Fréttablaðið - 05.10.2006, Side 10

Fréttablaðið - 05.10.2006, Side 10
 5. október 2006 FIMMTUDAGUR Sími 585 4000 www.urvalutsyn.is Töfrandi Tyrkland LÚXUS & MUNAÐUR Sólríkar sérferðir til Antalya Belek Verð frá 89.990 kr.* á mann í tvíbýli 10. okt. í 9 nætur - allt innifalið Skínandi sól, fallegar strandir, náttúrufegurð, menning og saga, ljúffengur matur, freistandi verslanir og hagstætt verðlag. Antalya og Belek eru vinsælustu sólarstaðir Evrópumanna á suðurströnd Tyrklands og hafa svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Út frá Antalya eru margar glæsilegar strendur og íslenskir kylfingar hafa lýst Belek sem toppstað, hvort sem talað er um golfvelli, gististaði eða umhverfið sjálft. Lúxusgisting þar sem „allt er innifalið“ Við bjóðum gistingu á Hotel Porto Bello, glæsilegu 5 stjörnu hóteli þar sem „allt er innifalið“ allan sólarhringinn. Á hótelinu er píanóbar, veitingastaður, heilsuræktaraðstaða með tækjasal, gufubaði, nuddi og tyrknesku baði; hárgreiðslu- og snyrtistofa. Herbergin eru með loftkælingu, smábar, síma, gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi, hárþurrku og svölum. Missið ekki af frábæru tækifæri til að upplifa ennþá lengra sumar! * Innifalið í verði: flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting í 9 nætur á Porto Bello („allt innifalið„), íslensk fararstjórn og flugvallarskattar. 10. október - 9 nætur 19. október - 11 nætur ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S U RV 3 44 43 10 /2 00 6 FLUGMÁL Yfirvöld í ríkjum heims ættu að halda vöku sinni gagn- vart mögulegum ógnum við flug- öryggi á borð við hryðjuverk, en ættu jafnframt jafnan að hafa í huga að setja ekki meiri hömlur á frelsi flugfarþega en nauðsyn krefur. Þetta segir dr. Assad Kotaite, sem í 30 ár var forseti fastaráðs Alþjóðaflugmálastofn- unarinnar, ICAO. Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, sæmdi Kotaite í gær fálkaorðunni fyrir „heilladrjúg afskipti af málefnum alþjóða- flugþjónustunnar, sem Ísland hefur haft með höndum á vegum ICAO um margra áratuga skeið“. Kotaite hélt fyrirlestur um fram- tíð alþjóðlegs flugs í Háskóla Íslands á þriðjudag og ávarpaði Flugþing í gær. Kotaite segir að samsærið um að sprengja farþegaþotur á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna, sem breskum yfirvöldum tókst að koma upp um fyrir skemmstu, sé áminning um þörfina á að ríki heims haldi vöku sinni gagnvart slíkum ógnum. En aðspurður segir hann erfitt að meta hvaða aðgerðir séu hæfilegar til að bregðast við slíku – ef gripið er til harkalegra ráðstafana sem valda töfum og öðrum óþægind- um fyrir flugfarþega koma upp ásakanir um að of langt sé geng- ið. Sé hins vegar ekki gripið til áþreifanlegra ráðstafana af þessu tagi og eitthvað kemur fyrir, þá koma upp ásakanir um að menn hafi sofið á verðinum. „Það verður því að finna skyn- samlegt jafnvægi þarna á milli,“ segir Kotaite og bendir á að til lengri tíma litið sé hryðjuverka- hætta aðeins eitt af mörgu sem hafi áhrif á þróun farþegaflugs í heiminum. Hún breyti til dæmis engu um að spáð sé gríðarlegri aukningu í farþegaflugi á næstu árum og áratugum. „Flugfarþegar voru um tveir milljarðar í heiminum á árinu 2005. Meðalvöxtur á ári er talinn verða um fimm prósent og heild- arfarþegafjöldinn á ári verði þannig kominn í fjóra milljarða eftir um tvo áratugi.“ Þessi mikla aukning í flugi kalli á að hugað verði vel að flugöryggismálum í heild, tækniframfarir verði nýtt- ar til að draga úr bæði útblást- urs- og hljóðmengun og þannig mætti lengi telja. Starfsemi ICAO sé helguð þessum verkefnum. Að lokum vill Kotaite vekja athygli á því hve vel hafi tekist til um framkvæmd alþjóðaflugþjón- ustu á flugstjórnarsvæðum Íslands og Grænlands og bendir á að það gæti orðið fyrirmynd að skipan flugleiðsöguþjónustu víða um heim. audunn@frettabladid.is Öryggi og frelsi í flugi Fyrrverandi forseti Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, sem var sæmdur Fálkaorðunni í gær, segir þörf á réttu jafnvægi milli öryggisráðstafana og frelsis flugfarþega. STJÓRNMÁL Þingmenn Frjálslynda flokksins vilja að verðtrygging húsnæðislána verði afnumin og hafa lagt fram þingsályktunartil- lögu þess efnis. Í greinargerð hennar segir að það heyri til undantekninga að íbúðalán séu verðtryggð erlendis og óásættanlegt sé að Íslending- ar búi við allt önnur og miklu lakari lánskjör en almennt gerist í nágrannaríkjunum. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, fjallaði um verðtrygginguna í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á þriðjudag og sagði bankana ofverndaða. Auk þess sem þeir hefðu bæði belti og axlabönd væru þeir í polla- buxum. - bþs Frálslyndi flokkurinn vill afnám verðtryggingar: Bankar ofverndaðir GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON Formaður Frjálslynda flokksins. PÓLLAND, AP Stærsti stjórnarand- stöðuflokkurinn í Póllandi, frjáls- lyndi hægri- flokkurinn Borgara- vettvangur, nýtur mikils fylgisfor- skots á aðal- stjórnar- flokkinn, Lög og rétt- læti sem er flokkur þjóð- ernisíhalds- manna. Þetta sýna niðurstöður nýjustu skoðanakannana í Pól- landi. Stjórnin missti þingmeirihlut- ann fyrir hálfum mánuði, þegar Jaroslaw Kaczynski, forsætisráð- herra og leiðtogi Laga og réttlæt- is, rak Andrzej Lepper, leiðtoga smáflokksins Sjálfsvarnar úr stjórninni. Síðan hefur Kaczynski reynt að fá þingmenn annarra smá- flokka og óflokksbundna til liðs við stjórnina. Stjórnarandstaðan krefst nýrra kosninga. - aa Stjórnarandstaðan krefst nýrra kosninga í Póllandi: Mikið fylgistap stjórnarflokksins ASSAD KOTAITE Líbaninn Kotaite fór fyrir IAOC á árunum 1975-2005. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM JAROSLAW KACZYNSKI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.