Fréttablaðið - 07.10.2006, Page 90
7. október 2006 LAUGARDAGUR50
menning@frettabladid.is
! Kl. 15.00Hljómsveitin Skakkamanage
heldur tónleika í Bókabúð Máls
og menningar við Laugaveg og
kynnir nýútkominn disk sinn
Lab of Love.
> Ekki missa af...
Norrænum músíkdögum sem
nú standa yfir í Reykjavík. Nor-
rænar og kanadískar nýsmíðar
í flutningi margra færustu hljóð-
færaleikara álfunnar.
Airwaves-tónlistarhátíðinni
síðar í mánuðinum. Ekki seinna
vænna að festa sér miða og
merkja við í dagskrána.
myndlistarsýningu Þórdísar
Aðalsteinsdóttur á Kjarvals-
stöðum. Húmor og harka
mætast í háskafullum verkum
en yfirbragðið er samt merkilega
krúttlegt.
Sýningin „Málverkið
eftir 1980“ verður opnuð í
Listasafni Íslands í dag en
þar er þróun málverksins
á Íslandi rakin frá 1980
fram til dagsins í dag.
Sýningarstjórarnir Laufey
Helgadóttir og dr. Halldór
Björn Runólfsson ræða
um sprengikraft og gerjun
„nýja málverksins“, skipa-
lakk og hversdagsvæðingu.
Tímaramminn spannar rúm 25 ár
og Halldór Björn útskýrir að það
hafi gefið auga leið að marka
hann af við sprenginguna sem
kennd er við „nýja málverkið“
sem ruddi sér til rúms í byrjun
níunda áratugarins. Stefnan kom
upp sem andsvar við hugmynda-
listinni sem hafði verið móðins
um langa hríð með tilheyrandi
áherslu á texta, ljósmyndir en
minna á handverkið sjálft. „Þessi
sprenging varð ekki aðeins hér
heldur einnig í Bandaríkjunum
og Evrópu en það kemur fram
mjög sterk kynslóð hér í kringum
1980,“ útskýrir Halldór Björn og
vísar til tveggja stórra samsýn-
inga frá þessum tíma, Gullströnd-
in andar í JL húsinu og UM á
Kjarvalsstöðum.
Fjórir salir
Á sýningunni verða á annað
hundrað verk eftir 56 listamenn
en henni er skipt í fjóra sali eftir
tímabilum. Í einum eru til dæmis
elstu verkin – sum hver fyrstu
verk þeirra listamanna sem nú
hafa fest sig í sessi og teljast
meðal virtustu listamanna lands-
ins. Þau eru þó langt því frá
bernskubrek því verkin bera aug-
ljósan vott um kraft og mögu-
leika listamannanna sem gaman
er að bera saman við þróun sem
rekja má í hinum sölunum þrem-
ur, allt til verka yngstu kynslóð-
arinnar sem unnin eru á þessu
ári.
Hversdagsvæðingin
Halldór Björn útskýrir að þróun
málverksins hafi verið samofin
tíðarandabreytingum og komu
pönksins. Áhrifin komu víða að
því listafólkið lærði í ólíkum
löndum og því varð úr ólgandi
deigla þegar ólíkir straumar utan
úr heimi mættust hér á klakan-
um.
„Það voru mikil tengsl milli tón-
listar og myndlistar á þessum
tíma, til dæmis tóku skáld eins og
Didda, Þór Eldon og Sjón þátt í
sýningunni Gullströndin andar,“
áréttar Halldór Björn. Mörkin
milli listgreina voru tekin að
dofna og þar með einangrun mið-
ilsins en með „nýja málverkinu“
opnuðust ótal möguleikar fyrir
áræðna listamenn.
„Þetta var í fyrsta sinn sem
málverkið var rifið úr þessum
lokaða vinnustofuhjúpi þar sem
hver og einn málari situr einn og
bollaleggur um viðfangsefni sitt.
Listin varð meira hópefli og nán-
ari tengsl milli fólks,“ segir Hall-
dór Björn og áréttar að málverk-
ið hafi í raun verið rifið úr
rammanum og hversdagsvætt.
