Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 78
Hljómsveitin Mates of State
hefur vakið mikla athygli
tónlistarmiðla á þessu
ári fyrir plötuna Bring it
Back. Sveitin er væntanleg
á Airwaves og af því til-
efni ræddi Steinþór Helgi
Arnsteinsson við annan
helming sveitarinnar, Jason
Hammel.
Jason var að vonum ákaflega
spenntur fyrir því að koma til
Íslands. „Ekki spurning, Reykja-
vík er ein af þessum borgum
sem þú vonast alltaf eftir að
heimsækja vegna þess að þú
heyrir svo góða hluti um hana.“
Sjaldan hjónaerjur
Jason skipar sveitina ásamt eig-
inkonu sinni Kori Gardner en
hvernig finnst Jason að vera í
hljómsveit með eiginkonunni?
„Það er frábært. Að vinna með
sínum besta vini er frekar ótrú-
legt og samskiptin eru afar opin-
ská. Auðvitað koma samt tímar
þar sem okkur lendir saman og
þá færist það yfir í einkalífið en
þessi skörun er óhjákvæmileg,“
svarar Jason en aðspurður segir
hann að það fari yfirleitt eftir
því hvort sé þrjóskara eða í pirr-
aðra skapi hvernig deilumál
endi. Jason og Kori eiga auk
þess litla stelpu sem ferðast með
þeim hvert sem þau fara. „Hún
virðist vera nokkuð klár krakki
en þetta veldur okkur stöðugum
áhyggjum samt sem áður.“
Oft erfitt að tromma og syngja
í einu
Árið 2000 kom út fyrsta breið-
skífa Mates of State, My Solo
Project, en í ár kom út fjórða
breiðskífa sveitarinnar, Bring it
Back, sem er án efa sú plata
sveitarinnar sem hlotið hefur
mesta hylli gagnrýnenda. „Við
ákváðum að kasta öllum formúl-
um út um gluggann og fórum í
staðin að búa til góð lög. Við
unnum mjög hart að þessari
plötu en við teljum að við getum
gert betur.“
Jason spilar á trommur auk
þess að syngja og segir hann að í
fyrstu hafi verið erfitt að sam-
ræma þessa tvo þætti. „Við
þurftum að æfa mikið en núna er
þetta aðeins einfaldara.“ Að
lokum lofar Jason miklu stuði á
Airwaves enda hefur Mates of
State sjaldan verið þekkt fyrir
annað.
Frábært að vera í hjónadúett
HJÓNARKORN Jason Hammel og Kori Gardner skipa sveitina Mates of State sem
spilar einstaklega skemmtilegt og kröftug hljóðgervlapopp.
Nú eru ofurfyrirsætan Kate
Moss og rokkarinn Pete Doherty
búin að ákveða brúðkaupsdag-
inn. Brúðkaupið mun fara fram á
partíeyjunni Ibiza 16. janúar á
næsta ári, en þann dag verður
Moss 33 ára. Frá þessu greinir
breska götublaðið Daily Star
samkvæmt samtali við frænda
Dohertys sem segir rokkarann
aldrei hafa verið jafn hamingju-
saman og ánægðan með lífið.
Brúðkaupið átti að fara fram
á þessu ári en þurfti að frestast
vegna meðferðar Petes en hann
er búin að lofa Kate að hann
muni ekki nota heróín aftur.
Besta vinkona Kate og fyrr-
verandi eiginkona Jude Law,
Sadie Frost, verður brúðarmær
ásamt dóttur Moss Lila Grace.
Brúðkaup í janúar
MOSS OG DOHERTY Ætla að
gifta sig í janúar á partíeyj-
unni Ibiza.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
The Whitest Boy Alive er ein af
þeim sveitum sem koma fram á
Iceland Airwaves-hátíðinni í ár.
Hún er skipuð Norðmanninum
Erlend Øye sem er þekktastur
fyrir að vera annar meðlimur
dúósins Kings of Convenience og
þremur Þjóðverjum, en The Whit-
est Boy Alive var stofnuð í Berlín
þar sem Erlend hefur búið að und-
anförnu. Dreams er fyrsta plata
sveitarinnar.
The Whitest Boy Alive var
stofnuð sem danstónlistarsveit, en
þróaðist út í hljómsveit sem notast
aðeins við hefðbundin hljóðfæri.
Hljóðfæraskipanin er gítar, bassi,
trommur og hljómborð, en Erlend
syngur auk þess sem hann spilar á
gítarinn.
Það fyrsta sem kom upp í hug-
ann þegar ég setti plötuna í spilar-
ann og upphafslagið, hið frábæra
Burning, fór að hljóma var New
Order. Það er eitthvað við þetta
lag sem minnir mig mikið á New
Order eins og hún hljómaði
snemma á ferlinum. Seventeen
Seconds með The Cure kemur líka
upp í hugann þegar maður hlustar
á þessa plötu. Tónlistin á Dreams
er frekar einföld og næstum því
lágstemmd. Það er mikið um end-
urtekningar og takturinn er áber-
andi í hljóðblönduninni eins og í
danstónlist. Þó að lögin séu sung-
in, er söngurinn oft ekki nema
fáeinar hendingar sem heyrast af
og til í laginu. Í þessari tónlist er
grúvið greinilega mikilvægara en
melódían.
Dreams er fín plata. Þó að hún
sé kannski ekki byltingarkennd þá
hljómar þetta einfalda, afslappaða
og næstum naumhyggjulega sam-
bland af grúvi og rokktónlist mjög
ferskt og nærandi í dag. Það verð-
ur gaman að tékka á sveitinni á
Airwaves, en hún verður á Gaukn-
um fimmtudagskvöldið 19. október
næstkomandi. Trausti Júlíusson
Grúvið mikilvægara en melódían
THE WHITEST BOY ALIVE
DREAMS
Niðurstaða: Þessi lágstemmda og afslappaða
plata frá nýju hljómsveitinni hans Erlends
Øye hefur að geyma ferska blöndu af grúvi og
rokktónlist.
JACKASS GENGIÐ ER KOMIÐ AFTUR!
JOHNNY KNOXVILLE, STEVE-O OG BAM MARGERA
FRAMKVÆMA BRJÁLÆÐISLEG ÁHÆTTUATRIÐI.
MYNDIN FÓR BEINT Í #1 SÆTI Í USA.
FRUMSÝND 13. OKTÓBER.
VINNINGAR VERÐA AFHENDIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA
ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 99 KR/SKEYTIÐ.
SENDU SMS SKEYTIÐ JA JAF
Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ
GÆTIR UNNIÐ MIÐA FYRIR TVO.
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
9
HVERVINNUR!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TEXAS CHAINSAW MASSACRE kl. 8 og 10 B.I. 18 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 5.40, 8 og 10.20
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 6, 8 og 10
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 og 10.15
VOLVER kl. 5.50
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL. TAL kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
MONSTER HOUSE ENSKT TAL kl. 6, 8 og 10 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 5.30, 8 og 10.25
SÝND Í LÚXUS kl. 8 og 10.25
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 6, 8 og 10
CLERKS 2 kl. 10.15
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 4
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 8 og 10
CRANK kl. 6 og 10
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 8
2 vikur á toppnum í USA!
Topp5.is
M.M.J kvikmyndir.com
EMPIRE
EMPIRE
V.J.V. Topp5.is
DV
L.I.B. Topp5.is
VARÚÐ! ALLS EKKI
FYRIR VIÐKVÆMA
ÆÐISLEGA SPENNANDI ÆVINTÝRAMYND
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
L.I.B. Topp5.is
“Ein fyndnasta
gamanmynd ársins”
HJ - MBL
,,STÓRSKEMMTILEG HRYLLINGSMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA SEM KEMUR EKKI Í VEG FYRIR SVEFN
HJÁ SMÁFÓLKINU!"
F.G. FB