Fréttablaðið - 05.10.2006, Side 76
5. október 2006 FIMMTUDAGUR40
Gítarleikarinn Björn Thoroddsen
hélt ásamt hljómsveit sinni Cold
Front tvenna tónleika í Lincoln
Center í New York síðastliðið
mánudagskvöld. Björn líkir upp-
lifuninni við að hafa fengið
Grammy-tónlistarverðlaunin.
Húsfyllir var á báðum tónleik-
unum og fengu Björn og félagar
geysigóðar viðtökur. „Þetta gekk
rosalega vel, vonum framar. Þetta
er ákveðin upphefð að hafa spilað
þarna, mér skilst að það sé ekkert
hver sem er sem fái að koma þarna
inn,“ segir Björn. „Því var meðal
annars stungið að mér að koma
þarna aftur, sem er frábært.“
Lincoln Center er Mekka djass-
tónlistar í New York og gefst aðeins
þeim allra bestu í faginu kostur á
að leika þar. Björn er fyrstum
íslenskra djasstónlistarmanna
boðið að leika þar. „Fyrir mig eru
þetta hálfgerð Grammy-verðlaun.
Þetta er tvímælalaust toppurinn á
ferlinum,“ segir hann og bætir því
við að það hafi alltaf verið draum-
ur sinn að spila í Lincoln Center.
Hann segist því hafa undirbúið sig
vel þegar kallið kom og æft sig vel.
„Ég var smá stressaður á fyrri tón-
leikunum en svo var þetta bara
eins og að vera heima í stofu,“
segir hann.
Cold Front er skipað, auk
Björns, Bandaríkjamanninum
Steve Kirby og Kanadamanninum
Dr. Richard Gillis. Gaf sveitin út
samnefnda plötu á síðasta ári sem
fékk mjög góða dóma.
Íslenska útflutningsfyrirtækið
Iceland Naturally, styrkti Björn og
félaga til fararinnar til New York
og aðstoði þá eftir föngum á meðan
á dvöl þeirra í borginni stóð.
Björn segist hafa hitt þó nokkuð
af fólki úr tónlistarbransanum
eftir tónleikana sem hafi lýst yfir
áhuga á að heyra í honum aftur.
Játar hann því að tónleikarnir hafi
vafalítið opnar margar dyr fyrir
sér í Bandaríkjunum.
Björn hefur verið á faraldsfæti
undanfarið og spilað víða um heim,
m.a. í Frakklandi og Japan. Um
miðjan þennan mánuð er ferðinni
síðan heitið til London. Tímann
þangað til ætlar hann að nota til að
ná áttum, eins og hann orðar það.
freyr@frettabladid.is
Toppurinn á ferlinum
BJÖRN THORODDSEN Gítarleikarinn knái stóð sig vel á tvennum tónleikum í Lincoln
Center.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Í stuttmynd Ísoldar Uggadóttur er
sagt af heimkomu listakonunnar
Katrínar sem skilur ástkonu sína
eftir í New York meðan hún skrepp-
ur heim í afmæli afa síns. Togstreita
Katrínar sem ekki hefur upplýst
neinn um ástina í útlöndum er aðal-
drifkraftur myndarinnar sem tekur
óvænta stefnu í afmælinu.
Þetta er ósköp ljúf og skondin
mynd um sáttfýsi og fordóma, um
fjölskyldur og þessa ljúfsáru til-
finningu sem fylgir því að koma
heim og breytast aftur í barn for-
eldra sinna. Hugmyndin er frumleg
en úrvinnslan ekki, sögusviðið er
kunnuglegt og persónurnar fremur
steríótýpískar en myndin líður þó
lítið fyrir það enda er hún vel leikin
og skemmtilega skrifuð.
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir leik-
ur Katrínu af öryggi og virkar mjög
sannfærandi í sinni túlkun. Foreldr-
arnir Hanna María Karlsdóttir og
Theódór Júlíusson eru að sama
skapi heillandi og eftirminnileg,
ekki síst í síðari hlutanum. Ástkon-
an, sem leikin er af Amy Lewis, á
sterka innkomu í byrjun myndar-
innar og hefði verið gaman að heyra
meira af hennar persónu. Stefán
Hallur Stefánsson og Unnur Ösp
Stefánsdóttir skila sínum hlutverk-
um með sóma, sem og hinn ungi
Alexander Briem.