„Nýja málverkið var unnið hrátt
og málað gróft, menn notuðu ódýr
hráefni, máluðu á lök til dæmis
með traktora- og skipalakki,“
segir Laufey. „Mörg þessara
elstu verka eru mjög tilvistarleg,
sumpart mjög dökk enda voru
menn að fást við sitt nánasta
umhverfi og einkalíf,“ segir Hall-
dór Björn og segir menn hafa
opnað sig alveg ofan í kviku sem
var algjör nýjung á þessum tíma.
Blendnar viðtökur
Laufey segir að hún og Halldór
Björn hafi upplifað þessa nýliðnu
umrótartíma á ólíkan hátt, hún
bjó í París á þessum árum en
hann hér í Reykjavík þar sem
hann fylgdist vel með þróuninni
og var einn aðal myndlistargagn-
rýnandi þessa tíma. „Ég fylgdist
með í gegnum linsu fjölmiðlanna
en upplifði líka nýja málverkið í
Frakklandi,“ segir hún.
Þessi nýja stefna fékk mis-
jafnar undirtekir meðal eldri
kynslóðanna og Halldór segir að
það hafi verið hald manna að nýj-
ustu afurðir listamannanna væru
afsprengi markaðsvæðingar gall-
eríanna sem vildu láta framleiða
söluvöru en síðar fjaraði undan
þeirri bábilju og með tíð og tíma
tóku menn nýja málverkið í sátt.
Forvinna og skandall
Verkin koma víða að, mörg frá
listamönnunum sjálfum og úr
einkaeigu og Laufey útskýrir að
fæst þeirra hafi sést oft áður. Þau
Laufey og Halldór Björn þurftu
að vinna mikla forvinnu því heim-
ildir um þennan tíma í listasög-
unni er einvörðugu að finna í
blaðaskrifum og sýningarskrám.
Ennfremur hafi mikið af verkum
frá þessum tíma glatast eða verið
verið eyðilögð. Sýningarstjórarn-
ir heimsóttu fjölda listamanna og
segja að sumir þeirra hafi verið
tregir til að láta elstu verk sín af
hendi. „Þeir héldu hreinlega sumir
að þetta væri bara gamalt drasl
en þegar verkin eru komin í sam-
hengi sjá menn að svo er ekki,“
segir Halldór Björn.
Hann bætir því við í véfréttar-
stíl að í farvatninu sé að skrásetja
og gefa út íslenska listasögu frá
1960 en rit um íslenska listasögu
hefur ekki komið út síðan Björn
Th. Björnsson gaf út tvær bækur
um efnið fyrir áratugum síðan.
„Það er náttúrulega skandall að
sjálf bókaþjóðin hafi ekki sinnt
þessu betur,“ segir Halldór Björn
en er vongóður í vissu sinni um að
bragarbót verði brátt gerð þar á.
Í tengslum við sýninguna verð-
ur skipulögð fjölbreytt fræðslu-
dagskrá sem felur til dæmis í sér
sérfræðileiðsögn um sýninguna
og málþing um stöðu og áhrif
„nýja málverksins“ sem haldið
verður um næstu helgi. Nánari
upplýsingar um dagskrána sem
og opnunartíma safnins er að
finna á heimasíðunni www.lista-
safn.is. kristrun@frettabladid.is
Málverkið rifið úr rammanum
LAUFEY HELGADÓTTIR OG HALLDÓR BJÖRN RUNÓLFSSON SÝNINGASTJÓRAR VIÐ VERK ÞÓRS VIGÚSSONAR
Íslensk deigla úr alþjóðlegum straumum á sýningu Listasafns Íslands við Fríkirkjuveg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VERK KJARTANS ÓLASONAR Rauðir menn frá árinu 1982.
MEÐAL ÞÁTTTAKENDA:
Jón Axel Björnsson, Björg Örvar,
Tolli, Kjartan Ólason, Gretar Reyn-
isson, Hallgrímur Helgason, Jón
Óskar, Daði Guðbjörnsson, Bryn-
hildur Þorgeirsdóttir, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Magnús Kjartansson,
Hulda Hákon og Steingrímur
Eyfjörð.
