sönn í
þeim skilningi, hún hefur eigin-
leika heimagerðs fjölskyldu-
myndbands en hefur dramatíska
byggingu,“ útskýrir hann.
Vegna ástandsins í Beirút er
Egoyan mjög meðvitaður um
hvar hann sýnir myndina. „Ég
held að myndin veki mjög sterk
viðbrögð við pólitísku ástandi í
landinu, hún er um fjölskyldu-
sambönd en þetta er líka mynd
um landið og borgina og þess
vegna hef ég ekki dreift henni
markvisst.“ Egoyan áréttar að
það hafi verið mjög áhugavert að
vinna að myndinni ekki aðeins
vegna þess að hún sé mjög per-
sónuleg heldur vegna þess að hún
er gerð fyrir mjög lítið fé. „Á
sama tíma var ég að klára Where
the Truth lies sem er dýrasta
mynd mín hingað til. Svo er bara
spurning hvert ég sný mér næst
– ég er alls ekki viss um hvar ég
ætla að staðsetja mig,“ segir
hann að lokum.
Egoyan mun flytja erindi og
svara spurningum kvikmyndaá-
hugafólks í hátíðarsal Háskóla
Íslands kl. 15 í dag auk þess sem
hann sýnir myndbrot úr nýjustu
verkum sínum.
Kl. 20.00
Söngsveitin Fílharmonía heldur
tónleika í Langholtskirkju og flytur
Carmina Burana eftir Carl Orff.
Einsöngvarar eru Hallveig Rún-
arsdóttir, Bergþór Pálsson og Einar
Clausen. Píanistar eru Guðríður
St. Sigurðardóttir og Kristinn Örn
Kristinsson. Auk þess leikur í
verkinu sex manna slagverkssveit
skipuð slagverksleikurum úr Sin-
fóníuhljómsveit Íslands.
Tónlistarmaðurinn Benedikt Hermann Hermanns-
son, Benni Hemm Hemm, hefur samið nýja tónlist
við stórvirki sænska leik-
stjórans Victor Sjöstrom,
Berg-Ejvind och hans hustru,
sem hann byggir á leikriti
Jóhanns Sigurjónssonar
um útlegumanninn Fjalla-
Eyvind. Hljómsveit Benna
Hemm Hemm mun flytja
tónlistina á tvennum tón-
leikum í Tjarnarbíói í kvöld
og annað kvöld.
Victor Sjöström er einn virt-
asti leikstjóri Svía frá upphafi
en myndina gerði hann árið
1918. Sögusvið hennar er á Íslandi og segir þar af
sambandi Höllu og Eyvindar þegar hann kemur til
vinnu á bænum þar sem Halla býr og þau fella hugi
saman. Heimilisfólkið ber kennsl á Eyvind því hann
er þekktur þjófur og þá flýja skötuhjúin til fjalla.
Leikrit Jóhanns naut mikillar hylli bæði hér á landi
og í Skandinavíu.
Benni Hemm Hemm var
valinn „bjartasta vonin“ á
Íslensku tónlistarverðlaun-
um í fyrra. Fyrsta plata sveit-
arinnar var einnig útnefnd
besta plata ársins í flokknum
ýmis tónlist. Þess fyrir utan
var hún ofarlega á árslistum
flestra tónlistargagnrýnenda
í lok síðasta árs, var vinsæl í
útvarpi og seldist vel. Platan
kom út í Japan snemma á
þessu ári, og er nýkomin út
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Von er á annarri plötu Benna Hemm Hemm hér á
landi fyrir lok ársins.
Tónleikarnir fara fram í Tjarnarbíói og hefjast kl.
20.30. Miðasala fer fram á www.midi.is, www.film-
fest.is og á Thorvaldsen Bar.
Sköpunarkraftur fyrr og nú
SENA ÚR SÖGUNNI UM FJALLA-EYVIND
Ný kvikmyndatónlist við sænsk-íslenska klassík.
> Dustaðu rykið af...
plötu Mjallar Hólm frá 1971 sem
inniheldur slagarana „Jón er kominn
heim“ og „Ástarþrá“. Platan kom út
hjá SG útgáfunni árið 1971 en þess
má geta að Mjöll verður ein þeirra sem
fagna 50 ára afmæli rokksins með
tónleikum í Salnum í næstu viku.
Að spyrja réttu spurninganna
RÆÐIR VIÐ GESTI ALÞJÓÐLEGU KVIKMYNDAHÁTÍÐARINNAR Í REYKJAVÍK Leikstjórinn
Atom Egoyan hikar ekki við að spyrja erfiðra og pólitískra spurninga.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Af afrekslista
Egoyans
Where the Truth Lies (2005)
Ararat (2002)
Krapp’s Last Tape (2001)
Felicia’s Journey (1999)
The Sweet Hereafter (1997)
Exotica (1994)
Calendar (1993)
Gross Misconduct (1993)
The Adjuster (1991)
Speaking Parts (1989)
Family Viewing (1987)
Next of Kin (1984)
ÚR MYNDINNI
WHERE THE TRUTH LIES
DAGSKRÁ
ALÞJÓÐLEGU
KVIKMYNDA-
HÁTÍÐARINNAR
Í DAG
Tjarnarbíó
14:00 Grbavica
16:00 Austur af Búkarest
18:00 Ferskt loft
20:30 Fjalla-Eyvindur/Benni
Hemm Hemm
22:15 Uppstoppun
Háskólabíó
18:00 Ljós í húminu
18:00 Sápa
18:00 Vort daglegt brauð
20:00 Framhaldslífið ljúfa
20:00 Ekkert
20:00 Sindurefni
20:10 Fjórar mínútur
22:00 Tjón
22:20 Exotica
22:25 Krákur
22:30 Rússneska örkin
Iðnó
14:00 Af engum
16:00 Sakleysi
18:00 Vertu eðlilegur
20:00 Kettirnir hans Mirikitani
22:00 Dæmdur heim
���������
�������������
���
��������
Málþing um safneign Nýlista-
safnsins verður haldið í salar-
kynnum safnsins við Laugaveg í
kvöld kl. 20. Nokkrir velunnarar
safnsins verða í pallborði, þar á
meðal Hannes Lárusson, Guð-
mundur Oddur, Gerla og Ólöf K.
Sigurðardóttir.
Á málþinginu verður fjallað
um framtíð safneignar Nýlista-
safnsins, geymslu, forvörslu og
hvort að eigi að halda áfram söfn-
un verka. Einnig verður fjallað
um hvort skilja eigi á milli sýn-
ingarhalds Nýlistasafnsins og
safneignarinnar og hver framtíð
safnsins yrði í því ljósi. Reynt
verður einnig að varpa ljósi á
söfnun listaverka samtímans,
hvert hlutverk Nýlistasafnsins
sé í því samhengi og hvernig
önnur söfn standa sig í því hlut-
verki.
Framtíð Ný-
listasafnsins
AF SÝNINGU NÝLISTASAFNSINS, GÆÐ-
INGARNIR, Í SUMAR Rætt um safneign
Nýlistasafnsins á málþingi í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR