Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. október 2006 11
UMHVERFISMÁL Hitaveita Suður-
nesja (HS) og Ferðamálasamtök
svæðisins undirrituðu í gær
samning um verndun umhverfis
og náttúru á Reykjanesskaga auk
varðveislu og viðhalds á 22
fornum þjóðleiðum sem liggja
um skagann. Meðal þess sem
kemur fram í samningnum er að
mannvirki hitaveitunnar utan
þéttbýlis verði eins lítið áberandi
og mögulegt er. Harpa Sævars-
dóttir, talsmaður HS, segir
samninginn vera hluta af þeirri
viðleitni HS að vinna enn frekar í
umhverfismálum á svæðinu. - þsj
Hitaveita Suðurnesja:
Samningur um
verndun náttúru
HANDSALA SAMNING Ellert Eiríksson,
stjórnarformaður HS hf., og Kristján
Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka
Suðurnesja, í gær.
STJÓRNMÁL Hörður Guðbrandsson,
fyrrverandi forseti bæjarstjórnar
Grindavíkur, hefur ákveðið að
bjóða sig fram í
3.-4. sæti í
prófkjöri
Samfylkingar-
innar í Suður-
kjördæmi, en
prófkjörið fer
fram 4.
nóvember.
Hörður
hefur gegnt
mörgum
trúnaðarstörfum fyrir Samfylk-
inguna, nú síðast sem forseti
bæjarstjórnar Grindavíkur frá
1999-2006 utan eins árs. Þá var
hann í stjórn Samtaka sveitar-
félaga á Suðurnesjum og Sorp-
eyðingarstöð Suðurnesja frá
2002-2004. - ss
Prófkjör Samfylkingarinnar:
Býður sig fram
í 3.-4. sæti
HÖRÐUR
GUÐBRANDSSON
STJÓRNMÁL Nýverið samþykktu
sveitarstjórnarfulltrúar meirihluta
Framsóknarflokks og Samfylking-
ar að setja bæði Villinganesvirkj-
un og Skatastaðavirkjun inn í
aðalskipulag sveitarfélagsins. Dag-
inn eftir samþykktina lýsti Anna
Kristín Gunnarsdóttir alþingis-
maður, sem einnig skipar sæti á
framboðslista Samfylkingarinnar,
því yfir að hún væri alfarið á móti
öllum hugmyndum um virkjanir í
jökulsánum.
Stjórn VG í Skagafirði telur það
lýsa tvískinnungi að samþykkja
eitt á sveitarstjórnarfundi og koma
svo í fjölmiðla og segjast á móti
viðkomandi gjörningi. - hs
Stjórn VG í Skagafirði ályktar:
Tvískinnungur
frambjóðanda
STJÓRNMÁL Allir nítján frambjóðendurnir í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjör-
dæmi hafa skrifað undir
yfirlýsingu um að kaupa ekki
auglýsingar í prófkjörsbar-
áttunni. Kristján Guðmunds-
son, formaður kjördæmis-
ráðs Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi, segist
ekki vita til þess að þetta
hafi verið gert með þessum
hætti áður.
„Það er vissulega margt á
gráu svæði í svona löguðu en
við erum að miða við miðla á
borð við dagblöð, tímarit, sjónvarp, útvarp,
flettiskilti og fleira því um líkt.“
Kristján segir gríðarlegan kostnað við próf-
kjörsbaráttu kominn út í öfgar og segir að
sumir hugsi sig tvisvar um að fara í prófkjör
vegna þess. „Það voru auðvitað skiptar skoðan-
ir um þetta en engin hávær mótmæli.“
Frambjóðendur munu fá kost á því að kynna
sig og sín stefnumál í landsblaði Samfylkingar-
innar og kjördæmisblaði sem munu bæði koma
út í október. Einnig er öllum frjálst að gefa út
bæklinga og dreifibréf að sögn Kristjáns, sem
telur ekki ósennilegt að þetta sé það sem koma
skuli. „Það er ógerningur fyrir fólk að standa
persónulega bak við svona og því verður það
óbeint háð styrktaraðilum, sérstaklega fyrir-
tækjum.“ - sdg
MERKI SAMFYLKINGARINNAR SETT UPP Prófkjör
Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fer fram 4.
nóvember og sækjast 19 frambjóðendur eftir sæti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KRISTJÁN
GUÐMUNDSSON
Nýmæli í prófkjörsbaráttu Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi:
Óheimilt verður að kaupa auglýsingar
LÖGREGLUMÁL Lögregla þurfti að
hafa afskipti af tveimur ungum
piltum, 16 og 17 ára gömlum, í
fyrrinótt þegar deilur þeirra
vegna kvennamála urðu til þess
að annar piltanna greip exi og
hótaði hinum líkamsmeiðingum
með henni. Hann stóð ekki við
stóru orðin en lögreglan handtók
piltinn og lagði hald á vopnið.
Móðir piltsins sótti hann á
lögreglustöð eftir að honum var
runnin mesta reiðin og telst
málinu lokið. - þsj
Lögreglan í Reykjavík:
Piltur hótaði
öðrum með exi