Fréttablaðið - 05.10.2006, Page 28
28 5. október 2006 FIMMTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR:
Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson
Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á
suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Hvernig er hægt að ná óhreyfðri mynd af hagkerfi á fleygiferð?
Landslag efnahagslífsins hefur
gerbreytzt á fáeinum árum og
heldur áfram að breytast bókstaf-
lega frá degi til dags. Nú heyrist
enginn lengur lýsa sjávarútvegi
sem undirstöðu efnahagslífsins,
skárra væri það, enda minnkaði
hlutdeild útvegsins í landsfram-
leiðslunni úr 15% 1990 í 7% 2005. Á
sama tíma hefur skerfur fjármála-
þjónustu til landsframleiðslunnar
aukizt úr 18% í 24%. Samt halda
heilir stjórnmálaflokkar – og Morg-
unblaðið! – áfram að berjast gegn
umsókn um aðild Íslands að
Evrópusambandinu með þeim
höfuðrökum, að aðild að Samband-
inu samrýmist ekki hagsmunum
sjávarútvegsins. Um hitt er ekki
skeytt, að aðild Íslands að ESB og
upptaka evrunnar hér myndu
styrkja til muna samkeppnisstöðu
banka og annarra fjármálafyrir-
tækja og viðskiptavina þeirra með
því að minnka vaxtamuninn milli
Íslands og annarra landa og draga
með því móti úr hættunni, sem
fylgir miklum gengissveiflum.
Þessum skjótu umskiptum í
atvinnusamsetningu efnahagslífs-
ins hefur fylgt talsvert umrót og
rask, en þó ekki atvinnuleysi. Kort
af eignarhaldi íslenzkra fyrirtækja
úreldast svo að segja samdægurs,
því að fyrirtækin og eignarhlutir í
þeim eru sífellt að skipta um
hendur, svo að fáir hirða um slíka
kortagerð. Samt eru of flókin og of
náin víxltengsl í eignarhaldi
fyrirtækja alvarlegur hættuvaldur
í efnahagslífi þjóðar, því að of
flókin og náin tengsl draga úr
viðnámsþrótti fyrirtækjanna
frammi fyrir skakkaföllum. Ef
einu fyrirtæki hlekkist á og það er
tengt öðrum fyrirtækjum of
nánum böndum, þá geta þau dregið
hvert annað með sér niður í fallinu.
Óljós og síbreytileg eignatengsl
torvelda heilbrigðiseftirlit
almannavaldsins á vettvangi
efnahagslífsins. Það hefur því ekki
verið alls kostar auðvelt að gera
sér skýra grein fyrir ástandi
efnahagsmálanna undangengin
misseri. Rykið þarf að setjast og
sæmileg kyrrð þarf að komast á,
svo að hægt sé að meta stöðuna
vandlega, en kyrrðin lætur á sér
standa. Þess vegna er að svo
stöddu ómögulegt að vita með
nokkurri vissu, hvort hagkerfið
getur haldið áfram enn um sinn
þeirri siglingu, sem það hefur
verið á, eða hvort það þarf að
hægja á sér – eða siglir í strand.
Eitt er þó deginum ljósara.
Heimilin og fyrirtækin halda
áfram að safna skuldum, svo að
engan þarf að undra á uppgangin-
um: bílakaupunum, byggingunum
og þannig áfram. Viðskiptahallinn í
ár verður meiri en í fyrra, en þá
nam hallinn 16% af landsfram-
leiðslu og hafði aldrei verið meiri.
Skuldir þjóðarbúsins við útlönd
jukust úr 290% af landsframleiðslu
í árslok 2005 í 346% um mitt ár
2006, sumpart vegna gengisfalls
krónunnar; erlendar eignir jukust
mun hægar. Aukning erlendra
skulda fyrstu sex mánuði þessa árs
nam því röskum helmingi lands-
framleiðslunnar (56%). Mestur
hluti aukningarinnar (37 milljarðar
króna af 56) á fyrri hluta ársins var
aukning skammtímaskulda, sem
falla í gjalddaga innan árs.
