Fréttablaðið - 11.10.2006, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 11.10.2006, Qupperneq 86
 11. október 2006 MIÐVIKUDAGUR42 HRÓSIÐ … 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Michelle og Yesterday. 2 1. mars 2007. 3 Forgarður helvítis. LÁRÉTT 2 örugglega 6 hlutafélag 8 haf 9 illæri 11 golf áhald 12 flækja 14 vera í vafa 16 í röð 17 yfirgaf 18 kúgun 20 þreyta 21 lipurð. LÓÐRÉTT 1 ofneysla 3 klaka 4 öryggisbelti 5 þrí 7 óvild 10 röð 13 kóf 15 tryggur 16 guðshús 19 ryk. LAUSN LÁRÉTT: 2 víst, 6 hf, 8 sær, 9 óár, 11 tí, 12 flóki, 14 efast, 16 hi, 17 fór, 18 oki, 20 lú, 21 fimi. LÓÐRÉTT: 1 óhóf, 3 ís, 4 sætisól, 5 trí, 7 fáleiki, 10 róf, 13 kaf, 15 trúr, 16 hof, 19 im. „Ég er á leiðinni, er staddur á Kúbu núna en flýg síðan til Argentínu,“ segir Hrafn Gunnlaugsson, sem verður heiðursgestur kvik- myndahátíðarinnar í Mar Del Plata í Argentínu. Hátíðin sýnir fimm kvikmyndir hans á svokallaðri yfirlitssýningu eða retrospective en þetta eru Hrafninn flýgur, Í skugga hrafnsins, Hvíti vík- ingurinn, Myrkrahöfð- inginn og Hin helgu vé. Hrafn hefur verið á miklu ferðalagi, fór fyrst til Panama og þaðan til Kúbu, flýgur síðan til höfuðborgar Argentínu en þaðan liggur leiðin til Mar Del Plata. „Mér þykir voðalega vænt um að einhverjir í Suður- Ameríku skuli vilja sýna myndirnar mínar, það gleður mitt gamla hjarta,“ bætir leikstjórinn við. Hrafn verður í Argent- ínu í tólf daga þar sem hann kynnir myndirn- ar og ræðir við áhorfendur um þær en leikstjórinn sagðist ætla að ræða við þá á spænsku enda nýbú- inn að ljúka námi í tungumálinu við Háskólann í Havana. Hrafninn flýgur hefur verið talsett á spænsku og víkingamyndir Hrafns hafa notið töluverðra vinsælda í heimsálfunni, þykja exótískar og víkingarnir framandi og spenn- andi persónur. „Mér finnst Hrafn- inn flýgur eiginlega betri á spænsku en íslensku, talsetningin er alveg meistaralega gerð,“ segir Hrafn og hlær, hermir í kjölfarið eftir persónu Flosa Ólafssonar, Eiríki, sem er víst mun djúpradd- aðri í spænsku útgáfunni en í þeirri íslensku. Hrafn segist ekki vera mikið fyrir að fara á kvik- myndahátíðir, leiðist að leika leik- stjóra. „En þegar allt er borgað fyrir mig og komið fram við mig eins og höfðingja get ég ekki sagt nei við slíku boði,“ segir Hrafn. - fgg Hrafninn flýgur til Suður-Ameríku HRAFN GUNN- LAUGSSON Var á Kúbu en heldur áleiðis til Argent- ínu þar sem hann verður heiðursgestur á kvikmyndahátíði í Mar Del Plata. ÞUNGUR HNÍFUR Hrafninn flýgur verður sýndur með spænsku tali en talsetningin þykir einstaklega vel gerð. „Við erum að fara að skoða tvö hús- næði í Kaupmannahöfn í næstu viku með lögfræðingi. Það er hins vegar algerlega óvíst hvort eitthvað kemur út úr því, kannski opnum við fleiri kaffihús en kannski ákveðum við líka að slaka á næstu mánuðina,“ segir Friðrik Weisshappel, athafna- maður í Kaupmannahöfn. Rúm tvö ár eru síðan Friðrik og þrír félagar hans opnuðu The Laundromat Café á Norðurbrú. Kaffihúsið þótti bæði smekklega hannað og skemmtilegt, enda gefst gestum kostur á því að þvo þvottinn sinn á meðan drukkið er kaffi. Fyrir tveimur mánuðum opnuðu þeir félagar svo annað kaffihús með sama nafni, en að þessu sinni á Austurbrú. Friðrik segir að nýi staðurinn hafi sömuleiðis gengið mjög vel. „Þetta hefur allt gengið mjög vel og við erum mjög ánægðir. Það verður hins vegar að segjast eins og er að þetta eru tvö gerólík hverfi, ekki ósvipað og 101 og Kópavogur. Bæði hverfin eru mjög fín en þau eru gríðarlega ólík. Það er því ekki sjálfgefið að sami hlutur gangi upp í báðum hverfum, en við kvörtum alls ekki.“ Þegar Fréttablaðið ræddi við Friðrik í gær var hann staddur í Osló. Hann fékkst ekki til að segja nákvæmlega hvaða erindi hann ætti þangað. „Ég er bara að skoða hvaða tækifæri eru hér, svona miðað við efni og aðstæður,“ segir Friðrik. Hann viðurkennir að það kitli vissu- lega að fjölga kaffihúsunum, enda séu það alþekkt vísindi að það sé auðveldast að eiga eitt, erfiðast að eiga tvö en eftir því sem þeim fjölgi minnki álagið en hagkvæmi og sam- nýting aukist. „En góðir hlutir ger- ast hægt,“ segir Friðrik. Aðspurður segir Friðrik að stemningin sé góð meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn, ekki síst eftir að íslenska Fréttablaðið, Nyhedsavis- en, leit dagsins ljós fyrir helgi. „Ég er ákaflega stoltur af Nyhedsavisen enda tekur það öðrum fríblöðum fram að öllu leyti. Bæði útlit og inni- hald er betra, svo ekki sé minnst á nöfnin á hinum blöðunum. Það mætti til dæmis halda að Dato hafi verið fiskað upp úr gömlum Miami Vice-þætti. Það er með þetta eins og annað, ég er stoltur af löndum mínum í Kaupmannahöfn. Þeir eru að flestu leyti hugmyndaríkari og framtakssamari en Bauninn. Með fullri virðingu er Danaveldi mjög flatt miðað við jarðskjálftalínurit Íslendinga.“ hdm@frettabladid.is FRIÐRIK WEISSHAPPEL: SKOÐAR OPNUN KAFFIHÚSA Í OSLÓ OG KÖBEN Fleiri kaffihús áformuð FRIÐRIK WEISSHAPPEL Ánægður með stemninguna meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn og sérstaklega Nyhedsavisen. Íhugar sjálfur að opna fleiri kaffihús í Köben og jafnvel í Osló. FRÉTTABLAÐIÐ/KS Einar Örn Benediktsson og Curver Thoroddsen í Ghostigital eru komnir til Boston en þeir hafa á undanförnum vikum þeyst yfir Bandaríkin á Ford Fusion bifreið sinni og lagt fjögur þúsund kíló- metra að baki. „Þetta hefur geng- ið áfallalaust fyrir sig og okkur verið tekið mjög vel. Fólkið hérna heldur að svona hljómi öll tónlist á Íslandi, rétt eins og þeir héldu að Sykurmolarnir væru þver- skurður af íslenskri tónlist á sínum tíma,“ segir Einar Örn og hlær en þeir félagar hafa nú lokið við að spila á þrettán af tuttugum tónleikum sínum þar vestra. Orðrómur þess efnis að Sykur- molarnir hyggi á enn frekara tón- leikahald eftir fjáröflunartón- leika sína í Laugardalshöll hefur verið á kreiki eftir að erlendir fjölmiðlar sýndu endurkomu hljómsveitarinnar mikinn áhuga. Þegar Fréttablaðið bar þessar sögusagnir upp á Einar þvertók hann fyrir allar slíkar bollalegg- ingar. „Þetta hefur ekkert verið rætt innan hljómsveitarinnar og eftir því sem ég best veit verða þetta einu tónleikarnir,“ sagði Einar. „Einhver er því farinn að skipuleggja næstu skref Sykur- molanna og eflaust verðum við síðasta fólkið sem fær að vita af einhverju hugsanlegu ferðalagi okkar,“ bætir hann við og segir að upplýsingar um miðasölu á tón- leikana ættu að berast á næstu dögum en reiknar með að rúm- lega fimm þúsund miðar verði í boði enda engin gestalisti. „Þetta eru jú einu sinni fjáröflunartón- leikar,“ sagði Einar. - fgg Fjögur þúsund kílómetrar að baki FERÐALANGARNIR Þeir Einar og Curver hafa lagt að baki fjögur þúsund kílómetra og eru þessa stundina í Boston. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ...fær Jón Gnarr fyrir að leggja sitt af mörkum við að lífga upp á starfsandann á fjölmörgum vinnusstöðum með fyrirlestrum sínum um íslenskan húmor. Skjár einn ætlar að rétta þeim hjálparhönd sem fastir eru í viðjum níkótínfíknarinar. Sjónvarpsstöðin hefur fengið Valgeir Skagfjörð til liðs við sig en hann mun í dægurmála- þættinum 6 til 7 aðstoða nokkra þjóðþekkta Íslendinga við að losna við sígarettuna. Meðal þeirra eru Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, og Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur. Sitt sýnist hverjum um friðarsúlu Yoko Ono enda hefur þessi ekkja John Lennon verið ákaflega umdeild og vilja hörðustu Bítlaaðdáendur skella skuldinni á hana fyrir að hafa leyst upp samstarf einhverrar bestu rokkhljómsveitar heims. Davíð Þór Jónsson lætur sér hins vegar nægja að semja stutta vísu um Yoko og birtir hana á heimasíðu sinni: Að allir þrái alheimsfrið er engin tímaskekkja. En hvernig er að vinna við að vera ekkja? Hollywood-leikarinn Ryan Philippe heldur enn tryggð við Ísland þó að rúmt ár sé síðan hann var hér síðast. Eins og kunnugt er var Philippe hér við tökur á stórmyndinni Flags of Our Fathers og fjölmiðlar birtu mikið af fréttum af skemmtanahaldi leikarans. Var hann meira að segja orðaður við íslenskar yngismeyjar, þrátt fyrir að hann sé kvæntur leikkonunni Reese Witherspoon. Ein þeirra stúlkna sem Philippe var orðaður við var fegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir þó hún hafi aldrei viljað kannast við að nokkuð hafi verið á milli þeirra. Kunnugir segja að leikarinn hafi hrifist svo af Unni Birnu að hann reyni enn að halda sambandi við hana með því að senda gjafir og fleira til að vinna hug hennar. Ekki fer þó sögum af viðbrögðum fegurðardrottningarinnar. - fgg/hdm FRÉTTIR AF FÓLKI Gítarkennari Tónskóli Hörpunnar leitar að gítarkennara. Stundakennsla. s. 822 0398 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.