Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 38
5. október 2006 FIMMTUDAGUR8
Haustlína Cult Design ein-
kennist af fjólubláum, brúnum
og appelsínugulum litum.
Vörur frá sænska fyrirtækinu Cult
Design fást nú hérlendis, en vör-
urnar einkennist bæði af látlausum
stíl og mörgum mynstrum. Innan
veggja Cult starfa hönnuðir, bæði
fastráðnir svo og lausráðnir; allt
hönnuðir sem komið hafa víða við
og starfað hjá mismunandi þekkt-
um fyrirtækjum með vel þekkt
vörumerki í gegnum tíðina. Hönn-
unin einkennist af miklu notagildi
sem og stílhreinum línum. Rauði
þráðurinn í öllum vörulínum Cult er
sá að vörurnar falla vel saman,
hægt er að taka nánast hvað sem er
og blanda saman með næsta hlut,
það eina sem þarf að gera er að
velja tóninn og framhaldið er leikur
einn.
Náttúran er einn mikilvægasti
áhrifavaldurinn í hönnun Cult. Með
náttúruna að leiðarljósi hanna hönn-
uðir Cult það sem fólk leitar eftir,
bæði á morgun, næsta ár og í fram-
tíðinni. Hugmyndir þeirra þróast,
sumar hverjar komast á teikniborð-
ið, aðrar verða að fullunni vöru.
Sumar verða alltaf bara hugmynd-
ir.
Í Cult Design má finna hluti eins
og blómapotta bæði háa og lága,
vasa, kertastjaka margar gerðir,
glerskálar og glerpotta, servíettur,
löbera, púða, hillur og eldhúslínur.
Hægt er að velja grunnbakka í
hvítu, svörtu, gegnheilli eik eða
hnotu sem passa undir allar stærðir
af pottum, vösum og kertastjökum.
Nánari upplýsingar um vöruna
og útsölustaði er að finna á www.
yd.is. Umboðsaðili Cult Design á
Íslandi, Yd design, Tangarhöfða 6,
110 Reykjavík.
Náttúran sem
áhrifavaldur
Barokklínan er haust og jólalína Cult. Grunnurinn er línunni er mattur en mynstrið
er upphleypt og glansandi. Fallegt er að blanda brúnu Barokk með appelsínugulum
litum og jafnvel hörlit.
Ein af aðallínum Cult er lína sem heitir
„Primula“. Við Íslendingar þekkjum
Primulu sem fjölæra blómategund í
flóru garðablómanna undir nafninu
Lykill. Fallegt blómamynstur er gegnum-
gangandi í Primulunni, nú í brúnum, lilla
og bleikum litum.
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis- og gjafavörur
Duka á
5 ára
afmæli
20% afsláttur
af öllum matar-
og kaffi stellum
Fifty Fifty er ný lína sem er undir áhrif-
um frá fimmta og sjötta áratugnum.