Skammtímaskuldir þjóðarbúsins
við útlönd nema nú 85% af
landsframleiðslu borið saman við
18% árið 2000. Mikið verk bíður
bankanna, þegar þessar skuldir
falla í gjalddaga. Bönkunum hefur
til þessa tekizt að endurfjármagna
skammtímaskuldir sínar, en það
getur orðið þungur róður fyrir þá
að velta skuldunum áfram eða
breyta þeim í langtímaskuldir.
Óvíst er, hvort þeim bjóðast þá
sömu kjör og áður. Þessi hætta
vofir ávallt yfir þeim, sem fleyta
sér áfram á skammtímalánum.
Hækkandi vextir á heimsmarkaði
hljóta að hækka lántökukostnað
Íslendinga erlendis á næstu
misserum. Nú ríður á því sem
aldrei fyrr, að lánsfénu hafi verið
vel varið.
Skyndileg aukning skammtíma-
skulda þjóðarbúsins hefur leitt til
þess, að þær námu um mitt þetta
ár nær tíföldum gjaldeyrisforða
Seðlabankans. Seðlabankinn hefur
vanrækt að byggja upp gjaldeyris-
forða sinn til mótvægis við
aukningu skammtímaskuldanna. Ef
erlendir lánardrottnar kippa að sér
hendinni og neita að framlengja lán
til Íslands eins og gerðist í Taílandi
1997, til þess þarf ekki nema
nokkrar neikvæðar umsagnir
erlendra bankagreiningardeilda
líkt og í vor leið, þá dugir gjaldeyr-
isforðinn ekki til að greiða nema
lítið brot af skuldunum. Þá hrapar
gengið. En gengi krónunnar er í
öllu falli of hátt skráð eins og
viðskiptahallinn og vaxtamunurinn
milli Íslands og annarra Evrópu-
landa bera með sér og hlýtur því að
láta undan síga innan tíðar.
Hvenær? Það veit enginn. Meira
næst.
Hagkerfi á fleygiferð
Efnahagsástandið
Umræðan | Jón Bjarnason, þingmaður VG, skrifar
um virkjanaáform í Skagafirði
Herförin gegn Jökulsám Skagafjarðar er komin á
fulla ferð á ný.
Á fundi skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar 19. sept. sl. samþykktu fulltrúar Samfylkingar
og Framsóknarflokks breytingu á aðalskipulagstillög-
unni sem nú er til meðferðar hjá sveitarfélaginu:
„Skipulags og byggingarnefnd samþykkir að í aðal-
skipulagi verði gert ráð fyrir og sýnd möguleg svæði
til virkjunar Héraðsvatna þ.e.a.s. við Skatastaði og
Villinganes.“
Þessi samþykkt hefur mikla þýðingu sökum þess
að hún er það eina sem stendur í vegi fyrir virkjun
Jökulsánna í Skagafirði. En virkjun þeirra er líklega
ein forsenda þess að hægt verði að reisa álver á Húsa-
vík. Þessi samþykkt er vitaskuld eftir yfirlýstum
markmiðum Framsóknarflokksins um eflingu stór-
iðju hérlendis en gengur þvert gegn nýjustu mark-
miðum Samfylkingar um „Fagra Ísland“. Allt bendir
til að Jökulsárnar í Skagafirði geti orðið næstu fórnar-
lömb virkjana- og stóriðjugræðginnar.
Aðalskipulag fyrir Skagafjörð hefur verið í vinnslu
undanfarin ár og hart deilt um virkjanir í Jökulsán-
um. Vinstri grænir vilja friða Jökulsárnar gegn virkj-
unum.
Eignarhaldsfélagið Héraðsvötn hefur þegar tryggt
sér virkjunarrétt við Villinganes en félagið er að
meirihluta í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og RARIK
hf. Þessi virkjun hefur þegar farið í gegnum mat á
umhverfisáhrifum og fengið tilskilin leyfi frá
umhverfisráðuneyti og iðnaðarráðuneyti. Umræðu og
frekari aðkomu almennings að þeirri framkvæmd er
lagalega lokið. Aðeins hefur strandað á að sveitar-
stjórnir Skagafjarðar gæfu grænt ljós á framkvæmd-
ina. Með því að setja virkjunina inn á aðalskipulag er
þeirri hindrun rutt úr vegi.
