Fréttablaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 16
 25. október 2006 MIÐVIKUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Þar fór það, takk Einar K. „Nú þykir ekki lengur „cool“ að vera frá Íslandi heldur „cruel“.“ EINAR BÁRÐARSON UM AFLEIÐ- INGAR HVALVEIÐA Á ÚTRÁS NYLON OG ANNARRA LISTAMANNA. Fréttablaðið 24. október. Hjúkk ... „Ég á ekkert sameiginlegt með Elliða, er bæði ljúfur og góður.“ THEÓDÓR JÚLÍUSSON UM HLUT- VERK SITT SEM ELLIÐI Í KVIKMYND- INNI MÝRINNI. Fréttablaðið 24. október. Á Rangárvöllum búa Berglind Erlendsdóttir og Dennis Pettersen og reka hundasleðafyrirtækið Dogsledding.is. „Við byrjuðum með þetta árið 1999 en höfðum verið að safna grænlenskum sleða- hundum og þjálfa í nokkurn tíma fyrir það,“ segir Berglind. Þau bjóða upp á hundasleða- ferðir á veturna á Mýrdalsjökli og um aðrar snævi þaktar slóðir, en nú í snjóleysinu er boðið upp á ferðir um helgar þegar hundunum er beitt fyrir hjólavagna og þeir dregnir um Heklurætur. „Það er nú bara til að halda hundunum í formi,“ segir Berglind. „Við látum þá hlaupa minnst átta km á dag en þeir geta farið 40-50 km á góðum degi.“ Berglind segir grænlensku sleðahundana mjög rólega og blíða og ef slæmt orð sé af þeim þá er það tilkomið vegna slæmrar meðferðar. „Þetta eru fjölskylduvænar ferðir og við fáum gesti á öllum aldri. Fólk þakkar hundunum ferðina með því að klappa þeim og hundarnir hafa aldrei svo mikið sem glefsað. En þeir eru vissulega ansi nálægt úlf- inum, þeir gelta til dæmis ekki heldur spangóla. Svo eru þetta mikil hópdýr. Við erum með þrjú sleðalið – eyki, eins og það heitir – með níu hundum í hverju liði og hvert lið heldur sig út af fyrir sig. Það er sterk goggunarröð hjá þeim og forystuhundurinn nýtur virðingar, enda ber hann mesta ábyrgð. Forystuhundarnir heita Rasta, Petro og Ghandi.“ Berglind segir alltaf nóg að gera og margir hafa komið oft í ferðir hjá þeim. „Þetta eru ágætlega frægir hundar og búnir að vera í mörgum verkefnum, t.d. auglýsingum og bíó- myndum.“ Hundarnir hafa sést í tón- listarmyndböndum hjá Björk og Quarashi og þeir sáust í kvikmynd- unum Tomb Raider og Guy X, svo eitthvað sé nefnt. „Þeir voru líka í breska barnaþættinum Blue Peter og í framhaldi af því komu margir breskir ferðamenn. Þeir voru mjög spenntir fyrir því að vera með sömu hundunum og höfðu verið í þættinum.“ - glh Grænlenskir sleðahundar við Heklurætur: Ágætlega frægir HUNDARNIR Í PÁSU Draga sleða og hafa leikið með Björk og Angelinu Jolie. Í Mýrinni kemur „Krukku- borg“ nokkuð við sögu, enda er enskt heiti myndar og bókar „Jar City“. Stað- urinn gengur dags daglega undir því virðulega nafni Líffærasafn Háskólans og er staðsett í Læknagarði við Vatnsmýrarveg. Í Krukku- borg eru meðal annars fóstur í formalíni, heilar og önnur líffæri. Ýmsar flökkusögur hafa gengið um safnið í gegnum tíðina – ekki síst um hinn óhugnanlega hálfa haus sem sést í Mýrinni – og Balt- asar Kormákur leikstjóri segir að hann hafi heyrt um það fyrst í menntaskóla. „Ég veit ekki hvort mig dreymdi það eða ekki, en ég hafði sterka upplifun af því að þessi svokallaða Krukkuborg væri í kjallara skeljasandshúss við Barónsstíg. Ég fékk litlar upplýs- ingar um þetta til að byrja með, eins og það vildi enginn kannast við þetta safn, en svo voru þeir voðalega almennilegir við mig í Læknagarði þegar ég leitaði þang- að. Þar fengum við að draga þessi sýni saman og taka atriðið upp, en ég var vinsamlegast beðinn um að taka ekki neitt upp fyrir framan húsið á Barónsstíg. Ég vildi ekki styggja læknastéttina svo ég skaut það atriði fyrir framan Valhúsa- skóla, sem gaf mér svipaðan fíling. Þetta atriði og líkhúsatriðin voru þau einu sem við skutum ekki „on location“. Það var dálítið magnað að vera innan um öll þessi gömlu líffæri og líklega hafa upphaflegu eigendurnir ekki gert sér grein fyrir því að þeir ættu eftir að enda í kvikmynd.“ Í bók Arnaldar er Krukku- borgin í eigu einhvers sérvitr- ings í Hafnarfirði en Baltasar segist hafa ákveðið að færa safnið nær raunveruleikanum. Prófessor Hannes Blöndal er yfirmaður fræðasviðs Háskólans og Líffærasafnið heyrir undir hann. „Það hefur aldrei verið nein leynd yfir þessu safni og það er opið fyrir læknanema og notað af þeim,“ segir Hannes. „Safnið á rætur aftur til áranna 1920-30 og var upphaflega í rannsóknarstofu Háskólans við Barónsstíg. Sýnin eru langflest íslensk, en nokkur eru reyndar erlend.