Fréttablaðið - 04.10.2006, Side 72
36 4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
OKTÓBER
1 2 3 4 5 6 7
Miðvikudagur
■ ■ LEIKIR
19.00 Stjarnan-HK í DHL-deild
karla í handbolta í Ásgarði.
20.00 Fram-Haukar í DHL-deild
karla í handbolta í Framhúsinu.
■ ■ SJÓNVARP
22.20 Handboltakvöld á Rúv.
22.35 Formúlukvöld á Rúv.
FIMLEIKAR Kristjana Sæunn
Ólafsdóttir varð um helgina
Norður-Evrópumeistari í stökki
en keppt var í Noregi. Hún varð í
öðru sæti í gólfæfingum og Fríða
Rún Einarsdóttir í þriðja sæti.
Margrét Hulda Karlsdóttir náði
öðru sæti í keppni á slá.
Finnar fögnuðu sigri í bæði
liðakeppni karla og kvenna. Alls
voru þátttakendur frá ellefu
löndum og varð Ísland í fimmta
sæti í báðum liðakeppnum.
Kristjana náði bestum árangri
Íslendinga í fjölþrautinni, sjötta
sæti, en Viktor Kristmannsson
náði besta árangri karla er hann
varð ellefti.
- esá
Norður-Evrópumót:
Kristjana vann
í stökki
Pjetur Sigurðsson hefur verið einn ötulasti aðstoðardómari okkar
Íslendinga síðustu árin en hann hefur nú flaggað sinn síðasta leik á
alþjóðavettvangi. Lokaleikurinn var leikur Newcastle og Levadia Tallinn
á heimavelli Newcastle, St. James‘ Park, í síðustu viku. Pjetur er
búinn að vera FIFA aðstoðardómari í fimmtán ár og sagði
að það hefði verið frábært að enda á St. James‘ Park.
„Það var frábær stemning á vellinum, enda flottur völlur
og flottur klúbbur. Það hefði ekki verið hægt að enda
þetta betur en þarna,“ sagði Pjetur.
„Eftir leikinn kom Glenn Roeder, framkvæmdastjóri
Newcastle, inn í klefa til okkar og óskaði mér til ham-
ingju og með honum var maður sem afhenti mér árit-
aða peysu af leikmönnum liðsins. Þetta var mjög flott
hjá Roeder. Menn þurfa ekkert að gera svona en þetta
var mjög kurteislega gert hjá Roeder,“ sagði Pjetur,
sem er búinn að vera á lista yfir aðstoðardómara FIFA
í fimmtán ár.
„Eftir því sem ég kemst næst er ég sá eini sem er eftir
á þessum lista frá því að hann var stofnaður, um áramótin
1991-1992,“ sagði Pjetur en hvað þarf til að vera svona
lengi í þessu starfi?
„Maður þarf svo sem ekki að hafa neitt sérstakt. Ég var
bara mjög ungur þegar ég fór á þennan lista og annað
hvort hafa menn almennt verið svona gamlir þegar
listinn var stofnaður eða þeir ungu hafa bara ekki
tollað svona lengi í þessu starfi,“ sagði Pjetur en
hverjir ætli séu eftirminnilegustu leikirnir sem
hann hafi tekið þátt í?
„Þessi síðasti var að sjálfsögðu mjög eftirminni-
legur og svo dæmdi ég einu sinni leik hjá hol-
lenska landsliðinu á Feyenoord-vellinum í Rotterdam
fyrir fullu húsi. Svo get ég nefnt líka Evrópuleiki hjá
Celtic og Basel sem voru mjög eftirminnilegir. Ég var
líka aðstoðardómari á HM u-21 í Nígeríu og var þar í
tæpan mánuð. Þetta er það sem er eftirminnilegast,“
sagði Pjetur og bætti því við að hann ætlaði að skoða
það í vetur hvort hann væri alveg hættur að dæma
hér heima.
PJETUR SIGURÐSSON: DÆMDI SINN SÍÐASTA LEIK SEM AÐSTOÐARDÓMARI Á ALÞJÓÐAVETTVANGI Á ST. JAMES‘ PARK
Fékk áritaða treyju frá leikmönnum Newcastle
FÓTBOLTI Pétur Marteinsson, leik-
maður Hammarby í sænsku
úrvalsdeildinni, mun ekki geta
leikið með íslenska landsliðinu
gegn Lettum og Svíum en Eyjólf-
ur Sverrisson landsliðsþjálfari
valdi hann í íslenska hópinn.
Pétur á við meiðsli að stríða og
gat því ekki leikið með Hammar-
by gegn Malmö á mánudag.
