Fréttablaðið - 25.10.2006, Síða 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Er séra Önundur Björnsson á Breiða-
bólsstað í Fljótshlíð fékk ársleyfi fór
hann til Berkeley í Bandaríkjunum að
nema áfallahjálp og pólitíska siðfræði.
„Berkeley er rétt utan við San Fansisco og
við háskólann þar fann ég nokkurs konar
guðfræðitorg með öllum hugsanlegum
greinum. Ég upplifði mig bókstaflega í dóta-
kassa. Þvílíkir fyrirlestrar og prófessorar
sem voru í boði. Og það var sama um hvað
var spurt á bókasafninu, Þórberg, Anderson
... allt var til!“ segir séra Önundur sem fór
utan í júlí í fyrra ásamt konu og börnum og
dvaldi rúmt ár vestra.
Hann segir níu guðfræðiháskóla gefa út
sameiginlegan námsvísi. „Þeir eru úr öllum
áttum, kaþólskir, lúterskir, babtistar, hebrear.
Menn geta innritast í einn skóla og svo siglt
á milli,“ lýsir séra Önundur. Hann fór í sið-
fræði og lagði megináherslu á pólitíska sið-
fræði. „Viðmiðin þar eru hin kristnu gildi
og síðan eru teknir til skoðunar og lestrar
ýmsir pólitískir þræðir. Í þessu námi fékk
ég góða yfirsýn yfir það hvernig kenning-
um og stefnum er beitt bæði til hins góða og
hins neikvæða,“ útskýrir hann.
Fyrir utan siðfræðina lagði séra Önundur
áherslu á áfallahjálp, sérstaklega í stórslys-
um og náttúruhamförum. „Þeir eru sér-
fræðingar á því sviði Kaliforníumenn, því
þeir eru alltaf að bíða eftir stóra skjálftan-
um sem getur riðið yfir klukkan eitthvað í
dag og einnig hefur byggst upp mikil þekk-
ing á áfallahjálp eftir hörmungarnar 11.
september,“ segir séra Önundur. Hann lýkur
lofsorði á prófessorinn sinn, sænskættaðan
„með einhverjum finnskum varahlutum,“
eins og hann orðar það, sem veitti góða
handleiðslu í fræðunum.
gun@frettabladid.is
Líkt og í dótakassa
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
25. október, 298. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.48 13.12 17.35
Akureyri 8.40 12.56 17.12
„Það er hollt að fara burt, horfa heim úr fjarska og upplifa menningu annarra landa ,“ segir séra Önundur, nýkominn úr mastersnámi í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Opinn háskóli er röð fyrir-
lestra og viðburða sem eru
opin almenningi hjá Háskóla
Íslands. Ítalski rithöfundurinn
Dacia Maraini heldur fyrirlestur
fimmtudaginn 26. október
kl.17.30 í Norræna húsinu um
sýn hennar á ítalska samfélagið.
Maraini fæddist í Flórens árið
1936. Hún hefur gefið út skáld-
sögur, ljóð og yfir þrjátíu leikrit.
Hún hefur leikstýrt og framleitt
átta kvikmyndir. Nánari upplýs-
ingar: www.vigdis.hi.is.
Carl‘s Cars er lífsstíls tímarit um
bíla sem líka fjallar um menn-
ingu, tónlist, tísku, kvikmyndir
og hönnun. Tímaritið segir á
heimasíðu sinni að blaðið sé
um og fyrir sköpunargleði fólks,
allt það skrítna sem fólk gerir
og segir, og bílana sem það á
og keyrir. Sjá nánar: www.carls-
cars.com
Nú eru árshátíðirnar að byrja og
fyrirtæki, skólar og aðrir hópar
geysast af stað til að gera sér
glaðan dag í skammdeginu.
Akureyri, höfuðstaður Norður-
lands, hefur upp á margbreytt-
an matseðil að bjóða ásamt
skemmtanalífi og menningu. Sjá
nánar: www.akureyri.is
ALLT HITT
[ NÁM BÍLAR FERÐIR ]
GLEYMDIR OFURBÍLAR
Sumir bílar urðu aldrei
annað en prufueintök
BÍLAR 5
ÖFLUG KENNSLU-
AÐFERÐ
Leiklist hefur verið iðkuð í
ýmsum greinum í Háteigs-
skóla síðustu ár
NÁM 7
Bílalán TM
Sveigjanlegir
möguleikar
með TM - bílaláni
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Ég vil komast í samban
d við traustan
ferðafélaga, sem finn
st gaman að
skoða náttúruna!