Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 13
FIMMTUDAGUR 5. október 2006
FRAKKLAND, AP Franskir læknar
hafa undirbúið sig og læknavísindin
undir geimferðir framtíðarinnar
með því að gera litla aðgerð á manni
í þyngdarleysi. Mun þetta vera í
fyrsta sinn sem nokkur maður hefur
verið skorinn upp við þær kringum-
stæður.
Aðgerðin fólst í að fjarlægja litla
blöðru af framhandlegg 46 ára karl-
manns og fór „nákvæmlega eins og
við áttum von á,“ sagði Dominique
Martin yfirlæknir við blaðamenn að
aðgerð lokinni. Hann bætti við að
allt benti til þess að hægt verði að
nota vélmenni eða fjarstýrðan tölvu-
búnað til að skera fólk upp í geim-
förum.
Skurðstofan var sett upp í Airbus
300 Zero-G flugvél sem tók 25 djúp-
ar dýfur til að framleiða nær þyngd-
arleysi innan vélarinnar. Hver dýfa
varaði í 22 sekúndur og unnu skurð-
læknarnir fimm eingöngu meðan á
þeim varði. Flugið sjálft tók um þrjá
tíma, en aðgerðin eingöngu ellefu
mínútur – eða svipaðan tíma og hún
hefði tekið á jörðu niðri.
Læknarnir og sjúklingurinn voru
bundnir niður og seglar notaðir til
að koma í veg fyrir að skurðhnífar
flytu um loftið. Eftir að gulleit blaðr-
an, sem var illkynja, var skorin af,
flaut hún í burt frá sjúklingnum.
Læknarnir höfðu þó fest band í hana
svo hún komst ekki langt.
Undirbúningur aðgerðarinnar
tók þrjú ár, en hún er hluti af víð-
tækari rannsókn á uppskurðum við
þessar aðstæður. Áður höfðu lækn-
arnir framkvæmt mun nákvæmari
skurðaðgerð á hala rottu, og sagði
Martin þessa aðgerð hafa verið afar
einfalda í samanburði.
Sjúklingurinn var valinn vegna
áhuga hans á teygjustökki, sem
gerir hann vanan breytingum í
þyngdaraflinu, að sögn talsmanns
sjúkrahússins sem Martin vinnur
hjá. smk@frettabladid.is
Skáru upp í
þyngdarleysi
Fyrsta skurðaðgerðin á manneskju í þyngdarleysi
var gerð í síðustu viku. Þykir hún mikið afrek og
vera góðs viti fyrir læknavísindi framtíðarinnar.
ÞYNGDARLAUS UPPSKURÐUR Vísindamenn fylgdust áhugasamir með læknunum,
sem voru bundnir niður. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Í september voru fluttar
inn vörur fyrir 30 milljarða króna
en út fyrir sem nemur 22,3 millj-
örðum samkvæmt bráðabirgðatöl-
um sem Hagstofan birti í gær.
Útflutningur hefur aukist tölu-
vert frá því í ágúst þegar hann
mældist 16,6 milljarðar króna.
Innflutningur hefur líka aukist
lítillega.
Vöruskiptahallinn í september
nemur því 7,7 milljörðum króna
fyrir september og minnkar milli
mánaða en í ágúst mældist hann
11,7 milljarðar. Í september í fyrra
nam hallinn 68,6 milljörðum
króna.
Í Vegvísi Landsbankans segir
að líklegt sé að vöruskiptahallinn
lækki áfram milli mánaða. Þegar
sé farið að draga úr innflutningi
vegna stóriðjufjárfestinga sem og
innflutningi neysluvara. Að auki
muni útflutningur áls verða meiri
á næstu mánuðum en áður.
Krónan hefur verið að styrkj-
ast að undanförnu. Það má hugs-
anlega að einhverju leyti rekja til
talna um viðskiptahalla. Þó er lík-
legast að styrkinguna megi að
mestu leyti rekja til aukinnar
krónubréfaútgáfu.
Krónan styrktist þriðja daginn
í röð í gær og hefur hún styrkst
um 11,6 prósent frá því í lok ann-
ars ársfjórðungs. - hhs
Nýjar bráðabirgðatölur Hagstofu Íslands:
Hallinn minnkar
á milli mánaða
UMHVERFISMÁL Félag stúdenta við
Háskólann á Akureyri hvetur
nemendur og starfsfólk skólans til
að nota aðra fararkosti en bílinn
til að komast leiða sinna í dag.
Þetta er gert í þeim tilgangi að
benda á kosti þess að stunda nám á
Akureyri þar sem samgöngur eru
góðar og vegalengdirnar innan-
bæjar stuttar.
Strætisvagnar Akureyrar
munu fella niður fargjöld fyrir
nemendur Háskólans í dag. Félag
stúdenta vill einnig með þessu
benda á hollustu reglulegrar
hreyfingar og á þá staðreynd að
heilbrigt líferni sé undirstaða góðs
námsárangurs. - hs
Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri:
Bíllinn skilinn eftir
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Starfsfólk og
nemendur skólans eru hvött til að skilja
bílinn eftir heima.