Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 40
[ ]
Guðlaug María Sigurðardóttir,
ljósmóðir og nálastungusér-
fræðingur, býður verðandi for-
eldrum upp á þrívíddarmyndir
af börnum þeirra.
„Þrívíddarsónar er tækni sem
gefur færi á því að ómskoða í þrí-
vídd,“ útskýrir Guðlaug María. „Í
venjulegri ómskoðun er hægt að
mæla fóstur og skoða innri líffæri,
en með þrívíddarsónar er hægt að
sjá það utan frá. Svo er talað um
fjórvíddarsónar, en með því er átt
við möguleikann á að sjá hreyfing-
ar barnsins.“
Guðlaug María segir að við góð
skilyrði sé hægt að ná mjög skýr-
um myndum af barninu, en rekur
þann varnagla þó á að það fari eftir
konunni sem undirgengst skoðun-
ina. „Það er háð því hvort konur
séu með mikla fitu á kviðvegg eða
ekki, staðsetningu fylgju, magni
legvatns og legu barnsins,“ útskýr-
ir hún. „Það þarf til dæmis að vera
legvatn á milli barns og legveggs
móður því annars er erfitt að kom-
ast á milli til að mynda.“
Guðlaug María mælir með að
konur komi ekki í skoðun fyrir 24
viku, því fyrir þann tíma sé húð
barnsins oft svo þunn að beinin
sjáist. „Skemmtilegustu myndirn-
ar nást frá 24 til 32 viku, eftir það
aukast líkur á að barnið hafi skorð-
að sig í grindina og því ólíklegra að
ná myndum af andliti þess,“ segir
hún. „Vilji fólk ekki sjá kyn barns-
ins, er síðan lítill vandi að sneiða
hjá því,“ bætir hún við.
Aðspurð segir Guðlaug María
enga hættu stafa af þrívíddarsón-
ar svo vitað sé. „Hann gefur frá
sér sams konar bylgjur og hefð-
bundinn tvívíddarsónar,“ segir
hún. „Í tvívíddarsónar er sneið-
mynd tekin og því beinast bylgj-
urnar allar á einn stað. Í þrívíddar-
sónar dreifast þær, svo minna álag
er á vefinn.“
Guðlaug María er sú eina á
landinu sem býður upp á ómskoð-
un í þrívídd. Hún segir spítalana
ekki bjóða upp á þessa þjónustu af
þeirri einföldu ástæðu að mynda-
takan hafi eingöngu afþreyingar-
gildi fyrir verðandi foreldra, sem
vilji kíkja á kúlubúann. „Það er í
raun ekkert læknisfræðilegt við
þessa skoðun,“ segir hún.
Boðið er upp á þrívíddar- og
fjórvíddarómskoðanir í 9 mánuð-
um að Akralind 8 í Kópavogi, sem
er í eigu Guðlaugar Maríu. Fyrir-
tækið var upphaflega heildsala
fyrir vörur sem tengjast nála-
stungumeðferð en varð síðan hluti
af heildrænnni meðferðarstofu
undir heitinu Fyrir fólk, sem er í
sama húsnæði. Að sögn Guðlaugar
Maríu er Fyrir fólk rekið af nokkr-
um sjálfstæðum meðferðaraðilum,
sem eru með góða menntun og víð-
tæka reynslu á sviði heildrænna
meðferðarmála. roald@frettabladid.is
Bumbubúi í þrívídd
Hefðbundin sónarmynd af 38 vikna
barni. MYND/GUÐLAUG MARÍA SIGURÐARDÓTTIR
Hér sést nærmynd af 38 vikna barni,
sem hægt er að ná með sónarnum hjá
Guðlaugu Maríu.
MYND/GUÐLAUG MARÍA SIGURÐARDÓTTIR
Hér sést þrívíddarsónarinn sem Guðlaug Maríu notar við ómskoðanir. Hún er sú eina
sem býður upp á þessa þjónustu á landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hér eru nokkrar ókeypis leiðir sem þú skalt venja
þig á á leið þinni að betri heilsu, bættara lífsmynstri
og margfalt betri líðan.
Lestu þér til um næringargildi matvæla á umbúð-
unum.
Það er grundvallaratriði að vita hvað maður lætur
ofan í sig. Það eru reglur í þessu góða landi um að
umbúðir matvæla skuli sýna næringarinnihald vör-
unnar og ef upplýsingarnar eru ekki fullnægjandi
skaltu bara sleppa því að kaupa vöruna. Ekki láta
duga að lesa á merkimiða vörunnar þar sem segir
t.d. að varan innihaldi 50% minni sykur en áður eða
aðeins 1% fitu. Merkimiðarnir eru markaðstól og
segja ekki alla söguna en innihaldslýsingar eru stað-
reyndir.
