Fréttablaðið - 25.10.2006, Side 40
MARKAÐURINN 25. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR10
Ú T T E K T
��� �� � �� ��� ���
��
��
�
��
�� ������� �� ���
��
��� �� � �� ��� ����� ������� �� ���
��
��
�
��
��
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar,
var staddur í bíl sínum í Kaliforníu í
brakandi þurrki og sóls þegar hann
var truflaður við aksturinn. Var hann
beðinn um að lýsa því hvaða þátt
hann teldi stjórnun íslenskra fyr-
irtækja eiga í því hversu greiðlega
hefur gengið hjá þeim á erlendri
grundu. Sagðist hann
í reynd ekki telja að
íslenskum fyrirtækj-
um sé á nokkurn hátt
stjórnað öðruvísi en öðrum fyrir-
tækjum í hinum engilsaxneska eða
skandinavíska heimi.
„Það sem þó hefur örugglega
komið íslenskum fyrirtækjum hrað-
ar áfram en öðrum, hvað varðar
stjórnun, er hve margir íslenskir
stjórnendur hafa dvalið langdvölum
erlendis við vinnu og ekki síst við
nám. Ég held að það sé alveg vert að
athuga hvort Lánasjóður íslenskra
námsmannna hafi ekki bara skipt
gríðarlega miklu máli fyrir útrás-
ina,“ segir Jón og bætir við að frá
upphafi Össurar hafi stjórnendur
fyrirtækisins alltaf átt það sameigin-
legt að hafa stundað nám eða vinnu í
útlöndum. „Á þeim tíma þegar Össur
var lítið fyrirtæki höfðum við ekki
efni á að kaupa alþjóðlega stjórn-
endur. Ef ég hefði þá borið okkur
saman við tvö hundruð
manna fyrirtæki annars
staðar í Evrópu, hefði
það hlutfall starfsfólks sem hefði
lært í útlöndum verið mun hærra
hjá Össuri. Ég held að þetta sé mikill
styrkleiki fyrir minni íslensk fyr-
irtæki.“
Jón telur að það þurfi að fara var-
lega með það að halda því fram að
Íslendingar séu óvenjugóðir í stjórn-
un, eða öðru ef því er að skipta.
“Ég held að þetta íþróttatungu-
mál eigi ekki við í viðskiptum. Við
Íslendingar erum ekkert endilega
betri en aðrir þótt við séum alveg
örugglega jafngóðir.“
Jón segir ýmislegt greinilega hafa
ýtt undir útrásina, eins og mikill
vilji íslenskra fjárfesta til að leggja
til fé. Þar að auki stuðli aldurssam-
setning þjóðarinnar og gott lífeyr-
iskerfi að því að fjármagn streymi
fram og því þurfi að finna farveg.
Það að íslenskt stjórnkerfi sé ekki
mjög þungt í vöfum hafi einnig sitt
að segja þar sem auðveldar og hrað-
ar reynist að ýta hindrunum úr vegi
en annars staðar.
„Ég er alls ekki að gera lítið úr
íslenskum stjórnendum með þessum
orðum, íslenska útrásin virðist að
mörgu leyti vera að heppnast mjög
vel. Ég er mjög stoltur af Össuri og
við höfum náð frábærum árangri
en ég held að það sé ekki út af því,
fyrst og fremst, að við erum íslenskt
fyrirtæki. Það væri mjög mikil ein-
földun að segja það.“
JÓN SIGURÐSSON,
FORSTJÓRI ÖSSURAR
„Ég held að þetta
íþróttatungumál eigi
ekki við í viðskiptum.
Við Íslendingar erum
ekkert endilega betri
en aðrir þótt við
séum alveg örugg-
lega jafngóðir.”
ÖSSUR Í BANDARÍKJUNUM Ein af sex starfsstöðvum Össurar
í Bandaríkjunum.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, um stjórnun íslenskra fyrirtækja:
„Íslenskt“ ekki endilega aðalmálið
Fyrir síðustu aldamót hafði hugtakið „útrás“ ekki
aðra þýðingu í hugum fólks en þá að „fá útrás“. Var
það notað um að losa um einhverjar hömlur innra
með sér, kannski með því sleppa sér í danssveiflu,
fá sér vel í aðra tána eða sprengja sig á hlaupa-
brettinu í World Class. Margt hefur breyst síðan
þá og í dag eru allir sammála um merkingu þessa
orðs sem er nú tákn fyrir glæsta, en oft á tíðum
óskiljanlega, framgöngu íslenskra fyrirtækja í
útlöndum. Þessi mikli gangur hefur ýmist vakið
aðdáun eða tortryggni, eða jafnvel hvort tveggja
í laumi, en sennilega fyrst og fremst forvitni hins
almenna borgara sem enn sér „milljónamæring-
inn“ sem vellauðugan mann og á erfitt með að
hugsa í milljörðum.
