Fréttablaðið - 25.10.2006, Side 36

Fréttablaðið - 25.10.2006, Side 36
MARKAÐURINN 25. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR6 Ú T L Ö N D Hagnaður bandaríska netfyrir- tækisins Google nam 733 millj- ónum bandaríkjadala eða rúmum fimmtíu milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er um 92 prósenta meiri hagnaður en fyrir ári. Hagnaður Google hefur auk- ist talsvert í áranna rás en í fyrra skilaði fyrirtækið 381 milj- arðs dala eða 26 milljarða króna hagnaði og var það sjöfalt meiri hagnaður en á þriðja ársfjórð- ungi 2004. Í ár námu tekjur Google, sem að mestu eru komnar frá sölu auglýsinga, 2,7 milljörðum dala eða 184,6 milljörðum króna og er það sjötíu prósenta aukning á milli ára. Eric Schmidt, forstjóri Google, er sagður afar ánægður með afkomu enda hefur markaðshlut- deild fyrirtækisins stækkað tals- vert síðustu misserin. Fyrirtækið mun hafa 45 pró- senta hlutdeild á netmarkaðnum en til samanburðar eru netveitan Yahoo með 28 prósent og hug- búnaðarrisinn Microsoft með tólf prósent af kökunni. Búast má við að hlutur Google stækki á næstunni, sér í lagi eftir kaup á myndskrárveitunni YouTube. Greiningaraðilar á Wall Street í Bandaríkjunum eru sammála Schmidt og segja Google hafa umtalsverða yfirburði yfir keppn- inautana á netmarkaðnum. - jab GOOGLE Eric Schmidt, forstjóri Google, er afar ánægður með afkomu fyrirtækisins sem jók hagnað um 92 prósent á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Hagnaður Google tæplega tvöfaldast Bifreiðar frá sænsku bílasmiðunum hjá Volvo hafa löngum þótt örugg farartæki. Nú hefur heldur betur bæst í viðurkenninga- flokkinn því skutbíll- inn Volvo Estate nýtur nú þess vafasama heiðurs að vera hent- ugasti bíllinn fyrir pör í ástarhug. Breska götublaðið Sun hefur eftir könnun nettryggingafyrir- tækis þar í landi að flest pör horfi til rýmis í bílum þegar löngunin kemur yfir það en þar hefur Volvo Estate vinninginn. Eins og gefur að skilja voru skutbílar og bílar af stærri gerðum í efstu sætum. Af þeim fjögur þús- und einstaklingum sem tóku þátt í könnuninni sögðust 68 prósent ekki geta haldið aftur af sér í bílnum og neyðst til að gera hlé á ferð sinni. Einn af hverjum tíu sagðist hins vegar ekki hafa stöðvað ökutæki sitt á meðan lönguninni var svalað. Þá vitnar blaðið til talsmanns tryggingafyrirtækisins, sem segir að þegar ástarbríminn nái hámarki hjá pörum á ferð í bíl sé nokkur hætta á að innanstokks- munir skemmist. - jab VOLVO Breskum pörum þykir skutbíll frá Volvo hent- ugasti bíllinn til að svala ást- leitni sinni. Volvo Estate bestur í ástarbrímanum Laun stjórnenda hjá fyrirtækjum í Þýskalandi hækkuðu að með- altali um 11 prósent í fyrra en það er talsvert umfram almennar launahækkanir. Það voru hagsmunasamtök þýskra hluthafa sem stóðu fyrir því að kanna hver laun forstjóra í landinu voru í fyrra. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að þýskir forstjórar voru með þrjár milljónir evra, jafnvirði 260 milljóna íslenskra króna, í meðallaun á síðasta ári. Það jafngildir rúmlega 21,6 milljónum króna á mánuði. Stjórnarmenn fyrirtækja voru á sama tíma hálfdrættingar for- stjóranna með 1,7 milljónir evra á ári. Það jafngildir rúmum 147 milljónum króna eða 12,2 millj- ónum króna á mánuði. Josef Ackermann, forstjóri Deutsche Bank, trónaði á toppn- um líkt og fyrri ár með 8,5 millj- ónir evra eða 736,4 milljónir króna í grunnlaun í fyrra. Það er 190,6 milljóna króna hækkun frá árinu á undan. Ackerman ætti að hafa fyrir salti í grautinn því þetta jafngildir því að hann hafi haft 61,3 milljónir króna í mán- aðarlaun. Stórfyrirtæki í Þýskalandi hafa fram til þessa ekki þurft að birta upplýsingar um laun stjórn- enda og hafa verið treg til þess. Frá og með næsta ári þurfa þau hins vegar að gera það lögum samkvæmt. - jab LAUNAHÆSTI FORSTJÓRINN Josef