Fréttablaðið - 05.10.2006, Page 82
5. október 2006 FIMMTUDAGUR46
Auðunn Blöndal er að ljúka
tökum á þáttunum Tekinn.
Í vikunni hrekkti hann Pál
Magnússon útvarpsstjóra
og Fréttablaðið fékk að
fylgjast með.
Eins og flestir vita er spéfuglinn
Auðunn Blöndal, eða Auddi eins og
hann er gjarnan kallaður, að fara af
stað með nýja þáttaröð næstkom-
andi mánudag sem ber nafnið Tek-
inn, og er af sama meiði og þættir
leikarans Ashton Kutcher, Punk‘d.
Í þáttunum tekur Auðunn upp á því
að hrekkja þjóðþekkta einstaklinga
og setja þá í einkennilegar aðstæð-
ur. Fréttablaðið fékk að fara og
fylgjast með Audda og félögunum
þar sem þeir voru að taka upp
tíunda hrekkinn í þessari tólf þátta
seríu. Fórnarlambið var Páll Magn-
ússon útvarpsstjóri og voru þeir
félagar vandlega búnir að skipu-
leggja hrekkinn enda er það nokkr-
ar vikna umstang að skipuleggja
einn hrekk að sögn Auðuns.
„Það er rosaleg vinna að skipu-
leggja hvern einn og einasta hrekk.
Við þurfum að fá nágranna, fjöl-
skyldu og vini með okkur í lið til
þetta heppnist sem best,“ segir
Auddi en í þetta sinn var það eigin-
kona Páls, Hildur, sem tók þátt í
hrekknum og var búin að plata Pál
heim til sín um miðjan dag. Auddi
var síðan búinn að skipuleggja það
að risastórum gámi var plantað í
innkeyrslu Páls. Gámurinn átti að
sögn starfsmanns frá gámafélag-
inu og leikara á Audda vegum að
innihalda 22 stóla sem kona Páls
hafði pantað á netinu. Hildur var
búin að segja Páli að hún hafði
pantað tvo stóla á netinu þannig að
heill gámur af stólum var ekki
alveg það sem hann hafði hugsað
sér. Einnig blandaðist tollgæslan
inn í málið þar sem Páll var sakað-
ur um að hafa ekki borgað skatt af
þessum forláta stólum. Viðbrögð
Páls voru eftir atvikum en eftir-
málunum verða áhorfendur að
fylgjast með í þættinum
„Þetta hefur gengið vonum
framar og eiginlega alveg stór-
slysalaust,“ segir Auðunn um tökur
þáttanna sem mun ljúka í dag.
alfrun@frettabladid.is
Auddi hrekkir útvarpsstjóra
TEKINN Auðunn búinn að klæða sig upp í tollgæslubúning áður en hann úrskýrir fyrir Páli að hann var Tekinn.
VEL FYLGST MEÐ Auddi tekur, heyrir og sér allt sem fer fram á meðan á hrekknum
stendur og segir hann leikurunum hvað þeir eiga að segja enda er þetta allt saman
spuni og fer allt eftir viðbrögðum fórnarlambsins.
NÁÐU SÁTTUM Það færðist bros yfir andlit Páls Magnússonar þegar hann áttaði sig á
að þetta var allt saman grín. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NÁGRANNAHÚSIÐ TEKIÐ HERS HÖNDUM
Auðunn fylgdist vel með úr húsinu beint
á móti Páli.
Nemendafélag Menntaskólans í
Reykjavík bryddaði upp á þeirri
skemmtilegu nýjung að stilla
nemendum upp í glugga verslun-
ar Sævars Karls sem lifandi
gínum. Þetta var liður í árshá-
tíðarundirbúningi skólans sem
haldin verður 12. október næst-
komandi.
Uppátækið féll vel í kramið
hjá vegfarendum í Bankastræti
og kom mikill fjöldi saman og
fylgdist með nemendum skólans
taka sporið í búðarglugganum.
Það er spurning hvort fleiri
verslanir fari ekki að taka upp á
þessu enda er þetta skemmtileg
nýbreytni í útstillingum versl-
ana. - áp
Lifandi gínur úr MR
PÓSA Þessi stelpa lét ekki mannfjöldann
á sig fá og stóð grafkyrr í búðargluggan-
um til að sýna nýjustu tísku. Eins og sjá
má voru nokkrir drengir búnir að stilla
stólum fremst við gluggann til að hafa
sem best útsýni.
FLOTTUR SNÚNINGUR Þessi leyfði
áhorfendum að sjá fatnaðinn frá öllum
sjónarhornum og tók nokkur vel valin
spor fyrir áhorfendur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stjarnan úr sjón-
varpsþáttunum
sálugu Beverly
Hills 90210, Tori
Spelling, á von á
sínu fyrsta barni.