„Það var auðvitað gaman að
vera valinn og svekkjandi að geta
svo ekki verið með. En ég hef
verið lengi í þessu og það kemur
mér fátt á óvart lengur,“ sagði
Pétur, sem hefur ekki leikið með
íslenska landsliðinu síðan hann
meiddist í leik gegn Ungverjum
hinn 4. júní í fyrra.
Pétur fékk þungt högg á bakið
í leik með Hammarby fyrir fáein-
um vikum og er með brákað rif-
bein vegna þess. „Ég spilaði
næsta leik á verkjalyfjum en gat
svo varla gengið þannig að nú
þarf ég að hvíla mig. Eins og stað-
an er í dag get ég bara ekki spilað
fótbolta.“
Eyjólfur staðfesti í samtali við
Fréttablaðið í gær að Pétur yrði
ekki með í leikjunum sem eru
framundan en að hann ætlaði að
bíða með að velja annan í hans
stað. „Ég ætla að sjá til og leyfa
þessu að þróast í nokkra daga,“
sagði Eyjólfur.
Pétur er með lausan samning í
lok leiktíðar en Hammarby vill
halda honum og í dag mun hann
funda með forráðamönnum liðs-
ins. Hann býst þó ekki við að
komast að niðurstöðu um framtíð
sína í dag. Hann staðfesti að þó
nokkur lið hér á landi hefðu sett
sig í samband við hann, þeirra á
meðal Fram, hans gamla félag.
„Annars vil ég ekki ræða mikið
um þessi mál á þessu stigi máls-
ins. Ég hef enn nægan tíma og
ætla ekki að stressa mig á þessu
eins og er.“ - esá
Mörg íslensk lið hafa sett sig í samband við Pétur Marteinsson:
Pétur missir af landsleikjunum
SENDU SMS BTC VFF
Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
AÐALVINNINGUR: PS2 TÖLVA + FIFA´07
AUKA VINNINGAR ERU:
FIFA´07 LEIKIR, PS2 STÝRIPINNAR, PS2 MINNISKORT,
DVD MYNDIR, FULLT AF ÖÐRUM TÖLVULEIKJUM
OG MARGT FLEIRA
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð
.
LENTUR
Í BT!
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
róttækar tillögur Knattspyrnu-
sambands Íslands, KSÍ, á breyt-
ingum Íslandsmótsins hafi vakið
verðskuldaða athygli. Ekki síst
fyrir þær sakir að KSÍ hefur verið
frekar íhaldssamt þegar kemur
að breytingum á Íslandsmótinu.
Eitt og annað vekur athygli í til-
lögunum og eitt af því að ekki er
stefnt að neinum breytingum fyrr
en árið 2010. Vaknar því eðlilega
sú spurning hvort ekki sé hægt að
gera einhverjar breytingar á mót-
inu fyrr?
„Það er búið að ganga frá samn-
ingum á sjónvarps- og markaðs-
rétti til ársins 2009 og eflaust er
hægt að taka þá samninga upp og
breyta. Við höfum samt selt mótið
til þess tíma á ákveðnum forsend-
um og það er ástæðan fyrir því að
við viljum ekki hreyfa við mót-
inu,“ sagði Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri KSÍ, en er
nauðsynlegt að taka þetta risa-
stökk á þessum tíma? Var ekki
hægt að taka smærri skref eins og
að fjölga fljótlega í deildinni og
síðan taka stóra skrefið og bæta
við einni umferð?
„Það sem stjórnin er að segja
með þessari tillögu er að fyrst
eigum við að skoða hvort það eigi
að gera stórkostlegar breytingar
á Íslandsmótinu. Ef það verður
ekki niðurstaðan þá er búið að
opna fyrir minni dæmi eins og að
fjölga. Annars er ekki verið að
loka á neina möguleika og félögin
geta gert breytingar á ársþing-
inu.“
Opinn fyrir breytingum
Þeir sem hafa gagnrýnt KSÍ hvað
harðast fyrir að fjölga ekki í deild-
inni hafa nefnt að hægt sé að leika
þéttar yfir sumarið og ákveðnir
aðilar hafa viljað sjá leiki spilaða
í landsleikjahléunum þar sem
engir leikmenn, eða fáir, úr Lands-
bankadeildinni séu í landsliðinu
hverju sinni.
„Þessir aðilar fara sorglega
með staðreyndir því landsleikja-
hléin eru fyrir A og U-21 árs
landsliðið og í yngra landsliðinu
eru ansi margir leikmenn úr
Landsbankadeildinni. Það er ekki
hægt að láta lið spila sem er án
síns besta manns vegna þess að
hann er valinn í landsliðið.
