Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 4
4 5. október 2006 FIMMTUDAGUR
GENGIÐ 04.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
120,3335
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
68,78 69,10
129,27 129,89
87,14 87,62
11,685 11,753
10,367 10,429
9,350 9,404
0,5820 0,5854
101,54 102,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SVÍÞJÓÐ Nýtt dómsmál, þar sem
maður er sakaður um að hafa haft
mök við lík konu, vekur nú
gríðarlega athygli í Svíþjóð enda
er þetta í fyrsta sinn sem slíkt
mál kemur fyrir sænska dóm-
stóla, segir í Dagens Nyheter.
Maðurinn, sem áður var
kirkjuvörður í Västmanland, er 43
ára gamall. Hann er ákærður
fyrir röskun á grafhelgi og að
hafa brennt niður Surahammars
kirkjuna árið 1998. Auk þess er
hann sakaður um þrjár aðrar
íkveikjur og þjófnað. Hann hefur
þegar játað sekt sína.
Sænskir fjölmiðlar lýsa
manninum sem ákaflega einmana
einstaklingi sem á við alvarlegt
áfengisvandamál að stríða. - smk
Sænskur glæpamaður:
Sagður hafa
haft mök við lík
TEIKNINGAR AF FYRIRHUGUÐU HRINGTORGI Endanlegar áætlanir um breytingar á
Vesturlandsvegi liggja ekki enn fyrir en á myndinni sést hvernig búast má því að
hringtorgið á gatnamótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar líti út, þegar það
verður tilbúið. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓNVEIGAR
Aðgreining aksturs-
stefna að leiðarljósi
Stefnt er að miklum úrbótum á vegum í nágrenni Reykjavíkur. Undirbúning-
ur að stórfelldum framkvæmdum við Vesturlandsveg og Suðurlandsveg hefur
staðið yfir um nokkurt skeið. Eykur öryggi, segir Gísli Marteinn Baldursson.
JÓN
RÖGNVALDSSON
SAMFÉLAGSMÁL Kópavogsdeild
Rauða krossins og BYKO
undirrituðu í gær styrktarsamn-
ing vegna átaksins „Byggjum
betra samfélag“. Samstarfið
miðar að því að tryggja fjármagn
fyrir nýtt verkefni sem ætlað er
að stuðla að betra samfélagi án
mismununar.
Þarna munu hittast ungmenni
af íslenskum og erlendum
uppruna og vinna að fjölbreyttum
og mannbætandi verkefnum. Þar
verða hugtök á borð við vináttu,
virðingu og umburðarlyndi í
brennidepli. - sþs
BYKO og Rauði krossinn:
Skrifa undir
styrktarsamning
„Við höfum þegar hafið
undirbúning að því að
auka afkastagetu veg-
anna út frá Reykjavík.“
JÓHANNES TÓMASSON
UPPLÝSINGAFULLTRÚI
SAMGÖNGURÁÐUNEYTISINS
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
�������������� ����
���������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
HÚSNÆÐISMÁL Íbúar nokkurra gam-
alla húsa við Lindargötu hafa fengið
heimsóknir að undanförnu. Þar eru
á ferðinni fulltrúar frá fyrirtæki
sem kallast Skuggabyggð ehf.
Erindi mannanna er að falast eftir
kaupum á húsunum til þess að rífa
þau og byggja ný. Tveir húseigend-
ur sem Fréttablaðið ræddi við sögðu
að þeir hefðu fengið kauptilboð í
hús sín og að tilboðið hefði átt að
gilda í viku. Boðið væri markaðs-
verð í eignirnar og Eignaumboðið
fasteignasala myndi sjá um gerð
kaupsamninga. Kristinn B. Ragn-
arsson hjá fasteignasölunni sagði að
í bígerð væri að hún sæi um gerð
kaupsamninga ef af sölum yrði.
Guðbjartur Ingibergsson
athafnamaður, einn af eigendum
Skuggabyggðar ehf., kannaðist í
samtali við Fréttablaðið við að fyr-
irtækið hefði áhuga á að kaupa hús
við Lindargötuna, en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um málið.
„Ég á þarna nokkar lóðir,“ sagði
hann og bætti við að hann hefði
verið að festa kaup á þeim síðastlið-
in ár. Hann sagði að þessi lóðakaup
væru eins og hver önnur viðskipti
og kvaðst ekki svara Fréttablaðinu
frekar. - jss
Verktakar vilja kaupa hús í Skuggahverfinu:
Banka upp á og vilja kaupa
VIÐ LINDARGÖTU Eigendur nokkurra
eldri húsa við Lindargötu hafa fengið
kauptilboð. Myndin er úr safni.
STJÓRNMÁL Stefnt er að að því að
auka afkastagetu vega út frá
Reykjavík með stórfelldum vega-
bótum. Á þetta minntist Geir H.
