Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 67
FIMMTUDAGUR 5. október 2006 31
AF NETINU
Umræðan
Námsefnisgerð
Námsgagnaútgáfa fyrir grunn-skóla á Íslandi hefur á sér
sovéskt yfirbragð við fyrstu sýn.
Flestallar kennslubækur og annað
námsefni kemur frá einu ríkis-
reknu forlagi. Nefndir hafa verið
skipaðar til að segja álit á þessu
fyrirkomulagi, skýrslur verið
skrifaðar og tillögur lagðar fram.
Enginn hefur þó árætt að breyta
þessu í grundvallaratriðum af ein-
faldri ástæðu: Fyrirkomulagið
hefur gefið góða raun. Útgáfuefn-
ið er upp til hópa vandað og ótrú-
lega fjölbreytt miðað við örsmáan
markað. Hver vill henda barninu
með baðvatninu?
„Námsgögn eru augljóslega
lykilþáttur alls skólastarfs,“ skrif-
ar Illugi Gunnarsson í Fréttablað-
inu 17. sept. sl. Mikið rétt. Og því
þarf að fara varlega í að breyta
því fyrirkomulagi sem hefur gefið
góða raun. Auðvitað væri gott að
búa við meiri fjölbreytni í náms-
gögnum. En fjölbreytnin er ekki
markmið sem ryður öllum öðrum
úr vegi. Betra er að hafa eina góða
kennslubók en tvær vondar. Gott
námsefni er meira um vert en kór-
rétt hagfræðikenning.
Skólarnir hafa ekki mikið svig-
rúm nú um stundir til að útvega
sér annað námsefni en frá Náms-
gagnastofnun og Illugi mælir með
að þetta svigrúm verði aukið. Það
er ekki nema réttmætt og gott en
ein af ástæðunum fyrir þessu litla
svigrúmi er að lítið annað hefur
staðið til boða. Forlögin og önnur
fyrirtæki, sem starfa á einka-
markaði, hafa ekki sinnt náms-
gagnagerð fyrir grunnskóla að
neinu gagni. Orsök verður afleið-
ing í slíkri stöðu og afleiðing
orsök. Illugi kallar líka eftir meiri
hvata fyrir kennara að semja eigin
námsgögn og selja þau. Þetta er
líka góð hugmynd og ekki nema
rétt að grunnskólakennarar fái
betri aðgang að fjármagni til að
búa til námsefni eins og fram-
haldsskólakennarar hafa.
Kennarar semji námsefni?
Bót væri að því að fleiri aðilar en
Námsgagnastofnun gætu gefið út
vandað námsefni fyrir grunn-
skóla. Hugsanlega munu einka-
forlögin með tíð og tíma koma sér
upp kunnáttu til að taka þátt í
slíkri starfsemi þó að ekki bóli á
því enn. En er líklegt að kennarar
taki sig til sjálfir og framleiði
námsefni sem verði raunveruleg-
ur valkostur fyrir kennara og
nemendur?
Það er meiri eftirspurn en
framboð á hæfum námsefnishöf-
undum. Ef vel á að vera þurfa þeir
að hafa þrjá kosti til að bera: í
fyrsta lagi kennslureynslu, helst
af viðkomandi skólastigi, í öðru
lagi fagþekkingu á viðfangsefn-
inu sem fjallað er um og í þriðja
lagi færni til að miðla efninu á
aðlaðandi, skýran og traustan
hátt. Auk þess þarf höfundurinn
tíma til að sinna þessu
verki af alúð og fá góð
ráð og sérfræðiaðstoð.
Útvega þarf myndefni,
frumgert eða aðfengið,
með fullum rétti og
greiðslum, semja
kennsluleiðbeiningar
og leiða kennara og
nemendur að nýja efn-
inu. Einsamall kennari
eða fræðimaður ræður
ekki við þetta verkefni.
Hann þarf stuðningsnet til að það
takist. Hins vegar er gott að kenn-
arar fái aðstoð til þess að þróa sitt
eigið stuðningsefni til að þjóna
nemendum sínum og sumt af því
getur síðan gengið í gegnum frek-
ara ferli og orðið almennt náms-
efni. Líklegra er að
svo takist til ef fjár-
munum er veitt til
málsins og kennara-
menntunin verður
lengd.
