Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 18
5. október 2006 FIMMTUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Af 358 milljarða króna
útgjöldum ríkisins á næsta
ári renna um 8,5 milljarðar
til reksturs æðstu stjórnar
ríkisins og ráðuneyta. Rekst-
ur Alþingis kostar rúma tvo
milljarða og rekstur forseta-
embættisins rúmar 180 millj-
ónir. Utanríkisráðuneytið er
dýrast ráðuneyta í rekstri,
kostar tæpar 980 milljónir
króna á næsta ári. Rekstur
sendiráða kostar tæpa 1,8
milljarða.
Fjárlagafrumvarp ársins 2007 verð-
ur tekið til fyrstu umræðu á Alþingi
í dag. Samkvæmt því nema útgjöld
ríkisins 358 milljörðum króna. Tekj-
urnar eru áætlaðar 373 milljarðar.
Af einstökum málaflokkum
rennur mest til heilbrigðis- og
tryggingamála, rúmir 143 milljarð-
ar.
Stærstu málaflokkarnir á því
sviði eru bætur samkvæmt lögum
um félagslega aðstoð (7,5 m.kr.), líf-
eyristryggingar (41,3 m.kr.), sjúkra-
tryggingar (17 m.kr.) og rekstur
Landspítala - háskólasjúkrahúss (32
m.kr.). Alls heyra 107 útgjaldaliðir
undir heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið, til dæmis sjúkra-
hús, hjúkrunarheimili, heilsu-
gæslustöðvar og ýmsar stofnanir á
sviði heilsu, heilbrigðis og umönn-
unar.
Útgjöld til stofnana og starfsemi
á vegum menntamálaráðuneytisins
nema rúmum 44 milljörðum.
Háskóli Íslands fær mest, rúma sex
milljarða en samanlögð framlög til
skóla eru í kringum 30 milljarðar.
Af öðrum útgöldum má nefna fram-
lög til listasafna og menningarstarf-
semi af ýmsu tagi.
Rekstur sendiráða Íslands í
útlöndum kostar tæpa 1,8 milljarða
króna, sem er tæpum 300 milljón-
um króna meira en í ár. Rekstur
íslensku friðargæslunnar er áætl-
aður um 600 milljónir og kostnaður
vegna alþjóðlegrar friðargæslu
verður 120 milljónir. Þá gerir frum-
varpið ráð fyrir að rúmur milljarð-
ur renni til þróunaraðstoðar á árinu
sem er 130 milljónum króna meira
en í ár.
Samanlagður kostnaður við
rekstur ráðuneyta nemur 5,3 millj-
örðum. Rekstur utanríkisráðuneyt-
isins er kostnaðarsamastur og
hljóðar upp á tæpan milljarð og
rekstur menntamálaráðuneytis,
fjármálaráðuneytis og Hagstofu
kostar tæpar 600 milljónir.
Forsetaembættið fær rúmar 180
milljónir úr ríkissjóði á næsta ári.
Þar af fara rúmar 150 milljónir í
almennan rekstur en rúmum 27
milljónum verður varið í opinberar
heimsóknir.
Almennur rekstur Alþingis kost-
ar rúma 2 milljarða og af einstökum
liðum má nefna að alþjóðasamstarf
þingsins kostar tæpar 250 milljónir.
Nam sá kostnaður rúmum 80 millj-
ónum á síðasta ári.
Umræður um fjárlagafrumvarp-
ið hefjast klukkan hálf ellefu. Fjár-
málaráðerra mælir fyrir frumvarp-
inu og í kjölfarið taka fulltrúar
annarra flokka til máls.
Svona erum við
> Skráð afbrot á landinu
Windows Vista er nafnið á næstu útgáfu stýrikerfisins vinsæla, Micro-
soft Windows. Vista tekur við af núverandi útgáfu stýrikerfisins, Wind-
ows XP, sem kom út fyrir fimm árum.
Hvað er nýtt í Vista?
Notendur Windows Vista munu taka eftir fjöl-
mörgum nýjungum um leið og stýrikerfið er
ræst í fyrsta sinn. Þar má helst nefna breytt
notendaviðmót og útlit, bætta leitareigin-
leika og ný margmiðlunartól. Öryggismál
hafa einnig fengið vítamínsprautu, enda
vírusar og aðrar tölvuóværur orðnar æ
algengari. Flestar nýjungarnar eru þó
undir vélarhlífinni og því ekki jafn sýni-
legar venjulegum notendum
og aðrar. Þær miða flestar að
því að gera stýrikerfið stöðugra
og hraðara í vinnslu.