Fari Villinganesvirkjun inn á aðalskipulag verður
virkjanaleyfið sjálft dýrmæt söluvara, að virði hundr-
aða milljóna ef ekki milljarða króna. Þetta vita for-
ystumenn KS og RARIK og hugsa sér gott til glóðar-
innar. Sömu aðilar ásamt Landsvirkjun hafa einnig
sótt um rannsóknaleyfi til virkjana við Skatastaði,
ofar í vatnasviði Jökulsánna.
Hvað sem annars má segja um Framsóknarflokk-
inn hefur hann verið sjálfum sér samkvæmur og sýnt
stefnufestu og eindregna afstöðu til eflingar stóriðju
hérlendis með tilheyrandi fórnum á náttúru og samfé-
lagi.
Mín einlæga von er sú að þau öfl í Samfylkingunni
verði ofan á sem gera nú tilraun til að breyta stefnu
flokksins í virkjana og stóriðjumálum. En það eru
verkin sem tala. Eitt fyrsta skrefið í þeim efnum væri
að Samfylkingin standi með Vinstri grænum og öðru
baráttufólki fyrir friðun Jökulsánna í Skagafirði.
Aðalskipulag sveitarfélags er stefnuyfirlýsing um
ráðstöfun lands og náttúruauðlinda. Framkvæmdir
við Villinganesvirkjun bíða þess eins að komast á
skipulag.
Unnendur Jökulsánna í Skagafirði kalla á sam-
stöðu til verndar Jökulsánum. Við hvetjum til baráttu
gegn öllum tilraunum til að setja umræddar virkjanir
inn á aðalskipulag sveitarfélagsins.
Ákall til verndar Jökulsánum
Í DAG |
ÞORVALDUR GYLFASON
Það var þá
„Að sama skapi er leitt til þess að vita
að stjórnmálamenn allra flokka, utan
Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs, skuli ganga um torg barmandi
sér yfir að herinn sé á förum og sjái
ekki aðrar leiðir færar fyrir vinnuafl á
Suðurnesjum en að þjónusta banda-
rískt hernámslið,“ sagði í ályktun
stjórnar Vinstri grænna í Reykjavík.
„Ég er sérstaklega ósáttur við aðdrag-
anda uppsagnanna því fyrir
mánuði síðan var ákveðið
að reka ratsjárstöðina
með óbreyttu sniði fram
til 15. ágúst á næsta ári,“
sagði Grímur Atlason,
bæjarstjóri í Bolungar-
vík og fyrrverandi
stjórnarmað-
ur í Vinstri
grænum í Reykjavík, í Fréttablaðinu
í gær.
Mikilvæg málefni
„Mannréttindanefnd fagnar því að
stjórnarformaður Orkuveitu Reykja-
víkur, Guðlaugur Þór Þórðarson, hafi
látið það vera eitt af sínum fyrstu
embættisverkum að taka úr birt-
ingu umdeilda auglýsingu Orkuveitu
Reykjavíkur,“ segir í síðustu fundar-
gerð mannréttindanefndar Reykjavík-
ur. Nefndarmönnum þótti konur lítils-
virtar í auglýsingunni, sem ku vera ein
sú dýrasta sem hefur verið framleidd
hér á landi, enda sést karlmaður ryk-
suga í upphafi hennar.