Efnt verður til málþings í tengsl-
um við sýningu Listasafns Reykja-
víkur, Pakkhús postulanna, í Hafn-
arhúsinu við Tryggvagötu. Ellefu
listamenn sem fæddir eru eftir
1968 taka þátt í samsýningu í hús-
inu og sýna innsetningar og gjörn-
inga.
Stjórnandi umræðna er Oddný
Eir Ævarsdóttir ritstjóri sýning-
arskrár, en þátttakendur í umræð-
unni eru meðal annarra Ragna
Sigurðardóttir, rithöfundur og
gagnrýnandi, Valur Brynjar Ant-
onsson, skáld og heimspekingur,
Guðmundur Oddur Magnússon,
prófessor við LHÍ, Daníel Karl
Björnsson og Huginn Þór Arason
sýningarstjórar sýningarinnar,
listamenn sýningarinnar auk Haf-
þórs Yngvasonar, safnstjóra Lista-
safns Reykjavíkur.
Gestir eru hvattir til að taka
þátt í samræðum um sýninguna,
sýningarskrána, undirbúnings-
ferlið og gagnrýna umræðu sem
hluta af ferli sýninga.
Málþingið hefst kl. 13 en kl. 16
fremur myndlistarmaðurinn
Magnús Árnason gjörning.
Málþing um
postulana
RÆTT UM PAKKHÚS POSTULANNA Í
HAFNARHÚSINU Umgjörð og anddyri
sýningarinnar var hannað af Brynhildi Páls-
dóttir og Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttir.
Tónleikaröð kennara við Tónlist-
arskóla Kópavogs í Salnum sem
kennd er við TKTK hefst á morg-
un með tónleikum Guðrúnar
Óskarsdóttur semballeikara,
Kristínar Mjallar Jakobsdóttur
fagottleikara og Eydísar Franz-
dóttur óbóleikara.
Yfirskrift tónleikanna vísar
til hinna töfrandi tóna sembals,
fagotts og óbós sem löngum
hafa verið hálfgerð utangarðs-
hljóðfæri í íslenskum tónlistar-
skólum. Tónlistarskóli Kópavogs
eignaðist nýverið glæsilegan
sembal og miðast efnisskrá þess-
ara fyrstu tónleika raðarinnar við
að kynna möguleika sembalsins
í einleik og samleik.
Á efnisskránni er svíta fyrir semb-
al eftir Louis Couperin, frum-
flutningur á sónötu fyrir
fagott og sembal eftir Jónas
Tómasson, svíta fyrir sembal
eftir Dan Locklair og sónata
fyrir óbó og fylgirödd eftir
Thomas Vincent.
Góður rómur hefur verið
gerður að tónleikaröð þess-
ari sem hleypt var af stokk-
unum árið 2000. Með þeim
er kennurum búinn ákjósan-
legur vettvangur til að vinna
að frumsköpun þeirri, sem
er mikilvægur þáttur í þjálfun
hvers tónlistarmanns og um
leið í starfi kennarans. Tón-
leikarnir eru klukkustundar
langir án hlés og hefjast kl.
13 á laugardag.
Töfratónar í Salnum
Spennusagan Ríki
gullna drekans er
önnur unglinga-
spennusaga
skáldkonunnar
Isabel Allende
en í henni segir
af prinsinum
Dil Bahadur
sem brátt
tekur við
hinu forboðna ríki sem
kennt er við drekann. Ferðalang-
arnir Alexander, Nadía og Kate
Cold eru á ferð á sömu slóðum en
þau hafa áhuga á helgu tákni ríkis-
ins, ómetanlegum dreka alsettum
gulli og gimsteinum sem er þó vel
gætt. Fyrr en varir fer ævintýra-
leg atburðarás af stað sem ferða-
langarnir dragast inn í með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum. Þýðandi
er Kolbrún Sveinsdóttir en Mál og
menning gefur bókina út.
Glóandi gull
ÓBÓ, FAGOTT OG SEMBALL
Hljóðfæri sem stundum lenda
utangarðs í tónlistarskólum fá notið
sín á tónleikum TKTK.