Hugmyndin að ítarlegri rannsókn á fyrirbærinu
vaknaði í kolli Snjólfs Ólafssonar prófessors nú í
sumar. Hún fékk góðan hljómgrunn meðal annarra
kennara viðskipta- og hagfræðideildar, enda eru
þeir forvitnir eins og annað fólk og í stakk búnir
til að skoða útrásina með fræðimannagleraugum.
Hafist var handa við undirbúning verkefnisins
fyrir um sex vikum og var meðal annars leitað til
útrásarfyrirtækjanna sjálfra eftir fjárstuðningi.
Þar fengust strax jákvæð viðbrögð og því var unnt
að ráða Auði Hermannsdóttur, sem nýverið lauk
meistaranámi í viðskiptafræði, í fullt starf við
verkefnið. Auk Snjólfs eru þrír í verkefnastjórn,
þeir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, Þórhallur
Guðlaugsson og Runólfur Smári Steinþórsson en
fleiri munu koma að verkefninu á einn eða annan
hátt þegar fram líða stundir.
FRÆÐILEGAR OG HAGNÝTAR NIÐURSTÖÐUR
Markmiðið með rannsókninni er að auka þekk-
ingu meðal fræðimanna, ráðgjafa, embættismanna,
stjórnmálamanna, stjórnenda og annarra og er
stefnt á að niðurstöðurnar verði bæði fræðilegar
og hagnýtar. Eftir um það bil tvö ár er svo stefnt á
að nægilega mikil þekking hafi skapast til að efni
verði komið í spennandi bók um íslensku útrásina.
Þar að auki er ætlunin að birta ítarlega grein í virtu
erlendu fagtímariti.
„Við teljum það mjög áhugavert sem útrásarfyr-
irtækin eru að gera og að árangurinn sé einstakur.
Hvort hann er það á svo eftir að koma í ljós þegar
líður á verkefnið og niðurstöðurnar fara að koma
í ljós,“ segir Snjólfur. „Til þess að geta greint
það á faglegan hátt af hverju, og hvort, íslensku
útrásarfyrirtækin eru að ná svo góðum árangri
þurfum við að byrja á að lýsa útrásinni. Það þarf
til dæmis að skilgreina hver viðmiðin verða. Er
Bakkavör til dæmis íslenskt fyrirtæki eða er það
breskt fyrirtæki sem Íslendingar eiga? Hér var
einu sinni til félag sem hét Icelandair sem allir
landsmenn þekktu. Því var síðan breytt í FL Group
og undir því var Icelandair Group en fyrir nokkru
var sá hluti seldur. Eftir stendur FL Group sem á
ekkert í Icelandair Group. Hlutirnir gerast hratt í
viðskiptum og þetta gerir okkur í sumum tilvikum
erfitt fyrir. Þetta sýnir þó fyrst og fremst hversu
spennandi þetta verkefni er sem við ætlum að fara
að glíma við,“ segir Snjólfur.
MIKILVÆGAR ÞJÓÐFÉLAGSUMBÆTUR
Ýmislegt hefur breyst í íslensku þjóðfélagi að
undanförnu sem hefur skapað íslenskum fyrir-
tækjum hagstæðari vinnuskilyrði. Viðskiptaráð
Íslands hefur fylgst náið með framgangi íslenskra
fyrirtækja í útlöndum. „Það eru nokkrir þættir sem
útskýra þessa miklu og hröðu útrás síðustu ára. Í
fyrsta lagi má nefna EES-samninginn sem opnaði
markaði fyrir vöxt utan Íslands. Þá höfðu breyt-
ingar á skattaumhverfi mjög hvetjandi áhrif á fyr-
irtæki til að vaxa frekar og sú staðreynd að Ísland
er lítill markaður gerði það að verkum að vöxt varð
að sækja erlendis,“ segir Halla Tómasdóttir, fram-
Hvaða kraftur knýr íslensku útrásina?
Viðskiptafræðistofnun
Háskóla Íslands ýtti
nýlega úr vör umfangs-
miklu rannsóknarverkefni
þar sem leitast verður við að
skýra ástæður þess árang-
urs sem íslensk fyrirtæki
virðast vera að ná á erlendri
grundu. Hólmfríður Helga
Sigurðardóttir fékk þrjá
stjórnendur íslenskra útrás-
arfyrirtækja til að velta
velgengninni fyrir sér.
L Ö N D U T A N E V R Ó P U *
Kasakstan
Mongólía
Kína
Japan
Taíland
S-Kórea
Víetnam
Indland
Indónesía
Sádi-Arabía
Sameinuðu arabísku furstaveldin
Ástralía
Nýja-Sjáland
Alsír
S-Afríka
Chile
Brasilía
* Lönd utan Evrópu þar sem íslensk
fyrirtæki hafa starfsemi. Listinn er ekki
tæmandi.