Hvenær kemur það út?
Þróun Vista er langt komin, en hún hófst um svipað leyti og Windows
XP kom út. Í september síðastliðnum lauk svokölluðum beta-prófun-
um á stýrikerfinu og við tók lokastig þróunarinnar, þar sem villur
eru lagfærðar og stýrikerfið fínpússað. Útgáfudagurinn, sem var
upphaflega árið 2003, hefur margoft verið færður aftur en á dög-
unum var hann loks festur. Þá tilkynnti Microsoft að fyrirtækja-
útgáfa stýrikerfisins kæmi út í nóvember næstkomandi en útgáfa
fyrir almenna notendur kæmi út í janúar.
Þarf ég að uppfæra?
Þrátt fyrir fjölda nýjunga og breytt útlit er ekkert sem knýr notendur til
að uppfæra stýrikerfi sitt í Windows Vista. Þeir sem vilja spila nýjustu
tölvuleikina munu þurfa að uppfæra en almennir tölvunotendur sem
nota ritvinnsluforrit, töflureikni, tölvupóst og netvafra
geta notast við Windows XP án vandkvæða í mörg ár
í viðbót. Þó má búast við að stýrikerfið fari að fylgja
með nýjum tölvum stuttu eftir að það kemur út.
FBL-GREINING: WINDOWS VISTA
Flestar nýjungar undir vélarhlífinni
Eitt ár
skiptir máli
Samkvæmt niðurstöðu Þjóðarpúls
Gallup vilja þrír fjórðu svarenda að
bílprófsaldur verði hækkaður um
eitt ár og verði því 18 ára, en ekki
17 ára eins og nú er. Guðbrandur
Bogason er formaður Ökukennara-
félags Íslands.
Hefur um það
verið rætt
innan félagsins
að hækka
bílprófsaldur
um eitt ár?
Þessi umræða
hefur ekki farið
fram akkúrat
núna síðustu
misserin, en
fyrir nokkrum
árum var mikil
umræða um
þetta í þjóðfé-
laginu. Þá fór Ökukennarafélagið í
gegnum þessa umræðu. Svar ökur-
kennara var að ekki setja sig á móti
þeirri stefnu, ef svo yrði ákveðið af
stjórnvöldum. Við erum þó hvorki
að berjast fyrir því né á móti heldur
viljum við láta aðra taka ákvörðun-
ina um það.
Skiptir þetta eina ár einhverju
máli? Ég er ekki frá því og tel að
aldursmörkin þyrftu að fara hærra,
ef við ætlum að verða 100 prósent
örugg, í 20 ár. En það mun ekki
ganga eftir. Ökukennarar finna
geysilegan mun á unglingi, hvort
hann er 16 eða 17 ára og reiknum
með að það verði sama þróun í eitt
ár í viðbót. Ég finn verulegan mun á
unglingum hvort þeir eru 17 ára eða
18 ára, hve móttækilegir þeir eru
fyrir alvöru lífsins.
SPURT & SVARAÐ
HÆKKUN BÍLPRÓFSALDURS
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASÚKRAHÚS Af einstökum liðum fjárlaganna rennur mest til
Landspítala, rúmir 30 milljarðar króna.
BESSASTAÐIR 180 milljónir króna renna til reksturs forsetaembættisins á næsta ári.
Opinberar heimsóknir kosta rúmar 27 milljónir.
ALÞINGI Almennur rekstur Alþingis kostar rúma 2 milljarða króna. Alþjóðasamstarf
þingsins kostar tæpar 250 milljarða.
