Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 91

Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 91
FIMMTUDAGUR 5. október 2006 55 DHL-deild kvenna GRÓTTA-ÍBV 26-21 Mörk Gróttu: Anna Ú. Guðmundsdóttir 7, Sandra Paegle 5, Kristín Þórðardóttir 4, Ragna K. Sigurð- ardóttir 3, Anna M. Erlingsdóttir 3, Natasa Damilj- anovic 3, Eva M. Kristinsdóttir 1. Mörk ÍBV: Valentina Radu 7, Renata Horvath 5, Pavla Plaminkova 4, Andrea Löw 3, Pavla Nevar- ilova 2. DHL-deild karla STJARNAN-HK 23-28 Mörk Stjörnunnar: David Kekelia 5 (8), Ólaf- ur Ólafss. 4 (5), Tite Kalandadze 4 (12), Björn Friðrikss. 3 (4/1), Elías Halldórss. 3 (11), Patrek- ur Jóhanness. 2/1 (4/1), Björn Guðmundsson 1 (2), Guðmundur Guðmundss. 1 (6), Volodimir Kybil (1). Varin skot: Árni Þorvarðarson 11 (30/3), Roland Eradze 5 (14/1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 7 (Kekelia 3, Björn 2, Elías 1, Kalandadze 1). Fiskuð víti: 2 (Kybil 1, Björn Óli 1). Utan vallar: 16 mínútur (Kybil rautt). Mörk HK: Valdimar Þórss. 7/3 (12/3), Ragnar Hjaltested 6/1 (11/1), Sergey Patraitis 4 (7), Tomas Eitutis 3 (6), Augustas Strazdas 3 (6), Brynjar Val- steinss. 2 (3), Ólafur Ragnarsson 2 (3), Árni Brynj- ar Þórarinsson 1 (3), Sigurgeir Árni Ægisson (1). Varin skot: Egidijus Petkevicius 16 (44/2) Mörk úr hraðaupphlaupum: 8 (Ragnar 3, Brynjar 1, Eitutis 1, Strazdas 1, Ólafur 1, Petraitis 1). Fiskuð víti: 4 (Petraitis 2, Strazdas 1, Brynjar 1). Utan vallar: 10 mínútur. FRAM-HAUKAR 29-30 Mörk Fram: Þorri Gunnarss. 8 (8), Sergey Ser- enko 6 (10), Andri Berg Haraldss. 3 (7), Haraldur Þorvarðars. 3 (4), Jóhann G. Einarss. 3/1 (6/1), Brjánn Bjarnas. 2 (4), Sigfús Sigfúss. 1 (4), Guðjón Drengss. 1 (3), Rúnar Káras. 1 (3), Stefán Stefánss. 1 (1) Varin skot: Björgvin Gustavsson 22. Mörk úr hraðaupphlaupum: 1 (Þorri 1). Fiskuð víti: 1 (Haraldur 1). Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Hauka: Andri Stefan 7 (12), Guðmundur Pedersen 6/4 (7/4), Gísli Þóriss. 4 (10), Árni Sig- tryggss. 4 (14), Freyr Brynjarss. 4 (5), Kári Kristj- ánss. 3 (4), Samúel Árnas. 1 (2), Þröstur Þráinss. 1 (1). Varin skot: Magnús Sigmundsson 21. Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Freyr 2, Þröstur 1). Fiskuð víti: 4 (Kári 2, Freyr 1, Árni 1). Utan vallar: 6 mínútur. ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR HANDBOLTI Stjarnan er enn án stiga eftir fyrstu tvær umferðirn- ar í DHL-deild karla eftir slæmt tap gegn HK í gær. Kópavogsbú- ar koma sterkir til leiks og eru enn með fullt hús stiga. Það er áhyggjuefni að Stjarn- an hefur tapað báðum þessum leikjum á heimavelli en eftir góða frammistöðu í Meistarakeppni HSÍ þar sem liðið vann sigur á Fram virðist sem allur botn sé úr leik Garðabæjarliðsins. Stjörnu- menn áttu engin svör við sterkri 5:1 vörn HK-manna í fyrri hálf- leik og voru heimamenn þegar komnir sex mörkum undir eftir 20 mínútna leik. Roland Eradze fann sig illa í marki Stjörnunnar og kom Árni Þorvarðarson inn í hans stað og kom sínum mönnum aðeins í gang með ágætri mark- vörslu. En HK-menn áttu alltaf svör og voru duglegir að keyra áfram sóknarleik sinn þegar Stjörnu- menn virtust ætla að saxa á for- skotið. Forystan í hálfleik var sex mörk og í upphafi þess síðari héldu gestirnir uppteknum hætti og komust mest í níu marka for- ystu. Stjörnumenn skoruðu reynd- ar fimm mörk á tæpum þremur mínútum, seint í síðari hálfleik en það var of lítið og of seint. „Þetta var frábær sigur og ein- mitt það sem við þurftum. Við erum á sama reiki og Stjarnan og þetta var því fjögurra stiga leik- ur,“ sagði Sigurgeir Árni Ægis- son, varnarmaður HK sem átti skínandi góðan leik við hlið línu- mannsins sterka Sergey Petrait- is. „Við náðum að loka vörninni vel í fyrri hálfleik. Taktíkin gekk alveg upp en hún gekk út á að beita 5:1 vörninni gegn Patta. Við ætlum okkur að vera sterkir í vetur og förum í hvern leik til að vinna. Við sjáum hvert það skilar okkur.