Fréttablaðið - 04.10.2006, Síða 66
4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
TÓNLEIKARÚNTUR
HARÐAR TORFA
Þriðjudagur 3. okt. - kl. 20.30
Kaffi Krókur, Sauðárkrókur
Miðvikudagur 4. okt. - kl. 20.30
Bíókaffi, Siglufjörður
Fimmtudagur 5. okt. - kl. 20.30
Græni Hatturinn, Akureyri
Föstudagur 6. okt. - kl. 20.30
Kiðagil, Bárðardalur
Laugardagur 7. okt. - kl. 20.30
Gamli Baukur, Húsavík
Sunnudagur 8. okt. - kl. 20.30
Grunnskólinn, Kópasker
Mánudagur 9. okt. - kl. 20.30
Hótel Norðurljós, Raufarhöfn
Þriðjudagur 10. okt. - kl. 20.30
Kaupvangur, Vopnafjörður
Fimmtudagur 12. okt. - kl. 20.30
Iðavellir kl. 20.30, Egilsstaðir
Föstudagur 13. okt. - kl. 20.30
Hótel Aldan, Seyðisfjörður
Sunnudagur 15. okt. - kl. 20.30
Valhöll, Eskifjörður
Mánudagur 16. okt. - kl. 20.30
Brekkan, Stöðvarfjörður
Þriðjudagur 17. okt. - kl. 20.30
Hótel Framtíð, Djúpivogur
Miðvikudagur 18. okt. - kl. 20.30
Nýheimar, Hornafjörður
Fimmtudagur 19. okt. - kl. 20.30
Systrakaffi, Kirkjubæjarklaustur
Fimmtudagur 26. okt. – kl. 20.30
Ráðhúskaffi, Þorlákshöfn
Þáttaskil eru í lífi söngvaskálds-
ins Harðar Torfasonar, sem nú
leggur upp í sína síðustu hring-
ferð um landið. „Ég hóf að ferðast
um landið sem söngvaskáld árið
1970 og smám saman þróaðist
starf mitt út í að ég fór allan hring-
inn nánast á hverju ári og stund-
um tvisvar. Það er varla til það
þorp eða bær á landinu sem ég hef
ekki heimsótt með tónleika og
flest þeirra oftar en einu sinni.
Þetta er því orðið drjúgt ævistarf.
Þetta þýðir ekki að ég sé hættur
að ferðast um landið með tónleika
heldur aðeins að ég fer aldrei
aftur heila hringferð líkt og ég
hefur gert í áratugi. Ég mun eftir
sem áður halda áfram að heim-
sækja ýmsa byggðarkjarna og
staði með tónleika mína,“ segir
Hörður.
Annar hluti tónleikaferðarinn-
ar hófst á Sauðárkróki í gær en
lýkur á Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn
hinn 26. október. Sjá nánari upp-
lýsingar á heimasíðunni www.
hordurtorfa.com
Í síðustu hringferðinni
HÖRÐUR TORFASON SÖNGVASKÁLD Fer um Norður- og Austurland í síðari hluta
tónleikaferðar sinnar. MYND/ SIGFÚS MÁR PÉTURSSON
[KVIKMYNDIR]
UMFJÖLLUN
Charlotte er rúmlega þrítug. Hún á
snyrtistofu og býr með lækninum
Kristian og virðist hafa allt til alls.
En samt vantar eitthvað og hún er
ekki að fá það sem hún þráir út úr
lífinu. Hún segir því skilið við
læknin og kemur sér fyrir í lítilli
íbúð. Á hæðinni fyrir ofan hana
býr klæðskiptingurinn Veronica
sem bíður þess að komast í kyn-
skiptiaðgerð og losna úr viðjum
karllíkamans.
Carlotte heldur áfram að leita að
lífsfyllingu, aðallega með tilgangs-
lausum skyndikynnum, á meðan
Veronica heldur sig út af fyrir sig,
horfir á sápuóperur í sjónvarpinu
með kjölturakkanum sínum, Miss
Daisy, og hefur í sig og á með
vændi. Eftir nokkur skakkaföll og
minniháttar árekstra tekst náin
vinátta með þessum ólíku nágrönn-
um en málin flækjast svo til muna
þegar með þeim takast undarlegar
ástir þó að þau séu alveg út og
suður hvað kynhneigð varðar.
En Soap er ákaflega falleg og
krúttleg lítil mynd sem segir sæta
en um leið harmræna sögu tveggja
einstaklinga sem finna sig ekki í líf-
inu en ná saman í gegnum sápu-
óperur um leið og líf þeirra snýst
upp í netta sápu.
Saga þeirra er sögð í nokkrum
stuttum köflum og frásögnin er
brotin upp með innslagi sögumanns
sem skyggnist reglulega aðeins
fram í tímann og tilkynnir hvað er í
vændum. Þetta minnir óneitanlega
svolítið á framsetningu Dallas og
annarra þekktra sjónvarpssápa
sem hófust alltaf á sýnishornum úr
hverjum þætti. Þá hljóta vangavelt-
ur sögumanns og draumur Veron-
icu um kynskiptiaðgerðina að leiða
huga þeirra sem komnir eru til vits
og ára að Löðri sem gerði stólpa-
grín að bandarískum sápuóperum í
byrjun níunda áratugarins.
Því fer þó fjarri að En Soap sé
sápuópera í hefðbundnum skilningi
en þessari ljúfsáru sögu er komið
haganlega fyrir innan sápuóperu-
rammans. Ólíkt amerískri froðu
skiur hún við áhorfandann sáttan
með meira en nóg til að hugsa um.
Þórarinn Þórarinsson
Notalegt danskt löður
EN SOAP
SÝND Á ALÞJÓÐLEGRI KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
LEIKSTJÓRI: PERNILLE FISCHER CHRISTENSEN
AÐALHLUTVERK: TRINE DYRHOLM, DAVID DENCIK, FRANK THIEL
Niðurstaða: Krúttleg lítil mynd um glímu tveggja einstaklinga við að fóta sig í firrtum heimi. Hún
rennur áreynslulaust eins og sápa en skilur ýmislegt eftir sig.
7. sýning fimmtudaginn 5. okt. UPPSELT
8. sýning föstudaginn 6. okt.
9. sýning laugardaginn 14. okt.
10. sýning sunnudaginn 15. okt MÁLÞING
SÝNT ER ÚT OKTÓBER
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
��������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����� ������������������
����������������������������������������
����������������������������������
��������������������������������� ����� ��������������������
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga
- fimmtudaga í síma 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningardag
Sýningar í október
í Landnámssetri
Fimmtudagur 5. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 6. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 7. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 8. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 12. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 13. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 14. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 15. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 19. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 20. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 21. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 22. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 26. október kl. 20 Síðasta sýning