Rekstur æðstu stjórnar ríkisins
og ráðuneyta kostar 8,5 milljarða
FRÉTTASKÝRING
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
bjorn@frettabladid.is
KOSTNAÐUR VIÐ ALMENNAN
REKSTUR ÆÐSTU STJÓRNAR
RÍKISINS OG RÁÐUNEYTA
Forseti Íslands 181,7
Alþingi 2.042,0
Ríkisstjórn 214,9
Hæstiréttur 177,4
Umboðsmaður Alþingis 97,7
Ríkisendurskoðun 423,4
Forsætisráðuneyti 250,9
Menntamálaráðuneyti 580,3
Utanríkisráðuneyti 978,1
Landbúnaðarráðuneyti 234,5
Sjávarútvegsráðuneyti 224,1
Dóms- og kirkjumálaráðun. 310,4
Félagsmálaráðuneyti 298,1
Heilbrigðis- og tryggingaráðun. 487,8
Fjármálaráðuneyti 575,9
Samgönguráðuneyti 287,2
Iðnaðarráðuneyti 161,6
Viðskiptaráðuneyti 129,7
Hagstofan 578
Umhverfisráðuneyti 276,6
(TÖLURNAR ERU Í MILLJÓNUM KRÓNA)
STJÓRNARRÁÐIÐ Rekstur ráðuneytanna kostar samanlagt 5,3 milljarða króna. Rekst-
ur utanríkisráðuneytisins er kostnaðarsamastur.
ÝMSIR KOSTNAÐARLIÐIR
■ 200 milljónir eru ætlaðar til ráð-
stöfunar samkvæmt sérstakri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
■ Símakostnaður og burðargjöld
fyrir stjórnarráðið kostar tæpar 35
milljónir.
■ 19 milljónum verður varið til
bifreiðakaupa fyrir stjórnarráðið.
■ Ýmis innheimtukostnaður nemur
rúmum 550 milljónum.
■ 350 milljónir fara í eftirlaun
ráðherra, alþingismanna og
hæstaréttardómara.
■ Afskriftir skattkrafna nema
6 milljörðum.
■ Ríkið borgar 620 milljónir í fast-
eignagjöld.
■ Stjórnarskrárnefnd kostar 14,5
milljónir.
■ Evrópunefnd kostar 5,3 milljónir.
■ 40 milljónir renna frá forsætis-
ráðuneyti til stjórnmálaflokka með
„hliðsjón af nýrri kjördæmaskipan
og breyttum aðstæðum þing-
manna af þeim sökum“.
■ 3 milljónir fara í viðhald á staf-
kirkju í Vestmannaeyjum.
■ 24 milljónum er varið til undirbún-
ings nýbyggingar á stjórnarráðsreit.
■ 47 milljónir fara í nýja stúku á
Laugardalsvelli.
■ 20 milljónir renna til franskrar
menningarkynningar á Íslandi.
■ 11 milljónir fara í nám tannsmiða.
■ Tæpar 20 milljónir fara í íslensku-
kennslu fyrir útlendinga.
■ 304 milljónir verða greiddar í
Þróunarsjóð EFTA.
■ 615 milljónir fara í Fóðursjóð.
■ Greiðslur vegna riðuveiki nema
52 milljónum.
■ Átak í hrossarækt fær 25 milljónir.
■ Gjöld vegna Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins nema 8,5 milljónum.
■ Dómsmálaráðuneytið kostar
tæpum 58 milljónum til kosning-
anna í vor.
■ Innheimta meðlaga kostar
4 milljónir.
■ 190 milljónir fara til undirbúnings
byggingar hátæknisjúkrahúss.
■ Útgáfa ökuskírteina kostar 16
milljónir.
■ 75 milljónir renna til endurgreiðslu
vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
■ Niðurgreiðslur á hitun íbúðarhús-
næðis nema 1,1 milljarði króna.
■ Rannsóknir og útrýming á mink
kosta tæpar 50 milljónir.
GUÐBRANDUR
BOGASON
FORMAÐUR ÖKU-
KENNARAFÉLAGS
ÍSLANDS
99
.0
70
86
.9
67
91
.4
52
2000
2002
2004
verð kr. 39.990
Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
M.v. tvíbýli á Mercure Duna *** í 4 nætur með
morgunmat 6. eða 13. október. Netverð á mann.
Flug og gisting - örfá sæti laus!
Heimsferðir bjóða glæsilega fjögurra
nátta helgarferð til þessarar stórkostlegu
borgar í hjarta Evrópu. Búdapest býður
einstakt mannlíf, menningu og skemmtun
að ógleymdri getrisni Ungverja. Bjóðum
“stökktu tilboð” á frábæru verði 6.
október - þú bókar fl ugsæti og 2 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
verð kr. 29.990
Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
M.v. “stökktu tilboð” í 4 nætur með morgunmat
6. október. Netverð á mann.