Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
����������
�����������������
RAV4 - alveg nýr heimur
Nýr RAV4 er kominn til landsins. Hann er ekki aðeins í breyttri útgáfu.
Hann er alveg nýr heimur. Bíll sem boðar nýja tíma, nýjar áherslur,
nýjar leiðir. Hann er ríkulega búinn staðalbúnaði og fæst með
„Integrated Active Drive System“ sem eykur til muna öryggi og
akstursánægju. Við hikum ekki við að fullyrða að þú færð meira út úr
lífinu á nýjum RAV4, hvort sem er innanbæjar eða úti í náttúrunni.
Straumlínulöguð yfirbygging og fjöldi tækninýjunga gera RAV4
fágaðri, fjörugri og þróaðri en nokkru sinni fyrr. Fjöldi útfærslna er í
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
34
35
5
09
/2
00
6
boði, þar á meðal hin íburðarmikla RAV4 VX sem teflir saman framúr-
skarandi snerpu og afburðaþægindum í akstri svo að hefðbundin
skilgreining á smájeppa á ekki lengur við. Og tómstundir með fjöl-
skyldunni fá líka allt aðra merkingu.
Komdu og reynsluaktu nýjum RAV4 – alveg nýr heimur.
Verð frá 2.980.000. kr.
fá allt aðra merkingu
Tómstundir
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
www.toyota.is
Í gaggó þurfti ég allt í einu að píra augun til að sjá á töfluna.
Bekkjarbróðir minn beitti annarri
aðferð. Hann studdi fingrum við
gagnaugun og strekkti á húðinni
eins og þegar farið var með
þuluna: „Pabbi minn er Kínverji,
mamma mín er Japani, aumingja
ég.“
ÞETTA var í upphaf 9. áratugar-
ins, enn var langt í fjölmenningar-
samfélagið svo enginn spurði:
„Ertu að gera grín að mér, fjöl-
skyldu minni og kannski kynþætt-
inum öllum?“ Ég hermdi eftir
stráknum og komst að raun um
að aðferðin veitti blindri stelpu
sýn. Svona sátum við lungann úr
vetrinum með fingurna við gagn-
augun og litum eflaust út eins og
flón. Fyrr eða síðar höfðum við orð
á sjóndeprunni við foreldra okkar
og fengum bæði kassalaga gler-
augu með málmumgjörð, áþekk
þeim sem Jón Páll Sigmarsson
gekk með. Ekki var gerður jafn-
mikill greinarmunur á stelpu- og
strákaumgjörðum á þessum pastel-
lituðu miðöldum og nú er gert.
ÞAÐ er að minnsta kosti eitthvað
við gleraugun sem ég fann fyrir
nokkru á rólóvelli sem gerir það
að verkum að ég var strax sann-
færð um að kona hefði átt þau.
Óðara sá ég hana fyrir mér ráfa
blinda um í leit að þeim en í vinn-
unni yrði hún að eiga pabba sem
var Kínverji til að þekkja kollega
sína í sundur. Við svo búið mátti
ekki standa. Full skyldurækni
hringdi ég í nærliggjandi skóla og
lét skilningsríkar skrifstofudömur
vita af gleraugunum. Daginn eftir
birtist ákall mitt til blindu stúlk-
unnar í Velvakanda þar sem ég bað
hana um að slá á þráðinn en hún lét
ekki heyra frá sér og svo sem
engin furða. Hvernig átti hún að
geta lesið blöðin?
ÞAÐ var síðan ekki fyrr en ég var
farin að veifa gleraugunum fram-
an í gesti í von um að þeir könnuð-
ust við þau að ég sá að annan púð-
ann vantaði á þau. Rennilásinn á
hulstrinu var líka svo gott sem
ónýtur. Það rifjaðist líka upp fyrir
mér að hulstrið hafði ekki legið á
rólóvellinum, heldur fyrir framan
ruslatunnur skammt frá. Einhver
hafði verið að reyna að losa sig við
gleraugun. Einhver sem hafði ekki
lengur not fyrir þau. Blinda stúlk-
an var ekki til – og þó. Og nú kemur
endir í anda Carrie í Beðmálum í
borginni: Blinda stúlkan var ég
sjálf. Ég hafði aðeins séð það sem
ég vildi sjá, sjálfa mig sem hjálp-
sama konu sem gerði allt hvað hún
gat til að bæta líf meðborgara
sinna.
EN þar fyrir utan, ef þú kannast
við gleraugu merkt Europe skaltu
ekki hika við að hringja.
Blinda stúlkan
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
AUGL†SINGASÍMI
550 5000AUGL†SINGASÍMI50 0