Fréttablaðið - 25.10.2006, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 25.10.2006, Qupperneq 2
2 25. október 2006 MIÐVIKUDAGUR SPURNING DAGSINS Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS OPEL VECTRA GTS Nýskr. 02.05 - Beinskiptur - Ekinn 30 þús. - Allt að 100% lán. Verð 1.980 .000. - STJÓRNSÝSLA „Mér sýnist megin- niðurstaða Ríkisendurskoðunar vera sú að embætti ríkislögreglu- stjóra hafi staðið undir væntingum og sinnt hlutverki sínu,“ segir Haraldur Johannessen ríkis- lögreglustjóri um ítarlega úttekt Ríkisendurskoðunar á embætti ríkislögreglustjórans. Ríkisendurskoðun bendir á nokkur atriði sem betur megi fara hjá ríkislögreglustjóra. Meðal annars lúta ábendingarnar að bíla- flotanum sem ríkislögreglustjóri rekur fyrir lögregluembætti lands- ins og að þeim tíma sem efnahags- brotadeild embættisins ver í rann- sókn mála. „Ríkisendurskoðun telur að íslensk stjórnvöld eigi ekki að sætta sig við að meðferðartími efnahagsbrotamála sé almennt lengri hér en talið er eðlilegt í nágrannalöndunum,“ segir í úttekt- inni. Auk þess segir Ríkisendurskoðun það óraunhæft að stytta málsmeð- ferðartíma efnahagsbrotadeildar án þess að fjölga starfsmönnum deildarinnar er lagt til að samvinna verði tekin upp með ríkislögreglu- stjóra og skattrannsóknarstjóra til að koma í veg fyrir tvíverknað. Þá er lagt til að farið verði að fordæmi Dana og ríkislögreglu- stjóra heimilað að hætta við að gefa út ákæru í máli eða hluta máls ef hún er talin geta haft í för með sé „erfiðleika, kostnað eða með- ferðartíma sem ekki eru í sam- ræmi við þá hagsmuni sem í húfi eru“. Er þetta kallað „að skera utan af málum. Telur Ríkisendurskoðun að með þessari aðferð sé unnt að stytta meðferðartíma umfangs- mikilla efnahagsbrotamála án þess að bera hagsmuni almennings fyrir borð. „Þetta er mjög áhugaverð ábend- ing frá Ríkisendurskoðun; hvort það sé unnt að setja í löggjöf heimildir til þess að skera utan af málum,“ segir Haraldur Johannessen. Ein ábending Ríkisendurskoðunar snýst um það að hlutverk ríkislögreglu- stjóraembættis sé ekki nógu skýrt. „Mér sýnist niðurstaða ríkis- endurskoðunar vera sú að stjórn- völd eigi að kanna hvort embætti ríkislögreglustjóra eigi að þróast í sömu átt og embætti danska ríkis- lögreglustjórans hefur þróast. Þá yrði stjórnun á lögreglunni í landinu meira undir beinni stjórn ríkislögreglustjóra en hún er í dag,“ segir ríkislögreglustjóri sem telur ríka ástæðu til að skoða ábendingar Ríkisendurskoðunar af fullri alvöru. - gar Megi skera smámál frá stóru brotunum Ríkisendurskoðun telur að heimila ætti ríkislögreglustjóra að skera léttvægari hluta frá meintum efnahagsbrotum til að stytta málsmeðferð. Áhugaverð leið, segir Haraldur Jóhannessen ríkislögreglustjóri. SÍMHLERUN „Ég tel nauðsynlegt fyrir samfélagið að þetta mál verði hreinsað út. Það þarf að upplýsa um hverjir voru hleraðir, hvenær og hvaða rök voru notuð,“ segir Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri og þingmaður. Kjartan fékk aðgang að dómsúrskurðum frá Þjóðskjalasafni sem heimiluðu að sími hans væri hleraður í þremur tilvikum á árunum 1961 til 1968. Á því tímabili var Kjartan framkvæmdastjóri Samtaka hernámsandstæðinga og Sósíalista- flokksins. Hann segir athyglisvert við dómsúrskurðina að tilefnið til hlerananna hafi bókstaflega ekki verið neitt. „Sá vottur að rökstuðningi ráðuneytisins, sem þarna kemur fram, gefur ekki minnsta tilefni til þess að telja að öryggi ríkisins hafi verið ógnað, en það er skýringin á hlerununum,“ segir Kjartan. „Einnig virðist dómarinn nánast vera undirtylla ráðherranna og ávallt samþykkja beiðnir um hleranir athugasemdalaust,“ segir Kjartan. „Þarna finnst mér að hafi verið um að ræða ákaflega grófa misnotkun á pólitísku valdi og að mannréttindi hafi verið brotin á okkur sem var verið að hlera hjá,“ segir Kjartan. - sda Kjartan Ólafsson segir dómara undirtyllu ráðherra í úrskurðum um hleranir: Misnotkun á pólitísku valdi STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er frambjóðandi íslenskra stjórn- valda til embættis framkvæmda- stjóra Norrænu ráðherranefndar- innar. Íslendingar sækjast nú eftir stöðunni í fyrsta sinn. Finnar gera slíkt hið sama og er Jan-Erik Enestam, umhverfisráð- herra og samstarfsráðherra Norðurlandanna, fulltrúi þeirra. Sá munur er á framboðum þjóð- anna að Finnar hafa opinberlega tilnefnt Jan-Erik til starfans en Jónína Bjartmarz, umhverfis- ráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna, og aðrir íslenskir ráðamenn, vilja engu svara um til- nefningu Íslands. Norræna ráðherranefndin er samstarfsvettvangur ríkisstjórna Norðurlandanna og hefur hún náið samstarf við Norðurlandaráð. Aðalskrifstofurnar eru í Kaup- mannahöfn og er sameiginlegur starfsmannafjöldi um eitt hundr- að. Nokkrir Íslendingar starfa hjá Norrænu ráðherranefndinni. Halldór Ásgrímsson hefur mikla reynslu af norrænu sam- starfi. Hann var samstarfsráð- herra Norðurlandanna í sex ár og sat í Íslandsdeild Norðurlanda- ráðs í átta ár, auk þess að vera utanríkisráðherra í níu ár. Að líkindum verður gengið frá ráðningunni við upphaf þings Norðurlandaráðs á þriðjudag. - bþs Íslendingar sækjast eftir embætti framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar: Halldór Ásgrímsson tilnefndur HALLDÓR OG JÓNÍNA BJARTMARZ Það skýrist eftir helgi hvort Halldór verði næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráð- herranefndarinnar. Myndin er úr safni. LONDON, AP Breska stjórnin ætlar einungis að veita Búlgörum og Rúmenum afar takmarkaðan aðgang að vinnumarkaði á Bretlandi í að minnsta kosti eitt ár eftir að Búlgaría og Rúmenía ganga í Evrópusambandið, sem verður 1. janúar næstkomandi. Þegar tíu lönd gengu í Evrópu- sambandið árið 2004 fengu íbúar þeirra strax nánast óheftan aðgang að breska vinnumarkaðn- um, með þeim afleiðingum að hundruð þúsunda Austur- Evrópumanna, einkum Pólverja, streymdu til Bretlands í atvinnu- leit. Breska stjórnin hefur verið undir miklum þrýstingi að sjá til þess að þetta endurtaki sig ekki. - gb Næsta stækkun ESB: Bretar hleypa ekki strax inn BÚLGARAR Á HESTVAGNI Myndin er tekin skammt frá bænum Varna í Búlgaríu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Maður var dæmdur sekur í Héraðsdómi Suðurlands á mánudag fyrir stuld á tveimur pokum af harðfiski að verðmæti 1.725 krónur úr versluninni H-Sel á Laugarvatni í maí 2005. Hann hafði neitað sök í málinu. Þetta var þriðji dómur mannsins á rúmu ári en hann hafði áður verið dæmdur til samtals 13 mánaða fangelsisvist- ar fyrir umferðarlaga- og fíkniefnabrot. Manninum var ekki gerð sérstök refsing fyrir harðfiskstuldinn. Kona sem var kærð fyrir aðild að glæpnum var sýknuð af kröfum ákæruvaldsins. - þsj Stal þjóðlegu góðgæti: Dæmdur fyrir harðfisksstuld Er lífsgæðakapphlaupið að taka fram úr börnunum? Já tímabundið, en börnin sigra að lokum. Þorgrímur Þráinsson rithöfundur sagði í Fréttablaðinu í gær að foreldrar þyrftu að fara að muna eftir því að þeir ættu börn og á sama tíma að slaka aðeins á í lífsgæðakapphlaupinu. KJARTAN ÓLAFSSON Tilefni hlerananna var ekki neitt, segir Kjartan Ólafsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í 11 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík- ur fyrir að hafa skallað lögreglu- mann í hægra gagnaugað með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka á andliti og snert af heilahristingi. Auk þess hótaði hann fleiri lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra ofbeldi og lífláti. Þá braut hann skilorð reynslulausnar með athæfi sínu. Maðurinn játaði brot skýlaust. Hann á langan sakarferil að baki og hefur áður hlotið fjölmarga dóma, meðal annars fyrir fíkniefnabrot og nytjastuld. - þsj Dæmdur í 11 mánaða fangelsi: Skallaði lögreglumann Olíuleki Gat kom á olíuleiðslu í Úralfjöllunum í Rússlandi á mánudag, með þeim afleiðingum að um 300 tonn af olíu láku út í óspillta náttúruna. Náði lek- inn yfir um 5.500 fermetra svæði og mengaði meðal annars á sem rennur þar um. Um 140 manns vinna nú að því að hreinsa svæðið. RÚSSLAND RÍKISLÖG- REGLUSTJÓRI Málsmeðferð hjá ríkislögreglu- stjóra tekur of langan tíma. HARALDUR JOHANNESSEN Ríkislögreglu- stjóri segir úttektin sýna að embætti hans hafi staðið undir væntingum. RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI Málsmeð- ferð hjá ríkislögreglustjóra tekur of langan tíma. STJÓRNMÁL Gísli Tryggvason ætlar í fjölmiðlabindindi sem talsmaður neytenda frá 28. október til 4. nóvember. Gísli segist gera þetta þar sem hann gefi kost á sér í forvali Fram- sóknarflokksins fyrir framboðs- lista í Suðvestur- kjördæmi í næstu alþingis- kosningum. Gísli segir engar athugasemdir hafa borist vegna þess að hann gefi kost á mér til setu á framboðslista á sama tíma og hann gegni áberandi embætti. Hann hafi þó tekið þá ákvörðun að koma ekki fram opinberlega sem talsmaður neytenda frá því framboðsfrestur rennur út og þar til framboðlistinn liggur fyrir. - gar Talsmaður neytenda: Fjölmiðlabind- indi á fram- boðsbaráttu GÍSLI TRYGGVASON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.