Fréttablaðið - 05.10.2006, Side 16
5. október 2006 FIMMTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Í góðum málum
„Ég hefði síður vilja fara
frá ef allt hefði verið hér
í brunarúst. En staða
flokksins nú er virkilega
sterk.“
KJARTAN GUNNARSSON EFTIR AÐ
HANN HAFÐI ÁKVEÐIÐ AÐ LÁTA AF
EMBÆTTI FRAMKVÆMDASTJÓRA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS EFTIR
26 ÁRA STARF. FRÉTTABLAÐIÐ 4.
OKTÓBER.
Náttmyrkur bruggað
„Og í nálægri höll, er
náttmyrkur bruggað, sem
berast skal í dögun um
byggðir þessa lands. Skyldi
sú höll sem hið góða skáld,
Ólafur Jóhann Sigurðsson
orti um á sinni tíð, hafa
verið Morgunblaðshöllin?“
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
GAGNRÝNDI STAKSTEINA
MORGUNBLAÐSINS HARÐLEGA
Á ALÞINGI Á ÞRIÐJUDAG.
MORGUNBLAÐIÐ 4. OKTÓBER.
Þegar kona verður ófrísk vakna
ýmsar spurningar. Ein sú algeng-
asta er: Eigum við von á strák eða
stelpu? Síðan ómskoðun kom til
skjalanna á spítölum landsins í
kringum 1985 hefur verið hægt
að komast að því sem öldum
saman var foreldrum leynt. Hild-
ur Harðardóttir, yfirlæknir á
kvennadeild Landsspítalans,
segir að það færist í vöxt með
hverju árinu að foreldrar vilji
vita kyn bumbubúans. „Það hafa
nú ekki verið gerðar neinar opin-
berar kannanir á þessu en mín til-
finning er að það séu eitthvað um
65 prósent foreldra sem vilji vita
kynið,“ segir Hildur. „Þeir sem
vilja ekki vita það vilja bara hafa
þetta eftir gamla laginu og finnst
að kyngreiningin sé einskonar
svindl, svona eins og að kíkja í
jólapakkana. Það er auðveldara
að sjá kynið ef barnið er drengur,
m.a. vegna utanáliggjandi kyn-
færa, en stundum er ekki hægt að
segja alveg til um þetta, t.d. ef
fóstrið liggur þannig eða nafla-
strengurinn skyggir á. Við segj-
um ekkert nema við séum alveg
hundrað prósent viss og það ger-
ist sem betur fer örsjaldan að við
höfum rangt fyrir okkur. Það er
kannski eitt tilfelli á tveggja ára
fresti eða svo.“ - glh
Verður það strákur eða stelpa?:
Sumir vilja ekki
kíkja í jólapakkana
FÓSTUR Í MÓÐURKVIÐI Hvort skildi barnið nú verða? FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
HILDUR
HARÐARDÓTTIR
YFIRLÆKNIR
Höfum sem
betur fer örsjald-
an rangt fyrir
okkur.
■ Í nýja fjárlagafrumvarpinu er mikið
talað um Bollafjall, sem er einhvers
staðar fyrir vestan. Á því stend-
ur ratsjárstöð og þar á að víst að
skera niður.
B o l l a f j a l l
er kannski
B o l a f j a l l
með staf-
se tn ingar-
villu sem er endurtekin í gegnum
allt frumvarpið. Það er þó ekki
alveg víst. Kannski lumar Alþingi
á fleiri fjöllum sem við fáum að
heyra um í næstu fjárlagafrum-
vörpum. Kannski fáum við Herða-
breið, Engil, Fantafell, Lessuhorn
og Hvaladalshnúk í næstu fjárlaga-
frumvörpum. Hver veit?
NÝTT FJALL:
BOLLAFJALL
Forvitnilegt
að skoða
„Ef börn fá þá menntun sem
þeim ber að fá lögum samkvæmt,
og það er hægt að tryggja það
með einhverjum hætti, þá finnst
mér forvitnilegt að skoða heima-
kennslu,“ segir Jón Már Héðinsson,
skólameistari Menntaskólans á
Akureyri, um niðurstöður skýrslu á
vegum menntamálaráðuneytisins
um heimakennslu. Þar kemur fram
að heimakennsla, þar sem foreldrar
barna á grunnskólaaldri sjá um að
kenna þeim á eigin heimilum, sé
valkostur í skólastarfi sem vert sé að
útfæra nánar og skilgreina.
„Ég vil ekki fordæma heimakennslu
á neinn hátt enda hefur hún lengi
verið framkvæmd í gegnum heima-
nám nemenda. Ef það á að fara út
í tilraunir af þessu tagi þá þarf hins
vegar að hugsa vel og vandlega um
hvaða afleiðingar það getur haft.“
SJÓNARHÓLL
HEIMAKENNSLA
JÓN MÁR HÉÐINSSON SKÓLAMEISTARI
MENNTASKÓLANS Á AKUREYRI
Þótt það séu enn 80 dagar
til jóla eru fjölmargir þegar
farnir að spá í stórhátíðina.
Föndurfólk, jólalagaútgef-
endur og stórhuga jólaljósa-
menn eru meðal þeirra sem
strax eru komnir í jólastart-
holurnar.
