Fréttablaðið - 05.10.2006, Page 24
5. október 2006 FIMMTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.209 -0,11% Fjöldi viðskipta: 372
Velta: 6.511 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 66,40 +0,00% ... Alfesca
5,02 +0,00% ... Atlantic Petroleum 595,00 +0,00% ... Atorka
6,50 +0,00% ... Avion 31,00 +1,64% ... Bakkavör 58,70 +1,03% ...
Dagsbrún 5,05 +1,41% ... FL Group 22,20 -3,48% ... Glitnir 20,40
+0,49% ... KB banki 830,00 +0,00% ... Landsbankinn 26,40 -
0,38% ... Marel 76,50 +0,00% ... Mosaic Fashions 17,40 +0,00% ...
Straumur-Burðarás 17,20 -0,58% ... Össur 122,50 -1,21%
MESTA HÆKKUN
Icelandic Group +1,91%
Avion +1,64%
Dagsbrún +1,41%
MESTA LÆKKUN
FL Group -3,48%
Össur -1,21%
Straumur-Burðarás -0,58%
Skráning Icelandair Group í Kaup-
höll Íslands og hlutafjársala til
fjárfesta og starfsmanna leggst
vel í Jón Karl Ólafsson, forstjóra
félagsins. Jón Karl finnur fyrir
miklum áhuga starfsmanna og
telur að stór hluti þeirra muni taka
þátt í verkefninu. „Það verður
einnig jákvætt að fá inn breiðan
hóp hluthafa sem stendur þá við
bakið á fyrirtækinu og tekur það
áfram inn í framtíðina.“
Ákveðin óvissa hafi ríkt eftir
að tilkynnt var í febrúar að félagið
færi á markað en svo gerðist ekk-
ert. Aö sögn Jóns Karls er allt
millibilsástand óþægilegt, ekki
aðeins fyrir starfsfólk heldur
einnig viðskiptavini og lánar-
drottna. Nú liggi hins vegar fyrir
að félagið fari á markað fyrir ára-
mót og gefur það öllum færi á
halda áfram.
Allt stefnir í að árið 2006 verði
eitt af betri árum Icelandair en
reksturinn hefur verið í samræmi
við áætlanir. Sex mánaða uppgjör-
ið var mjög gott og ágætlega horf-
ir til seinna hluta ársins. Eldsneyt-
isverð er að vísu hátt og samkeppni
mikil. „En aukin samkeppni skap-
ar tækifæri og við höfum sótt
fram.“ - eþa
JÓN KARL ÓLAFSSON, FORSTJÓRI ICE-
LANDAIR Skráning félagsins á markað
eyðir óvissu hjá mörgum.
Skráning eyðir óvissu
Starfsfólk Icelandair áhugasamt fyrir skráningu.
Kaupþing hefur tilkynnt til Kaup-
hallarinnar í Osló að bankinn eigi
7,82 prósenta hlut í Storebrand,
einu stærstu fjármálafyrirtæki
Noregs. „Ástæða þess að við
höfum keypt hlutabréf í Store-
brand er sú að við teljum að fyrir-
tækið sé á góðu verði. Við höfum
fylgst með Storebrand um hríð og
erum ánægð með það sem við
sjáum,“ segir Hreiðar Már Sig-
urðsson, forstjóri Kaupþings, við
Dagens Næringsliv. Að sögn
Hreiðars Más hefur bankinn ekki
tekið ákvörðun um frekari kaup.
Samkvæmt hluthafalista frá
Storebrand er KB banki næst-
stærsti hluthafinn á eftir Folke-
trygdfondet, sjóði í eigu norska
ríkisins. Markaðsverðmæti bank-
ans er um 185 milljarðar króna.
Fréttablaðið greindi frá því
fyrr á árinu að Arion-verðbréfa-
varsla hefði verið að safna bréfum
fyrir viðskiptavini sína, þar á
meðal Kaupþing. Einnig hafði
Glitnir verið að kaupa bréf fyrir
sína kúnna. - eþa
Kaupþing með tæp
8% í Storebrand
Fjárfestahópurinn Highland
Acquisitions náði mikilvægum
áfanga á leið sinni til yfirtöku á
House of Fraser á þriðjudaginn.
Þá lagði stór hluti eigenda HoF
blessun sína yfir tillögu stjórnar
um að samþykkja yfirtökutilboð
frá Highland.
Að Highland standa meðal ann-
ars Baugur og FL Group og hljóð-
ar tilboð hópsins upp á 148 pens á
hlut.
Alls greiddu 90 prósent fundar-
gesta, sem höfðu á bak við sig tæp
99 prósent atkvæða, tillögunni
atkvæði sitt, en tíu prósent fund-
armanna voru henni mótfallinn.
Fátt er því til fyrirstöðu að
Highland taki yfir rekstur HoF í
næsta mánuði og er reiknað með
að félagið verði afskráð úr Kaup-
höllinni í Lundúnum þann 9. nóv-
ember. - eþa
HOUSE OF FRASER Fátt getur komið í
veg fyrir að Baugur og fleiri fjárfestar
taki félagið yfir.
Færast nær yfirtöku
á House of Fraser
Félagið afskráð níunda nóvember næstkomandi.
Fyrirtækið Saga fjárfestingar
hf. stofnað á Akureyri
Þorvaldur L. Sigurjónsson yfirgefur Kaupþing ásamt hópi úr stöðutöku bankans.
