Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.10.2006, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 05.10.2006, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 5. október 2006 7 Í GARÐINUM HEIMA HAFSTEINN HAFLIÐASON SKRIFAR UM ALLAN GRÓÐUR HEIMILANNA Þegar haustregnin hafa barið niður það sem eftir var af sumarblómunum og prakt fjölæru plantnanna orðin svipur hjá sjón, þá tekur við nýr tími í garðinum. Nú þarf að raka saman föllnu laufi og setja það í nettum lögum á milli trjáa, runna og fjölæru plantnana, en kannski ekki síst ofan á beðin þar sem við höfum gróður- sett haustlaukana. Og það er einmitt núna sem við gerum það. Þeir munu gera sig klára þarna ofan í moldinni í haust, tilbúnir að skjóta upp blöðum og blómum þegar vorar aftur á ný. Fáar tegundir en mikið úrval Í stórum dráttum eru haustlaukarnir flokkaðir í þrjá hópa eftir því hvernig þeir haga sér í garðinum og hvernig þeir eru notaðir. Til „ýmissa smálauka“ teljast allir smágerðir laukar sem plantað er í smábletti hér og hvar – eiginlega alls staðar þar sem við finnum fyrir þá pláss. Þeir eru líka lágvaxnir. Af þessu tagi eru til dæmis vetrargosar, vorboðar, snæstjarna og stjörnulilja. Flestir krókusar líka. Þessir laukar koma upp ár eftir ár og magnast og margfaldast ár frá ári. Það sem þeir þurfa er hæfileg moldarhula, svo sem sjö til átta sentimetrar, og að öðru hverju sé því sinnt að grisja þá þegar fer að þrengjast um plönturn- ar. Í öðrum hópi eru svo túlipanar og páskaliljur. Þetta eru tegundir sem allir þekkja og njóta líklega mestra vinsælda, svona almennt. Þessir laukar þurfa að fara um tíu til fimmtán sentimetra ofan í moldina. Og þeir dafna best í frjórri og hæfilega rakri garðmold. Þegar þeir eru lagðir er mjósti hluti þeirra, totan, látin vísa upp. Einn hópurinn enn er svo mismunandi stórir laukar af nokkuð hávöxnum tegundum. Þær taka sig oftast best út sem smáhópar með þrem til tíu-fimmtán plöntum sem oft er beitt sem einskonar undirstrikun við eitthvað sem við viljum vekja sérstaka athygli á í garðinum. Túlipanarnir – tilkomumiklir Án efa eru það túlipanarnir sem hafa vinninginn í eintakafjölda haust- laukainnkaupanna. Af þeim eru til nokkrir flokkar með mismunandi hæð og blómgunartíma. Og hæð og blómgunartími túlipananna helst í hendur: Lágvaxnir túlipanar blómgast fyrr en hávaxnir. Þess vegna er hægt að planta saman túlipönum af lágvöxnum og hávöxnum sortum. Þá tekur hver við af annari. Láta þá fyrstu byrja í lok apríl eða byrjun maí og þá síðustu standa í blóma um tveim mánuðum síðar. Blómlitir túlipananna ná eiginlega yfir allan skala blómalitanna. Þó eru þeir ekki til heiðbláir og „svartir“ túlipanar eru eiginlega dimm-rauðfjólubláir þegar grant er skoðað. Bil milli einstakra lauka þarf að vera um 12-15 cm. En þar sem blandað er saman túlipana- flokkum geta þeir staðið mun þéttar, sé þess bara gætt að þessu bili sé haldið fyrir hverja sort. Túlipanar njóta sín ágætlega í hnöppum með tíu til fimmtán í hverjum. Tilkomumestir eru þeir þó í stærri breiðum með hundrað laukum á fermetra. Túlipanar endurnýja sig árlega, en ná yfirleitt ekki þeirri stærð sem þarf til að skila sama blómflúri seinna sumarið. Til þess þarf sumarið að vera fremur milt og langt. Þó kemur það fyrir að sömu túlipanarnir blómgist árum saman á sama stað. En ef við viljum halda sömu gæðum að staðaldri ár eftir ár, borgar sig að skipta laukunum út árlega. Páskaliljur – praktuglegar Þrátt fyrir nafnið blómgast páskaliljur sjaldnast um páskana hér á landi. Þeirra tími er oftast ekki fyrr en í áliðnum maímánuði og vel fram undir Jónsmessuna. Eins og hjá túlipönum er páskaliljum raðað í nokkra flokka eftir gerð. Afbrigðafjöldinn er ótelj- andi, þótt að í almennri sölu og dreif- ingu manna á milli sé reynt að halda úrvalinu í skefjum, enda er í sjálfu sér ekki svo mikill munur á þeim. Þó eru til ýmsar formgerðir. Flestar eru þær gular, rjómagular eða hvítar. Páskaliljur bera lútandi blóm og eru fremur stórblóma. En smávaxnari tegundir njóta líka vinsælda, eins og t.d. hin netta ‚Tete-a-tete‘ sem mest er í umferð sem pottaplanta um páska- leytið, en er líka fyllilega harðgerð í görðum. Páskaliljur fara vel í hnöpp- um, nokkrar saman eða í stórum og dreifðum breiðum þar sem rými leyfir. Bilið milli lauka þarf að vera um 15 sentimetrar. Laukarnir eru fjölærir og blómgast á sama stað árum saman, sé jarðvegur þeim hagstæður. Haustlaukarnir - niður nú! Alberdoorn túlipanar PARKET & GÓLF ÁRMÚLI 23 108 REYKJAVÍK SÍMI: 568 1888 WWW.PARKETGOLF.IS PARKET@PARKETGOLF.IS ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF FINNSKIR DAGAR ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AF GÓLFEFNUM FRÁ FINNLANDI PARKET & GÓLF SPENNANDI KAUPAUKAR Ef þú verslar gólfefni frá Finnlandi á finnskum dögum í Parket & gólf hefur þú möguleika að vinna spennandi kaupauka. Aðalvinningurinn verður dreginn út i beinni útsendingu á Bylgjunni í lok október. ka ld al jó s 20 06 1. Dekurferð til Finnlands fyrir tvo 2. Vandaðir Nokia símar 3. Glæsileg Nokia stígvél Fisléttar - Harðar - Sterkar Léttustu ferðatöskurnar Pantanir óskast sóttar. Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is Bjútý“ taska algjör snilld 5 ára ábyrgð LAURA ASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 551-6646
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.