“ Ýmsir hafa fengið aðgang að safninu, til dæmis var hluta af því stillt upp á Menningarnótt fyrir nokkrum árum. Hannes segir þó enga ástæðu til að auglýsa safnið sérstaklega og sér það ekki sem skemmtisafn til að svala forvitni almennings. „Grænleita birtan sem safnið hefur yfir sér í Mýrinni er ekki viðvarandi, heldur eitthvað sem kvikmyndagerðarmennirnir bættu við til að gera þetta kvikmynda- vænna. Annars er ekkert feikað,“ segir Hannes. „Jú, ég er búinn að sjá Mýrina og er ánægður með hana. Ég skildi reyndar ekki alveg hlutverk Kára Stefánssonar í myndinni. Heyrði ekki betur en hann færi bara með sömu rulluna og vanalega.“ gunnarh@frettabladid.is Hvar er Krukkuborg? INGVAR E. SIGURÐSSON SEM ERLENDUR Í MÝRINNI Djúpt sokkinn í rannsóknir í Krukkuborg. BALTASAR KOR- MÁKUR Heyrði fyrst af Krukku- borg í mennta- skóla. „Það er allt meiriháttar að frétta!“ segir Þor- steinn Eggertsson, textahöfundur og rokkari, enda stór dagur í dag. „Í tilefni af því að það eru komin 50 ár síðan rokk og ról heyrðist í útvarpinu og menn fóru að spila þetta á böllum eru tónleikar í kvöld og annað kvöld í Austurbæ þar sem ég og ellefu aðrir söngvarar koma fram með sextett. Þessir söngvarar voru allir starfandi á upphafsárum rokksins, til dæmis Fjóla Ólafs frá Ísafirði, Helena Eyjólfs frá Akureyri, ég og Einar Júlíusson frá Kefla- vík, en hinir eru frá Reykjavíkursvæðinu. Ég byrjaði sjálfur að syngja 1957 og ætla að taka lög sem þá voru vinsæl, Chuck Berry og Buddy Holly bara. Ég sló einmitt í gegn á tónleikum í Austurbæjarbíói 1960 með KK sextett og varð atvinnu- söngvari í framhaldinu. Ég hef ekki sungið í Austurbæjarbíói síðan svo það er aldrei að vita nema maður endi bara ferilinn þarna. Ég hlakka mikið til. Þarna er breytt svið svo maður getur spriklað að vild. Annars er maður bara að skrifa og slæpast eins og vanalega. Ég hef verið að aðstoða Sverri Stormsker með því að snara texta eftir hann yfir á ensku. Hann hefur búið í Asíu í tvö ár og er núna að búa til plötu með fólki þar, sem getur ekki sungið íslenska texta. Þetta verður fantamikil plata hjá Sverri, stór lög og miklar útsetningar. Ég hef líka verið að þýða ljóð og leikrit eftir Birute Mar frá Litháen. Maður hleypur svona úr einu verkefni í annað.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÞORSTEINN EGGERTSSON RITHÖFUNDUR Spriklar í Austurbæ „Við fundum ekki fyrir nein- um áhrifum af hvalveiðunum, enda var þetta tvennt jú að byrja á sama tíma,“ segir Eldar Ástþórs- son, fram- kvæmdastjóri Iceland Airwa- ves, aðspurður um það hvort nýhafnar hval- veiðar hafi haft einhver áhrif á Airwaves- hátíðina. „Þetta var alls ekki neitt í umræðunni, hvorki hjá blaðamönn- um, listamönnum eða bransafólki – enginn veitti þessu minnstu athygli í öllu tónleikaflóðinu. Núna eftir hátíðina erum við á skrifstof- unni að kanna mál líðandi stundar og starfsmenn Hr. Örlygs eru að finna út hvaða opinberu afstöðu við eigum að taka til hvalveiðanna. Það hefur ekki tekist ennþá en við látum vita. Sjálfur er ég grænmetis- æta, borða hvorki kjöt né fisk, en samt finnst mér í góðu lagi að veiða hval. Mér finnst mun mannúðlegra að veiða villt dýr heldur en að ala þau við ömurlegan aðbúnað til þess eins að slátra þeim.“ SJÓNARHÓLL HVALVEIÐAR OG AIRWAVES Engin áhrif ELDAR ÁSTÞÓRSSON Framkvæmdastjóri Airwaves. ■ Á vef Skessuhorns segir frá manni í Melasveit í Borgarfirði sem oft hefur orðið vitni að undarlegu aksturslagi eldri konu. Konan hefur að sögn takmarkaða stjórn á bílnum og er ástæð- an sú að hún er með meðalstóran hund í kjöltunni við aksturinn. Maður- inn hringdi í lögguna og freistaði þess að tal yrði haft af kon- unni. Hjá löggunni fengust þær upplýsingar að ekkert væri hægt að gera vegna þess að engin lög kvæðu á um að bannað væri að hafa gæludýr í fanginu við akstur. Konan og hundurinn eru því væntanlega enn á ferðinni. MELASVEIT: HUNDAAKSTUR Sigþóra Gunnarsdóttir Sölumaður í verslun RV R V 62 17 Höldum óhreinindum á mottunni Úti- og innimottur fyrir íslenskar aðstæður Á til boð i í ok tóbe r 20 06 Úti- og in nimo ttur af ým sum ger ðum og s tærð um …fjarlægir óhreinindi og vætu af skóm …hindrar að gólfið innandyra verði hált …heldur anddyrinu hreinu og snyrtilegu gólfmottukerfið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.