“ Patrekur Jóhannesson Stjörn- umaður var vitanlega óánægður með leik sinna manna. „Við fórum með fullt af færum í fyrri hálf- leik og erum að elta þá allan leik- inn. Það var engu líkara að við höfum farið aftur í tímann og erum að spila handbolta úr forn- öld, slík var frammistaða okkar.“ Patrekur var ekki með lengi vel í síðari hálfleik og segir að það hafi verið sín ákvörðun. „Í undanförnum leikjum höfum við verið að keyra þetta á of fáum mönnum og ég segi að þessir erlendu leikmenn sem eru hér sem 100% atvinnumenn verða að stíga upp og taka meiri ábyrgð á sig í leik liðsins. Þeir verða að sýna að þeir eru með Stjörnu- hjarta því annars gengur þetta ekki og við verðum í fallbaráttu í vetur. Svona spilamennska þýðir að það verða færri í húsinu og við neðar í töflunni. Mönnum er ein- faldlega ekki bjóðandi upp á þetta.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is LOK. LOK OG LÆS Sergey Petraitis og Tomas Eitutis loka á Patrek Jóhannesson í leiknum í gær sem var lykilatriði í sigri HK. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HK valtaði yfir Stjörnuna í Ásgarði HK fór ansi létt með Stjörnuna í leik liðanna í Garðabænum í gær. Stjörnumenn sáu aldrei til sólar í leikn- um og virtist sóknarleikur liðsins í molum. Patrekur Jóhannesson var ómyrkur í máli eftir leikinn. Íslendingar og útlendingar fá allar upplýsingar á ensku um allt það sem heimsborgin Reykjavík státar af á hverjum tíma.; menningarviðburðir, tónleikar, skemmtistaðir, veitingastaðir, söfn, gallerí, tíska, verslanir og næturlíf. Íslendingar þurfa líka að fylgjast með! HANDBOLTI Haukar unnu sann- gjarnan sigur á Íslandsmeisturum Fram í Safamýrinni í gær. Framar- ar skoruðu fyrsta markið en náðu aldrei að endurheimta forystuna eftir það enda var leikur liðsins of kaflaskiptur. Allt annað var að sjá til Haukaliðsins frá því í fyrsta leik þess í mótinu og greinilegt að það langaði meira í sigurinn. Það var talsverð spenna fyrir þennan leik enda var spáð því fyrir mótið að þessi tvö lið myndu keppa við Val um Íslandsmeist- aratitilinn. Haukar þurftu að rétta úr kútnum eftir dapra byrjun í mótinu þegar þeir töpuðu óvænt fyrir ÍR í Austurberginu á sama tíma og Fram vann sannfærandi sigur á Stjörnunni í Garðabæn- um. Það voru heimamenn sem skor- uðu fyrsta markið í gær en það var í eina skiptið í leiknum sem þeir voru með forystu. Andri Stef- an tók til sinna ráða og skoraði þrjú mörk í röð eftir það. Haukar komust í bílstjórasætið og voru lengi með tveggja marka forskot en Framarar breyttu varnarleikn- um hjá sér og náðu að jafna 8-8. Magnús Sigmundsson lokaði þá markinu á mikilvægu augnabliki og kom í veg fyrir að Fram kæm- ist mikið lengra. Samúel Ívar Árnason var bor- inn út af á börum í fyrri hálfleik eftir að hafa engst um á gólfinu. Haukar létu þó ekki deigan síga, settu í næsta gír og höfðu fimm marka forystu í hálfleiknum 17- 12. Rúnar Kárason klóraði í bakk- ann á lokasekúndu fyrri hálfleiks og kom í veg fyrir sex marka for- skot gestanna í leikhléi. Haukar byrjuðu seinni hálf- leikinn eins og þeir kláruðu þann fyrri en svo vöknuðu Framarar á nýjan leik. Þeir jöfnuðu 20-20 og skyndilega var mikil spenna hlaupin í leikinn. Mikið jafnræði var með liðunum næstu mínútur en Frömurum tókst þó ekki að komast yfir. Árni Sigtryggson átti mjög slakan dag í gær en það var þó mark hans á lokamínútunni sem tryggði sigurinn og Haukar unnu á endanum 30-29. Magnús Sigmundsson varði mjög vel í leiknum í gær, Kári Kristján Kristjánsson var mjög öflugur í vörninni og sóknarleik- urinn var borinn uppi af Andra Stefani. Þá átti Freyr Brynjarsson fantagóðan leik og vann ófáa bolta. Hjá heimamönnum var Þorri Gunnarsson bestur en annars voru flestir leikmenn Fram talsvert frá sínu besta. Haukar töpuðu báðum leikjum sínum gegn Fram síðasta tímabil en voru vel að sigrinum komnir í gær. - egm Haukar báru sigurorð af Fram í Safamýrinni í gær: Sanngjarn sigur Hauka SKOT REYNT Sigurbergur Sveinsson Haukamaður reynir hér skot að marki Framara en Brjánn Bjarnason er honum til varnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.