Stofnað hefur verið á Akur-
eyri fyrirtækið Saga fjár-
festingar hf. sem leggja mun
áherslu á sérvalin verkefni
á fyrirtækjamarkaði.
Stofnhluthafar eru
Hildingur ehf. (KEA) með 25
prósenta hlut, Þorvaldur
Lúðvík Sigurjónsson með 25
prósenta hlut, en hann verð-
ur jafnfram forstjóri, Spari-
sjóður Norðlendinga og
Sparisjóður Svarfdæla með 13
prósenta hlut hvor og fjárfestar,
meðal annars starfsmenn og lykil-
stjórnendur með 24 prósenta hlut.
Stofnhlutafé er tveir millj-
arðar króna en ætlunin er
að auka það í fjóra millj-
arða á næstu 18 mánuðum.
Þorvaldur Lúðvík hefur
því yfirgefið Kaupþing, en
hann gegndi stöðu fram-
kvæmdastjóra eigin við-
skipta bankans. Með honum
hverfur á braut hópur
starfsmanna úr stöðutöku
bankans.
Þorvaldur Lúðvík segir að
hópurinn taki þátt í stofnun Sögu
fjárfestinga og leggur á það
áherslu að viðskilnaður hópsins
við Kaupþing sé gerður í mesta
bróðerni og gangi hann sáttur á
brott til móts við ný ævintýri.
„Ég var þarna í tíu ár og stofnaði
veltubók KB banka.“
Meðal verkefna Sögu fjárfest-
inga verður stöðutaka á verð-
bréfamörkuðum, samrunar og
yfirtökur, fjárfestingalán og
útlán auk meðfjármögnunar. Þá
verður Saga viðskiptavaki með
hlutabréf og skuldabréf. Umsókn-
arferli um leyfi til að starfrækja
fjárfestingabanka er í undirbún-
ingi en gert er ráð fyrir að það
taki nokkra mánuði. - óká/eþa
ÞORVALDUR
LÚÐVÍK SIGUR-
JÓNSSON
Danir óttast færslugjöld
Samkvæmt samkomulagi stjórnvalda í Danmörku
og dönsku bankanna frá því í fyrra greiða notendur
Dankort engin færslugjöld þegar þeir nota debet-
kort sín, en þurftu áður að borga hálfa danska
krónu í hvert sinn, eða nálægt fimm íslensk-
um. Núna óttast þeir afturhvarf til fyrri tíðar,
eða jafnvel enn frekari gjaldtöku, því á vett-
vangi Evrópusambandsins þykir þessi skort-
ur á samræmingu í gjaldtöku bagalegur.
Formaður dönsku neytendasamtakanna
fer mikinn í viðtali við Danmarksradio og
segir að færa eigi bönkunum stórgróða
og telur þá vinna að því á bak við tjöldin
að koma núverandi kerfi frá aftur. Við muni taka
algjör yfirráð stóru greiðslukortafyrirtækjanna
sem starfi á heimsvísu. Spurning er þó hvort
ekki væri ráð hjá þeim að taka upp eitthvert
gjald, svona til að treysta kerfið, en það datt út
hálfan dag fyrir helgi, verslunareigendum og þeim
sem ekki áttu seðla til mikils ama.
Fríblöðin skulu virða nei-ið
Annars er hitamálið hjá Dönum þessa dagana og
þeirra helsta áhyggjuefni varðandi stríð á fríblaða-
markaði hvort almenningur geti ekki örugglega
afþakkað blöðin. Þannig segja
danskir miðlar að á þinginu sé
afgerandi meirihluti fyrir því að
fólk eigi að geta sagt „nej tak!“
Þannig verði fríblöðin að verða
fljót að bregðast við og koma
sér saman um lausn, vilji
þau forðast að fá á sig lög
sem neyði þau til að beygja
sig undir vilja landsmanna.
Neytendasamtökin dönsku
hafa selt yfir 50 þúsund „nei
-takk“-skilti, en þau hafa ekki
verið virt. Viðhorf fríblaðsins Dato
hefur sagt að fólk þurfi að hafa sam-
band í eigin persónu til að afþakka að fá
blaðið í lúguna.
Peningaskápurinn ... MARKAÐSPUNKTARRick Wagoner, forstjóri bandaríska bíla-
framleiðandans General Motors (GM)
og Carlos Ghosn, forstjóri bílafram-
leiðendanna Nissan og Renault, slitu
viðræðum um mögulegt samstarf í gær.
Bandaríska dagblaðið The Wall Street
Journal segir forstjórana hafa greint á
um of margt.
Líkur eru sagðar á því að peninga-
málanefnd Englandsbanka ákveði að
halda stýrivöxtum óbreyttum í 4,75
prósentum. Bankinn tilkynnir í dag hvort
breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi
í Bretlandi.
Meirihluti hluthafa í breska hergagna-
framleiðandanum BAE var fylgjandi
því á hluthafafundi í gær að selja 20
prósent hlutafjár félagsins í Airbus.
Hummer H3
+ 5 milljónir í skottinu
ef þú átt tvöfaldan miða!
Kauptu miða í Happdrætti DAS.
Einfaldur miði kostar aðeins 1.000 kr.
á mánuði eða 230 kr. fyrir hvern útdrátt.
Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld.
65 skattfrjálsar
milljónir í október
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
A
S
34
39
5
1
0/
20
06
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna
561 7757