Bjarni í Framsókn
„Bjarni Harðarson, blaðamaður, rit-
stjóri Sunnlenska Fréttablaðsins, er
að íhuga að bjóða sig fram í 2. sæti á
framboðslista Framsóknarflokksins í
Suðurkjördæmi,“ skrifar Pétur Gunn-
arsson, fyrrverandi fréttastjóri á Frétta-
blaðinu, á vef sinn í gær. „Bjarni hefur
undanfarna daga talað við fjölmarga
framsóknarmenn og kannað undir-
tektir við framboð sitt. Ákvörðun um
aðferð við uppstillingu liggur ekki fyrir
en verður tekin í nóvemberbyrjun,“
segir Pétur. Þingmenn flokksins
í Suðurkjördæmi eru Guðni
Ágústsson og Hjálmar Árna-
son. Ísólfur Gylfi Pálmason
vill inn á þing. Pólitískt
framhaldslíf Hjálm-
ars er óvísst en Pétur
spáir því að hann
vilji halda áfram á
þingi.
bjorgvin@frettabladid.isK
osningavetur er framundan. Óvenjumargir þingmenn
hafa hætt á því kjörtímabili sem er að ljúka og fleiri
hafa lýst því yfir að þeir ætli ekki að gefa kost á sér
til áframhaldandi þingsetu. Það er því útlit fyrir að
nokkur endurnýjun verði í þingsölum milli kjörtíma-
bila. Þessi staða opnar tækifæri bæði fyrir stjórnmálaflokkana
að hleypa ferskum vindum á lista sína og einnig fyrir einstakl-
inga sem vilja láta til sín taka með því að gefa kost á sér til þátt-
töku í stjórnmálum.
Prófkjör og uppstillingar á lista er verkefni næstu vikna. Á
hverjum degi berast fréttir af framboðum fólks á lista flokk-
anna. Flest þetta fólk er áður þekkt úr stjórnmálum, annað hvort
sitjandi þingmenn eða stjórnmálamenn sem hafa einbeitt sér að
öðrum sviðum til þessa en telja sig nú tilbúna í slaginn á Alþingi.
Minna er um fólk sem kemur utan frá og hefur til þessa látið til
sín taka á öðrum sviðum samfélagsins.
Alþingi Íslendinga endurspeglar ekki þjóðina sérstaklega
vel í dag. Sú endurnýjun sem framundan er má því skoðast sem
tækifæri stjórnmálaflokkanna til að hrista upp í mannavalinu og
stilla upp listum með fólki sem kjósendum finnst koma sér við,
listum sem eru skipaðir konum og körlum, ungum og öldnum,
fólki með margvíslega reynslu, fólki sem hefur lagt sinn skerf
til samfélagsins með mörgu og ólíku móti, fólki sem skynjar lífs-
kjör almennings í landinu og hefur reynt sitt af hverju á eigin
skinni.
Stjórnmál snúast um fólkið í landinu, umhverfi þess og lífs-
kjör í breiðum skilningi. Í stefnuskrám flokkanna og kosninga-
málum felast mismunandi valkostir fyrir kjósendur. En það er
ekki nóg. Kjósendum verður líka að finnast að þeir einstaklingar
sem þeim gefst kostur á að velja til þings séu fulltrúar þeirra.
Einsleitur hópur fólks þar sem uppistaðan er karlar á miðjum
aldri sem hafa verið mislengi í pólitík er ekki til þess fallinn að
draga fólk að kjörklefunum.
Svo virðist sem áhugi á stjórnmálum fari minnkandi og þekkt
er að stjórnmál virðast síður höfða til ungs fólks en áður. Það
verður því æ algengara að yngstu kjósendurnir nýti ekki atkvæð-
isrétt sinn. Ein leiðin til að bregðast við þessari þróun hlýtur að
vera sú að listar stjórnmálaflokkanna séu skipaðir breiðum hópi
fólks með margvíslega reynslu.
Það verður forvitnilegt að fylgjast með framvindu mála á
næstu vikum. Tekst stjórnmálaflokkunum að nýta tækifærið til
að hleypa ferskum vindum um lista sína eða mun val kjósenda
standa milli lista skipuðum einsleitum hópi, þar sem uppistaðan
er karlmenn, vel menntaðir fjölskyldumenn á aldrinum 35 til 60
ára.
Stjórnmálaflokkar stilla upp listum:
Ferskir vindar
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR
„Alþingi Íslendinga endurspeglar ekki þjóðina sérstak-
lega vel í dag.“