Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 7. október 2006 3
SAMKVÆMT ÚTEIKNINGUM FÍB HAFA ÁLÖGUR OLÍAFÉLAGANNA AUKIST ÞRÁTT
FYRIR LÆRRA VERÐ.
Í síðastliðnum septembermánuði var álagning olíufélaganna að meðaltali 32,06
krónur á lítrann af bensíni, en meðaltal síðustu þriggja mánaða er 28,02 krónur.
Forsendur þessara talna eru markaðsverð á eldsneyti á Rotterdam-markaði
samkvæmt Financial Times. Við það bætist flutningskostnaður og álögur íslenska
ríkisins, uppreiknað í samræmi við vísitölu neysluverðs í samsvarandi mánuði.
Þetta kann að koma mörgum á óvart, sérstaklega ef litið er til skrifa Hermanns
Guðmundssonar, forstjóra Esso, á heimasíðu fyrirtækisins 14. september síðast-
liðinn:
„Í ljósi góðrar afkomu félagsins og til að styðja við bakið á tugþúsundum við-
skiptavina um land allt hafa stjórnendur félagsins ákveðið að stíga stórt skref í
lækkun á bensínverði. Þetta skref er stigið til að þakka viðskiptavinum okkar hina
miklu tryggð sem þeir
hafa sýnt okkur í gegn-
um þetta erfiða tímabil
óróa á mörkuðum.“
Ef útreikningar FÍB
reynast réttir er þessi
lækkun einungis til
komin vegna heims-
markaðsverðs en ekki
vegna samfélagslegrar
vitundar olífélaganna.
- tg
Álagning eykst
Álögur olíufélaganna
hafa aukist samkvæmt
útreikningum FÍB.
Óli H. Þórðarson lætur brátt
af störfum sem formaður
Umferðarráðs eftir 28 ára starf.
„Það má segja að þetta sé í takt við
hættutímann núna því það virðast
svo margir vera að segja af sér,
þingmenn og fleiri,“ segir Óli og
hlær. „Ætli það sé ekki hluti af því
að menn átta sig á að það sé líf
eftir vinnu.“
Óli tók við framkvæmdastjóra-
stöðu Umferðarráðs 1. júní árið
1978, sama ár og tíu ára afmæli
hægri umferðar var fagnað. Allar
götur síðan hefur hann verið í
farabroddi bættrar umferðar-
menningar og afrekað margt á
ferlinum. Á dögunum var hann
verðlaunaður af NTR (Norræna
umferðaröryggisráðinu) fyrir
framlag sitt til umferðaröryggis-
mála en hann er sá sem lengst
hefur setið allra í sinni stöðu á
Norðurlöndum. „Ég vil ekki gera
mikið úr viðurkenningunni en
þetta var mjög ánægjulegt, ég get
ekki neitað því. Það er alltaf gott
að fá klapp á bakið og sérstaklega
þegar það er frá kollegunum.“
Það er ánægjulegt fyrir Óla að
loks sjái fyrir endann á einu af
helstu áhuga- og baráttumálum
hans. Í Reykjanesbæ er uppbygg-
ing fjölnota kappakstursbrautar í
bígerð en sú braut mun án efa hafa
góð áhrif á öryggismál á landinu
öllu. Þar geta ökumenn sem
brenna í skinninu að komast eins
hratt og tæknin leyfir fengið útrás
fyrir hraðaþörfina og keyrt róleg-
ir heim á löglegum hraða. Þar að
auki stefna yfirvöld að byggingu
sérstakar æfingabrautar á Akra-
nesi og fyrir þingi liggja tillögur
þess efnis að allir ökunemar þurfi
að taka ökutíma á slíkum braut-
um. „Þetta er búið að vera sérstakt
áhugamál hjá mér í 25 ár. 1989 leit
út fyrir að slík braut myndi rísa í
Kapelluhrauni en samstaða náðist
ekki þá.
Ég verð að viðurkenna að mér
finnst það mjög miður að ég hafi
ekki séð slíka braut rísa í minni
stjórnartíð en nú bind ég miklar
vonir við að þessi gamli draumur
minn sé að rætast.“
Framhaldið er óákveðið hjá Óla
en hann segist ekki vera að fara á
eftirlaun. „Ég er ekki að fara að
setjast í þennan svokallaða helga
stein, sem enginn veit hvar er. Ég
er þannig gerður að ég sé mig ekki
mæla sófann heima. Frekar vildi
ég þá mæla göturnar í eiginlegri
merkingu þess orðs.“
tryggvi@frettabladid.is
Hættutími í þjóðfélaginu
Óli er stoltur af þætti sínum í innleiðingu laga um bílbeltanotkun og bann við farsímanotkun undir stýri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í KJÖLFAR SLYSS RICHARD HAM-
MOND VAR ÓVÍST UM ÁFRAM-
HALD TOP GEAR ÞÁTTANNA.
NÚ HEFUR VERIÐ ÁKVEÐIÐ AÐ
HALDA UPPTÖKUM ÁFRAM.
Richard Hammond brást ókvæða
við þeim sögusögnum að hætta
ætti gerð þáttanna. Hann vildi
að slysið yrði sýnt og bauðst til
að kynna atriðið úr sjúkrarúmi
sínu. Í ljósi undraverðs bata
Richard og gríðarlegra vinsælda
þáttanna hefur yfirstjórn BBC
tilkynnt að framleiðslu þáttanna
verður haldið áfram frá því sem
fyrr var horfið.
Eftir tilkynninguna var fyrsta verk Jeremy Clarkson, aðalþáttastjórnanda Top Gear,
að fara út með tökuliði að prufukeyra nýjan Lotus-sportbíl. Það er því ljóst að Top
Gear-menn eru komnir aftur á beinu brautina þrátt fyrir bilaðan gírkassa. Svo er
spurningin hvort þeir komist aftur í fimmta gírinn. - tg
Top Gear áfram á skjánum
Richard Hammond heldur ótrauður áfram
þáttagerð.