Fréttablaðið - 25.10.2006, Qupperneq 4
4 25. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
GENGIÐ 24.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,9053
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
68,44 68,76
127,92 128,54
85,77 86,25
11,502 11,570
10,238 10,298
9,311 9,365
0,573 0,5764
100,47 101,07
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Bryndís Ísfold 6. sæti
Lausnir í jafnréttismálum
Opinn umræðufundur um jafnréttismál í tilefni femínistavikunnar
Fimmtudaginn 26. okt. í hliðarsal Café Kulture í Alþjóðahúsinu kl. 21:00
Ellen Kristjánsdóttir
tónlistarkona
Eva María Jónsdóttir
fjölmiðlakona
Katrín Anna Guðmundsdóttir
talskona Femínistafélagsins
fundarstjóri:
Oddný Sturludóttir
varaborgarfulltrúi
Fundinn heldur Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, frambjóðandi í 6. sæti i prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík, 11. nóvember næstkomandi.
HVALVEIÐAR Hvalur 9 kom til hafnar í
Hvalfirði um klukkan þrjú í gær
með aðra langreyðina sem veiðst
hefur á þeirri viku sem liðin er frá
því að atvinnuveiðar hófust á ný. Við
mælingar reyndist hún jafnstór
þeirri sem veiddist á laugardag, eða
68 fet. Þessi hvalur var þó mun feit-
ari en sá fyrri og því fást af honum
meiri og betri afurðir. Kjötið var
sem fyrr flutt til Akraness þar sem
það er unnið í frystihúsi HB
Granda.
Langreyðurin var skotin djúpt
vestur af landinu um hálf fimm
leytið í gær. Fjöldi fólks hafði safn-
ast saman á bryggjunni í Hvalfirði í
gær til að sjá þegar hvalurinn var
dreginn á land og fylgjast með
þegar hafist var handa við
hvalskurðinn. Var það mál manna
að fleiri hefðu verið við hvalstöðina
í gær en á sunnudag.
Sigurður Njálsson, skipstjóri á
Hval 9 og hans menn lögðu af stað á
miðin seinni partinn í gær og verða
þar í birtingu. Sigurður segir nokk-
uð líf vera á miðunum. „Við vorum
búnir að sjá þarna sandreyðar og
þrjár langreyðar. Það var reyndar
leiðindabræla og sást stutt.“
Sigurður segir að það spái leiðinda-
veðri á miðunum og er ekki of bjart-
sýnn á að ná þriðja dýrinu. „En við
sjáum til hvernig gengur. Það gæti
allt eins gengið ljómandi vel.“ - shá
Annarri langreyðinni sem Hvalur 9 veiðir var landað í gær:
Jafn löng en feitari en sú fyrri
HVALASKOÐUN Jafnvel fleiri söfnuðust saman við hvalstöðina í Hvalfirði í gær en á
sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVEITARSTJÓRNIR Hægt verður að
tengjast netinu þráðlaust með
fartölvu hvar sem er í kjarna
miðborgarinnar
ef menningar- og
ferðamálaráð
Reykjavíkur
samþykkir
tillögu fulltrúa
Samfylkingarinn-
ar. Samkvæmt
henni á að kanna
áhuga fjarskipta-
fyrirtækjanna á
því að setja upp
búnað sem gerir
þetta kleift.
„Stefnt verði að því að aðgangur
verði gjaldfrjáls en hugsanlega
með þeim takmörkunum sem
fyrirtækin telja nauðsynlegan, þó
þannig að hægt sé að sinna
algengustu erindum á Netinu,“
segir í tillögu Stefáns Jóns
Hafstein. Afgreiðslu málsins var
frestað á mánudag. - gar
Tillaga í menningarráði:
Ókeypis á netið
í miðbænum
STEFÁN JÓN
HAFSTEINN Vill
þráðlaust net í
miðbæinn.
KYNFERÐISOFBELDI Tveimur stúlk-
um um tvítugt hefur verið nauðg-
að í húsasundum í miðbæ Reykja-
víkur með minna en tveggja vikna
millibili. Fyrra atvikið átti sér
stað aðfaranótt 8. október þegar
tveir menn réðust á stúlku um
tvítugt, rændu af henni peningum
og nauðguðu henni. Annar mann-
anna hélt höndum stúlkunnar
föstum á meðan hinn kom fram
vilja sínum með ofbeldisfullum
hætti. Stúlkan hefur kært nauðg-
unina til lögreglu sem vinnur nú
að rannsókn málsins.
Aðfaranótt laugardagsins réð-
ust tveir menn á átján ára gamla
stúlku og nauðguðu henni
skammt frá Þjóðleikhúsinu.
Stúlkan leitaði hjálpar á neyðar-
móttöku fyrir fórnarlömb kyn-
ferðisofbeldis á Landspítalanum.
Starfsfólk neyðarmóttökunnar
kallaði til lögreglu sem þegar hóf
rannsókn málsins.