„Þeir allra hörðustu byrja að spá í
jólakortin í sumarfríinu, en svo er
fólk núna að komast í gírinn með
annað föndur,“ segir Eva Huld í
Föndurloftinu í Garðheimum. Fyr-
irtækið hóf að auglýsa jólaföndrið
fyrir nokkrum vikum og Eva segir
að nú aukist jólavöruúrvalið hratt
með hverri vikunni sem líður.
Föndurloftið býður upp á jólafönd-
urnámskeið sem Eva segir að séu
vel sótt. Meðal námskeiða fram-
undan eru gerð jólasveina úr ull,
aðventukransagerð og sívinsæl
námskeið í gerð jólakorta.
Smári Þ. Ingvarsson, bifreiða-
stjóri í Urriðakvísl, hefur um ára-
bil verið með þeim stórtækustu í
jólaskreytingum utandyra. „Ég
hef farið til Flórída í mörg ár og á
núna bókaða ferð um miðjan okt-
óber,“ segir Smári. Hann segir
ferðirnar í og með til að kaupa inn
nýtt skraut. „Mér finnst ekkert
skrítið að skoða jólaskraut í steikj-
andi hita, en ég vildi ekki vera
þarna á jólunum sjálfum. Myrkrið,
kuldinn og snjórinn eru ómissandi
hluti af jólunum. En þarna er
mikið úrval, t.d. í stórverslunum
eins og Walmart og Target. Svo á
ég vinkonu í Norfolk í Virgínu sem
er alltaf með augun opin fyrir mig
og kaupir og sendir mér ef hún sér
eitthvað fallegt. Hún veit hvað
karlinn er ruglaður.“
Smári segist ekki vera í sam-
keppni við aðra skreytara og
leggur mest upp úr því að skraut-
ið sé huggulegt. Fyrir jólin er
stöðug bílaumferð framhjá hús-
inu hans og Smára finnst gaman
að aðrir hafi gaman af því sama
og hann. „Ég byrja að skreyta
þegar ég kem heim um miðjan
nóvember og kveiki á dótinu þann
fyrsta í aðventu þegar farið verð-
ur að skyggja. Svo verður maður
að bæta og breyta til jóla.“
Nokkrar nýjar jólaplötur eru í
undirbúningi. Grínistarnir í
Baggalúti koma með jólaplötu
þar sem safnað er saman þeim
jólalögum sem þeir hafa gert á
síðustu árum og nýjum bætt við,
og sópransöngkonan Björg Þór-
hallsdóttir verður með blandaða
jólaplötu með klassísku yfir-
bragði. Þá gefur Sena út 5 diska
pakka með 100 vinsælum jólalög-
um og eru vonir bundnar við að
sá pakki seljist vel. Eiður Árna-
son, útgáfustjóri Senu, segir hinn
einfalda sannleik í útgáfumálun-
um að fólk kaupi það sem það
þekki og það eigi eigilega betur
við um jólalög en aðra tónlist.
gunnarh@frettabladid.is
Jólin – 80 dagar til stefnu!
JÓLAKORTAFÖNDUR Þeir allra hörðustu byrja í sumarfríinu.
JÓLALJÓSIN Í URRIÐAKVÍSL Eigandinn á
leið í innkaupaleiðangur til Flórída.
BAGGALÚTUR MEÐ JÓLAPLÖTU Fara úr
gróðurhúsinu í jólakofann.
„Ég er bara að fara að hendast upp í flugvél til
New York eftir nokkra tíma,“ segir Vigdís Gunn-
arsdóttir leikkona þegar blaðamaður spyr hvað sé
að frétta af henni. „Ég er að fara utan með
tvo bandaríska leikara sem ætla að
leika Sollu stirðu og Íþróttaálfinn
úr Latabæ á barnarokktónleikum
í Ameríku. Þetta er hluti af stærri
tónleikum, leikararnir með eitt
af þremur atriðum á þessum
tónleikum.“
Hún segist hafa farið utan til
að velja fólk og komið síðan
með það hingað til lands.
„Ég er búin að vera að æfa
með þeim stuttan fimmtán
til tuttugu mínútna spuna-
söngleik og er nú að fara
með þeim til Ameríku.
Fyrsta „giggið“ er á laugardaginn næstkomandi,
síðan verða tónleikarnir haldnir um hverja helgi
í október og nóvember um austurströnd Banda-
ríkjanna. Ég verð með þeim úti fyrstu helgina en
kíki kannski seinna á hvernig þeim gengur.
Annars er bara allt gott að frétta af mér. Ég er
farin þó nokkuð út í leikstjórn og handritagerð
og er að fara á vikunámskeið í handritagerð í lok
mánaðarins. Ég er að skrifa kvikmyndahandrit
og ætla að vinna í því á þessu námskeiði, sem
er haldið í Danmörku.“
Hún segist einnig vera að vinna að kynn-
ingarþætti fyrir íslenskan skemmti-
þátt. „Ég vil helst tala sem minnst
um það fyrr en ég kemst að því
hvort hann verður keyptur,“ segir
hún. „Það er nóg að gera hjá mér
þessa dagana. Sem er gott, því ég
vinn best þannig.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? VIGDÍS GUNNARSDÓTTIR LEIKKONA
Á leið á barnarokktónleika
Nýjung í ræstingum
Unilav ræstitæki með 40 cm moppugrind
R
V
62
14
6.996 kr.
Þurr- og blautmoppað
með sama áhaldinu
Auðveld áfylling,
einfalt í notkun
Sérlega handhægt
Á tilboði