Haarde í stefnuræðu sinni á Alþingi
en undirbúningur að breytingum á
Vesturlandsvegi og Suðurlands-
vegi, auk hringtorgs á gatnamótum
Þingvallavegar og Vesturlandsveg-
ar, hefur staðið yfir um nokkurt
skeið.
Jóhannes Tómasson, upplýsinga-
fulltrúi samgönguráðuneytisins,
segir það mat ríkisstjórnarinnar, og
sérfræðinga í umferðarmálum, að
brýnt sé að huga
sem fyrst að
vegafram-
kvæmdum í
nágrenni
Reykjavíkur.
„Við höfum
þegar hafið
undirbúning að
því að auka
afkastagetu
veganna út frá
Reykjavík.
Bæði Vestur-
landsveginn,
áleiðis upp í Borgarnes, og Suður-
landsveginn milli Reykjavíkur og
Selfoss. Stefnan er sú að halda
áfram að vera með vegi sem eru
tvær akreinar í aðra átt og ein í
hina, og aðgreina með því aksturs-
stefnur. Þessar breytingar hafa
verið í undirbúningi nokkuð lengi
og nú hefur verið gefið vilyrði fyrir
því að ráðast í þessar framkvæmd-
ir. Í breytingartillögunum er einnig
gert ráð fyrir hringtorgi á gatna-
mótum Þingvallavegs og Vestur-
landsvegar.“
Að sögn Jóns Rögnvaldssonar
vegamálastjóra liggur ekki ljóst
fyrir hversu umsvifamiklar fram-
kvæmdirnar verða, þar sem ekki sé
ljóst ennþá hversu miklum pening-
um verður varið til framkvæmda.
„Við vitum ekki ennþá hversu mikl-
ir peningar verða settir í þetta verk-
efni. En undirbúningsvinna vegna
framkvæmda hefur farið fram og
að þessu verður unnið áfram.
Umsvif framkvæmdanna fara vit-
anlega eftir því hversu miklir pen-
ingar verða settir í þessi verkefni.“
Gísli Marteinn Baldurssonn, for-
maður samgöngu- og umhverfis-
ráðs Reykjavíkurborgar, fagnar
boðuðum breytingum. „Ég fagna
því mjög að auka eigi öryggi á
umferðaræðum að og frá Reykja-
vík. Við höfum verið í markvissum
aðgerðum í Reykjavík sem miða að
því að auka öryggi í Reykjavík, og
við þurfum að ganga enn lengra í
þeim efnum. Það hefur sýnt sig að
mörg alvarleg slys hafa orðið í
nágrenni Reykjavíkur og það er
gott að vita til þess að peningar
verði settir í samgönguúrbætur á
þessu svæði.“ magnush@frettabladid.is
Aðstaðan til fyrirmyndar
Norðmenn ætla að opna Barnahús
að íslenskri fyrirmynd á næsta ári.
Barnahús hefur verið notað til að
taka skýrslu af börnum sem hafa sætt
kynferðisofbeldi. Íslenska barnahúsið
hefur verið starfrækt í átta ár.
BARNAHÚS
LÖGREGLUMÁL Karlmaður í
Vesturbænum þurfti að kalla á
lögreglu seint gærkvöld eftir að
hafa lent í hremmingum við þvott.
Maðurinn greindi lögreglu frá því
að hann hefði sett óhreint tau í
vélina en það hafi ekki tekist betur
til en svo að vélin fór að skoppa
um með miklum látum og á
endanum hafi hún skorðast við
þvottahúsdyrnar.
Lögreglumenn komu manninum
til bjargar og hafði varðstjóri á
orði að þetta væri eitt dæmið um
að þvottar væru ekki karlmanns-
verk. - kdk
Lögregla kvödd á vettvang:
Maður fastur í
þvottahúsi
ELDHUGAR Í KÓPAVOGI Rauði krossinn
og BYKO gerðu með sér samkomulag.
NOREGUR, AP Öryggismálayfirvöld
í Evrópu hafa komið upp um og í
veg fyrir 30 til 40 hryðjuverkatil-
ræði í álfunni á síðustu fimm
árum, eða frá 11. september 2001.
Frá þessu greindi Jörn Holme,
yfirmaður norsku öryggislögregl-
unnar, í gær.
Holme sagði á öryggismálaráð-
stefnu í Ósló að norska öryggislög-
reglan og systurstofnanir hennar í
öðrum löndum Evrópu hefðu gert
það að sínu mesta forgangsmáli að
hindra slíkar árásir.
Töluna yfir fjölda hindraðra
tilræða hafði Holme frá Tore
Björgmo, sérfræðingi í hryðju-
verkamálum við norska lögreglu-
háskólann. - aa
Hryðjuverkavarnir í Evrópu:
Komið í veg fyr-
ir tugi tilræða