Hörður Jóhannesson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn í Reykjavík,
segir lögreglu ekki útiloka að
málin tvö geti tengst en engar
vísbendingar hafa komið fram
við rannsókn málsins sem gefa
tilefni til þess að sömu árásar-
menn hafi verið að verki í bæði
skiptin. Ráðist var á stúlkuna um
hálf sex leytið aðfaranótt laugar-
dagsins 21. október. „Það er ung
stúlka sem á leið um gangstíg
skammt frá Þjóðleikhúsinu. Hún
kemur að tveimur mönnum sem
ráðast á hana. Vísbendingarnar
um það hverjir voru að verki eru
af afar skornum skammti og lýs-
ingar á þeim sem áttu í hlut eru
ekki nákvæmar, eins og gefur að
skilja,“ sagði Hörður.
Hörður segir lögregluna
meðal annars hafa skoðað mynd-
efni sem náðist á öryggismynda-
vélar við hús í grennd við vett-
vang árásarinnar. „Við höfum
meðal annars skoðað myndefni,
eins og alltaf er gert er svona
mál koma upp, en það hefur ekk-
ert sést ennþá sem hjálpað getur
til við framgang rannsóknar-
innar.“ magnush@frettabladid.is
Nauðgunarmál í miðbæ
vekja mjög mikinn óhug
Tvö lík nauðgunarmál hafa komið upp í miðbæ Reykjavíkur með stuttu millibili. Lýsingar á árásarmönnum
eru ónákvæmar en lögreglan kannar hvort tengsl geti verið á milli árásanna. Málin litin alvarlegum augum.
NAUÐGANIRNAR
Nauðgunin aðfaranótt 8. október
Á milli klukkan 04.00 og 04.30 aðfaranótt sunnudagsins 8. október var ráðist
á stúlku um tvítugt og henni nauðgað í húsasundi á bak við Menntaskólann í
Reykjavík. Annar mannanna hélt höndum stúlkunnar föstum á meðan hinn kom
fram vilja sínum með ofbeldisfullum hætti. Stúlkan var á heimleið eftir að hafa
verið að skemmta sér í miðbænum. Hún gekk upp Amtmannsstíg þar sem tveir
menn réðust á hana og þvinguðu hana inn í húsasund. Hún hafði beðið eftir
leigubíl við Lækjargötu en ákvað að labba heim á leið vegna þess hversu biðröðin
var löng. Vegfarandi kom að stúlkunni og aðstoðaði hana við að leita sér hjálpar.
Nauðgunin aðfaranótt 21. október
Á milli klukkan 05.30 og 06.00 réðust tveir menn á átján ára gamla stúlku
skammt frá Þjóðleikhúsinu. Mennirnir neyddu stúlkuna inn á svæði þar sem
ekki til þeirra sást og þar nauðguðu þeir stúlkunni. Um sex leytið fékk lögreglan
í Reykjavík tilkynningu frá starfsmanni neyðarmóttökunnar um að stúlku hefði
verið nauðgað, en hún leitaði hjálpar á neyðarmóttökunni eftir að árásarmennirnir
höfðu látið sig hverfa. Lögreglan hóf þegar í stað að rannsaka málið og vinnur nú
að framgangi rannsóknarinnar. Lögreglan hefur við rannsókn þessara mála skoðað
myndefni sem náðst hefur á öryggismyndavélar í grennd við vettvang.
VETTVANGUR FYRRI ÁRÁSARINNAR
Stúlku um tvítugt var nauðgað í
þessu húsasundi við Menntaskólann í
Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
����������������������������������
�������������
��������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
�����������������
��������������
��������������
�������������
���������������
�������������
�������������
���������������
�������������
�������������
����������������
�����������
������������
�����������
���������������
������� �����
��������������������
���� � ��������������
������� ��� �� ���������
�������������������� ��
���������������������
��� � �������������� �
���� �������������������
���� �������� ������������
���������� ������������
������������������������
���������������������
������������� �� �������������
��������������� ��
� ���������� ������
������� �� ����� � �����
���������������������
�����������������������
�����������
�� ���� ����� ��
����������� �������� �
����� �� ������������
���������������������� �
����� ��������������������������
������������������
��������������������������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
�
�
�
�
�
�
� �
��
�
�
�
�
�
�
�
�
��
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
��
�
�
�
�
� ��
��
SÚDAN, AP Jan Pronk, aðalsendi-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í
Súdan, fór frá Súdan á mánudag
að kröfu utanríkisráðuneytis
landsins, sem bað hann á sunnu-
dag um að hverfa á brott vegna
þess að hann skýrði frá því á
bloggsíðu sinni að stjórnarherinn
hefði beðið verulegan ósigur
tvisvar sinnum í bardögum í
Darfúrhéraði.
Pronk, sem er hollenskur, hélt
til New York þar sem Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, vildi ræða við hann.
Herinn í Súdan brást ókvæða
við ummælum Pronks á heimasíð-
unni, og sakaði hann um að
„stunda sálfræðihernað gegn
súdanska hernum“. - gb
Darfúrhérað í Súdan:
Sendimaður SÞ
rekinn úr landi
SKAMMT FRÁ VETTVANGI SEINNI
ÁRÁSARINNAR Átján ára gamalli
stúlku var nauðgað við Þjóðleikhúsið
aðfaranótt laugardagsins 21. október.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLAN Lögreglan í Reykjavík vinnur nú að rannsókn tveggja
nauðgunarmála sem áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt
8. október og aðfaranótt 21. október. Í báðum tilfellum réðust tveir
menn á stúlku um tvítugt og komu fram vilja sínum með ofbeldis-
fullum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR