Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Við fórum til Akureyrar um síð-ustu helgi. Markmið ferðarinn-
ar var að slappa af í orlofshúsi, borða
vel og sjá Karíus og Baktus. Þær
tannkremshatandi örverur stóðu
undir væntingum litlu barnanna, en
sjálfur var ég frekar fúll yfir því að
aldrei kæmi risastór tannbursti sem
sópaði körlunum út. Ég man vel eftir
svart hvítu útgáfunni í sjónvarpinu
og vildi hafa þetta alveg eins.
NOSTALGÍAN hellist yfir mig á
Akureyri því ég fór þangað á hverju
sumri með foreldrum mínum að
heimsækja afa og ömmu. Ég heimta
að fá að fara að húsinu þeirra. Lufsan
er löngu hætt að nenna með mér, svo
ég fer einn með hjartað í buxunum
að núverandi eigendur komi út á hlað
og skammi mig fyrir að sniglast
þarna. Ég mæni á húsvegginn þar
sem ég var einn í viðstöðulausum. Ég
glápi á kjallarahlerann. Þar fyrir
innan skoðaði ég Sigmund og Ferdin-
and í fúkkalyktandi Moggum.
EINU sinni var Akureyri iðnaðar-
stórveldi. Þegar maður kom þangað
fékk maður öðruvísi mjólkurvörur
en í bænum og öðruvísi sælgæti.
Bærinn var nánast sjálfbær. Nú er
sama súpan um land allt enda fylgi-
fiskur hagræðingarinnar að allt sé
alls staðar eins. Líkt og í stórborg-
um Vesturlanda. Fyrir 40 árum voru
mismunandi verslanir í hverri borg
og ólíkt vöruúrval. Nú er alls staðar
sama McDonalds og Gap-súpan.
Þetta heitir alþjóðavæðing og þykir
fínt. En er ógeðslega leiðinlegt.
ÉG fékk þá frábæru hugmynd að
fara í Iðnaðarsafnið á Akureyri.
Safnvörðurinn Jón Arnþórsson
leiddi okkur um glæsilegt safnið og
sagði sögur af iðnaðarstórveldinu
Akureyri og viðskiptum þess við
Sovétríkin. Ég var á algjöru nost-
algíutrippi. Sá þrjár tegundir af
Valash frá Sana, svari Norðlend-
inga við Appelsíni. Sá líka flösku af
Morgan‘s Cream Soda, einnig frá
Sana, sem ég er búinn að hugsa um
síðan ég smakkaði það 1975. Sá
Lindu piparmintupakka, Mífa tón-
bönd og hinar frægu Duffys galla-
buxur. Gefjunarmenn voru skamm-
aðir fyrir að kalla buxurnar Duffys
en þeir voru bara að reyna að bjarga
fyrirtækinu. Krakkarnir hefðu fúls-
að við „Góðu Gefjunarbrókunum“.
EN svo fór allt á hausinn og þar sem
verksmiðjan stóð við Glerá stendur
nú svar Akureyringa við Kringlunni
og selur nákvæmlega sama dótið.
Hamingjunni sé því lof fyrir sjón-
varpsstöðina N4 sem við horfðum á.
Þar var endalaust það sama: frétt af
strák sem sökk í drullupoll og auglýs-
ing frá plastábreiðufyrirtæki, en
samt var þetta einhvern veginn það
næsta sem maður komst því að skipta
um umhverfi.
Stórveldið
Akureyri
���������
����������
�
�
�
�
�
�
�
��
��
�
��
�
�
�
�
��
�
��
��
��
�
��
�
��
�
��
Með Hive Lite færðu 8Mb nettengingu og 4 GB af erlendu niðurhali fyrir aðeins 3.990 krónur
á mánuði. Fyrir sama pening færðu 1Mb tengingu hjá Símanum eða Og Vodafone. Það er óneitanlega
ekkert gaman að borga sama verð fyrir átta sinnum hægari tengingu. Enda er það algjör óþarfi
– sérstaklega þegar það er ekkert mál að skipta. Hringdu í 414-1616 og fáðu meira fyrir peninginn.
HiveLite 3.990 kr. á mánuði
Hive.is Grensásvegi 16, Reykjavík. Þjónustusími: 414 1616 hive@hive.is
Hjá Hive kostar
8 Mb nettenging það
sama og 1 Mb
tenging hjá Símanum
eða Og Vodafone.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA