Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 6
6 5. október 2006 FIMMTUDAGUR SAS verkfalli afstýrt Tuttugu stunda maraþonfundur forráðamanna SAS flugfélagsins og talsmanna sænskra flugþjóna félags- ins afstýrði í gær yfirvofandi verkfalli flugþjónanna. Starfsmennirnir eru þó enn óánægðir með vinnustundirnar og verður málið tekið upp á ný fyrir febrúar á næsta ári. SVÍÞJÓÐ Vandað stell í eldhúsið Matardiskur Kr: 2.390.- 4.stk Súpudiskur Kr: 2.390.- 4.stk. Kaffibolli Kr: 2.390.- 4.stk. Hliðardiskur Kr: 2.390.- 4. stk. 50-300.000 kr. AFSLÁTTUR AF NOTUÐUM VÖGNUM! www.seglagerdin.is Eyjarslóð 5, sími 511 2200 Dæmi: VERÐ ÁÐUR: TILBOÐ: ÆGIR tjaldvagn ‘06 YE-125 660.000 460.000 PALOMINO COLT ’04 OM-606 800.000 600.000 TEC WELTBUMMLER ‘06 EH-498 2.900.000 2.600.000 Skoðið fleiri tilboð og myndir á www.seglagerdin.is ALÞINGI Fulltrúar stjórnarandstöð- unnar á Alþingi sögðu forsætis- ráðherra og utanríkisráðherra hafa „talað í vestur og austur“ í framsöguerindum sínum í þing- umræðum um stöðuna í varnar- málum þjóðarinnar eftir brottför bandaríska varnarliðsins, sem fram fóru í gær. Geir H. Haarde forsætisráð- herra hóf umræðuna með því að gera grein fyrir samningunum við Bandaríkjamenn, annars vegar um framhald varnarsam- starfs þjóðanna og hins vegar um skil Bandaríkjahers á landi og mannvirkjum. Að sögn Geirs teldi ríkisstjórn- in að helstu samningsmarkmið Íslendinga hefðu náðst. Varnar- áætlunin sem tekur við af fastri viðveru Bandaríkjahers hér á landi og byggir á „hreyfanlegum herstyrk“ sé „trúverðugar varn- ir“. Hann sagði ríkisstjórnina leggja áherslu á að staðið verði við áform um árlegar heræfingar hér á landi, einkum með þátttöku herþotna. Valgerður Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra sagði að niðurstað- an úr samningunum við Banda- ríkjamenn væri „viðunandi“. Hún sagði Íslendinga hljóta að rækta áfram tengslin við Bandaríkin og viðhalda varnarsamningnum. En hún sagði einnig að „sem Evrópu- þjóð hljótum við að fylgjast grannt með öryggis- og varnar- málastefnu Evrópusambandsins“. Sú stefna sé í örri þróun og til lengri tíma litið „skyldi alls ekki útiloka að Ísland geti leitað sam- starfs við ESB á sviði öryggis- mála“. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sagði áberandi að forsætis- og utanríkisráðherr- ann töluðu „annar í vestur, hinn í austur“ og vísaði þar til þess að Geir talaði eingöngu um mikil- vægi áframhaldandi náins sam- starfs við Bandaríkjamenn en Valgerður um að Íslendingar ættu líka að líta til Evrópusambands- ins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, fagnaði því að í fyrsta sinn væri ekki ágreiningur um það á Alþingi að „svo friðvænlegt sé í okkar heimshluta að ekki sé þörf á bandarískum herafla í landinu“. Hún gagnrýndi hins vegar hvern- ig ríkisstjórnin hefði haldið á samningum við Bandaríkjamenn. Síðast í febrúar hafi forsætisráð- herra haldið því fram að „sýnileg- ar varnir“ í formi fjögurra orrustuþotna Bandaríkjahers væri algjör lágmarksviðbúnaður. Núna léti hann eins og það hefði ekki verið neitt að marka þau orð hans. Ingibjörg, Steingrímur og fleiri fulltrúar stjórnarandstöð- unnar gagnrýndu einnig þá leynd sem hvíldi yfir varnaráætluninni sem koma á í staðinn fyrir varnar- liðið. audunn@frettabladid.is Varnarmálastefna í vestur og austur Ný staða í varnarmálum var rædd á Alþingi í gær. Forsætisráðherra sagði samning- ana við Bandaríkjamenn tryggja „trúverðugar varnir“. Fulltrúar stjórnarandstöð- unnar sögðu forsætis- og utanríkisráðherra tala „í austur og vestur“ um stefnuna. Fylgdist þú með stefnuræðu forsetans? Já 26,6% Nei 73,4% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú smyglað ólöglegum varningi til landsins? Segðu skoðun þína á visir.is GEIR H. HAARDE Forsætisráðherra. VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Utan- ríkisráðherra. Sem Evrópuþjóð hljótum við að fylgjast grannt með öryggis- og varnar- málastefnu Evrópusambandsins VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR UTANRÍKISRÁÐHERRA KJÖRKASSINN Hitaveita Hvalfjarðar gæti verið skaðabótaskyld, komi í ljós að lokun hennar á rennsli Laxár í Leirársveit á dögunum hafi valdið skaða í lífríki árinnar. Sigurður Guðjónsson fiskifræðingur sagði í fréttum NFS að seiðabúskapur gæti verið í hættu en áin er ein besta laxveiðiá landsins. HITAVEITA Gæti hafa skaðað lífríkið SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsóknir þarf að auka verulega hér á landi. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra sem kynnti í gær skipulagsbreytingar á Verkefnasjóði sjávarútvegsins. Stofnuð hefur verið ný deild innan hans sem fer með sjávarrannsóknir á samkeppnissviði. Breytingunum er ætlað að gefa fleirum færi á að sækja um styrk til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins til að stunda hafrannsóknir, ekki síst þeim sem starfa utan Hafrannsóknastofnunarinnar en þeir hafa haft takmarkaðan aðgang að styrkjum til þessa. Næstu þrjú ár renna samtals 75 milljónir af fé í eigu sjóðsins til deildarinnar. Fjármununum verður svo úthlutað til rannsóknar- og þróunarverkefna á lífríki sjávar umhverfis Ísland með það að markmiði að efla sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og samkeppnishæfni sjávarútvegs. Einar segist fyrst og fremst vonast til þess að þetta verði til að auka fjölbreytni á hafrannsóknum hér við land þar sem ný leið opnist fyrir vísindafólk til að afla fjár til rann- sókna sinna. Hann ítrekar þó að Hafrannsóknarstofnun hafi unnið mjög gott starf sem þurfi einnig að efla og verða fjárveitingar til hennar auknar um 100 milljónir á ári. - kdk Sjávarútvegsráðherra kynnti skipulagsbreytingar á Verkefnasjóði sjávarútvegsins: Hafrannsóknir þarf að efla SKIPULAGSBREYTINGAR KYNNTAR Jakob K. Kristjánsson, formaður stjórnar deildar um sjávarrannsóknir, og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra á fundinum í gær. DÓMSMÁL Fíkniefnamál gegn tveimur mönnum var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Öðrum manninum er gefið að sök að hafa haft í fórum sínum um 48 grömm af kannabisefnum, tæp 4 grömm af kókaíni og lítilræði af tóbaksblönduðu hassi. Hann er einnig ákærður fyrir að geyma umtalsvert magn fíkniefna fyrir hinn meðákærða og fyrir að reyna að koma eignarhaldi á hluta fíkniefnanna yfir á hann. Hinum manninum er gefið að sök að eiga rúmlega 220 grömm af hassi, tæp 6 grömm af kókaíni og lítilræði af amfetamíni sem ætlað væri til sölu. - þsj Héraðsdómur Reykjaness: Ákærðir fyrir fíkniefnabrot GLÆSILEG TILÞRIF Nördarnir sýndu svo um munaði að þeir hafa lært sitthvað í knattspyrnu undanfarnar vikur. Ólafur Þórðarson, fyrrverandi þjálfari ÍA, var eitt af leynivopnum nördaliðsins ásamt Auðuni Blöndal sem skoraði fyrsta mark leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ VILHELM SJÓNVARP Rúmlega sjö þúsund manns mættu á Laugardalsvöll í gær til að berja leikmenn KF Nörd og Íslandsmeistarana í FH augum. Gríðarleg stemning myndaðist á vellinum og þurfti að seinka leikn- um um stundarfjórðung á meðan fólk streymdi að. Eins og áhorf- endur Sýnar hafa tekið eftir hafa nördarnir tekið stórstígum fram- förum í knattspyrnu undir dyggri leiðsögn Loga Ólafssonar, fyrrver- andi landsliðsþjálfara. Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, hafði hótað að segja af sér ef nördarnir bæru sigur úr býtum. Til að tryggja að allt gengi vel dró hann upp takkaskóna eftir langt hlé og spilaði með sínum mönnum ásamt aðstoðarþjálfaranum Heimi Guðjónssyni. Töldu áhorfendur að leiknum hefði lokið með stórsigri nördanna, sem skoruðu fimm mörk á móti ellefu mörkum FH. - kdk Fjölmenni á Laugardalsvelli: Nördarnir slógu í gegn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.