Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 38
MARKAÐURINN 11. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR8
F R É T T A S K Ý R I N G
Greiningardeildir viðskiptabankanna spá
almennt góðum hagnaði félaga í Kauphöll
Íslands fyrir þriðja ársfjórðung. Tvenn
stórtíðindi gætu gerst á ársfjórðungnum;
að Kaupþing setji hagnaðarmet á einum árs-
fjórðungi og heildarhagnaður fyrirtækja í
Kauphöll fari yfir eitt hundrað milljarða
króna á fjórðungnum í fyrsta sinn.
Við gerð þessarar fréttar er stuðst við
afkomuspár Glitnis og Landsbankans en
Kaupþing birtir sínar tölur í dag og er því
aðeins stuðst við nokkur fyrirtæki úr spá
bankans.
GÓÐ SKILYRÐI FYRIR BANKA
Það er orðin hálfgerð klisja að tala um ofur-
hagnað fjármálafyrirtækjana en staðreyndin
er einfaldlega sú að heildarhagnaður þeirra
heldur bara áfram að vaxa og vaxa. Innkoma
Existu á hlutabréfamarkað og góð skilyrði
hjá fjármálafyrirtækjum veldur því að met-
hagnaður verður á rekstri þeirra á þriðja
ársfjórðungi.
Tekjur bankanna koma aðallega úr þremur
áttum; hreinar vaxtatekjur, þóknanatekjur og
fjárfestingatekjur. Þar sem síðasti ársfjórð-
ungur var einkar góður á hlutabréfamarkaði,
eins og sýndi sig í fimmtán prósenta hækkun
Úrvalsvísitölunnar, ætti gengishagnaður að
vera áberandi í uppgjörum banka og annarra
fjármálafyrirtækja.
Glitnir spáir því að heildarhagnaður þeirra
fimmtán félaga sem bankinn horfir til verði
samanlagður 94 milljarðar króna. Þar af er
hagnaður fjármálafyrirtækja áætlaður um 84
milljarðar. Landsbankinn reiknar með minni
heildarhagnaði sextán félaga eða rúmum 74
milljörðum króna, þar af nemi hagnaður
fjármálafyrirtækja yfir 68 milljörðum króna.
Alls auka fyrirtækin hagnað sinn um 70 pró-
sent á milli ára, miðað við spá Landsbankans,
en ef Exista er tekið með í reikninginn nemur
aukningin 130 prósentum.
Hér sést því berlega að lítið þarf upp á
til að hagnaður allra fyrirtækja fari yfir eitt
hundrað milljarða króna á þriðja ársfjórð-
ungi. Ef spádómar Glitnismanna rætast þá
næst það takmark, enda spáir Glitnir ekki
fyrir eigin afkomu.
MET FALLA
Kaupþing er í sérflokki hvað öll fyrirtæki
snertir en meðaltalsspá hinna bankanna
fyrir bankann hljóðar upp á 35,2 milljarða.
Þegar haft er í huga að Kaupþing, Glitnir,
Landsbankinn og Straumur skiluðu saman-
lagt 31 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi
þessa árs er um allverulega upphæð að ræða.
Að vísu munar miklu á spám Glitnis og
Landsbankans gagnvart Kaupþingi, tæpum
8,3 milljörðum króna. Burðarás á hagnað-
armet á einum ársfjórðungi sem var sett
á öðrum árshluta árið 2005 þegar félagið
skilaði tæplega tuttugu milljarða hagnaði
eftir góða sölu á Eimskipafélaginu. Þetta met
stendur ekki lengur óhaggað.
Íslandsmetið í hagnaði á einu ári á Exista,
sem skilaði fimmtíu milljarða króna hagnaði
í fyrra en þá var félagið reyndar óskráð. Víst
er að þetta met fellur einnig þar sem hagnað-
ur Kaupþings á fyrstu níu mánuðunum stefn-
ir í það að verða 67 milljarðar króna.
Fyrir árið í heild er bankanum spáð hagnaði
upp á 78,4 milljarða króna en til samanburðar
liggur hagnaður Glitnis og Landsbankans á
bilinu 33-34 milljarðar fyrir sama tímabil.
Gengishagnaður af sölu hlutabréfa í Existu
og skráning þess á markað myndar stóran
hluta hagnaðar Kaupþings á þriðja ársfjórð-
ungi en einnig ættu hlutabréfamarkaðir hér
innanlands og á hinum Norðurlöndunum að
gefa vel af sér. Áfram er reiknað með áfram-
haldandi vexti þóknanatekna hjá bankanum
en að vaxtatekjur dragist saman frá öðrum
ársfjórðungi sökum minnkandi verðbólgu.
Exista, félag sem hefur verið tengt
Kaupþingi sterkum böndum, skilar einn-
ig góðu búi á þriðja ársfjórðungi en tveir
af stærstu eignarhlutum félagsins, bréf í
Bakkavör og Kaupþingi hækkuðu snarpt á
fjórðungnum. Markaðsaðilar spá félaginu
22,2 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi
en Exista tapaði yfir þremur milljörðum á
fyrri hluta ársins.
DREGUR ÚR HREINUM VAXTATEKJUM
Glitni og Landsbankanum er einnig spáð góðu
gengi á þriðja ársfjórðungi en þar sem enginn
„óvæntur glaðningur“ fellur til eins og hjá
FRÁ FJÖLMENNUM AFKOMUFUNDI
GLITNIS Í SÍÐUSTU VIKU Samkvæmt
spám greiningardeilda verður Kaupþing í
sérklassa á þriðja ársfjórðungi og er búist
við að hagnaður bankans verði 35 milljarð-
ar króna. Rekstraraðstæður voru almennt
fjármálafyrirtækjum hagstæðar á þriðja
ársfjórðungi og taka þau mestan hluta
hagnaðar til sín. MARKAÐURINN/GVA
Nást 100 milljarðar króna í hús?
Fjármálafyrirtæki munu taka mesta hagnaðinn til sín nú þegar afkomutölur fara að birtast á nýjan
leik. Kaupþing verður í sérflokki og slær hagnaðarmet Burðaráss og Existu gangi spár markaðsað-
ila eftir. Eggert Þór Aðalsteinsson rýnir í afkomuspár viðskiptabankanna og telur ekki loku fyrir það
skotið að heildarhagnaður verði rúmir 100 milljarðar.
M E Ð A L T A L S S P Á R
M A R K A Ð S A Ð I L A U M
A F K O M U F É L A G A Á
3 . Á R S F J Ó R Ð U N G I *
Kaupþing 35.203
Exista 22.245
Glitnir 7.691
Landsbanki 6.174
FL Group 5.634
Straumur 5.210
Avion Group 4.658
Actavis 2.095
Bakkavör 1.698
Tryggingamiðstöðin 1.160
Mosaic Fashions 1.117
Atorka Group 575
Vinnslustöðin 394
Össur 348
Icelandic Group 188
Marel -12
Alfesca -219
Dagsbrún -1.982
Heildarhagnaður 90.481
* Byggt á afkomuspám Glitnis og Landsbank-
ans. Auk þess hefur Kaupþing gefið út spár
fyrir Actavis, Alfesca, Bakkavör, Marel,
Vinnslustöðina og Össur. Allar tölur í milljón-
um króna