Barnsfaðir henn-
ar og nýbakaður
eiginmaður er
Dean McDermont
en hann á fyrir
átta ára gamlan
son. Hjónakornin
eru himinlifandi
með þessa nýj-
ustu viðbót í fjöl-
skylduna en þau
giftu sig í maí á þessu ári í lítilli
athöfn á Fiji-eyjum.
Tori Spelling er dóttir framleið-
andans Aarons Spelling sem lést á
dögunum áttræður að aldri.
Tori ófrísk
TORI SPELLING
Á von á sínu
fyrsta barni með
manninum sínum
Dean McDermont
Talið er að söngkonan Madonna
muni á næstunni ættleiða litla
stúlku frá Afríkuríkinu Malaví.
Fetar hún þar með í fótspor leik-
konunnar Angelinu Jolie sem
hefur þegar ættleitt tvö börn,
annað frá Afríku og hitt frá Asíu.
Madonna er um þessar mundir
stödd í Malaví þar sem hún sinnir
mannúðarstörfum, en mikil fátækt
er þar í landi. Verði ættleiðingin
að veruleika verður stúlkan þriðja
barn Madonnu.
Madonna
ættleiðir
MADONNA Söngkonan heimsfræga er
sögð ætla að ættleiða unga stúlku frá
Malaví.
Britney Spears segist vonast til
þess að hún geti látið hugaróra
sína rætast í næsta mynd-
bandi sínu en þeir þurfa ekki
að koma neinum á óvart,
poppdrottninguna dreymir
um að skjóta eitt stykki pap-
arazzi-ljósmyndara. Frétta-
vefurinn contactmusic.com
greinir frá þessu en eins
og flestum ætti að vera
kunnugt er Spears nú í
leyfi frá tónlistinni enda
nýbúin að eignast sitt
annað barn, Sutton
Pierce.
Líklegt þykir hins
vegar að Spears snúi
aftur á næstu misserum
enda þarf einhver að
brauðfæða heimilið því
hvorki hefur gengið
né rekið hjá eigin-
manni hennar, Kevin
Federline. „Í næsta
myndbandi verð ég
kannski lögga og
fæ að skjóta á
heilan her af
paparazzi-ljós-
myndurum,“
sagði Spears
sem er
hreint
ekki
ánægð
með
fram-
ferði eiginmannsins. Aðeins þrjár
vikur eru síðan sonur þeirra fædd-
ist en Kevin hefur lítið gert annað
en að skemmta sér í Las Vegas.
„Hann var umkringdur konum og
drakk stíft,“ sagði gestur á einum
næturklúbbnum sem Kevin sótti.
Frægt varð þegar Britney ætlaði
að skilja við Kevin eftir fæðingu
fyrri sonar þeirra, en þá gerði
hann einmitt fátt annað en að
skemmta sér. Nú virðist stefna í
samskonar læti á ný.
Dreymir um að skjóta ljósmyndara
BRITNEY SPEARS Hefur
verið hundelt af fjölmiðlum
og þykir ekki hafa staðið sig
í stykkinu sem foreldri.
Bítillinn fyrrverandi,
Sir Paul McCartney,
mun fá útgáfuréttinn
að flestum Bítlalög-
unum eftir um það bil
tíu ár. Kveða bresk
höfundarréttarlög á
um að McCartney fái
réttinn að lögunum
eftir þennan tíma.
McCartney reyndi
árið 1984 að kaupa
útgáfuréttinn að lög-
unum af plötufyrir-
tækinu EMI en
popparinn Michael
Jackson hafði betur í
miklu peningastríði á milli þeirra.
Leiddi það til þess að vinskapur
þeirra fór út um þúfur.
McCartney segist
ekki hafa vitað um
þessi höfundarrétt-
arlög og er því mjög
ánægður með þessar
fregnir. Hann segir
að helsti kosturinn
við það að fá útgáfu-
réttinn sé að þurfa
ekki lengur að borga
núverandi eiganda,
Sony, fyrir að spila
lögin á tónleikum.
„Það sem mér finnst
sárt er að fara í tón-
leikaferð og þurfa að
borga fyrir að syngja
öll lögin mín. Í hvert sinn sem ég
syng Hey Jude, þarf ég að borga
einhverjum,“ sagði McCartney.
Fær útgáfuréttinn
PAUL MCCARTNEY Bítillinn
fyrrverandi fær útgáfuréttinn
að flestum Bítlalögunum eftir
tíu ár.