Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 31
Nýtt fyrirtæki | Stofnað hefur
verið á Akureyri fyrirtækið Saga
fjárfestingar hf. Meðal verkefna
verður stöðutaka á verðbréfa-
mörkuðum, samrunar og yfirtök-
ur, fjárfestingalán og útlán auk
meðfjármögnunar.
Nær yfirtöku | Stór hluti eigenda
House of Fraser hefur lagt bless-
un sína yfir tillögur stjórnar um
að samþykkja yfirtökutilboð frá
Highland Acquisitions en að því
standa meðal annars Baugur og
FL Group.
Verð lækkar | Og fjarskipti hafa
gert umfangsmikinn samning við
Vodafone Group um nánara sam-
starf og samnýtingu vörumerkis
þess síðarnefnda. Verð á símtölum
erlendis ætti að lækka við samn-
inginn.
Verður stærst | Marel hf. gæti
orðið stærsta fyrirtæki sinnar teg-
undar í heiminum ef til samruna
þess og matvælavinnslukerfa-
hluta Stork-samstæðunnar kæmi,
en Marel á stóran hlut í henni.
Bæta við | Fjárfestingarfélagið
Grettir hefur aukið við hlut sínn
í Avion Group og fer nú með
8,25 prósenta hlutafjár. Eigendur
Grettis eru Sund, Landsbankinn
og Ópera Fjárfestingar sem eru í
eigu Björgólfsfeðga.
Prófun tefst | DeCode Genetics
hefur gert hlé á þriðja fasa próf-
ana á tilraunalyfinu DG031 meðal
bandarískra hjartasjúklinga.
Hléið kemur til vegna þess að
tíminn sem tekur lyfið að losna úr
töflunum hefur lengst.
Nýir eigendur | FL Group mun
vera tilbúið til að selja allan hlut
sinn í Icelandair og fyrrverandi
eigendur Vátryggingafélags
Íslands munu mynda nýja kjöl-
festu í félaginu og eiga ríflega
þriðjungshlut.
Sjálfsmyndarsköpun
Íslendinga
Eru ekki allir
alltaf að?
14
Afkomuspár bankanna
Nást hundrað
milljarðar í hús?
8
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 11. október 2006 – 39. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Hagspár bankanna
Varasamt að
fagna of snemma
10-11
Kaupþingi er spáð 35 milljarða
króna hagnaði á þriðja ársfjórð-
ungi samkvæmt meðaltalsspá
greiningardeilda Glitnis og Lands-
bankans. Verði þetta niðurstaðan
yrði ekki einungis um hagnaðar-
met á einum ársfjórðungi að ræða
heldur myndi einnig Íslandsmet
fyrir hagnað á einu ári falla því
heildarhagnaður Kaupþings næmi
þá 67 milljörðum króna á fyrstu
níu mánuðum ársins.
Ársfjórðungsmetið er í eigu
gamla Burðaráss, sett á öðrum
árshluta í fyrra, eftir að félagið
seldi Eimskip til Avion Group með
miklum söluhagnaði. Exista á svo
Íslandsmetið í hagnaði á einu ári
en félagið, sem þá var óskráð,
skilaði rúmlega fimmtíu milljarða
króna hagnaði í fyrra.
Þennan mikla væntanlega
hagnað er að stórum hluta hægt
að þakka 23,8 milljarða hagnaði
Kaupþings af skráningu og sölu
hlutabréfa í Existu. Bankinn seldi
tíu prósent hlutafjár í Existu til
fagfjárfesta og almennra fjárfesta
auk þess sem tíu prósenta hlutur
var færður til markaðsvirðis. Stór
hluti af bréfum bankans í Existu
verður greiddur út sem aukaarður
til hluthafa á næstunni.
Til samanburðar nam allur
hagnaður fjögurra fjármálafyr-
irtækja, Glitnis, Landsbankans,
Kaupþings og Straums-Burðar-
áss, 31 milljarði króna á öðrum
ársfjórðungi. Sömu fyrirtæki
högnuðust um 61 milljarð á fyrsta
árshluta og ef Existu er bætt við
þennan hóp verður heildarhagn-
aður þeirra yfir 76 milljarðar á
þriðja ársfjórðungi.
Þótt Kaupþing verði líklega
í sérflokki munu allmörg félög
sýna góðar afkomutölur á næstu
vikum. Existu er spáð um tut-
tugu milljarða hagnaði og Glitnir,
Landsbankinn, Straumur og FL
Group koma til með að skila yfir
fimm milljörðum króna fyrir
nýliðinn fjórðung.
- eþa / Sjá bls. 8
Hagnaðarmet í uppsiglingu
Kaupþing skilar yfir þrjátíu milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi.
Jafnframt er því spáð að Íslandsmet í hagnaði á einu ári falli.
Greiningardeild Glitnis segir
ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
breytingar á virðisaukaskatti
og vörugjaldi á matvælum, sem
kynntar voru á mánudag en taka
gildi í mars á næsta ári, draga úr
aðhaldi í ríkisrekstrinum á þeim
tíma þegar aðhalds er þörf.
Þenslueinkenna er sagt gæta
víða í þjóðarbúskapnum, þau sjá-
ist meðal annars í mikilli verð-
bólgu og viðskiptahalla. Þótt
hagspár gefi til kynna mjúka
lendingu hagkerfisins á næsta
ári þá byggi þær á aðhaldssamri
hagstjórn á tímabilinu.
Sérfræðingar efnahagsmála
vara við því að sigri sé fagn-
að of snemma í baráttunni við
þensluna og telja aðhalds enn
vera þörf í ríkisrekstrinum.
- jab / Sjá einnig síðu 10
Minna aðhald í
ríkisrekstrinum
Landsbankinn kynnti í gær nýja
innlánsvöru í Bretlandi undir
nafninu Icesave. Um er að ræða
sérsniðna sparnaðarleið ætlaða
breskum almenningi sem ein-
göngu er aðgengileg á netinu.
Lágmarksinnistæða á Icesave-
reikningi verður 250 pund og
hámarksinnistæða
ein milljón punda.
Sigurjón Þ.
Árnason, bankastjóri
Landsbankans, segir
þetta lið í því mark-
miði bankans að
breyta samsetningu
heildarfjármögnun-
ar bankans og auka
vægi innlána þar.
„Það sem er sérstakt
við Icesave er að við lofum föst-
um lágmarksviðmiðunum allt til
ársins 2009 miðað við ákveðna
grunnvexti sem breski seðlabank-
inn ákvarðar og verðum þar að
auki í hærri enda þeirra vaxta
sem er verið að bjóða hér.“
Landsbankinn hefur verið á
breska innlánamarkaðnum í þrjú
ár og heildarinnlán þar nema nú
rúmum 200 milljörðum króna,
bæði frá einstaklingum og fyrir-
tækjum. - hhs
SIGURJÓN Þ.
ÁRNASON,
BANKA-
STJÓRI.
Sækja sér
bresk innlán
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur tekist að
lækka skuldir Iceland-keðjunnar um 120 milljónir
punda eða um rúma fimmtán milljarða króna. Það
þýðir að sjóðsflæði félagsins hefur styrkst verulega.
Að mati sérfræðinga gefur slíkt, miðað við þann gang
sem er í félaginu, færi á að endurfjármagna félagið í
annað skipti og greiða út arð til hluthafa eða fjárfest
frekar í starfseminni fyrir upphæð sem gæti numið
um það bil 250 milljónum punda eða þrjátíu milljörð-
um króna.
Möguleiki er á slíkri aðgerð snemma á næsta ári ef
allt fer sem horfir.
Þannig gætu stærstu hluthafarnir, Fons, sem er
í eigu stjórnarformannsins Pálma Haraldssonar, og
Baugur Group, fengið um tíu milljarða til baka ef
greiddur yrði út fyrrnefndur arður. Hlutur hvors
nemur 30 prósentum en meðal annarra hluthafa er
Karl Wernersson í Milestone og stjórnendateymi
Iceland undir forystu forstjórans Malcolms Walker.
Með þessu fengju eigendur Iceland nánast upphaf-
legt kaupverð allrar Big Food Group-keðjunnar, sem
var yfirtekin í skuldsettri yfirtöku síðla árs 2004, til
baka og margfalt kaupverð Iceland til baka. Fyrr á
árinu var Iceland-keðjan endurfjármögnuð í fyrra
skiptið. Þá greiddu fjárfestarnir sér til baka upphaf-
lega fjárfestingu ásamt vöxtum, tíu milljarða króna
miðað við núverandi gengi pundsins. Heildarumfang
þeirrar fjármögnunar nam tuttugu milljörðum króna.
Algengt er að slíkur árangur náist á tveimur til þrem-
ur árum.
Iceland og Booker mynduðu að stærstum hluta
verslanakeðjuna Big Food Group og var Iceland sett
inn í sérfélag. Kaupverð hlutafjár BFG nam 326 millj-
ónum punda.
Grundvöllur þessara hugmynda er sú gjörbreyting
sem hefur orðið á rekstri Iceland á síðustu mánuðum.
Forstjórinn Malcolm Walker á drjúgan þátt í endur-
reisn Iceland en hann sneri miklum hallarekstri áranna
2001-2004 í hagnað. Walker taldi að fyrri stjórnendur
hefðu misst sjónar á hvaðan félagið kom: Iceland ætti
að vera lágvöruverslanakeðja sem byði upp á frosin
matvæli á lægsta verði. Gripið var til mikilla hagræð-
ingaaðgerða til að stöðva taprekstur með því að loka
fjölda verslana, draga úr yfirbyggingu, fækka birgjum
og einblína á lágvöruverðsverslun.
Iceland gæti skilað
30 milljarða arði
Miðað við rekstrarbata gæti opnast leið til 30 milljarða fjár-
festingar eða arðgreiðslu til hluthafa. Skuldir hafa lækkað
um fimmtán milljarða á skömmum tíma með betri rekstri.