Yfirbragð myndarinnar er hið
vandaðasta, hún er litrík og falleg,
músíkin notaleg og klippingin fag-
mannleg. Hins vegar endar hún
mjög snögglega, ekki óvænt en
samt er eins og eitthvað vanti til
þess að reka á hana smiðshöggið.
Stuttmyndin Góðir gestir er fyr-
irtaks frumraun ungs leikstjóra
sem verður án efa spennandi að
fylgjast með í framtíðinni.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
Velkomin heim vinan
GÓÐIR GESTIR (STUTTMYND)
LEIKSTJÓRI OG HANDRITSHÖFUNDUR:
ÍSOLD UGGADÓTTIR
AÐALHLUTVERK: AÐALBJÖRG ÞÓRA
ÁRNADÓTTIR, HANNA MARÍA KARLSDÓTT-
IR, THEODÓR JÚLÍUSSON, GRÉTAR SNÆR
HJARTARSON, AMY LEWIS, STEFÁN HALLUR
STEFÁNSSON, UNNUR ÖSP STEFÁNS-
DÓTTIR OG ALEXANDER BRIEM.
Niðurstaða: Notaleg og vönduð mynd sem
gefur góð fyrirheit um höfundinn.
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
������������������������������� �������������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����� ��������������������
����������������������������������������
����������������������������������
��������������������������������� ����� ��������������������
Systur
eftir Þórunni Guðmundsdóttur
í Möguleikhúsinu við Hlemm kl. 20
Síðustu sýningar!
Fös. 6. okt. kl. 20.00
sun. 15. okt. kl. 20.00
fös. 20. okt. kl. 20.00
Sýning ársins, leikskáld
ársins, leikkonur ársins
Tréhausinn á leiklist.is.
Systratilboð: systrahópar borga
aðeins einn miða!
Þetta mánaðarlega
í Þjóðleikhúskjallaranum Í kvöld kl. 21
Síðasta sýning!
Miðapantanir:
551 2525 og hugleikur.is
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 8/10 kl. 14 Sun 15/10 kl. 14
Sun 22/10 kl. 14 Sun 29/10 kl. 14
VILTU FINNA MILLJÓN?
Fös 6/10 kl. 20 UPPS. Fös 13/10 kl. 20
Sun 15/10 kl. 20 Fös 20/10 kl. 20
FOOTLOOSE
Lau 7/10 kl. 20 UPPS. Sun 8/10 kl. 20
Fim 12/10 kl Lau 14/10 kl. 20
HVÍT KANÍNA
Nemendaleikhúsið frumsýnir nýtt verk
eftir hópinn.
Í kvöld kl. 20 Fös 6/10 kl. 20
Lau 7/10 kl. 20 Sun 8/10 kl. 20
BANNAÐ INNAN 16 ÁRA.
Engum hleypt inn án skilríkja.
MEIN KAMPF
Lau 7/10 kl. 20 Sun 8/10 kl. 20
Lau 14/10 kl. 20 Lau 21/10 kl. 20
Fös 27/10 kl. 20 Lau 28/10 kl. 20
LEIKHÚSSPJALL
Leikhúsumræður á Borgarbókasafninu
í Kringlunni. Rætt veður um leikverkið
Mein Kampf.
Fim 12/10 kl. 20 Allir velkomnir.
AMADEUS
Lau 21/10 kl. 20 frums. UPPS. Bleik kort.
Fim 26/10 kl. 20 2.sýning Gul kort.
Lau 4/11 kl. 20 3.sýning Rauð kort.
Sun 12/11 kl. 20 4.sýning Græn kort
Lau 18/11 kl. 20 5.sýning Blá kort
Sun 19/11 kl. 20 6.sýning
VIÐ ERUM KOMIN-Íd
Októbersýning Íd, 2 ný verk:
Við erum komin e. Ólöfu Ingólfsdóttur
og Hver um sig e. Vaðal.
Fim 12/10 kl. 20 frumsýning UPPS.
Fös 13/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20
Fim 19/10 kl. 20 Fös 20/10 kl. 20
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
B
a
ð
le
g
u
r!
!!
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga
- fimmtudaga í síma 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningardag
Sýningar í október
í Landnámssetri
Fimmtudagur 5. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 6. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 7. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 8. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 12. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 13. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 14. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 15. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 19. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 20. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 21. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 22. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 26. október kl. 20 Síðasta sýning