Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 28
 11. október 2006 MIÐVIKUDAGUR6 Sportbíladagur Audi reyndist lærdómsríkur en umfram allt bráðskemmtilegur. Það er þungbúinn rigningarmorg- unn á sænsku eyjunni Gotlandi. Fyrir utan móttökuhús, gert úr segldúkum, standa rúmlega tut- tugu Audi-bílar og bíða þess eins að verða keyrðir. Við erum stödd á kappakstursbrautinni Gotland- ring, þar sem sportbíladagur Audi fer fram. Sportbíladagurinn er hluti af akstursupplifunardagskrá Audi. Hægt er að kaupa dag, ýmist á kappakstursbraut eða sértilbúinni þrautabraut, og njóta handleiðslu atvinnuakstursleiðbeinenda til að læra að stjórna bílum við aðstæð- ur sem þú kynnist ekki á hverjum degi. Að þessu sinni standa okkur fjórir bílar til afnota; TT sportbíll- inn, RS4, S6 og S8. Allir eru þeir fjórhjóladrifnir, hver öðrum flott- ari og hver öðrum kraftmeiri. Til glöggvunar fyrir þá sem ekki eru Audi-sérfræðingar heita grunnút- gáfur bílanna „A“, til dæmis A6. Kraftmeiri og sportlegri útgáfa hans heitir svo S6 og þegar búið er að bæta enn við aflið og aksturs- eiginleikana heita þeir orðið „RS“, líkt og RS4 er kraftmesta útgáfa A4. Það kann að virðast undarlegt en þetta þýðir að TT-bíllinn var sá kraftminnsti á svæðinu svo miklu munaði, „aðeins“ 250 hestöfl. Dagurinn byrjar á kynningu á starfsfólkinu, bílunum og braut- inni og síðan er farið í bílana, tveir þátttakendur í hvern. Við byrjum á S6 með 435 hestafla V-10 mótor og höldum á þann hluta brautar- innar þar sem fyrsta kennslu- stundin fer fram. Leiðbeinandinn keyrir með okkur í gegnum kafl- ann og útskýrir hvaða línu sé best að taka til að halda hraða án þess að missa grip. Síðan var komið að okkur að prófa og þrátt fyrir að keilur hafi verið settar við inn- og útgangs- punkta í hverri beygju þurfti nokkrar tilraunir til að ná línunni fumlaust. Ef ekki var bremsað á réttum stöðum eða farið of geyst í kröppustu beygjurnar byrjaði bíll- inn að renna á blautu malbikinu og ESP-stöðugleikakerfið greip af manni völdin. Þannig var hægt að komast að því smátt og smátt hversu langt er hægt að ganga. Fyrir næstu þraut fórum við í TT-bílana. Hún gekk út á að sviga á milli keila og aftur var markmið- ið að halda ferð án þess að bíllinn skrikaði. Bragðið reyndist að slá af bensíninu rétt áður en kröppustu beygjurnar voru teknar. Þá flyst þunginn á framhjólin og bíllinn lætur betur að stjórn. Þriðja þrautin var bremsuæf- ing. Í henni keyrðum við 450 hest- afla S8 með V-10 mótor á fullri ferð að merki þar sem við kloss- bremsuðum og stýrðum bílnum í gegnum hindrun á meðan ABS- kerfið sá um að hægja á bílnum. Hljómar einfalt, en ákveðni og yfirvegaðar hreyfingar eru frum- skylirði þess að ekki fari illa. Síðasta þrautin var svo að kom- ast í gegnum krappa beygju með því að bremsa niður og gefa aftur í og hér skipta tímasetningar og aksturslínur öllu máli. Fyrir þessa þraut fengum við 420 hestafla RS4 með V-8 mótor, langsportlegasta bílinn sem við prófuðum þann daginn og þann eina beinskipta. Leiðbeinandinn okkar var ekk- ert yfir sig hrifinn af frammistöð- unni, en um leið og ég fann að hægt var að komast upp með meira hliðarskrið á þessum bíl en hinum án þess að stöðugleikakerf- ið tæki af manni völdin var mér alveg sama - þetta var of gaman til að fara hægar. Eftir skemmtilegasta skóla- morgun sem ég hef upplifað, og athyglisverðasta hádegismat sem ég hef séð lengi, var komið að því að nýta allt sem við höfðum lært. Þátttakendur skiptu sér niður í fjóra hópa, þrír bílar í hverjum hópi og einn leiðbeinandi á undan. Með smá bili fóru hóparnir inn á brautina og áttu að fylgja sínum leiðbeinanda fast eftir. Ég bjóst við að aksturinn mundi byrja rólega til að hita fólk upp en þess í stað var allt gefið á fullt og adrenalínið náði strax tökum á manni. Veðrið hafði skánað til muna og eftir nokkra hringi var aksturslínan í brautinni farin að þorna. Þá gafst meira rúm fyrir hraða en um leið og maður fór út fyrir línuna tók ESP af manni völdin. Í hverjum bíl voru tveir þátt- takendur og hver þátttakandi keyrði fjóra hringi í hverri bíla- tegund, alls sextán hringi. Eftir 32 hringi var okkur þakkað fyrir dag- inn í talstöðinni og þvert á vilja okkar lögðum við bílunum og afhentum lyklana. Fyrsta, og von- andi ekki síðasta, degi mínum á kappakstursbraut var lokið. Ég efast ekki um að ég eigi eftir að búa lengi að þeim ráðum og brögð- um sem okkur voru kennd, en minningin um hraðann, bílana og þennan skemmtilega akstur á samt eftir að ylja mér meira á komandi mánuðum. Ef þú hefur áhuga á að upplifa slíkan dag skaltu skella þér beint á vefslóðina www.audi.de/driving og kanna hvað er í boði þar. Ég á örugglega eftir að gera það fljót- lega sjálfur. einareli@frettabladid.is Skemmtilegur skóladagur Í hringakstrinum í loki dags. Einbeitingin skín úr augunum og hnúarnir hvítna undan dauðahaldinu um stýrið. Hér þýðir ekkert að ætla sér að skipta um útvarpsstöð. S6 í brautinni. Í stuðaranum eru 10 LED- perur sem vísa til jafnmargra strokka undir húddinu. Í upphafi dags. Bílarnir bíða í „pitstopp- inu“ eftir ökumönnum. Eins og sjá má er brautin rennandi blaut og sleip. RS4 lítur við fyrstu sýn út eins og lítill og sætur fjölskyldubíll en er í raun magn- aður sportbíll sem stórskemmtilegt er að keyra, mikið öflugri en TT. Tveir TT-bílar í hringakstrinum í lok dags. Hraðinn var frá 70 og upp í 140 kíló- metra á klukkustund á beinu köflunum. Í bremsuþrautinni á S8, sem má lýsa sem lúxuskerru með fítonskraft og pinnskarpa sportbílaeiginleika. LJÓSMYNDIR: EINAR ELÍ MAGNÚSSON Daewoo lyftarar Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557 Gæði á góðu verði Jeppadekk Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080 31" heilsársdekk verð frá kr. 12.900 www.alorka.is Sendum frítt um land allt! Við míkróskerum og neglum! Úrval af stærðum upp í 33" Opið á laugardögum 9-13 M IX A • fít • 6 0 4 9 7 Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.