Annars er ég opinn fyrir breyt-
ingum og ég skora á alla sem geta
komið með nýja og betri niðurröð-
un á mótinu að sýna mér það
hvernig leika má þéttar,“ sagði
Geir en bent hefur verið á að leika
megi þéttar undir lok mótsins þar
sem eingöngu er leikið um helgar
en ekki í miðri viku. „Á sama tíma
er verið að leika í Meistaradeild-
inni, eigum við að spila Íslands-
mótið ofan í þessar útsendingar?
Hefði það ekki áhrif á fjölda
áhorfenda á vellinum. Ég er samt
ekki að segja að það sé útilokað en
það er mjög erfið samkeppni fyrir
íslenska knattspyrnu.“
Auðvelt að fjölga
Það er ekkert nýtt að verið sé að
biðla til KSÍ um að fjölga í efstu
deild og sumir skilja hreinlega
ekki af hverju ekki sé löngu búið
að stíga það skref.
„Það er að mínu viti auðveld
framkvæmd að fjölga í tólf lið en
menn verða að vera heiðarlegir.
Er það stórkostleg breyting á
íslenskri knattspyrnu að fara í
tólf liða deild. Ég held ekki. Hefur
samt ekki heyrst hæst í þeim sem
eru á fallsvæðinu? Ég kaupi held-
ur ekki þau rök að það verði betri
fótbolti í efstu deild ef það verður
fjölgað,“ sagði Geir en fyrst það
er svona auðvelt að framkvæma
þessa breytingu af hverju er það
þá ekki gert? Knattspyrnuáhuga-
menn vilja sjá fleiri leiki og
myndu klárlega fagna slíkum
breytingum. „Félögin verða þá að
geta tekið á móti liðum í byrjun
maí og vellirnir eru ekki tilbúnir á
þeim tíma en við höfum mælt með
ákveðnum breytingum svo að
vellirnir verði klárir fyrr.“
Þegar verið er að gagnrýna
KSÍ hafa sumir gengið svo langt
að segja að KSÍ vilji ekki fjölga í
deildinni og því sé sífellt verið að
skjóta málinu áfram. Hvað segir
Geir við slíkum gagnrýnisrödd-
um?
„Ég get viðurkennt að knatt-
spyrnuhreyfingin er í eðli sínu
íhaldssöm. Það er alltaf verið að
biðja um meira en ég held að
menn hafi viljað sjá einhverja
framtíðarsýn. Knattspyrnusam-
bandið verður að hafa heildar-
stefnu og ég held að hún hafi
komið fram með þessari tillögu,“
sagði Geir Þorsteinsson.
henry@frettabladid.is
Auðvelt að fjölga í tólf liða deild
Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir það auðvelda framkvæmd að fjölga liðum í Landsbanka-
deild karla úr tíu í tólf. Hann segir þá breytingu ekki ganga nógu langt og því hafi KSÍ lagt fram eins rót-
tækar breytingatillögur og raun bar vitni. Ef ekki er vilji fyrir þeim sé hægt að skoða aðrar leiðir.
GEIR ÞORSTEINSSON Vill horfa lengra fram á veginn en að fjölga liðum um tvö í
efstu deild. Hann segir KSÍ hafa frekar viljað skapa stóra framtíðarsýn fyrir íslenska
knattspyrnu. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
> Guðjón segir að framtíð sín sé óákveðin
Guðjón Magnússon, markvörður ÍBV, segir að framtíð sín hjá
félaginu sé óráðin en hann er samningslaus í lok þessa árs.
Guðjón hóf nám við Háskóla Íslands í haust og er því fluttur
upp á land. „Ég er bara ekkert búinn að ákveða neitt og ég
hef ekkert rætt við stjórn ÍBV frá því að tímabilið kláraðist.
Ég ætla ekki að segja núna að ég muni vera áfram hjá ÍBV
eða að ég muni yfirgefa ÍBV,“ sagði Guðjón í samtali við
Fréttablaðið í gær. Guðjón spilaði sinn fyrsta leik fyrir ÍBV
í 16. umferð gegn FH og þótti standa sig vel en varð svo
fyrir því óláni að meiðast og missti því af
tveimur síðustu leikjunum af tímabilinu.
„Þetta var mjög svekkjandi. Ég meiddist á
föstudegi og ég var svo langt niðri alla
helgina eftir það að það hálfa hefði
verið nóg,“ sagði hinn geðþekki
Guðjón Magnússon.