Gott er að hafa próteinhlutfallið frekar hátt og leit-
aðu eftir „þar af sykur“ í kolvetnishlutanum. Sykur-
innihald skal almennt ekki vera meira en 10% af
heildinni, þ.e.a.s ekki meira en 10 g af 100 g eða alls
ekki hærra en 15 g. Svo er fita ekki bara fita. Holla
fitan er fjölómettaða og einómettaða fitan (eins og
t.d. í ferskum fiski) en við þurfum að forðast mett-
aða fitu. Slík fita getur valdið hárri blóðfitu og hækk-
að „vonda“ kólesterólið í blóðinu á meðan holla fitan
getur hækkað „góða“ kólesterólið.
Að læra að lesa á umbúðir og velja eftir því er stórt
skref í átt að auknum efnaskiptum líkamans vegna
hreinni fæðu og þar af leiðandi betri heilsu.
Þú þarft kolvetni, prótein og fitu
Veljið vörur sem hafa alla þessa þrjá orkugjafa.
Ekki sækja endilega í vörur sem t.d. eru alveg fitu-
lausar (þær innihalda oft mikinn sykur). Við menn-
irnir höfum í árþúsundir gengið fyrir þessum þrem-
ur orkugjöfum og munum gera það áfram.
Vandamálið er einfaldlega að við þurfum að hugsa
betur um hlutfall þessara þátta í fæðu okkur en for-
feður okkar og mæður þurftu að gera, meðal annars
vegna kyrrsetulífsstílsins. Stærsta vandamálið er
þetta gríðarlega magn af sykri (flokkast sem einfalt
kolvetni) sem við neytum, en við megum alls ekki
hætta að borða allt kolvetni þar sem það er stærsti
orkugjafi okkar. Veljum gróft korn og hýðishrís-
grjón í stað hveitis og hvítra hrísgrjóna og t.d. þurrk-
aða ávexti og lífrænar kókosflögur í stað sætinda.
Þú þarft að hreyfa þig!
Það er ekki nokkur leið að vera við góða heilsu, ef þú
hreyfir þig ekki. Þú kemst kannski upp með það í
einhvern tíma á yngri árum, en fljótlega þarftu að
fara að borga fyrir kyrrsetuna. Því lengri tími sem
líður þeim mun verra verður það. Svo það eru dýrir
og miskunnarlausir vextir á þessu „láni“.
Drekktu vatn!
Vatnið er ódýrasta og besta leiðin til betri líðanar
almennt. Vatnið er til alls fyrst og er eitt besta
heilsuleyndarmál sem vitað er um fyrr og síðar.
Reyndar er þetta ekkert leyndarmál. Það vita þetta
allir, en aðeins örfáir fara eftir því. Þú getur síður
lést, melt fæðu, framleitt nýjar frumur og afkastað
einhverju ef þú ert vatnsþurfi. Og ef þú drekkur
minna en einn og hálfan lítra af vatni á dag ertu
vatnsþurfi, þó þú finnir ekki endilega fyrir því.
Farið vel með ykkur, ókeypis!
Kær kveðja, Borghildur
Það er ekki dýrt að hugsa um heilsuna
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI
Þriðjudaginn 10. október
næstkomandi verður haldið
námskeið í zen-hugleiðslu með
zen-meistaranum Jakusho
Kwong roshi.
Kwong roshi byrjaði að iðka zen
árið 1960 og stofnaði Sonoma
Mountain Zen Center í Kaliforníu
árið 1973. Hann kom fyrst til
Íslands árið 1987 og hefur komið
árlega til landsins til að leiðbeina
félögum Zen á Íslandi. Árið 2003
kom út fyrsta bók Kwong roshi
„No Beginning, No End“ sem og
hljóðbókin „Breath Sweeps
Mind“.
Námskeiðið stendur frá kl. 18-
22 og fer fram á Laufásvegi 22.
Byrjendum og þeim sem einhvern
tíma hafa lagt stund á hugleiðslu
gefst einstakt tækifæri til að
kynnast grunnatriðum zen-iðkun-
ar, þar sem Kwong roshi og nokkr-
ir af eldri nemendum hans á
Íslandi munu leiðbeina þátttak-
endum og svara spurningum um
zen-hugleiðslu. Nánari upplýsing-
ar og skráning er á www.zen.is
eða branda@mmedia.is.
Zen-námskeið
Jakusho Kwong roshi.
Margir byrja á því að kaupa sér rándýran íþróttafatnað áður en
líkamsræktin er hafin. Notið frekar það sem þið eigið fyrir þangað til líkams-
ræktin er orðin að rútínu. Þá má verðlauna sig með flottum íþróttafatnaði.
�������