Ackermann, forstjóri Deutsche Bank, hefur ástæðu til að brosa enda var hann launa- hæsti forstjórinn í Þýskalandi í fyrra með 61,3 milljónir króna í mánaðarlaun. MARKAÐURINN/AFP Þýskir forstjórar á ofurlaunum í fyrra Robert Earl er orðinn næststærsti hluthafinn í enska úrvalsdeild- arliðinu Everton eftir að hann keypti 23 prósenta hlut af Paul og Anita Gregg fyrir helgina. Kaupverðið var um 1.150 millj- ónir króna sem þýðir að klúbbur- inn er metinn á fimm milljarða króna. Eitt af því sem Earl ætlar að gera er að draga augu heimsins að Everton. Hann hefur boðið góðvini sínum Sylvester Stallone á Goodison Park. „Sylvester Stallone dáir fótbolta og ég sagði honum frá samningnum. Hann segist vilja koma. Hann hefur nýlega lokið við gerð síð- ustu Rocky-myndar og verð- ur í Englandi í janúar/febrúar að kynna hana,“ segir hann á Soccernet.com. Earl byggði upp mikil auðæfi á keðjunum Planet Hollywood og Hard Rock Cafe og í gegnum þær fjárfestingar hefur hann kynnst fjölda kvikmyndastjarna. Bandaríski fjárfestirinn styður náinn vin sinn Bill Kenwright, stjórnarformann Everton, og ætlar sér ekki að gera yfirtökutil- boð í félagið. Meðal þeirra tæki- færa sem Earl er sagður horfa á er nýr heimavöllur Everton, sem er á teikniborðinu, en talið er lík- legt að hann vilji kaupa réttinn á heiti leikvangsins. - eþa MIKILL SPORTFÍKILL Rocky hefur boðað komu sína á Goodison Park eftir áramót í boði Roberts Earl, nýs hluthafa í Everton. Rocky mætir á Goodison Park Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Michael O’Leary, forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair, boðaði í lok síðustu viku umfangs- miklar uppsagnir hjá samlöndum sínum hjá flugfélaginu Aer Lingus verði yfirtökutilboði Ryanair í flugfélagið tekið. Uppsagnirnar yrðu hluti af hagræðingu í rekstri flugfélagsins, að hans sögn. Aer Lingus var að langstærst- um hluta í eigu írska ríkisins þar til í septemberlok en þá seldi ríkið meirihluta bréfa sinna í almennu hlutafjárútboði. Ríkið er eftir sem áður stærsti einstaki hluthaf- inn með um 28 prósenta hlut en starfsmenn Aer Lingus og lífeyr- issjóður flugmanna hjá félaginu eiga góðan hluta ásamt almennum fjárfestum. Ryanair tryggði sér sextán prósenta hlut í Aer Lingus en jók hann fljótlega í um nítján prósent og gerði í kjölfar- ið yfirtökutilboð í alla hluti þess. Yfirtökutilboðið hljóðar upp á 1,5 milljarða evra, um 130 milljarða íslenskra króna. Það svarar til 2,8 evra á hlut, sem er 0,6 evrum yfir útboðsgenginu. Bæði írska ríkið og starfsmenn Aer Lingus hafa sett sig upp á móti tilboðinu og segja það ekki endurspegla virði þess. Þá hefur Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, sömuleiðis ítrekað, nú síð- ast um helgina, að ríkið muni ekki selja hlut sinn í félaginu. Forstjóri Ryanair lagði hins vegar mikla áherslu á það fyrir helgina, að gangi hluthafar ekki að yfirtökutilboði félagsins muni Aer Lingus verða áfram lítið flug- félag sem sinni innanlandsflugi og stækki lítið. Þá séu miklar líkur á að gengi bréfa í Aer Lingus muni hríðlækka taki huthafar ekki yfirtökutilboði Ryanair. MICHAEL O’LEARY Forstjóri Ryanair segir umfangsmiklar uppsagnir fyrirhugaðar hjá Aer Lingus verði af yfirtöku Ryanair á félag- inu. MARKAÐURINN/AFP Uppsagnir boðaðar hjá Aer Lingus Forstjóri Ryanair segir fjölda manns hjá Aer Lingus verða sagt upp kaupi Ryanair flugfélagið. Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003 um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingar- sjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is. *Nafnávöxtun í EUR á ársgrundvelli fyrir tímabili› 25/9/06 - 24/10/06 Ávöxtun í dollurum 5,0%* K a u p t h i n g L i q u i d i t y F u n d s Kynntu flér kosti Peningamarka›ssjó›a KB banka í ISK, USD og EUR Ávöxtun í evrum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.