Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 94
5. október 2006 FIMMTUDAGUR58
HRÓSIÐ …
FRÉTTIR AF FÓLKI1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 andlegt áfall 6 skóli 8 kúgun 9 tunna 11
austurland 12 rándýr 14 rák 16 grískur bók-
stafur 17 niður 18 keyra 20 guð 21 flokka.
LÓÐRÉTT
1 lítill 3 tveir eins 4 greindur 5 að 7
heimsálfa 10 ái 13 suss 15 einkenni 16
samstæða 19 til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 lost, 6 ma, 8 oki, 9 áma, 11 al,
12 refur, 14 rispa, 16 pí, 17 suð, 18 aka, 20
ra, 21 raða.
LÓÐRÉTT: 1 smár, 3 oo, 4 skarpur, 5 til,
7 ameríka, 10 afi, 13 uss, 15 aðal, 16 par,
19 að.
Það voru þjóðþekktir einstaklingar
sem létu ljós sitt skína á tískupallin-
um í gærkvöldi á góðgerðakvöldi
Debenhams. Ágóði kvöldsins rann
til styrktar Krabbameinsfélags
Íslands og söfnuðust 2,6 milljónir
króna.
Stílisti sýningarinnar var fata-
hönnuðurinn Haffi Haff og sá hann
um að klæða upp meðal annars
Jóhannes í Bónus, Þorstein Pálsson,
ritstjóra Fréttablaðsins, og Willum
Þór Þórsson knattspyrnuþjálfara
sem örugglega voru að stíga sín
fyrstu skref í fyrirsætubransanum.
Það voru hin ýmsu fyrirtæki sem
lögðu málefninu lið og þurfti hvert
fyrirtæki að borga 50.000 með
hverjum einstaklingi sem fyrirtæk-
ið sendi á tískusýninguna. Málefnið
var brjóstakrabbamein og bleikt
þema var á kvöldinu sjálfu.
Ekki voru ofangreindir menn
einu þekktu nöfnin á meðal sýnenda
en Birgitta Haukdal söngkona, Eva
María Jónsdóttir, fréttamaður í
Kastljósi, Sigríður Klingenberg
spámiðill og Guðrún Agnarsdótt-
ir, formaður Krabba-
meinsfélagsins, tóku
einnig þátt ásamt mörg-
um fleirum. Þeim til
halds og traust sýndu
sex módel frá EMM
sem kenndu þeim
sem ekki vissu
hvernig best væri að nota
tískupallinn og pósa framan
í áhorfendur. - áp
Þjóðþekktir á tískupallinum
Þeir voru ófáir sem ráku upp stór
augu þegar fréttir bárust af því að
Þorvaldur Davíð Kristjánsson væri
hættur í Leiklistarskóla Íslands
eftir aðeins eins árs nám og hygðist
flytja af landi brott, jafnvel til
Bandaríkjanna. Þorvaldur er nú á
fullu við að leita að skólum við sitt
hæfi og hefur þegar komið auga á
nokkra góða. „Ég er að skoða skóla í
New York og Los Angeles en svo er
líka skóli á Boston-svæðinu sem er
mjög spennandi,“ sagði Þorvaldur
Davíð þegar Fréttablaðið náði tali af
honum inni í matvörubúð á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þorvaldur segist vera á fullu við
að kynna sér það sem þessir skólar
hafi upp á að bjóða en þetta kosti
mikla vinnu. „Umsóknarfresturinn
rennur út í janúar og svo eru prufur
í febrúar,“ útskýrir Þorvaldur sem
er með ansi glæsilega ferilsskrá
þrátt fyrir ungan aldur. „Þetta eru
yfirleitt krakkar á mínum aldri sem
eru að sækja um þannig að ég er
bara nokkuð brattur,“ bætir leikar-
inn við. Hann segist hvergi banginn
við að fara út að læra leiklist en leik-
arar sem hafa lært úti í hinum stóra
heimi hafa oft átt erfitt uppdráttar
hér heima. „Hver er sinnar gæfu
smiður og ef þú leggur metnað í það
sem þú gerir þá er allt hægt,“ segir
hann.
Þorvaldur hefur verið á fullu í
söngleiknum Footloose þar sem
hann leikur á móti Höllu Vilhjálms-
dóttur en sýningin hefur gengið
fyrir fullu húsi og verður áfram á
sviðinu eitthvað fram eftir vetri.
„Þetta hefur gengið mjög vel og fólk
er mjög ánægt,“ sagði Þorvaldur
sem var ekki viss um hvort söng-
leikurinn yrði síðasta verkefnið
hans áður en hann héldi út. „Það er
eitt verkefni sem er í sjónmáli og
það gæti skýrst á næstu dögum en
það er hins vegar algjört forgangs-
verkefni hjá mér að sækja um skóla
úti.“ freyrgigja@frettabladid.is
ÞORVALDUR DAVÍÐ: UNDIRBÝR BROTTFÖR FRÁ ÍSLANDI
Með augastað á skólum í
New York og Los Angeles
ÞORVALDUR DAVÍÐ Er að skoða skóla í Bandaríkjunum og vonast til að fara út í
byrjun febrúar þegar prufur hefjast. FRÉTTABLAÐIÐ / HÖRÐUR
Símon Birgisson, listnemi og
blaðamaður, er manna kátastur
þessa dagana því tölvan hans er
fundin, en eins og Fréttablaðið
greindi frá fyrir nokkru var
gripnum að sögn Símonar stolið
í Listaháskólanum þar sem hann
er við nám. Reyndar er málið það
að tölvunni var hreinlega ekki
stolið því samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins fannst hún undir
stól í litlu hliðarherbergi og hafði
legið þar óhreyfð í nokkrar vikur.
Ekki er ljóst hvort skólinn
ætli að slaka á þeim
öryggisviðbúnaði,
sem settur var upp
eftir ránið, nú
þegar ljóst er að
menntastofnunin
virðist ansi öruggur
staður.
Oddný Sturludóttir er nú á fullu
við að endurreisa tímaritið Veru
og gengur starfið vel. Verkefnið
hefur staðið yfir í þónokkurn tíma
og hefur mestur krafturinn farið í
að laga fjármál blaðsins sem nú
virðast vera komin á réttan kjöl.
Oddný sjálf er þögul sem gröfin en
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því
að tveir fjársterkir aðilar hafi sýnt
útgáfu tímaritsins mikinn áhuga
og bíður Oddný bara
spennt eftir því hvor
býður betur. Oddný
ætlar sjálf að ritstýra
blaðinu í fyrstu en láta
svo aðra um að taka
við skútunni þegar
fram líða stundir.
Atom Egoyan fékk afhent verðlaun
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar
í Reykjavík fyrir framúrskarandi og
listræna sýn í kvikmyndagerð árið
2006 og afhenti forseti Íslands
honum verðlaunin á Bessastöðum.
Leikarinn Brendan Fraser, sem
staddur er hér á landi vegna taka
á kvikmyndinni Journey
3-D, var einnig meðal
viðstaddra þótt nafnið
hans hefði hvergi
verið á gestalistanum
og reyndist nærvera
hans því óvænt
ánægja fyrir gesti
Bessastaða. - fgg
HAFFI Stílisti á
sýningunni og sá
til þess að allir
litu sem best út á
sýningunni.
BIRGITTA HAUKDAL Sýndi
flotta takta á sviðinu.
WILLUM Sýndi að hann kann að
láta til sín taka annars staðar en
á fótboltavellinum.
JÓHANNES Í BÓNUS Var klæddur
upp í fatnað frá Debenhams og
tók snúning á tískupallinum.
... fær Hörður Torfason sem
lagður er af stað í síðustu
hringferð sína um landið með
tónleika, en þær hefur hann
stundað síðan 1970.
Meðlimir bresku strákahljóm-
sveitarinnar Take That eru stadd-
ir á Íslandi um þessar mundir við
upptökur á myndbandi. Þessar
þekktu poppstjörnur, sem ærðu
ungmeyjar um allan heim á tíunda
áratug síðustu aldar, eru að reyna
að endurvekja feril sinn og mynd-
bandið er liður í því. Sveitin send-
ir frá sér nýja hljómplötu á næst-
unni og myndbandið verður við
fyrsta smáskífulag plötunnar.
Þekktasti meðlimur Take That er
vitaskuld Robbie Williams en hann
féllst ekki á að taka þátt í endur-
komunni með félögum sínum.
Take That-mennirnir sem staddir
eru á Íslandi nú eru því þeir Jason
Orange, Mark Owen, Howard Don-
ald og Gary Barlow.
Tökur á myndbandinu fara
fram við Reykjanesvita, en það
hefur lengi verið vinsæll tökustað-
ur fyrir tónlistarmyndbönd. Það
er kvikmyndafyrirtækið True
North sem hefur umsjón með tök-
unum og dvöl Take That-pilta hér
á landi og mikil leynd hvílir yfir
upptökunum. Ekki fengust upp-
lýsingar um hversu lengi liðs-
menn Take That dveljast á
landinu. Heimildir Frétta-
blaðsins herma þó að Barlow
og félagar leggi ríka áherslu á
að upptökurnar klárist fyrir
helgi, enda vilji þeir gjarnan
kynna sér næturlífið hér um helg-
ina. - hdm
Take That tekur upp myndband á Íslandi
TAKE THAT Strákasveitin vinsæla sést hér árið 1995, á hátindi
ferilsins. Sveitin tekur nú upp myndband á Íslandi.
ROBBIE WILLIAMS Neitaði
að taka þátt í endurkomu
Take That og fékk því
ekki að endurnýja
kynni sín af Íslandi.
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
B
la
u
tu
r
st
ú
tu
r
o
g
m
a
ll
a
k
ú
tu
r
��������������
�������
����������
����
�����
����
�����������
������������
������
����������
��������������
��������������
Líka fyrir þig;
lífið, fréttirnar
og fjörið á ensku
Líka fyrir þig;
lífið, fréttirnar
og fjörið á ensku