Hvernig eru
námsefnishöf-
undar?
Hópurinn, sem semur
námsefni fyrir Náms-
gagnastofnun, er
býsna fjölbreyttur og þar eru
kennarar virkjaðir ásamt fólki
með aðra reynslu, menntun og
hæfileika. Ég nefni hér þá sem
kallaðir hafa verið til að semja
kennslubækur, leiðbeiningar og
annað efni í sögukennslu frá því
að síðasta aðalnámskrá kom út
1999 vegna þess að þar þekki ég
best til:
- Kennslufræðingur og grunn-
skólakennari með langa reynslu,
nú starfandi í Kennaraháskólan-
um (KHÍ).
- Sagnfræðingur og sögukenn-
ari á unglingastigi grunnskóla til
margra ára.
- Sagnfræðingur og kennari
með reynslu úr grunnskóla en
einkum framhaldsskóla, nú í KHÍ.
- Sjálfstætt starfandi sagnfræð-
ingar með mismunandi mikla
reynslu af kennslu.
- Kennari með tuttugu ára
reynslu af grunnskólakennslu og
meistaragráðu í kennslufræðum,
kennir nú við KHÍ.
- Rithöfundur sem hefur samið
sögulegar skáldsögur og er þekkt-
ur fyrir þekkingu sína á sögu lands
og þjóðar.
- Nýútskrifaðir kennarar frá
KHÍ sem bjuggu til námsefni í
lokaverkefnum sínum.
Margt af efninu sem þessir
höfundar sömdu gekk í gegnum
mikið breytingaferli í meðförum
Námsgagnastofnunar og sérfræð-
inga hennar. Vonandi tekst að
auka enn fjölbreytnina og vanda
til verka þegar búin eru til náms-
gögn handa uppvaxandi kynslóð
landsins sem á ekkert nema það
besta skilið.
Höfundur er námsefnishöfund-
ur og dósent í sagnfræði við Kenn-
araháskóla Íslands.
Gæði og samkeppni í námsgagnagerð
ÞORSTEINN HELGASON
Ríkisstjórn laus við sjarma
Egill Helgason skrifar á Visir.is undir
Skoðanir.
Einhvern veginn er maður orðinn svo
samdauna ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar að maður heldur að
hún sitji til eilífðarnóns. Maður þekkir
varla annað núorðið. Þessir flokkar
kjósa líka að starfa saman hvar sem
þeir hafa færi á. Framsókn kann varla
annað lengur – tilverugrundvöllur
þess flokks verður sífellt óljósari.
Foringjaskiptin í flokknum eru algjör
ráðgáta. Þetta er ekki stjórn sem
er líkleg til stórafreka, hún er ekki
hrífandi, veitir engan innblástur, er
nokkurn veginn laus við allan sjarma
– en áfram skröltir hún þó. Kannski
þora kjósendur ekki alveg að skipta.
Bót væri að því að fleiri aðilar
en Námsgagnastofnun gæti
gefið út vandað námsefni fyrir
grunnskóla.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu Heklu hf . Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
Haustpakki
Sjálfskiptur Picanto á 20.953 kr. á mánuði, engin útborgun*
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
3
0
6
KIA Picanto er lipur, fallegur, nútímalegur og
sparneytinn smábíll með skynsamlegri rýmisnýtingu.
Sjálfskiptur Picanto býðst nú með veglegum
haustpakka sem inniheldur m.a. sumardekk á álfelgum
og vetrardekk á stálfelgum á aðeins 1.385.000 kr.
Picanto er einnig fáanlegur beinskiptur á frábæru
verði, aðeins 1.198.000 kr.
*M.v. 100% fjármögnun í bílasamningi til 84 mánaða
í erlendri mynt frá Sjóvá Fjármögnun.
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum
vexti í heiminum í dag. Það er ekkert
skrítið þegar hægt er að bjóða þessi gæði
á svona verði.